Getur einhver lesiđ á japönsku kassana mína ?

Fig 1b
Ég segi eins oft og ég get: Ég er međ heppnari mönnum, og ţađ er fyrst og fremst vegna betri helmingsins. Mín elskulega ektakvinna, hin síunga Irene, dekrar mjög viđ manninn sinn. Til ađ mynda nýlega, ţegar hún gaf mér afmćlisgjöf. Ég fékk gjöfina nokkrum vikum fyrir afmćliđ, alveg eins og í fyrra er hún bauđ mér á eftirminnilega tónleika međ Woody Allen og hljómsveit hans.

Í ár fékk ég hins vegar japanskan kassa fyrir afmćliđ mitt sem er 22. júlí ár hvert - en stundum skömmu áđur eđa í áföngum.

Eina sólríka helgi fyrir skömmu, (síđan hefur sólin brunniđ á himninum hér í Danmörku), brugđum viđ okkur í stórbćinn og fórum međal annars inn í litla verslun í Nágrannaleysu (Nabolřs), sem selur verđandi japanska forngripi. Verslunin er rekin af nokkrum ungmennum á ţrítugsaldri sem ferđast mikiđ til Japan vegna brennandi áhuga síns á landinu. Ţar kaupa ţau einnig góđa gripi sem ţau leggja örlítiđ á í Kaupmannahöfn og reyna svo ađ lifa af ţví sem ţau ţéna međ námi eđa til ađ greiđa fyrir frekari ferđir til Japans. Mig grunar ţó ađ ţau hafi ađgang ađ búđarrýminu fyrir lítiđ, ţar sem verslunin er á afar góđum stađ.

Kona mín sá strax ađ ég slefađi eins og krakki yfir bambuskassa einum í búđinni sem og loki af minni kassa. Ţetta var eini slíki gripurinn í versluninni. Kassinn og lokiđ eru frá byrjun 20. aldar og bera áletranir ritađar međ japönsku tússi. Ég keypti mér lokiđ fyrir lítiđ. Konan mín sá líka ađ mér langađi óhemjumikiđ í kassann  svo hún keypti hann sísona og gaf mér í fyrirframafmćlisgjöf.

Kassar sem notađir voru fyrir postulín eđa lakkvörur

Kassar sem ţessir voru jafnan smíđađir úr bambus utan um dýrmćtan varning svo sem postulín eđa lakkvöru, ţegar slíkir eđalgripir voru seldur á fyrri öldum. Konan mín, sem lagđi stund á japönsku međ námi sínu í stjórnmálafrćđi í Árósi á síđustu öld, gat ekki lesiđ áletrunina á kössunum. Hún sá strax ađ ţetta var ađ miklu leyti skrifađ međ kínverskum táknum sem kallast kanji.

Fig 3 b

Mynd II

Fig 4 b Mynd III


Ég spurđi ţá verslunareigendurna sem voru til stađar, hvort ţau gćtu lesiđ japönsku, en ţađ gerđi ađeins ein ţeirra, sem er hálfur Japani. Hún gat hins vegar heldur ekki lesiđ  áletrunina. Hún tók ţá myndir og sendi föđur sínum, sem er japanskur, og hann varđ líka ađ gefast upp, en upplýsti ađ ţetta vćri gömul japanska frá ţví yfir leturbreytingu á 20. öld. Ţegar hćtt var ađ nota ýmsa kínverska bókstafi og hljóđkerfi annarra stafa breyttist alfariđ. Í dag er ţessi japanska ekki kennd nema í háskólum, og afar fáir geta lesiđ texta međ kínverskum táknum og gamla hljóđkerfinu.

Ég hafđi ţá samband viđ Toshiki Toma prest innflytjenda á Íslandi, og síđar prófessor einn í Kaupmannahöfn, en báđa skorti aldur og ţekkingu til ađ geta lesiđ ţennan gamla kanji-texta. Til ţess ţarf mađur víst helst ađ vera orđinn rúmlega 90 ára eđa sérfrćđingur. Ekki ţýđir heldur ađ biđja Kínverja ađ lesa textann, ţví ţó ţeir ţekki táknin, ţýđa ţau og hljóđa oft á tíđum allt öđruvísi á gamalli japönsku en á kínversku.

Í kassanum á myndinni efst voru japönsk dagblöđ frá 3. áratug síđustu aldar. Ţađ gćti vel gefiđ hugmynd um aldur kassans.

Geta lesendur hjálpađ međ ráđningu textans?

Fig 2

Mynd IV

Vera má ađ lesendur Fornleifs séu sleipir í japönsku og geti lesiđ fyrir mig hvađ stendur á

(I)   kassanum (á myndinni efst),

(II)  innan á loki hans (mynd IV)

(III) báđum hliđum loksins af litla kassanum (myndir II og III)

Kassinn er listavel smíđađur og ekki er notađur einn einasti járnnagli. Hann er einnig mjög vel nothćfur. Ég nota hann eftir hreinsun og vöxun til ađ hylja snúrur og leiđslur sem hrynja í tugatali af tćkjum sem á okkar tímum fylla öll skrifborđ. Leiđslur frá tölvu, lömpum, hátölurum, hleđslutćki og skánskri myndavél, fara allar ofan í kassann og sem felur svarta spaghettíiđ sem lekur ofan af skrifborđinu mínu. Kassinn og áletranir hans sjást vel undir borđinu, en mig vantar enn skýringu á áletrunum til ţess ađ vera alsćll. Ég tek fram ađ ţađ stendur hvorki Honda, Toyota, Mishubishi, Nissan, Suzuki, Daihatsu eđa Datsun á kassanum.

Ţýđingarnar á áletrun kassanna minna ţarf ég helst ađ fá ekki miklu síđar en á morgun, sem minnir mig á ţađ hvernig vörumerkiđ Datsun varđ til:

   Framleiđendum Datsun vantađi fangandi, erlent nafn á fyrstu bifreiđina sem ţeir framleiddu. Ţeir leituđu til helsta ráđgjafa um fangandi bílanöfn á sínum tíma. Hann bjó í New York, sem hét vitaskuld Cohen. Cohen spurđi útsendara japanska bílframleiđandans hve fljótt ţeir ţyrfti ađ fá hiđ nýja nafn. "Aooh, Helst á morgun" sagđi sá japanski. Cohen svarađi ţá uppvćgur á brooklensku "Dat soon?" Ég sel ţetta ekki dýrara en ég keypti.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sćll Villhjálmur. Áletrunin á kassanum á efstu myndinni sýnist mér ekkert vandamál. Nćstum ađ ég geti lesiđ hana sjálfur. Ţetta er púra kínverska.
Ekki er skortur á Kínverjum neinstađar. Google skilur ţetta ef ţú hefur forrit til ađ skrifa ţetta inn sem texta (og kannt ţađ).
Hinar fjalirnar eru erfiđari, bćđi óhreinar og letriđ mér framandi.
Kveđja, Guđmundur

Guđmundur Bjarnason (IP-tala skráđ) 20.7.2018 kl. 16:49

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Guđmundur, ţetta eru vissulega kínverskir bókstafir (kanji) sem Japanar fengu ađ láni líkt og svo margt annađ frá Kína og kölluđu kanji. En táknir ţurfa ekki endilega ađ ţýđa ţađ sama eđa hljóđa eins. Kassinn er japanskur. Google skilur ekki kanji, en ţađ eru til ýmis forrit til ađ vinna úr kanji , en ţau krefjast ţekkingar á kínversku letri sem ég hef ekki. Áletrunin á minna kassalokinu er handskrift međan ađ áletrunin á stór kassanum er epígrafísk og sá sem skrifađ hefur á stóra kassann (I og IV) hefur veriđ ađ vanda sig. Ég hef sýnt Kínverja táknin, en hann gat ekki áttađ sig á samhenginu.

FORNLEIFUR, 20.7.2018 kl. 18:30

3 identicon

https://samnytt.se/sverige-landet-dar-det-finns-goda-och-onda-judehatare/

Fornleifur - Ég má endilega senda ţér sćnska grein sem lýsir andlegri fátćkt stjórnmálamanna í ţví landi.

Ţú veist örugglega sjálfur hversu ömurlegt sćnska samfélagiđ er orđiđ í dag, Ţađ er óhćtt ađ segja ađ Svíţjóđ brennur í pólitík sem öđru.

valdimar jóhannsson (IP-tala skráđ) 21.7.2018 kl. 13:13

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband