Ingibjörg Sólrún er eins og pálmarnir í Vogahverfi

Imba og Assad

Hún frú Ingibjörg (ISG) býr nefnilega í glerhúsi líkt og sumir flokksfélagar hennar í Reykjavík. Ţađ kemur svo greinilega í ljós í nýjasta útspili hennar sem greint hefur veriđ frá á Stundinni.

Háheilagt starfsliđ Stundarinnar hefur um stundarsakir fćrt sig upp yfir mitti, ofar en rauđriđnar hređjar Jóns Baldvins Hannibalssonar, og er ţannig séđ komiđ langt yfir ţau málefni sem fjölmiđillinn sérhćfir sig einna mest í.

Stundin birtir nú frásögn af ummćlum sem fyrrverandi utanríkisráđherra Íslands, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, lét falla á Facebook sinni. ISG er konan sem fór á fund Assads á Sýrlandi til ađ koma Íslandi í Öryggisráđ Sameinuđu Ţjóđanna - og sem nú er forstjóri ODIHR, Lýđrćđis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem lítiđ eđa alls ekkert verđur ágengt í baráttu í helfararafneitun og gyđingahatriđ sem grasserar í Austur-Evrópu - enda gerir stofnunin ekkert ađ viti í ţeim efnum undir slakri forystu ISG.

Frú 18 má ekki tala

Ekki bannađi ISG fréttir af ferđum sínum til alrćmdustu illmenna og gyđingahatara Miđausturlanda Íslandi til stuđnings, en nú fárast hún yfir konuskömm á Íslandi sem telur sig, í aumri whitetrash-tilveru sinni á Íslandi, vera úrval hins lítilfjörlega "aríska kynstofns".

Hefur kona ţessi látiđ flúra töluna 18 á hálsinn á sér, en ţađ mun tákna bókstafina A og H samkvćmt nasistum. Brennimarkiđ AH stendur líklega einnig fyrir Arískur Hálfviti. ISG vill láta banna RÚV ađ sýna ţátt sem fjallar um konu ţessa og ófarir hennar í lífinu.

En af hverju leggst ISG svona lágt og gegn íslenskri konu međ ţráhyggju? Af hverju vill hún láta banna henni ađ tjá skođanir sínar? Á ISG inni fyrir slíkum herferđum? Ţađ tel ég varla.

happy_old_days

Ţegar Ísland var fremst á međal ţjóđa og logiđ var ađ Dönum um ágćti fínansfurstanna íslensku á fundum í Danmörku

Er Dr. Efraim Zuroff hjá Simon Wiesenthal Center í Jerúsalem, sem ég hef starfađ fyrir, fór fram á ađ íslensk yfirvöld rannsökuđu mál nasistans og gyđingamorđingjans Eđvalds Hinrikssonar (Evald Miksons), setti ISG og ađrir stjórnmálamenn, t.d. ţokkapilturinn Jón Baldvin Hannibalsson sig upp á móti ţví.

Sumir íslenskri stjórnmálamenn, sem ekki kunna ađ skilja óskylda hluti frá hverjum öđrum, héldu ađ Davíđ Oddsson ţáverandi forsćtisráđherra hefđi fengiđ beiđni frá Ísraelsstjórn um ađ rannsaka stríđsglćpamanninn og morđingjann sem Íslendingar höfđu skotiđ skjólshúsi yfir.

Vegna stuđnings viđ hryđjuverkastarfssemi í Miđausturlöndum var ISG á ţví ađ ekki mćtti hreyfa viđ Eđvaldi Hinrikssyni, ţví hún taldi ađ Ísraelsríki vćri á bak viđ beiđnina um ađ íslensk yfirvöld rannsökuđu fortíđ hans. Ţó svo ađ í ljós hefđi komiđ, ađ Ísraelsstjórn hefđi ekkert haft međ beiđnina til Íslenskra yfirvalda ađ gera, hófst ferli algjörrar afneitunar á Íslandi, sem í tóku flestir stjórnmálamenn og allir fjölmiđlar utan einn og jafnvel íţróttasambönd.

Íslendingar vernduđu gyđingamorđingja og stríđsglćpamanna frá réttvísinni. ISG fór einna fremst í ţeirri ađför ađ gyđingum nútímans sem reynt hafa ađ fá réttvísinni framgegnt gagnvart böđlum Gyđingaţjóđarinnar. Ţví verđur aldrei gleymt, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir! Ţú varđir stríđsglćpamann og komst í veg fyrir ađ mál hans yrđi tekiđ upp og hefur aldrei beđist afsökunar á ţví klámhöggi ţínu. Mikson átti vitaskuld líka rétt til varnar, en á ţađ reyndi aldrei, vegna einlćgs haturs sumra íslenskra stjórnmálamanna í garđ gyđinga og Ísraelsríkis, sem á stundum hefur nálgast sjúkleika.

ISG og Assad

Vitaskuld er kjánalegt ađ gefa afvegaleiddri, og jafnvel veikri manneskju, auglýsingu fyrir öfgaskođanir sínar í fjölmiđlum. Konan telur ađ útrýmingar á gyđingum hafi ekki átt sér stađ. 

En hún á sér skođanafélaga. Morgunblađiđ birti t.d. á 10. áratug síđust aldar greinar eftir rugludall sem hafđi sömu skođanir og varđi Morgunblađiđ hann međ skođanafrelsi, tjáningarfrelsi og ritfrelsi. Ég og líffrćđikennari minn í menntaskóla, Örnólfur heitinn Thorlacius, voru einu mannverurnar á Íslandi sem töldum ástćđu til ávíta birtingu helfararafneitunar í Morgunblađinu. Öllum öđrum virtist vera skítsama.

Ég hef skipulega skráđ niđur fjölda manna á Íslandi sem hafa látiđ sömu skođanir í ljós og vitleysingurinn sem afneitađi helförinni í Morgunblađinu, fyrir utan alla ţá sem ćrast fyrir hönd Palestínuaraba í hvert skipti sem skálmöld ţeirra er glćdd meira hatri.

Ćrsl Íslendinga og sorakjaftur hjálpa Palestínumönnum vitaskuld ekki neitt. Almenningur Palestínu veit ekkert um Íslands og peningarnir sem streymt hafa frá Íslandi fara međ öllum hinum milljörđunum í betlifé siđspilltra leiđtoga Palestínumanna.

Fjöldi manns á Íslandi skrifar ólíklegustu hluti ţegar átök á milli Palestínumanna og Ísraels blossa upp. Skođiđ athugasemdardálka fjölmiđlanna og blogg, ţar sem mađur sér fólk skrifa ađ "Hitler hefđi átt ađ ljúka ćtlunarverki sínu."

Á ađ gefa konu, sem er haldin nasistagrillum, sendingartíma á RÚV?

Afneitun ţess ađ fólk eins og hún sé til, er ađ mínu mati hćttulegri en ađ leyfa henni ekki ađ spređa hatrinu. Hatur hennar og fávísi gćti orđiđ öđrum til varnađar. Í landi ţar sem yfirvöld hafa ekki framfylgt loforđi sínu frá 2000 á alţjóđavettvangi, loforđi um ađ kenna börnum og unglingum um helförina, er vitaskuld ekki óeđlilegt ađ ađ helfararafneitarar séu til. 

Viđ verđum einnig ađ minnast ţess ađ íslensk nasistafífl komust í góđar stöđur eftir stríđsárin, sem (ómenntađir) seđlabankastjórar, lögreglustjóri og alţingismenn, ađ ógleymdum kratanum Jónasi Sveinssyni sem gaf út svćsnasta, andgyđinglega efniđ sem sögur fara af á Íslandi. Ţetta voru allt betri borgarar síns tíma og sátu einnig í ríkisnefndum og Norđurlandasamstarfi.  

Fyrst ţessir "mektarmenn" voru virtir ţjóđfélagsţegnar, má  ţá ekki rugluđ kona međ grillur, sem eru jafnhatursfullar og ţćr sem íslensku nasistarnir höfđu á 20. öld, spúa ţeim út á RÚV. RÚV er međ fréttastofu ţar sem nokkrir starfsmenn hafa skipulega spýtt út lygafréttum frá Miđausturlöndum. Sama RÚV sá til ţess ađ ekki yrđi minnst eđlilega á mál Eđvalds Hinrikssonar í kjölfar ţess ađ íslenskir stjórnmálamenn, međ Ingibjörgu Sólrúnu fremsta í flokki, ásamt Ólafi Ragnari og Jóni Baldvin, friđuđu stríđsglćpamann og hindruđu ađ mál hans yrđi rannsakađ á Íslandi.

Ég tel gott ađ Íslendingar fái ađ sjá, hvers konar ómenning grasserar á Íslandi. Sama hvort ţađ eru öfgaskođanir Ingibjargar Sólrúnar eđa kynsystur hennar, sem hefur látiđ flúra 18 á hálsinn á sér. Vonandi sjá einhverjir, ađ skođanir mektarmannanna sem hófu stjórnmálaferil sinn í nasismanum voru ekki víđsfjarri rugli nýnasistans í dag.

Íslendingar eru margir helsjúkir af gyđingahatri, á sama hvađa vćng stjórnmálanna sem ţeir eru. Ţví verđur ekki leynt.

Á ađ banna viđtöl viđ gamla komma?

Nú, ég gleymdi nćstum ţví öllum ţeim Íslendingum sem báru helstefnu Sovétkommúnismans á gullstóli og bođuđu hana gagnrýnislaust á Íslandi. Hjá ţeim var nú margur potturinn brotinn í afneituninni og hatrinu. Ţjóđviljinn var t.d. fyrst fjölmiđillin sem réđst á gyđing eftir síđara stríđ fyrir ađ leyfa sér í Morgunblađinu af öllum stöđum ađ skrifa um ógnarstjórn Rússa í fyrrverandi heimalandi hans, Litháen, sem leysti af hólmi ógnir nasismans. 

Helgislepjukórar Íslands, sem eru nokkuđ margir, ćttu ađ kynna sér sögu landsins betur áđur en ţeir góla í glerhúsum sínum.

Mćli ég međ ţví ađ RÚV taki einnig viđtal viđ Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, um ferđ hennar til Assads og stuđning hennar viđ Eđvald Hinriksson. Ţađ myndi smellpassa inn í ţessa ţáttaröđ um subkúltúra á Íslandi sem RÚV sýnir um ţessar mundir. 

Ţađ er víst kominn tími til ţess ađ starfsliđ ODIHR, Lýđrćđis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er forstjóri fyrir, og alheimur allur, fái betri upplýsingar um yfirmann ODIHR og fortíđ hennar. Hvađ kallar mađur ţađ, ţegar fólk vill koma í veg fyrir ađ rannsókn fari fram á gyđingamorđingja úr síđara stríđi? Vita samstarfsmenn ISG í Varsjá, ađ hún heimsótti einn helsta talsmann útrýmingar Ísraelsríkis, fjöldamorđingjann Bashar al-Assad.

ISG ćtti ađ mínu mati ađ segja starfi sínu lausu hjá ODIHR hiđ fyrsta, vegna algjörs ótrúverđugleika. Kona, sem kom í veg fyrir ađ stríđglćpamađur yrđi sóttur til saka á Íslandi, á ekkert erindi í slíkt starf.

Imba staur


Bloggfćrslur 3. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband