Enn ein Harpan - og af hverju ekki?

tumblr_d0e250469269051268cf8f75c01c16ff_3a33b7f2_540

Öll ritstjórn Fornleifs, og einnig hreingerninga- og gæsludeildin, sem er stærri en allar hinar deildirnar hér á Fornleifi, óskar nýjum Þjóðminjaverði, Hörpu Þórsdóttur, til hamingju með starfið sem þjóðminjavörður.

Harpa getur varla orðið verri á þeim stóli en forverar hennar. En nú er þessi varðmannsstaða ekki lengur svipur hjá sjón, eftir alls kyns slys og kúnstugheit sem þjóðminjaverðir hafa sýnt eftir að Kristján Eldjárn var og hét. Sumir töldu hann líka hálfótækan enda er landið víða lítið og lágt. Menn horfa allt of rómantískum augum á þetta embætti gæslumannsins, sem ekki hefur haft þann glæsileika sem það hafði er Eldjárn var allsráðandi og hafði burði til þess. Guðmundur Magnússon gaf líka takta á góðum dögum, en... síðan fór sem fór.

Mikið fjaðrafok hefur orðið vegna þess, hvernig að stöðuveitingunni var staðið. Það er auðvitað skiljanlegt, en kemur ekkert á óvart. Menn búa á Íslandi, þar sem lög haf ekki endilega verið til þess fallin  að fara eftir þeim og reglur ekki neitt sem menn nauðsynlega þurfa að fylgja. Þannig er Ísland og slíkt kemur mönnum alltaf í koll. Íslenska lýðveldið er ein stór undanþága, veitt í sjálfumánægjukasti og fullvissu um endalaust ágæti sitt og snilli. Þeir frekustu og ósiðlegustu eiga best uppdráttar í slíkum samfélögum. Sumir kallað þetta frumskógarlögmálið. Mig grunar að fyrrverandi þjóðminjavörður hafi valið eftirmann sinn, ef þið skiljið. Hinar furðulegu ráðningarheimildir ráðherra hlýtur að ver áhyggjuefni í hvaða lýðræðisríki sem er. Það er annað mál, sem ætti kannski að taka fyrir hjá eftirlitsstofnunum í útlöndum sem hafa Ísland á könnu sinni. En kannski er ekkert til að brjóta heila sinn yfir, þegar þingheimur landsins er að velta því fyrir sér að setja alla Rússa í bann.

Ég sá að einhver heimtaði að Harpa segði af sér. Svo einfalt er málið nú ekki þegar íslenskur ráðherra hefur leikið einræðisherra í kósakkafötum. Ég held að það sé eðlilegra að ráðherrann sem réði hana seti skottið á milli lágfótana og hverfi alfarið úr stjórnmálum. Hinar furðulegu ráðningarheimildir ráðherrans hljóta að vera áhyggjuefni í lýðræðisríki. Það er annað mál, sem ætti kannski að taka fyrir hjá eftirlitsstofnunum sem hafa Ísland á könnu sinni. En kannski er það ekkert fyrir Íslendinga að vera að brjóta smáa heila sína yfir slíku, þegar þingheimur landsins er að velta því fyrir sér að setja alla Rússa í bann og taka þátt í 3. heimsstyrjöld sem fórnarlömb.

Já, Ísland er líklegast orðin hálfgerður sjálfsmorðsrússabani - Thanks for the ride eins og Roy sagði við Trigger þegar sá síðarnefndi var seldur til Hamborgarmanna. Kæra þjóð, þú verður aldrei betri, þó þú ætlir þér það: Vous n´etes qu´un groupe de sauvages immoraux au bord du Monde  -  Flestir Íslendingar eru bara einfaldir villimenn með hreint hjarta eins og Fornleifur.

Nokkrir góðir vinir hafa spurt mig, hvað mér finnist um að dóttir Þórs Magnússonar fyrrverandi Þjóðminjavarðar sé sest í stól pabba síns. Ég vissi reyndar ekkert hverra manna hún var fyrr en mér var sagt það um daginn - og svara því til að börnin beri ekki ábyrgð á gerðum feðra eða mæðra sinna. Þjóðminjasafnið hefur ekki lengur á könnu sinni allt það sem aumingja Þór baslaði með og gat með góðu móti ekki komist yfir þótt honum væri á margan hátt stjórnað af fígúrum utan safnsins.

Njótið Hörpu. Hún gæti jafnvel orðið besti vörður Þjóðminjasafnsins sem sögur fóru af. Í fljótu bragði sýnist mér að hún sé til þess líkleg að hún komi með helling af gotti í kaffið, þegar hún hefur verið í útlöndum. Það er eitt það mikilvægasta sem á safninu gerist. Fóðrar maður fræðimennina með M&M og vínilbrauði, halda þeir bókstaflega kjafti.

En Harpa verður að vara sig að segja ekkert ljótt við, eða um, starfsmenn sína líkt konan á nágrannastofnuninni, Minjastofnun, gerir stundum þegar hún hefur gleymt að reka fólk sem hún réð tímabundið. Minjastofnunarkonan fer brátt að hætta og kemur þá örugglega kona í konu stað, nema að hún verði borin út gegnum þekjuna og flokksgæðingi með réttu litningana verði troðið á bás hjá Minjastofnun án þess að nokkur grenjandi fornleifafræðingur verði spurður eða umsóknarferli fari í gang. Ég vona að endalokin eða valdaránið á Minjastofnun verði ekki til mikilla vandræða fyrir fornleifafræðinga og jafningja þeirra. Nógur er vandinn samt fyrir þessa voluðu stétt

White cossack vs Black cossack

Sveitakósakkar með refaskinnshúfur eru eru ekki góður kostur í stjórnmálum. Gersk stjórnsemi leiðir til stríðs.


Ætlar Guðni Th. Jóhannesson forseti og stjórnarbatteríið á Íslandi að vera í slagtogi við stjórnvöld og ráðherra sem hylla nasista og morðingja?

20220826-eystrasalt-hoefði-8

1) Hætta! Fínir gestir úr austri og auðtrúa "frændur" þeirra á Íslandi

Utanríkisráðherrar og forsetar Eistlands, Lettlands og Litháen hafa verið á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar, Forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessonar og Háskóla Íslands. Forseti Íslands leggur svo blessun sína yfir allt í litríkum sokkum sínum, meðan að hann heldur þjóðhetjunni Jóni Hannibalssyni langt frá hátíðarhöldunum og hanastéli. Jón ætti ekki, sem KRATI, að vera leiður yfir því að missa af pinnamatnum, því flestir þeirra sem í síðustu viku heimsóttu Ísland frá fyrrgreindum löndum hafa atvinnu af því að mæra nasista. Það er nefnilega eitthvað mikið að í löndunum þremur, og Rússum er ekki hægt að kenna um það líkt og svo margt annað.

Jón Baldvin Hannibalsson er einfaldlega orðinn persona non grata á Íslandi vegna annarra ástríðu sinnar en á ungum lýðræðisríkjum. Honum var vísvitandi boðið með of litlum fyrirvara í fyrrgreinda mæringarveislu fyrir Eistland, Lettland og Litháen. Það er andlýðræðislegt og skammarlegt, ef það er ekki bara hinn gamli íslenski skussaháttur og afdalamennska sem olli því að Jón varð að hornkellingu sögunnar.

2) Generáll Björn B. von Engey með nýja skýringu á mikilvægi Íslands fyrir Eystrasaltslöndin þrjú

Nú er Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra einnig í lýðræðisást sinni búinn að ljóstra því upp, að hugmyndin um að styðja stofnun lýðveldanna þriggja við botn Eystrasalts hafi komið frá snillingnum Þorsteini Pálssyni fyrrv. ráðherra og sendiherra.

Reynt er með öllu móti að bola Jóni Baldvini burt úr sögunni, eftir að sagan er komin í efnalaug ríkisstjórnarinnar. Og þjóðirnar þrjár, sem Íslendinga sjálfir ímynda sér að eigi Íslandi allt að þakka, þurfa því líklega aftur að fara að endurrita sögubækur sínar - eins og nóg væri ekki komið af slíkum grænsápuþvotti þar eystra með blessan ESB, NATO og Bandaríkjanna.

Utanríkisráðherrar Eistlands, Lettlands og Litháen tóku svo upp á því, áður en þeir héldu heim á leið, að bjóða Íslendingum í smá kennslustund í lýðræði í boði íslensku ríkisstjórnarinnar og RÚV. Þessir þrír heiðursmenn, Landsbergis, Rinkevics og Reinsalu, vilja banna venjulegum Rússum aðgang að löndum sínum og leita eftir stuðningi frá vitleysingum eins og Íslendingum.  Þjóðirnar þrjár hafa svo sem verið eins og svín við rússneska minnihlutann í löndum sínum síðan að "lýðveldið" hafðist í byrjun 10 áratugar 20. aldar. Sígaunar fá einnig að kenna á því í þessum lýðveldum sem Íslandi þykir svo vænt um og sem allir vildu nú frelsað hafa. Gyðingar er einnig þriðja flokks íbúar í þessum frábæru lýðveldum, sem Þorsteinn Pálsson endurreisti.

En lítum aðeins á söguskoðun og fordóma gestanna. Hvernig hugsa utanríkisráðherrar Eistlands, Lettlands og Litháen? :

GabLand

 

 

 

 

3) Utanríkisráðherra Litháens Gabrielius Landsbergis um frelsið

Einn utanríkisráðherranna, Gabrielius Landsbergis (f. 1982) sem vill að við bönnum alla Rússa alfarið líkt og Litháar gera, er barnabarn Vytautas Landsbergis (f. 1923) fyrrv. forseta Litháens, sem mikið var mærður á Íslandi hér um árið. Vytautas Landsbergis stóð sig vel í hatri á rússneska minnihlutanum í landi sín og hreytti stöðugt óþverra í gyðinga og aðra minnihlutahópa. Landsbergis forseti var einnig mikill óvinur  samkynhneigðra. Ekki átti hann langt að sækja fordómana því faðir hans, Vytautas Landsbergis Zemkalnis, arkitekt (1893-1993) var í nasískri samvinnustjórn Litháa frá 1941 til 1942.

Landsbergis Zemkalnis var innanríkisráðherra í nasistastjórninni. Sem slíkur var hann yfirstjórnandi gettóa og fangabúða, þar sem gyðingar voru lokaðir inni áður en þeir voru myrtir. Gyðingum var af nasistastjórninni, annað hvort þeir fáu sem gátu talist ríkir) kennt um að hafa arðrænt Litháa, eða verið í slagtogi við Rússa (kommúnista).

Langafi núverandi utanríkisráðherra Litháen, sem var morðingi, undirritaði einnig lög sem heimilaði þjóðnýtingu eigna gyðinga í Litháen. Hann var því einnig þjófur.

Sagnfræðingurinn Evaldas Balcunas hefur birt skjöl þess efnis og hefur sætt ofsóknum núverandi yfirvalda í Litháen fyrir að gera það. Balcunas var ítrekað kallaður til yfirheyrslu á lögreglustöðvum og fyrir dómara (lesið meira um það hér). Fimm einstaklingar voru 2020-21 fangelsaðir fyrir gangrýni á sögufölsun litháískra stjórnvalda, þar sem gert er lítið úr þátttöku Litháa í helförinni. En áður en Þjóðverjar hertóku Litháen voru heimamenn farnir að ofsækja og myrða gyðinga. Það var einnig tilfellið í Lettlandi og Eistlandi (þið munið hann Mikson/Eðvald Hinriksson). Öllu slíkum staðreyndum vilja lýðræðisríkin Eistland, Lettland og Litháen sópa undir teppi.

 

Gabrielius Landsbergis er virkur sögufalsari og enginn lýðræðissinni frekar en langafi hans. Ætli þetta óeðli gangi í ættir?

Nú ætlar Gabriel Landsbergis, barnabarnabarn þjóðarmorðingjans og "þjóðhetjunnar" Vytautas Landsbergis Zemkalnis, að útiloka venjulega rússneska borgara frá því að fara ferða sinna. Þessi útilokunarvilji og söguþvottur virðist því miður vera greyptur í erfðaefni valdastétta "lýðræðisríkjanna" við botn Eystrasalt. 

lithuanian-neo-nazis Nýnasistar þramma árlega í Litháen með blessun stjórnvalda þar, enda dýrka ríkistjórnir landsins sömu "hetjurnar" og nýnasistarnir.

En þannig er það nú líka á Íslandi, þar sem lýðræðið gengur út, á að ráða í mikilvægar stöður á vegum ríkisins eftir þeirri meginreglu að sá minnst menntaði sé hæfastur - og ekki er verra ef viðkomandi er líka skyldur ráðherra eða í sama flokki hann. Völdin haldast þannig alltaf á sömu skyldleikaræktuðu höndunum.

Screenshot 2022-08-29 at 10-27-17 Fréttir kl. 19 00 - 27.08.2022 RÚV Sjónvarp

 

 

 

 

4) Utanríkisráðherra Lettlands Edgars Rinkevics er mikill sérfræðingur í frelsi og lýðræði.

Rinkevics utanríkisráðherra Letta er greinilega haldinn sömu siðblindu og Gabriel Landsbergis. Árið 2018 kom úr mikil bók um lettneskan diplómat, Ludwig Seya að nafni, sem yfirvöld í Lettlandi halda fram að hafi verið mikill "andfasisti".

Edgar Ringevics mærði mjög þessa bók um Ludwig Seya sem að miklu leyti byggir á dagbókum Seyas sjálfs. Annað hvort er utanríkisráðherra Lettland einn þeirra sem ekki les bækur á gagnrýnin hátt, eða að hann telur andlýðræðissinna vera eitthvað annað en við hin gerum flest í lýðræðisríkjum.

Beitt og réttlát gagnrýni á söguskoðun lettneska utanríkisráðherrans varðandu Seya hefur verið birt hér af gyðingi í Lettlandi. Rinkevics, utanríkisráðherra í ESB-landi, mærir í embætti sínu einn svæsnasta gyðingahatara sem gengt hefur embætti á meðal Letta.

Ætla Íslendingar að ofsækja Rússa, vegna þess að andlýðræðissinni á ráðherrastóli í Lettlandi er gyðinga og Rússahatari?

Aðstoðarþingforseti Lettneska þingsins lýsti því yfir árið 2018 að rússneska væri tungumál síonista (sjá frekar hér). Daun gyðingahatursins leggur því miður enn af hluta lettnesks þjóðfélags. ESB gerir lítið til að stemma stigu við þessu óeðli og NATO akkúrat ekki neitt.

BN-HK717_latvia_WN_20150316112421

Flestar "Frelsishetjur" Lettlands voru í þýskum hersveitum og tóku mjög virkan þátt í þjóðarmorði. Þeir sakna nasistanna í Lettlandi, ganga oft á ári í skrúðgöngum, reisa föðurlandssvikurunum minnismerki og falsa söguna. Stjórnvöld þeirra eru nú að biðja Íslendinga um að hata Rússa.

 

Ætla íslendingar að hanga í pilsfaldinum á vandræðagemlingum ESB? Mér sýnist að Guðni forseti sé jafnvel til í slaginn, þó að hann sem sagnfræðingur eigi að hafa alla burði til að rýna betur í heimildir en blækur ríkisstjórnarinnar. Eitthvað hefur drengnum brugðist bogalistin.

Urmass

 

 

 

 

 

 

5) Utanríkisráðherra Eistlands Urmas Reinsalu hefur náttúrulega einnig mært nasista

Eistneski utanríkisráðherrann Urmas Reinsalu, er einnig riddari frelsis og umburðarlyndis. Árið 2018 var borinn til grafar Harald Nugiseks, síðasti Eistinn sem hlaut Járnkrossinn fyrir þjónustu sína í SS. Reinsalu var ekkert að fela aðdáun sína á Harald Nugiseks og voru aumum leifum Nugiseks sæmdar Stórriddarakrossi Eistneska Lýðveldisins eftir dauða hans. Sá heiður fór beint í gröfina, þar sem hann á vissulega best heima. Reinsalu sagði, er SS-maðurinn Nugiseks var sleginn til dauðariddara á líkbörunum, að:

Nugiseks hefði verið einstakur eistneskur hermaður, og að harmleikur lífs hans hefði verið að hann hafi ekki getað barist fyrir eistneskt frelsi í eistneskum einkennisbúningi.

Þess má geta fyrir íslenska markaðinn, að einn af morðingjum Eistlands, Evald Mikson, barðist reyndar ekki í þýskum búningi. Hann þjófstartaði gyðingamorðum með öðrum áður en Þjóðverjar hertóku Eistland. Þjóðverjar vildu hann ekki og settu hann í fangelsi fyrir að stela því sem hann hafði rænt af gyðingum. Þýsku morðræningjarnir töldu þýfið sína eign. Síðar skutu Íslendingar skjólshúsi yfir Mikson.

Waffen SS-höfuðsmaðurinn Nugiseks er í hávegum hafður í Eistlandi, þó hann hafi bæði barist, drepið og myrt í þýskum herklæðum. Hér fyrir neðan er gyllt brjóstmynd sem nýlega var afhjúpuð af honum í barnaskóla í Eistlandi. Já, hvað ungur nemur gamall temur. Fjöldi brjóstmynda af Nugiseks er að finna út um allt í Eistlandi. Þar ríkir mikil þörf á því að dýrka þá sem börðust gegn Rússum og kommúnismanum og sem í flestum tilfellum voru einnig "hetjur" sem myrtu gyðinga með mikilli gleði og jafnvel með meiri áfergju en Þjóðverjar sjálfir.

Kannski ættu Íslendingar, sem vart geta haldi vatni fyrir ágæti ríkisstjórnar Eistlands, að fá sér afsteypu af Eistum úr morðsveitum Hitlers. Þetta eru víst frændur ykkar...

a9350011ef79a5d7f064eff175b66483

Ætli það sé hægt að fá einn Gull-Mikson til Íslands?

6) Einlæg beiðni til Forseta Íslands og Alþingis

Ágæti Guðni Th. Jóhannesson, ef þú og aðrir Íslendingar styðjið við þessa sveit andlýðræðisafla sem því miður stjórna enn öllu í Eystrasaltslöndunum (enda er hún alin upp á níðingshætti Sovétstímabilsins), ættir þú að fara sem fljótast úr litríku sokkunum þínum og ganga aðeins í götóttum svörtum sokkum eins og og frændur þínir við botn Eystrasalts gera, og rækta með þeim ramma þjóðernistáfýlu og æfa gæsagang.

Hátíðarhöld íslenskra fyrirmenna fyrir lýðveldin þrjú var ekkert annað en upphafning á stjórnmálamönnum sem hafa andstyggð á lýðræði, jafnrétti og minnihlutum. Alls kyns minnihlutar eru ofsóttir í Eistlandi, Lettlandi og Litháen, ekki aðeins Rússar eða rússneskir ferðamenn.

Vonandi fer Ísland ekki að stunda mannréttindabrot líkt og Eistland, Lettland og Litháen stunda nú. Mannréttindabrot Rússa og Úkraínumanna eru vitaskuld mörg. Þau, og tvískinnungur Eistlands, Lettlands og Litháens, eru ekki hentug dæmi til eftirbreytni fyrir Íslendinga. En kannski er þjóðin mín einfaldari en ég hélt?


Ísland og Guðni forseti á villigötum

Screenshot 2022-08-27 at 08-38-47 Watch Facebook

Forseti Íslands og margir aðrir íslenskir sómamenn óskuðu Eistlandi, Lettlandi og Litháen til hamingju með frelsi þeirra í 30 ár. Í fyrra sendi Guðni Th. Jóhannesson frá sér myndskeið á FB. Þar talar Guðni á makalaust lélegri ensku fyrir mann sem er menntaður í enskumælandi löndum og meira segja kvæntur konu sem kemur frá slíku landi. Í ár bauð hann til veislu og endurtók ruglið.

Í Höfdi-House myndbandi Guðna forseta frá 2021, sést Jón Baldvin Hannibalsson upptekinn við lýsa stuðningi við stjórnmálamenn í fyrrgreindum löndum. Hvort gjörðir Jóns hafi breytt sögunni mikið tel ég ólíklegt - en það var vel gert hjá Jóni að lýsa yfir stuðningi, og enn hugsa menn í löndunum þremur hlýtt til Jóns, þrátt fyrir síðari gerðir hans sem hafa einangrað hann of forsmáð.

Jón útundan

Ekki veit ég, hvaða ástæða var til þess að embætti Forseta Íslands sendi boð út svo seint og illa, að Jón Balvin komst ekki á hátíðarhöldin fyrir forsætisráðherra landanna þriggja fyrr í vikunni, en þar er örugglega um að kenna gamla, íslenska slóða- og búskussahættinum. Ætli ráðherrar landanna þriggja hafi ekki örugglega spurt hvar Jón væri, hvernig hann hefði það og af hverju hann væri ekki til staðar?? Hvaða svör ætli þeir hafi fengið? Þessu verður Guðni forseti að svara.

Screenshot 2022-08-27 at 08-41-49 Watch Facebook

Áður en sögufölsunin varð óbærileg í Lettlandi, Litháen og Eistlandi var Jón Baldvin sannarlega hetja. Nú eru aðalhetjur landanna hins vegar fjöldamorðingjar sem drápu gyðinga.

Ég er einn þeirra fáu Íslendinga sem ekki tel mig geta óskað fyrrnefndum þjóðum til hamingju með frelsið, því það hefur á stundum verið notað á mjög ógeðfelldan hátt til að gera lítið úr kvölum þeim sem borgarar í þessum ríkjum ollu alsaklausu fólki.

Skipuleg endurritun sögunnar í löndunum þremur, sem er ekkert annað en ríkissögufölsun, hefur leitt til þess að í löndunum er grunnt á kynþáttafordómum. Yfirvöld í Eistlandi, Lettlandi og Litháen hafa skipulega gert lítið úr helför gyðinga í löndum þeirra. Þá helför hófu heimamenn áður en Þjóðverjar hertóku löndin. Þúsundir heimamanna slátruðu gyðingum, hvar sem í þá náðist. Síðar myrtu þessir menn við hlið Þjóðverja. Enn síðar, árið 1945, lögðust sumir þessara heimanöldu þjóðarmorðingja í skæruhernað gegn nýju ofurafli.

Fyrir það voru þeir gerðir að frelsishetjum fyrir 30 árum síðan. Þessar "frelsishetjur" og gyðingamorðingjar hafa verið heiðraðir með minnismerkjum, styttum, athöfnum, götunöfnum og árlegum skrúðgöngum nasista. Þeir morðingjar sem fengu hæli í öðrum löndum voru greftraðir og endurgreftraðir sem þjóðhetjur í gömlu löndunum. - Það voru menn sem stunduðu þjóðarmorð á gyðingum.

Á að óska löndunum þremur til hamingju með slíkt óeðli?

Eins og það sé ekki nógu ógeðslegt, þá hafa löndin þrjú staðið í að falsa sögu sína. Lítið er gert úr helförinni og henni líkt við örlög þeirra sem Rússar sendu í Gúlag eftir 1945. Menn sem tóku þátt í helförinni gegn gyðingum eru taldir fórnarlömb í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Þessar þjóðir dýrka glæpamenn og morðingja. Með slíku fólki vill íslenskur forseti eiga samleið. Er það algjört dómgreindarleysi.

Ágæti forseti, þú ert sagnfræðingur: Lestu þér til. Löndin þrjú sem þú hylltir á íslenskunni þinni hafa misnotað frelsi sitt síðan 1992 til að þjösnast á minnihlutum í löndum sínum, gyðingum og enn meira á Romafólki sem og rússneska minnihlutunum. Þjóðir sem nota frelsi sitt á þann hátt, og sem endurrita og falsa sögu sína, hafa ekki hlotið neitt frelsi.

Sumir Íslendingar tóku einnig virkan þátt í að ekki reyndist unnt að leiða Eðvald Hinriksson fyrir dómara fyrir morð og aðra glæpi hans er hann var ungur í Eistlandi. Annar velunnari landanna þriggja, sem keppti við Jón Baldvin um heiðurinn fyrir að vera "fyrstur" til að styðja eitthvað sem þeir þekktu ekkert til, mátti þó eiga það að nefnd sagnfræðinga sem hann fór fyrir til að rannsaka helförina í Eistlandi, komst loks að því að Eðvaldi Hinrikssyni (Evald Mikson) látnum, að hann væri óneitanlega einn þeirra mörgu morðingja sem hóf helförina í Eistlandi, og það áður en Þjóðverjar komu á staðinn með morðverksmiðju sína og allt skipulagið, sem nú hefur þróast í fremsta land ESB.

Ég ráðlegg forseta Íslands að kynna sér söguna alla og menntast aðeins betur. Það getur hann byrjað með að fara inn á og kynna sér www.defendinghistory.com  sem er vefsíða gyðinga og annarra sem vilja hafa sögu Eystrasaltslandanna sem réttasta og sætta sig ekki við að morðingjar ættingja þeirra og bræðra séu hylltir sem þjóðhetjur í þremur nýjum "lýðveldum" og "lýðræðisríkjum" í ESB.

Langar mig einnig að biðja hr. forseta Íslands um, að lesa þessa grein mína frá för til Litáen fyrir 10 árum síðan: “Take off your hat. This is not the synagogue.”

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband