Ró á Austurvelli

Wood nr. 15 Fornleifur copyright

Númer 15 er fundin! Laterna magica skyggnumyndina hér að ofan, sem er handlituð, fann skyggnubirgir minn á Englandi nýlega í ruslakistu sinni. Sú kista reynist honum drjúg tekjulind, enda situr hann á miklum fjársjóð sá góði maður.

Myndin er úr röðinni góðu sem sem Riley Brothters og E.G.Wood framleiddu í samráði við menn á Íslandi og Skotlandi, og sem ég skrifaði um á Fornleifi fyrra í 10 köflum.

Myndin er af virðulegu þinghúsi okkar þar sem allt er nú í uppnámi nú vegna alls konar óra í sjóræningjum og æringjum. Einnig má sjá dómkirkju höfuðstaðarins. Þessi mynd var tekin af Sigfúsi Eymundssyni og er t.d. þekkt á Þjóðminjasafni í tveimur gerðum (sjá hér ; Lpr-380 í lélegu ástandi.  Hina (Lpr-1152-9) er að finna í ljósmyndabók af ljósmyndastofu Sigfúsar Eymundssonar. Bókin lá frammi á stofunni og gátu viðskiptavinir pantað myndir úr henni. Margar myndir úr þessari ágætu bók sendi Sigfús líklega til þeirra sem framleiddu laterna magica skyggnur. Ljósmyndin er af Þjóðminjasafni sögð vera tekin 1882-1883.

Austurvöllur Sigfús

Nokkuð merkilegt er að ná í þetta og ég bíð eftir tveimur myndum til viðbótar, sem sagt verður frá við tækifæri á Fornleifi.

Drengurinn sem hallar sér upp að girðingunni við Austurvöll er Daníel Benedikt Daníelsson (1866-1933), sem var ættaður  norðan  úr Húnavatnssýslu. Hann var skráður sem smali á Þóroddstöðum í Staðarsókn um 1880. Miklu síðar gerðist hann bóndi í Brautarholti í Kjós. Starfaði einnig sem ljósmyndari, kaupmaður og veitingamaður á Selfossi og að lokum sem dyravörður í Stjórnarráðinu. Frægar eru Kleppsvísur í Speglinum sem fjalla um þegar hann reið sem sendill Hriflu-Jónasar með uppsagnarbréf handa Helga Tómassyni lækni á Kleppi (sjá hér).  Ef myndin hefur verið tekin 1882-83 hefur Daníel ekki verið eldri en 17-18 ára gamall.

Daniel Ben Danielsson

Myndin á skyggnunni hefur verið skorin aðeins þannig að ekki sést t.d. í styttuna af Bertel Thorvaldsen sem þá stóð á Austurvelli.

Mér þykir sjálfum afar gaman að sjá þessa mynd af Alþingishúsinu nýbyggðu. Langalangafi minn Sigurður Bjarnason sem fluttist úr Skagafirði vegna fátæktar (hann var það sem í dag er kallað flóttamaður) og sonur hans Þórður (sem unglingur) unnu báðir við byggingu Alþingishússins.

Alþingishúsið 1883 b

Þegar Sigfús tók þessa mynd stóð hann ekki langt frá hinum mjög svo umtalaða Víkurgarði sem allir vildu bjargað hafa. Þar telja fornleifafræðingar sig hugsanlega hafa fundið heiðnar grafir undir þeim kristnu. Ég leyfi mér að efast um það þar til ég sé sannfærandi sönnunargögn því til stuðnings.

Ég tel persónulega að með eins mikla byggð og nú hefur verið sýnt fram á í kvosinni á víkingaöld, hafi kuml landnámsmanna og afkomenda þeirra, sem ekki voru kristnir, verið ekki mjög langt undan. Ég leyfi mér að benda á mjög merka ljósmynd í fórum Ljósmyndasafns Þjóðminjasafnsins OKKAR, sem tekin var  árið 1868 og einnig af Sigfúsi Eymundssyni. Tel ég myndina sýna staðinn þar sem Ingólfur og hinir íbúarnir í Víkinni voru heygðir. Þarna á þúfunum (kumlunum) er löngu búið að byggja hús. En hver veit – í garði rússneska sendiráðsins eða aðeins sunnan við hann gæti verið að kuml fyrstu "víkinga" Víkur séu enn að finna undir reynitrjánum.

Reykjavík 1868

Þegar Hótel Kirkjugarði verður plantað niður í Víkurgarð - því menningarlegu peningavöldin, sem stjórna boginni nú, eru afhuguð menningu - ætla ég nú rétt að vona að hótelhaldarar verði þjóðlegir og hafi myndir í römmum af beinum úr garðinum og nærmyndir af holdsveikum í morgunverðarsalnum. Það er áhugavert fyrir ferðamenn að stúdera slíkt þegar þeir borða árbítinn, innifalinn eða óinnifalinn. Ég er til í að láta hóteleigendum í té litmynd af Austurvelli frá 1889! til að hafa yfir kaffivélinni, en það mun vitaskuld kosta þá dýrt.

Menning kostar nefnilega, en það er svo billegt að eyða henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér finnst þú fara nærri, en myndin virðist nær kirkjunni. Samt virðist myndin svolítið þjöppuð, líkt og hún sé tekin á allavega 70-100mm linsu. Veit ekki hvernig linsur voru á þessum velum í den.

Mér finnst Ingólfstorg lika vænlegur staður fyrir minjar um byggð. Það var alveg við hafnarkrókinn forðum. Er það ekki rétt? Kannski eru öndvegissúlurnar þar. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 11:05

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Er ekki talið að súlurnar hafi verið í einhverju húsi í Víkinni fram á 13. öld. Gaman væri nú ef við hefðum myndir af þeim. Byggðin í fornu Reykjavík er öll að skríða saman á teikniborði forleifafræðinnar og að lokum finnum við Saabinn hans Ingós í karportinu með súlurnar uppi í rjáfri.

Eru Yasichu kassamyndavélar ekki með 70 mm. linsur. Ég á tvær en man ekki víddina.

FORNLEIFUR, 20.9.2017 kl. 18:24

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef fókuslengdin er ekki merkt á linsuna, þá eru nokkrar aðferðir til að mæla þetta.

Oftast þarftu að vera með linsuglerið sér á standi til þess. Hugsanlegt er að opna fókusinn alveg (setja hann á núll og síðan setja mynd framan við vél og færa hana til þangað til hún er í fókus. Þegar myndin er í góðum fókus, þá er lengdin milli myndfæatar og miðju linsu nokkurnvegin rétt. (Gróf mæling). Ef það eru td. 7cm þá er þetta 70mm linsa. Betra er að vera með einhvern ljósgjafa í stað myndar eð lýsa myndina vel.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 19:45

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Optiker gæti hjálpað þér að finna þetta nákvæmar.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 19:45

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ósennilegt að neðsta myndin sé tekin á Yasichu, þar sem þær vélar komu fyrst á markað 1949.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 19:52

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ein elsta vélartegund sem enn er við lýði er Voigtlander og voru linsurnar á þeim um 150mm convex linsur (einfalt gler).

Þetta gæti vel átt við þessa síðustu mynd því aðdrátturinn er talsverður, sem sést á því hve nærri menntaskólinn virðist vera dómkirkjunni.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 19:58

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fyrstu myndin ætti að vera hægt að finna út ef maður getur sirkað út staðinn sem hún var tekin á. Það ætti að vera mögulegt, þar sem aðstæður hafa lítið breyst. Það þarf bara að fara með venjulega 24-70mm súmmlinsu og breyta fókuslengd þar til rammann ber við Kirkju og alþingishús á svipaðan máta. 

Eina slæma við slíkt er að myndavélar í dag eru með formatið 3:4eða 16:9 en þessi mynd er líklega í formatinu 2.5:2. Það þarf því að taka nokkrar prufur í misjafnri fókuslengd og kroppa myndirnar í þetta format í myndvinnslu. Ekki ósvipað polaroid formati sýnist mér.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 20:18

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Varðandi öndvegissúlurnar, þá er svipaður möguleiki á að þær hafi varðveist eins og borðið sem Jesú smíðaði og sýnt er túristum í Nasaret. :)

Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2017 kl. 20:21

9 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Er ekki heldur ólíklegt að kuml sé að finna í halla, brekku? Án þess að ég sé með dæmin klár, minnir mig að þær myndir sem ég hef séð af slíkum grafreitum séu allar af sléttlendi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 20.9.2017 kl. 21:34

10 Smámynd: FORNLEIFUR

Jón, ég taldi nú víst að Yasicha kassamyndavélar hefðu ekki verið í sölu árið 1868. Súlur Ingólfs sáust síðast er fréttist á 13 öld og hafa þá líklega verið komnar úr móð. Þakka fyrir þessar tæknilegu upplýsingar. Fornleifur er óttalegt villidýr þegar að kemur að tækni. Hann stútar tölvu á innan við ári og öll tæki una sér illa í nágrenni við hann.

Sigurður, kuml finnast helst þar sem þurrt er. Örugglega ekki ofan í eðjunni í Kvosinni. Kumlateigar eru ekki alltaf á sléttlendi. Þarna á myndinni er reyndar mjög vægur halli og virðast þúfurnar vera ofan á hæð og í nokkurri fjarlægð frá húsunum. Myndin er dálítið kúnstug.

Er nú ekkert annað að gera í stöðunni, en að fá leyfi Pútíns keisara til að grafa eftir Ingó í bakgarði sendiráðs Rússlands.

FORNLEIFUR, 21.9.2017 kl. 05:38

11 Smámynd: FORNLEIFUR

Kannski vill rússneska sendiráðið ekki leyfa Fornsleifastofnun Íslands að grafa í bakgarðinum. Þá verður enn meiri átilla til þess að kæra málið til NATO. Það er við hæfi að helsti kommísarinn hjá sjálfseignastofnuninni Fornleifastofnun Íslands heitir Adolf. Stundum veltir lítil þúfa vestan við Dómkirkjuna þungu hlassi.

FORNLEIFUR, 21.9.2017 kl. 05:50

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hallinn er ekkert verulegur þarna Sigurður. Það er nú kikjugarður rétt sunnanvið.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.9.2017 kl. 07:23

13 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Verulegur halli er nú þarna á myndinni og enn er þarna hæðarmunur þó kirkjugarðurinn sé á sléttlendi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 22.9.2017 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband