Hver er konan til vinstri ?

Beinin heilla 3bb

Beinin heilla, og konan hér á myndinni er engin undantekning frá þeirri reglu. Ljósmynd þessi, sem varðveitt er á Þjóðminjasafni Íslands, var tekin sumarið 1939 í Þjórsárdal, nánar tiltekið í kirkjugarðinum að Skeljastöðum, sem var nærri þar er Þjóðveldisbærinn stendur í dag.

Ég á fórum mínum ljósrit af dagbók Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar frá rannsókninni, sem hefur farið framhjá ýmsum sem telja sig hafa gert rannsóknum í Þjórsárdal skil. Ekki kemur þar fram hvaða heimsókn þessi kona tengdist. Sumir, sem séð hafa mynd þessa hjá mér, létu sér detta í hug dr. Ólafíu Einarsdóttur, sem var fyrsti viðurkenndi fornleifafræðingur Íslands. Það þykir mér sjálfum ólíklegt, þar sem ég man eftir Ólafíu sem mun breiðleitari konu af Mýrarkyni með allt öðruvísi nef en konan sem skoðaði og kjassaði beinin í Þjórsárdal sumarið 1939. En hver veit?

Myndirnar sem teknar voru í garðinum þann dag sem konan lagðist með beinunum, eru einar af þeim fáu sem teknar voru af rannsókninni að Skeljastöðum, þar sem Matthías Þórðarson sem gróf að Skeljastöðum tók ekki ljósmyndir.

Hver er konan
Konur eru svo hverflyndar, hér er ungfrú fornleifafræði 1939 til hægri

 

Til fræðslu fyrir þá sem alltaf eru halda því fram að beinin í Skeljastaðagarði hafi legið í gjósku frá Heklugosinu árið 1104, t.d. jarðfræðingur nokkur sem aldrei kom til Skeljastaða þegar verið var að grafa þar, þó svo að hann væri með í rannsókninni í Þjórsárdal árið 1939, þá má vera augljóst af myndunum , að svo er ekki. Þótt myndin sé svarthvít, get ég séð, að askan sem liggur undir konunni og beinunum er H3 gjóskan, sem er forsögulegt lag sem Hekla spjó yfir Þjórsárdal og víðar fyrir einum 2900 árum síðan, en gjóska þessi hefur víða blásið upp og flust mikið til, enda mjög létt. Flest mannabein í kirkjugarðinum lágu á uppblásnu yfirborðinu og höfðu bein sést þar í langan tíma og verið tekin af læknastúdentum og nasistum. Mun ég greina frá því betur síðar.

Allar upplýsingar um konuna til vinstri á myndinni (til hægri á þeirri neðri) væru vel þegnar. Einhver sonur eða dóttir þekkir kannski móður sína í hlutverki hinnar ungu og glaðlegu konu, sem greinilega hafði áhuga á fornum leifum og skjannahvítum beinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kjartan Pétursson ömmubróðir minn var aðstoðarmaður þarna minnir mig einhvern tíma. Kristjana Kjartansdóttir, dóttir hans er ansi glúrin að þekkja fólk.

Þegar að Kjartan var þarna, þá kom upp risastór höfuðkúpa - hann prófaði að "máta" hana - þeim fannst hún vera eins og hjálmur.

Anna Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 9.6.2012 kl. 19:52

2 identicon

Ég er með nafnið og sömu mynd í fórum mínum. En í ljósi þess að um viðkvæmar persónuupplýsingar er að ræða, tel ég að þú hafir ekki nógu  skýra lagaheimild til að óska eftir nafninu á opinberum vetfangi.  Ég óska eftir að þú fjarlægir myndir þegar af vefsvæðinu í ljósi laga nr 77/2000.

Virðingafyllst 

Hálfdán Sveinn hdl.

Hálfdan Sveinn Breiðfjörð Sigurðsson (IP-tala skráð) 9.6.2012 kl. 20:34

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Anna Kristín, Kjartan sem mun hafa verið slökkviliðsmaður, gróf ekki sumarið 1939 svo ég viti. Hann var hins vegar aðstoðarmaður Eiðs Kvarans og Wolf Rottkays, tveggja menntamanna sem voru flokksbundnir nasistar og sem sóttu sér bein í Skeljastaðakirkjugarð, sem þeir fóru með til Þýskalands.

Hálfdán Sveinn, ég hef fulla heimild til að leita að nafninu á þessari glöðu konu, sem var líklega á sumarferð í Þjórsárdal um verslunarmannhelgina 1939 og fór með Verslunarmannafélaginu í Reykjavík. Myndina átt þú ekki einkarétt á. Það kom að minnsta kosti ekki fram í þeim gögnum sem ég hefi undir höndum. Þú ert ekki ljósmyndarinn og gefur mér engin haldbær rök fyrir þessari uppivöðslusemi hér á mínu bloggi. Lestu lögin sem þú vitnar í aðeins betur. Hefur þú rekist á orðið tjáningarfrelsi nýlega?

FORNLEIFUR, 9.6.2012 kl. 21:14

4 identicon

Vilhjálmur!

Þetta er ekki eins og Kjartan lýsti sjálfur - NB! hvenær sagði ég að hann hefði verið við "gröft" árið 1939. Ég sagði að hann hefði verið sem aðstoðarmaður "einhvern tíma". En eins og þú segir, þá veist þú ekkert um þetta sjálfur: "svo ég viti" segir þú.

En miðað við "móttökurnar" hjá þér, þá held ég að sé best að þú dútlir í þínum eigin "skítkasts- og skæting-heimi", sérstaklega þegar þú fretar á fólk dylgjum um nasisma og hrottaskap og missir æruna fyrir vikið.

Vegna "dylgjuskrifa" þinna Vilhjálmur, þá tek fram og bendi þér á að flestir í ættinni minni unnu með bandamönnum í seinni heimstyrjöldinni og voru heiðraðir fyrir störf sín, þó svo að þú hafir ekki frétt af því.

Anna Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2012 kl. 12:34

5 Smámynd: FORNLEIFUR

Anna Kristín Pétursdóttir, hvers konar óhemjuskapur er þetta hjá þér. Ég spyr almenning um mynd af konu frá 1939. Þú komst með upplýsingar, sem ég svaraði mjög kurteislega á þessa vegu:

"Anna Kristín, Kjartan sem mun hafa verið slökkviliðsmaður, gróf ekki sumarið 1939 svo ég viti. Hann var hins vegar aðstoðarmaður Eiðs Kvarans og Wolf Rottkays, tveggja menntamanna sem voru flokksbundnir nasistar og sem sóttu sér bein í Skeljastaðakirkjugarð, sem þeir fóru með til Þýskalands. "

Hvernig þú getur séð skítkast og skætingí þessum orðum mínum er mér ómögulegt að sjá. En ég endurtek, að Kjartan var ekki með í uppgreftri sumarið 1939. Hann vann fyrir nasistana Eið og Wolf sumarið 1935. Það kemur m.a. fram í grein eftir Sigurð Þórarinsson í Árbók hins íslenzka fornleifafélags árið 1967, sem bar heitið "Beinagrindur og bókarspennsli".

Svo er það allt annað mál, þegar þú ert farinn að væna mig um dylgjuskrif, skæting og skítkast, að maður verður að svara fyrir sig fullum hálsi og með sínu nefi. Mig langar að upplýsa þig og aðra, sem hafa nú hugsanlega lesið þessa svödu þína í minn garð fyrir að svara þér kurteislega, að elskulegur ömmubróðir þinn, Kjartan Pétursson, var flokksbundinn nasisti í E-listanum, sem var flokkur öfgamanna sem brotnaðu út úr Þjóðernishreyfingu Íslands (nasistaflokknum). E-listapiltar, sem réðust að konu sem vann á skrifstofu Þjóðernsihreyfingar Íslands, sem E-listanum hafði sinnast við. Greint er ítarlega frá Kjartani Péturssyni í bók Hrafns og Illuga Jökulssona (1988), sem ber titilinn ÍSLENSKI NASISTAR og sömuleiðis í bók Ásgeirs Guðmundssonar BERLÍNAR-BLÚS (1996), sem þú getur lesið þér til gagns og ánægju um frændgarð þinn í nasismanum. Þar kemstu kannski í raun um að sumir í ættinni þinni voru eftirlýstir stríðsglæpamenn í Noregi, og á ég þar við annan bróður ömmu þinnar, hann Ólaf Pétursson, sem framdi ljóta glæpi í Noregi, sem hann mun ekki hafa verið heiðraður fyrir af bandamönnum. En gott hins vegar að vita, að þú eigir líka ættingja að sem ekki fylgdu Hitler og mannfyrirlitningu hans. Ég dæmi þig þó ekki eftir gerðum feðranna og ættingjanna.

Ég þakka þér fyrir heimsóknina, en vill biðja þig um að hafa hemil á ofstopanum í minn garð næst þegar þú hefur eitthvað til málanna að leggja á Fornleifi, um leið og ég minni þig aftur á að ég svaraði þér mjög kurteislega og málefnalega.

Ég veit reyndar mikið um þá hluti sem ég skrifa um og geri mér far um það. Það var svo sem bara nafn konunnar sem ég var að leita að. Hitt vissi ég allt. Lifðu heil! 

FORNLEIFUR, 10.6.2012 kl. 14:06

6 identicon

Vilhjálmur!

Heldur þú virkilega að ég viti þetta ekki sem þú ert að skrifa um þessa tvo einstaklinga sem eru tengdir mér fjölskylduböndum?

Hefur þú einhverja hugmynd um hvernig þeir voru "meðhöndlaðir" af sinni eigin fjölskyldu það sem þeir áttu ólifað? Svona án þess að þér komi það við, þá held ég að þeir hefðu frekar viljað lenda í fangabúðum, heldur en meðferðina sem þeir fengu hjá sinni eigin fjölskyldu. Sú meðferð var ekkert í líkingu við "gagns og ánægju", eins og þú ert að væna mig um að ég hafi "ánægju" af því að lesa um hrottaskap. Varla býstu við öðru en að fólk svari þér, þegar þú "tengir" viðkomandi í öðru hverju orði við eitthvað sem er ærumeiðand.

Og nú langar mig að vita hvaða tilgangur er hjá þér með að fá nafn konunnar sem þú birtir svona "viðkvæmar myndir" af?

http://www.personuvernd.is/log-og-reglur/log-um-personuvernd/nr/371

Með kveðju og þeirr ósk að framvegis stundir þú þína fræðimennsku með þeirri gullvægu reglu að leiðarljósi að "aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Anna Kristín Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2012 kl. 14:39

7 Smámynd: FORNLEIFUR

Síðasta reglan þín á greinilega ekki við fyrir þig sjálfa, Anna Kristín Pétursdóttir. Lestrarnámskeið fyrir fólk sem er haldið þeim leiða galla að lesa allan andskotann á milli línanna ætti að vera í boði á Íslandi. Ef svo er, máttu til með að skrá þig á eitt slíkt, því þú sérð drauga og forynjur á bak við hvað sem er.  

Ég skrifaði þér kurteislega í upphafi, en þú velur að lesa á milli línanna og kasta í mig ónotum. Þú telur greinilega að ég hafði ætlað að veiða nasista í þinni fjölskyldu með því að birta mynd af konu sem kemur nasistum akkúrat ekkert við og tengist alls ekkert fjölskyldu þinni. Er það ekki dálítið langsótt? 

Ég hef enga samúð með mönnum sem völdu helstefnu Hitlers. Hvorki með frændum þínum né öðrum. Hugsaðu frekar um þær milljónir manna sem nasistar myrtu og skammastu þín fyrir að gera nasíska meðhjálpara frá Íslandi að fórnarlömbum.  Þeir voru alveg eins sekir og aðrir. Hvað fólk gerði í fjölskyldu þinni gagnvart ættingja sem var svikari í Noregi, kemur mér og öðrum ekkert við. Heimildir eru nægar til um hann í Noregi og lúalegar aðferðir íslenskra yfirvalda til að bjarga honum og öðrum nasistum til Íslands undan réttvísinni. 

Ef þú veist ekki hver konan á myndinni er, þá bið ég þig um að halda þig frá bloggi mínu. Áhugi minn á henni var almennur áhugi fyrir mannfólki. Glöð kona sem gantast er enginn glæpur! Fólk er ungt og leikur sér. Þú sérð greinilega eitthvað viðkvæmt í myndinni af konunni, er mér alls endis ómögulegt að sjá það. En þér þykir þó greinilega eðlilegt að móðurbróðir þinn hafi mátað höfuðskel, sem hann notaði sem hjálm þegar hann var aðstoðarmaður Eiðs Kvarans og Helmuth Wolf Rottkays? Þakka þér fyrir að deila þeirri "mynd" með okkur.

FORNLEIFUR, 10.6.2012 kl. 15:14

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

MAnni grunar að manneskjan sé Breiðfjörð, ef marka má tilfinningasemina í athugasemd hér að ofan.  Kannski var þetta þó bara tækifærismennska ungs manns að koma að nýfengnum titli.  Vegir hégómans eru allavega órannsakanlegir. Deili undrun þini á þessum viðbrögðum.

Ef maður á að geta sér til, þá sýnist mér þessi snót vera ættuð úr strandasýslu. Þar kom erlent duggarablóð að gagni við að kynbæta volaðan stofn. Kraftakonur, dökkar og hreinskiptnar.

Spurning hvort hún er fornleifaræðingur eða bara ferðalangur þarna. Hún virðist allavega heimavön þarna og mér sýnist á annari myndinni að hún sé að sópa frá beinunum og að hin myndin hafi sprottið úr þeim kringumstæðum í einhverjum gáska.  Einnig má vel vera að hún sé einfaldlega að nota sjálfa sig sem stærðarviðmið eða verð beðin um það.

Skemmtilegar myndir, sakleysislegar og ungæðislegar.  Móðursýkin hér að ofan er því algerlega tilefnislaus að mínu mati.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.6.2012 kl. 00:38

9 Smámynd: FORNLEIFUR

Menn æsa sig stundum úr af litlu.

Hvað finnst senumeistara eins og þér um búningamyndirnar frá Drury Lane Theatre sem ég skrifaði um hér á undan? Það væri nú gaman ef eitthvað af þessum búningum væri enn til...

FORNLEIFUR, 12.6.2012 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband