9. getraun Fornleifs

Getraun 9

Ha krakkar, nú er vor í lofti, eins og Vigdís forseti sagđi oft, og ţví tilvaliđ ađ hafa getraun:

Hvađ er ţađ sem sést á myndinni?

Hve gamalt er ţađ?

Hvađan er ţađ ćttađ?

Hvar er ţađ nú?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki getur ţađ veriđ svo gamalt međ alla ţessa exotísku ávexti, perur, plómur og apríkósur.

Líklega er ţetta í Kaupinhavn ţar sem ég sé ađ sonur ţinn speglast ţarna í glerinu. Get mér til ađ ţađ sé ćttađ frá íslandi og sé einhverskonar viđhafnarklćđi, jafnvel kirkjulegt af hégómanum ađ dćma.

Eigum viđ ađ segja lok nítjándu aldar. Gćti ţó veriđ Hollenskt af gulu rósinni ađ dćma eđa allavega undir áhrifum ţađan.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 18:04

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Getspakur ertu Jón. Sonur minn speglađist í ţessu 9 ára og er hann í jakka frá 69 gráđum. Ţađ er eini vefnađurinn og ţjóđlegri getur hann ekki veriđ. Ţetta er í Kóngsins Kaupmannahöfn. Íslenzkur er gripurinn ekki og öldin er alröng. Hollendingar áttu líka svona ...

FORNLEIFUR, 26.10.2013 kl. 18:14

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jćja...einhverstađar verđur ađ byrja....

Ţetta er ţá sennilega öskjulok kringlott eđa sporöskjulaga af myndbyggingunni ađ dćma. Norskir máluđu svona krúsidúllur á tré. Rússar raunar líka, sem og hollendingar, enda hefur ţetta veriđ ofsa heitt á sínum tima. Alţýđulist er ţetta ţó allavega. Eigum viđ ađ segja lok átjándu. Norskt.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 18:26

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Njét og Nejda, ekki lok og lagiđ er rangt og efniđ sömuleiđis. Vissulega var ţetta heitt á sínum tíma en hann er líka rangur hjá ţér. En ţetta var líka dýrt...á ţeim tíma sem ţađ var gert, og ekki síđur í dag.

FORNLEIFUR, 26.10.2013 kl. 18:29

5 Smámynd: FORNLEIFUR

Nú ćtla ég ađ borđa flaniđ og tek pásu.

FORNLEIFUR, 26.10.2013 kl. 18:30

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ţá segi ég lika pass í bili. Ţetta er ţó líklega skál eđa fat úr leir eđa postulíni,jafnvel metal. Danskt. 20. Öldin öndverđ.

Norska rósamálningin er ekki svona raffíneruđ. Hún var heit í lok 19. Einu dýru gripirnir sem mér dettur í hug á ţessu tímabili eru eggin hans Fabergé, en ţetta er tćplega eitt af ţeim, né stćling.

Erfitt ađ átta sig á ţví hvort ţetta er kúpt eđa íhvolft en einhverskonar bjögun er ţarna sem gefur ţađ til kynna, nema ađ ţađ sé myndavélin sem skrumskćlir. Munstriđ hefur miđju og umgjörđ sem leiddi mig í ađ sjá ţetta sem einhverskonar hringlaga hlut.

Er bara ađ hugsa upphátt og reyna ađ rekja eitthvađ nánar útúr ţér. ;)

Ekki laust viđ ađ mađur sjái páfugla ţarna líka, svo kannski er ţetta eitthvađ konunglegt.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 18:57

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ţetta kallar mađur ađ skjóta á hluti međ haglabyssu. :D

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 18:58

8 Smámynd: FORNLEIFUR

Ţetta er marflatt, ekki danskt og ekki 20. öldin. En ţó ţú sjáir hlutina hringlaga, ţá eru ţarna páfagaukar í aldingarđi. En Fabergé var ekki fćddur ţegar ţetta varđ til.

FORNLEIFUR, 26.10.2013 kl. 19:29

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kannski eru klókari tilvísanir ţarna. Kannski er strákurinn hint? Er ţetta hluti af málverki eftir Rubens frá byrjun sautjándu aldar. Ca. 1630. Pćling....

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 20:31

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ţá er ţetta belgískt frá byrjun 17. Aldar.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 20:37

11 Smámynd: FORNLEIFUR

Ég hef ekkert átt viđ myndina. Sonur minn horfđi niđur á ţetta verk og speglađist í ţví. Ţetta er hvorki Rubens, Rúbens né belgískt, en ţú ert kominn nćr í tímanum.

Ţú getur sofiđ á ţessu!

FORNLEIFUR, 26.10.2013 kl. 21:42

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

En hvađ ef mađur getur ekki sofiđ fyrir ţessu?

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2013 kl. 23:29

13 Smámynd: FORNLEIFUR

Nú er komiđ í óefni. Til er mađur á Íslandi sefur ekki út af fornleifum. Bara ef ţađ vćri ţjóđminjavörđur. En ţeir sem valta yfir fornminjar og náttúruna sofa greinilega vćrt.

FORNLEIFUR, 27.10.2013 kl. 04:41

14 Smámynd: FORNLEIFUR

Ţađ er ennţá veriđ ađ framleiđa gripi eins og ţennan sem myndin er af, m.a. á Indlandi, en í byrjun 18 aldar var svona gripur konungagjöf og kostađi um 24000 ríkisdali. Nú vona ég ađ ţú sofir eins og steinn, Jón.

FORNLEIFUR, 27.10.2013 kl. 04:45

15 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

(Brot-fanlaus) blćvćngur.

Helga Kristjánsdóttir, 28.10.2013 kl. 01:19

16 Smámynd: FORNLEIFUR

Nei, Helga, ţetta er úr harđara efni og miklu stćrra en blćvćngur

FORNLEIFUR, 28.10.2013 kl. 07:51

17 identicon

Ţađ vćri betai ef myndin vćri stćrri. Er ţetta ekki ćttađ úr steinaríkinu? Intarsia úr steini. Kannski á Rosenborg. Hluti af borđi sem viđ sjáum.

Gísli Fridrik Gislason (IP-tala skráđ) 28.10.2013 kl. 19:36

18 Smámynd: FORNLEIFUR

Gísli, ţú hittir naglann á höfuđiđ. Ţetta er pietra dura borđ í Rosenborgarhöll  í Kaupmannahöfn, og kannski vćri best fyrst ţú varst svona klár, ađ ţú fengir ađ gefa okkur dagsetninguna og hvađa konungur átti ţetta og hvar borđiđ var búiđ til. 

Gísli Friđrik Gíslason, sem ég veit engin deili á, og biđst afsökunar á ţví, leysti ţessa gátu ţrátt fyrir litla mynd. Ég mun á nćstu dögum sýna ykkur stćrri mynd af borđinu.

Ţakka Jóni Steinari , sem ég vona ađ hafi getađ sofiđ ţrátt fyrir heilabrotin, og Helgu fyrir ţátttökuna. 

FORNLEIFUR, 28.10.2013 kl. 23:31

19 identicon

Eins og ţú veist ţá erum viđ ađ tala um Kristján 4 (1588-1648). Borđiđ er frá Flórens. Á ég ađ senda ţér myndgátu viđ tćkifćri?

kv.

Gisli Friđrik Gislason (IP-tala skráđ) 29.10.2013 kl. 16:04

20 Smámynd: FORNLEIFUR

Nei, Gísli, ekki er Ţađ Kristján 4. enda margt fleira í Rósenborgarhöll en frá hans tíma. Friđrik 3 átti ţetta borđ, sem ţó hefur veriđ gert í Fierenze, ţar sem helstu verkstćđin voru.

Ţađ var flott hjá ţér ađ uppgötva ţetta. Ţetta var nokkuđ erfiđ getraun.

Sendu mér endilega myndagetraun, sem ég mćtti kannski birta, og ţá gćtir ţú stjórnađ leiknum.

FORNLEIFUR, 30.10.2013 kl. 06:50

21 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Flott er ţađ.

Ragnhildur Kolka, 30.10.2013 kl. 12:52

22 identicon

Ertu nú viss meistari? Ţeir selja minjagripi á ísskápinn á Rosenborg og ţar er borđiđ kennt viđ C.4.

http://dkks.dk/magneter/

Gisli Fridrik Gislason (IP-tala skráđ) 31.10.2013 kl. 06:02

23 Smámynd: FORNLEIFUR

Friđrik 3.

Meistarinn er aldrei viss, og ţetta var góđ spurning. Viđ nánari athugun kemur í ljós ađ listfrćđingar vilja hafa ţetta borđ Kristjáns 4. og telja fótinn međ fangamarki Friđriks sonar hans vera seinni viđbót. Ég fć ţó hvergi séđ, ađ fyrir ţví sé nokkur fótur. Mótíviđ er mjög líkt ţví sem mađur sér á öđrum borđum frá Fierenze um miđja 17. öldina, en taliđ er ţetta borđ hafi veriđ í Friđriksborgarhöll, en ţađan kom ţađ fyrst á 19. öld til Rósenborgar. En í ţeim heimildum sem ég hef fyrir framan mig er ekki međ vissu hćgt ađ segja ađ ţetta borđ hafi veriđ keypt af Kristjáni 4. og engar heimildir eru til um eldra borđ undir ţessari steinplötu.

FORNLEIFUR, 31.10.2013 kl. 09:08

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband