Gleđilega hátíđ

falkafani.jpg

Eins og kunnugt er áttu Jón Sigurđsson og Ingibjörg Einarsdóttir páfagauk mjög skrafgjarnan og áhugasaman um pólitík. Hann var kallađur Poppedreng, sem var mjög algengt nafn á páfagauka í Danmörku, og er enn. Í einu af kvćđum Řhlenschlägers bregđur Poppedrengen fyrir (sjá hér). Annars var Poppe komiđ úr ţýsku og var gćlunafn fyrir ţá sem voru svo ólánsamir ađ heita Jakob. Hefđi Jón ţví međ réttu átt ađ kalla gauk sinn Kobba.

nonni_og_imba_1262287.jpgHvort Poppedrengen hafi veriđ á hćgri eđa vinstri vćngnum, er ekki vitađ, en hann skipti sér iđulega af stjórnmála- viđrćđum á heimili Jóns og Ingibjargar. Ţegar of miklar öfgar voru komnar í fuglinn og hann var farinn ađ kalla andstćđinga sína ljótum nöfnum, var í snarheitum breitt klćđi yfir búriđ sem hann bjó í til ađ róa kvikindiđ niđur. Kem ég hér međ ţeirri ađferđ til skila til háttvirts forseta Alţingis.

Ekki er til ljósmynd af Poppedrengen svo vitađ sé, en Fornleifur óskar í stađinn lesendum sínum gleđilegrar hátíđar á afmćli Jóns međ silkibút ísaumuđum međ hinum konunglega íslenska fálka. Svona smádúk gátu heppnir reykingamenn í Belgíu og Hollandi átt ţađ til ađ finna í sígarettupökkum fyrir rúmum 100 árum síđan. Ţađ hefur vćntanlega glatt margan krabbameinssjúklinginn.

Ef til vill hefur Sigurđur Guđmundsson ćtlađ sér ađ hanna páfagauksmerki til heiđurs Jóni, en ţá tekist ţađ svo illa ađ úr varđ fálki. Ţađ er ađ minnsta kosti vinnutillaga dagsins.

picasion_com_4914de44e726a26def307bced518ae66_1262296.gif


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţetta er ágćt hugmynd og ađ öllum líkindum rétt. Ţađ er ţekktur siđur ađ gera fyrirmönnum merki međ dýrum sem framandi eru á ţeirra slóđum eđa hvergi til nema í hugmyndaheiminum og nćgir ađ benda á skjaldarmerki Íslands og Danmerkur ţví til stađfestingar, ţar sem bláum ljónum, risa og finngálkni bregđur fyrir. Til ađ sjá geta veriđ allnokkur líkindi međ fálka og páfagauki, sérstaklega ef mađur er ekkert ađ hengja sig í smáatriđi. Ţví má vel vera ađ gaukur hafi orđiđ valur í pensildráttum málarans og hefur annađ eins gert.
Getur veriđ ađ gaukur Jóns og Ingibjargar hafi sloppiđ úr haldi, gerst útlagi i hinum danska beykiskógi og aukiđ ţar kyn sitt? Ég hefđi haldiđ ţađ firru eina ţar til í vor snemma ađ úr trjálundi vćnum á Falstri bárust skrćkir páfagauka viđ sólsetur. Ţetta var međ ólíkindum en hafandi áđur heyrt ómstrítt org gaukanna á suđlćgari breiddargráđum ţóttist ég nćsta viss. Og viti menn. Hiđ alvísa internet stađfestir ađ páfagaukar hafa ađ sönnu numiđ land í Danmörku, sbr. http://www.dof.dk/om-dof/nyheder?nyhed_id=255
Og ekki nóg međ ţađ. Mig grunar ađ ţeir hafi líka fengiđ kosningarétt.
Gleđilega ţjóđhátíđarrest Fornleifur góđur.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráđ) 17.6.2015 kl. 18:53

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Du har skudt papagřjen, ađ venju Christian. Óţolandi eru fuglar sem í sífellu segja "Poppedreng ha´ sukker - Poppedreng ha´ sukker", en slíkt gagna stjórnmál mikiđ út á.

Samt ţćtti mér öfgar og dýraplagerí ađ breiđa teppi yfir allt fuglahúsiđ viđ Austurvöll. Nóg er ađ skapa nótt fyrir illfygli ţau sem mest eru til vandrćđa. Menn geta skotiđ ţau niđur í kosningum, jafnvel ţótt sumt fiđurfé sé nćrri ófleygt eins sumar álkur og mörgćsir. Ljótt er hins vegar ađ skjóta furđufugla í útrýmingarhćttu, tittlinga, rindla og lóur og er ekki líka búiđ ađ friđa skarfa. Vendisnípur eru friđađar í Fćreyjum.

Margir fuglanna sem hreiđrađ hafa um sig viđ Austurvöll hefur veriđ klakiđ út í hitakössum sem framleiđa ţađ sem á erlendum málum eru kölluđ avis, og sem nú er nćr útdauđ tegund í hinu hreina formi. Úrkynjun úr fúleggjum líkt og DV-krákuna mćtti breiđa yfir án ţess ađ tjáningarfrelsi gaggandi vitlausra fugla vćri misbođiđ.

Mundu, nćst er ţú ferđ á ţá marflötu eyju Falstur og er grćnar pútur angra ţig međ gargi fram á rauđa nótt, ađ páfagaukar eru ekki eins friđađir í Danaveldi og á Íslandi. Á Íslandi er hinn ofsótti ófiđrađi KFChicken orđinn ţjóđarréttur sem lifandi ógnar verkfallsrétti og sem gerir aligćsir ađ farfuglum. Eins gott er ađ Tommaborgarar séu ófleygir.

Hćtti ég nú ţessu arnarţusi svo smáfuglarnir sem tína hér upp frć viskunnar fari ekki ađ nota fleiri heilasellur en ţćr sem Guđ á himninum hefur gefiđ ţeim til ađ reyna ađ skilja ţessa háfleygu fuglafrćđi á 17. júni annó 2015. Skál í vatni, ef ţú átt slíka nćrri pinna ţínum.

FORNLEIFUR, 17.6.2015 kl. 22:56

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Ég frétti af ţví ađ gargandi stjórnlausir hettumáfar hefur veriđ ađ ybba gogg í dag fyrir utan fuglabúriđ. Ţeir eru ekkert betri en ránfuglarnir.

FORNLEIFUR, 17.6.2015 kl. 23:02

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Mćli ég međ ţví ađ menn hlusti á upptökur rauđţrastar máli mínu til sönnunar: http://hljod.blog.is/blog/hljod/entry/1803102/

FORNLEIFUR, 17.6.2015 kl. 23:09

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband