Bloggfćrslur mánađarins, nóvember 2024

Vís orđ Íslendinga (1)

97CD2F5AF874FAC8002E6815A3EEC2CDB5DBF7853461BCE7FF2EDF3EDB7C4DBC_713x0

Glöggt er gests augađ, en stundum getur einstaka Íslendingur séđ hlutina í réttu ljósi.

Dr. Halldór Björn Runólfsson, fyrrverandi safnstjóri Listasafn Íslands og kennari minn í litasögu í MH á 8. áratug 20. aldar. Hin vísu orđ hans féllu í viđtali 25. febrúar áriđ 2017 viđ visir.is. Margt annađ gott kemur frá Halldóri í sömu grein.

Halldór Björn talar í viđtalinu um Trumpinn í Íslendingum. Ég hef séđ marga hugsanlega ćttingja Trumps á Íslandi, en hef ekki komiđ orđum eins vel ađ lýsingunni á ţessu furđufólki og Halldór Björn Runólfsson gerđi ţegar áriđ 2017.

Viđ eigum engan hauk í horni í stjórnsýslunni. Viđ Íslendingar erum soldiđ fyrir ađ göslast bara áfram í ţessum efnum og mér finnst stundum eins og ţađ sé örlítill Trump í okkur ţar sem viđ metum ekki menntun og fćrni ađ verđleikum. „I love the un­educated!“ sagđi Trump og viđ eigum ţetta soldiđ til,“ segir Halldór Björn og hlćr viđ tilhugsunina.

Meistari Halldór heldur áfram og safnar ekki vinum međ ţví ađ segja sannleikann:

„Ţađ örlar enn á fordómum gagnvart menntun í listum og listfrćđum. Sumir virđast enn halda ađ ţetta snúist um fínar frúr og sjá fyrir sér Gissur gullrass og frú Rassmínu ađ reyna ađ draga hann á Wagner-sýningar en hann vill bara fara ađ spila viđ strákana í bakherberginu. Ţessi ranghugmynd er föst í okkur sem er synd og ţess vegna er ég alltaf ađ segja mönnum ađ listamenn, ekki síst myndlistarmenn, séu alls ekki fólk sem fellur í ţessa kríteríu fordómanna. Ţeir eru miklu nćr handverkinu – fólki sem er inni á verkstćđum og vill sjá hlutina verđa til. Ţegar ég horfi á ţessa flóru af listamönnum sé ég fólk sem vill nota hendurnar og skapa. Ţetta vilja menn ekki skilja ţví ef ţađ er ekki fiskur eđa hrávara ţá eru öll ljós slökkt óháđ ţví hversu mikil verđmćti myndlistin skapar. ...“


"Hvađ ćtli hann afi ţinn segi, ţegar hann sér myndina af ţér"

vovveryyoung

Gaman verđur ađ sjá ţessa myndabók og skođa, og jafnvel lesa. Ţessi mađur, Ólafur K. Magnússon, var á stađnum og tók fyrir löngu mynd af mér - ţar sem ég "safnađi grjóti" međ latínustílana mína í plastpoka í vinstri hendi, nýmćttur í Sundahöfn ásamt nokkrum skólafélögum úr MH, til ađ rannsaka jarđfrćđina. Löngu síđar ritađi ég um ţessa myndatöku sem ég lenti í hjá Ól. K. Magg. Les hér.

Já, ţađ er ykkar einlćgur, sem ţarna er međ trefil um andlitiđ til ađ bólgrafin vit mín ofkćldust ekki, í ţýskum íţróttaskóm og anorak úr Vinnufatabúđinni. Ţađ var vinstri síll á manni.

Ţegar Ólafur var búinn ađ skjóta mig međ myndavél sinni sagđi hann glađhlakkalega viđ mig, eins og hann héldi ađ hann ţekkti mig: "Hvađ ćtli hann afi ţinn segi ţegar hann sér myndina af ţér". Mig minnir, ţó ţađ sé kannski ekki alveg rétt eftir haft, ađ ég hafi svarađ hinum hávaxna ljósmyndara einhvern vegin í ţessum dúr: "Hann verđur stoltur af mér kallinn".

Vegna ţessarar listagóđu myndar Óla K. af mér í rannsóknarferđ í Sundahöfn, fékk ég um tíma viđurnefniđ borgarskćruliđinn.

Löngu síđar frétti ég ađ Óli K. Magg. hafi haldiđ ađ ég vćri einhver úldinn ćttarlaukur af húsi eiđsvarinna íhaldsmanna - eins af innstu koppum í búri Valhallar. En blessađur kallinn fór mannavillt.

Menn eiga ţađ reyndar til ađ rangfeđra mig. Einhvern tíman mjög snemma á ţessari öld kom sendiherrafrú međ ćttarnafniđ Rafnar í skranverslun, sem selur bling og bijouteri í Kaupmannahöfn. Ţar rćđur ríkjum lítil og fínlega kona sem gengur undir ćttarnafninu Hartogsohn. Frú Hartogsohn er gift dönskum sagnfrćđingi, Bent Bludnikow, sem síđar gerđist lélegur blađamađur. Ég álpađist til ađ vinna međ honum áđur en hann gerđist ötulasti talsmađur Trumps í Danmörku.

Hann segir mér einhverju sinni frá ţví ađ kona hans hafi talađ viđ sendiherrafrúna frá Íslandi. Frú Hartogsohn sagđi sendiherrafrúnni, ađ hún ţekkti mann frá Íslandi. Frú Rafnar sagđist ţá ţekkja mig vel, sór fyrir ţađ og sárt viđ lagđi, ađ hún ţekkti íslenskan föđur Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar; hann átti ađ vera heildsali. Ég hváđi, en sá ţá ađ ţessi samstarfsmađur minn um skeiđ, Trumpistinn, steig ekki í vitiđ - og gerir ţađ reyndar ekki enn.

Ţessa arfvitlausu rađgreiningu sendiherrafrúarinnar heitinnar, í skranversluninni Palćgade í kóngsins Kaupmannahöfn forđum, hefur veriđ mjög erfitt ađ má af sér. Taldi hún mig vera tengdan hrađskreiđum lögmanni einum á Íslandi, sem ekur um á skrítnum mótorhjólum, sem oft dvelur á Ítalíu og er sonur Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar heildsala (d. 1999). Kannski er ekki ađ furđa, ađ frú Rafnar ruglađist í ríminu, enda var fađir minn, sem tók sér nafniđ Vilhjálmur Vilhjálmsson, líka heildsali en ekki í heildversluninni "Hólmi", heldur í "Amsterdam".

Sínu verra var er útúrdrukknar konur hringdu međ jöfnu millibili heim um miđjar nćtur og vildu ná tali af Vilhjálmi Vilhjálmssyni söngvara, sem ţćr vildu tjá ást sína eđa eitthvađ annađ safaríkara. Stundum brá ég mér í gervi söngvarans og söng fyrir ţćr einn af slögurum ţessa ástsćla söngvara og nafna föđur mín, áđur en ég tók símann úr sambandi. Brjálađar konur eru leiđinlegar.

Til gamans er hér mynd af föđur mínum sumariđ 1946, ţegar hann var snúinn aftur frá feluför sinni til Fríslands, ţangađ sem hann var sendur 1942. Á Fríslandi bjó hann hjá fjórum mismunandi fjölskyldum - vegna uppruna síns, sem ekki var nógur Rassenrein fyrir Hollendinga ţess tíma. Myndin er tekin viđ Friđarhöllina í den Haag, en fađir minn bjó enn í foreldrahúsum skammt ţar frá.

6c


mbl.is Ţessi mađur var á stađnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband