Bloggfærslur mánaðarins, júní 2020

Arabíuperlur með auga Allah - íslensk fornleifafræði er orðin að hjáfræði

S2

Hjáfræði er íslenska þýðingin á hugtakinu pseudoscience. Allir sjá á grísk-latneska hugtakinu að slík fræði geta ekki verið góð latína. Íslenska þýðingin finnst mér of væg. Réttara væri að kalla fyrirbærið gervivísindi eða gervifræði. En hvenær er hægt að skilgreina vísindi með hugtaki eins og hjáfræði? Það er vitaskuld mjög vandasamt verk.

Ég leyfir mér að taka gott dæmi um rannsókn þar ég er fullviss um að fornleifafræðin er komin í hjáfræðaflokkinn. Það er einnig hægt að lesa um aðrar rannsóknir undir flokknum Íslensk furðufornleifafræði og grillumannfræði á dálkinum hér til hægri. 

Stutt er síðan að nýtt fræðilegt hugtak kom inn í íslenska fornleifafræði. Það er orðið Stöð. Stöð hefur að frumkvæði dr. Bjarna F. Einarssonar fengið merkinguna "búsetustaður manna fyrir "hefðbundið" viðtekið og í stórum dráttum sannað landnám manna á Íslandi á seinni hluta 9. aldar.  Samkvæmt dr. Bjarna höfðust norrænir menn tímabundið við í stöðvum á Íslandi fyrir hið viðtekna landnám.

Bjarni telur sig haf rannsakað tvær slíkar stöðvar á Ísland, þar sem á að hafa farið fram einhvers konar fjarvinnsla þar sem voldugir menn sóttu hráefni og fóru með afurðirnar til "heimalands" síns (Noregs).

Þrátt fyrir að talað sé um veiðar á rostungi og önnur verðmæti hafsins, hefur ekki fundist svo mikið sem arða af rosmhvalstönn í "stöðvum" þeim sem nýlega hafa verið rannsakaðar og sem kallaðar hafa verið stöðvar af þeim sem rannsakar. Vinnslan fór greinilega fram án þess að úrgangur væri skilinn eftir.

Íslenskir stöðvartrúarmenn, sem eru fáir, hafa bent á að búsetan hafi verið stutt í stöðvunum. Menn birgðu sig upp af veiði sinni og fluttu hana síðan út til "móðurlandsins".  Reyndar bendir sumt til þess að þessar "útilegur" stórmanna í stöðvum á Íslandi, hafi nú lengst töluvert eftir að Stöð í Stöðvarfirði hefur verið rannsökuð. Í Vogi í Höfnum, þar sem Bjarni F. Einarsson telur sig hafa rannsakað "stöð", var hins vegar brotinn kvarnarsteinn í gólfi. Það bendir nú frekar til lengri búsetu, þar sem menn möluðu korn svo ótt að kvarnarsteinn brotnaði.S2sMynd 2 - Til vinstri perla sú se m Bjarni F. Einarsson telur vera frá Arabíu og sýna auga Allah. Hún er ekki frá Arabíu heldur búin til í Evrópu. Johan Callmer hefur flokkað hana til gerðar sem hann kallar sem B p / B316 (sjá neðar). Perlan til hægri er einnig fundin á Stöð í sumar. Hún er mjög líklega innflutt perla frá löndum Íslam.

Engar C-14 greiningar styðja almennilega við þá yfirlýsingar að "Stöðvar" séu frá því fyrir landnám um 870 e.Kr. Til undirbyggingar því að Stöng í Þjórsárdal hafi ekki farið í eyði fyrr en í byrjun 13. aldar, en ekki í eldgosi í Heklu árið 1104 (sem er nokkuð erfitt að hveða niður) voru greind hátt á þriðja tug C-14 sýna fyrir tilstuðlan þess sem þetta ritar. Þær voru meðal annarra sönnunargagna sem ótvírætt bendir til þess að Stöng hafi farið í eyði eftir aldamótin 1200. Því miður gefur lítill fjöldi C-14 greininga frá Stöð í Stöðvarfirði ekki góðan stuðning við landnám og stöðvarrekstur í Stöðvarfirði fyrir 870 e.Kr.  Ef menn ætla sér að kollvarpa landnámstíma á Íslandi verður það frekar gert með C-14 greiningum heldur en Auga Allah.

Það gerir gripasafnið heldur ekki. Reyndar eru menn ekki almennilega komnir niður í gólf eldri skálans á Stöð í Stöðvarfirði, sem á að vera skáli stöðvarinnar, en þangað til gólfið verður rannsakað eru engir gripir frá Stöð sem eru eldri en frá miðbiki 9. aldar. 

Spurningum um eðli "stöðvanna" á Íslandi láta þeir sem bera ábyrgð á stöðvarrannsóknum undir hattinn að svara. Dæmi um slíkar spurningar. Hvers vegna sóttu menn frá Noregi fisk og rosmhvalsafurðir alla leið til Íslands, þegar nóg var að slíku við strandlengju Noregs? Hvar eru leifar fiskvinnslunnar?

Hið alsjáandi auga Allah?

Svo er farið út í hjákátlegar tilgátusmíðar og bábiljur. Tökum dæmi: Nýlega fannst perla á Stöð í Stöðvarfirði. Á RÚV var sagt frá þessum fundi á eftirfarandi hátt (sjá hér bæði í texta og á myndbandinu:

„Þetta er augnaperla eða augnperla. Önnur slík sem finnst í Stöð. Það má ráða í hana að hún er upprunnin frá Arabíu eða úr múslímskum heimi og á henni eru augu. Þetta er auga Allah sem blasir þarna við. Þetta berst með verslunarleiðum frá Arabíu norður á bóginn og finnst í stórum dráttum alls staðar í Norður-Evrópu,“ segir dr. Bjarni."

Þótt allt arabísk falli vel að sörvi RÚV, er perlan mórauða með auganu ekki ættuð frá Arabíu eða múslímskum heimi. Glerið, sem notað var við gerð perlunnar, gæti þó hugsanlega upphaflega hafa borist frá fjarlægari löndum til Skandinavíu á 8.öld. Perlan er búin til á söguöld. Hvergi er þekkt fyrirbærið Auga-Allah perla og þegar Bjarni var spurður um það af ritstjóra Fornleifs, kom þetta delfíska svar í véfréttastíl, þótt það sé alveg klárt hvað Bjarni F. Einarsson sagði alþjóð á RÚV:

Sæll. Lang flestar perlurnar eru úr yngri skálanum. Sumar var erfitt að færa til hins yngri eða eldri og örfáar voru úr þeim eldri.
 
Hvergi hefur því verið haldið fram að heitið Auga-Allah-Perla sé til eða að það sé hugtak. Að augað á Augnperlunni sé auga Allah er allt annað mál.
Kv
 
Bjarni

Bjarni telur greinilega, sér og persónulega, en í einhvers konar hjátrú, að augað á perlunni sé auga Allah. Mönnum er í sjálfsvald sett, hvað þeir kalla auga Allah eða hvort þeir trúa á hann. En þessi aðferð, að búa til heiti á perlu, þannig að þorri manna heldur að perlan sé arabísk og af gerð sem kölluð er Auga Allah er hálfgert glóðarauga fyrir fornleifafræðina sem fræðigrein. 
 
Bjarni hefur áður sagt perlusögur. Árið  201.. hélt hann því fram að grænleit perla úr steini væri ættuð alla leið frá Indlandi og að steinninn kallaðist Kreolite. Engin slík steintegund er til (sjá dóm Fornleifs yfir þeirri furðuperlu frá Stöð hér).
 
Hverju slíkar lygasögur eiga að þjóna, er mér hulin ráðgáta. Ef Bjarni telur sig hafa sannanir fyrir landnámi fyrir þetta venjulega og klassíska á síðari hluta 9. aldar, þá vantar haldbæran rökstuðning. Hvar er hann?
 
RibeSJM_348_200283653_x783-1 b 2
 
 
Mynd 3 - Tvær perlur frá Ribe á Vestur Jótlandi, af sömu gerð og perlan frá Stöð sem ranglega er sögð vera arabísk og sýna "Auga Allah". Danir hafa lengið kallað augun blóma/sólar-mynstur.
 

Gerðarfræði og aldur "arabísku" perlunnar á Stöð

Fyrst skal jörðuð skyndiyfirlýsing Bjarna F. Einarssonar um að perlan mórauða með auganu sé Arabaísk eða frá  Íslömskum svæðum. Það er hún ekki.

Ég tek venjulega ekki að mér verktakaverkefni fyrir aðra fornleifafræðinga sem ekki eiga grundvallarrit um perlur, þó þeir séu búnir að finna um 130 í sömu rannsókninni. Ég geri hér hins vegar undanþágu, þar sem höfðingjabýli Bjarna á "Stöð" er glæsileg perla og vel upp grafin af einum besta uppgrafara á Íslandi; en fyrst og fremst vegna þess að ég hlakka til að sjá eldri skálann sem er undir þeim sem er frá 10. öld, sem Bjarni rannsakar nú. Ég hef enn ekkert séð bitastætt sem fær mig til að trúa því að á Stöð sé byggð löngu fyrir hefðbundið landnám.

Þær perlur sem Bjarni hefur sýnt umheiminum eru allar dæmigerðar fyrir perlusöfn frá 10. öld.

Ég fór í kassa uppi undir þaki og sótti þar ritgerð Johan Callmers frá 1979, sem ber heitið Trade Beads and Bead Trade in Scandinavia ca. 800-1000 A.D. Johan Callmer var prófessor í Umeå 1991 og síðar á Humbolt í Berlín. Doktorsritgerð hans frá Lundi keypti ég einu sinni á Historiska Museet i Stokkhólmi snemma á 9. áratugnum er ég heimsótti systur mína í Uppsölum.

Ég get upplýst með tilvísun í Callmer, að "Auga Allah-perlan" á Stöð ber flokkunarheitið B p - perla samkvæmt gerðarfræði Callmers.

Perlur af B p gerð eru (líkt og perlur af B c gerð búnar til í Vestur Evrópu og hafa ekki komið frá Arabíu eða svæðum þar sem Íslam hafði breiðst út til. Nánar tiltekið er perlan af gerðinni:

B p; B316

P p; B316, eru rauðbrúnar perlur með augum (Sjá bls. 88, 98, Plate 8 og Colour Plate II í Callmer (1977)). Hins vegar kalla Danir (t.d. fornleifafræðingar í Rípum/Ribe) þetta skreyti ekki augu, heldur sólar/blóma-mynstur.

IMG_20200628_0002 b

Eftir Callmer (1977), Plate 8.

B316O

Eftir Callmer (1977), Colour Plate II. Perlan í miðjunni ert skyldust perlunni á Stöð.

Tímasetningar á perlum frá 800-1000 e. Kr. eru mjög erfiðar og menn nota venjulega ekki tímatal Callmers á perlum sem afgerandi tímasetningaraðferð, enda mælir hann hvergi með því þegar hann vann meistaraverk sitt þar sem hann flokkaði perlurnar. En hann upplýsir að perlur í B p-flokki af þeirri gerð sem "Auga-Allah Perlan" hans Bjarna er af hafi komið fram á sjónarsviðið á 9. öld, fjölgað svo mjög á tímabilinu 845-915 (frá tímaskeiðum III-VII sem hann hefur sjálfur skilgreint. Perlum sem þessum fer síðan hríðfækkandi í aldursgreinanlegu samhengi fram til 950.

Hinar perlurnar sem Bjarni hefur fundið í sumar eru allar af gerð perla sem er algengar á 10. öld samkvæmt Callmer og öðrum viðurkenndum perlufræðingum Norðurlanda. Það bendir m.a. í þá átt að yngri skálinn, sem þær hafa fundist í , sé reistur þó nokkru eftir landnám um 870, þ.e. þetta gamla góða hefðbundna landnám, sem því miður hefur orðið alls konar hjáfræði að bráð.

Til að gleðja Stöðvar-fornleifafræðinga sem sjá allt í hyllingum í arabískri eyðimörk, vill svo vel til að perlan lengst til hægri í neðri röðinni á mynd Fornleifafræðistofunnar (Sjá efst) er niðurhlutuð (segmenteruð) perla með silfurþynnu. Þær voru fluttar inn til Evrópu sem verslunarvara í tonnatali á löngu tímabili frá löndum Íslams, m.a. Egyptalandi. Þær má stundum finna í mannvistarleifum allt fram til um 1100 e.Kr. Það verður að vera plásturinn á sárið og perlan í grjúpáninu nú þegar auga Allah er komið alveg í  pung austur á Stöðvarfirði.

Lesið fyrri greinar Fornleifs um rannsóknir á Stöð í Stöðvarfirði hérhér og hér.

Heimildir:

Callmer, Johan (1977). Trade Beads and Bead Trade in Scandinavia ca. 800-1000 A.D. (Í Acta Archaeologica Lundensia, Series In 40. Nr. 11) Lund, Bonn.

Callmer, Johan (1995). The Influx of Oriental Beads into Europe during the 8th Century AD. í M. Rasmussen, U. Lund Hansen & U. Näsman (Eds.). Glass, Beads: Cultural history, techology, experiment and analogy. Lejre: Historical Arcaeological Experimental Centre, 94-54.

Torben Sode & Claus Feveile (2002) Segmenterede metalfolierede glasperler og blæste hule galsperler med metalbelægning fra markedspladsen i Ribe. By, marsk og geest 14, 5-14  (s hér).


Hvar er krossinn á Bessó?

Screenshot_2020-06-23 Sarpur is - Bústaður, Hátíðisdagur, Kirkja, Konungs (1)

Fjör er loks að færast í yfirstandandi forsetakosningar, sem hingað til hafa verið hálfdaufar.

Ekki er að sakast við forsetann. Hann þarf ekkert að aðhafast og er það viturlegast í stöðunni. Hann er bara maður sem fylgir starfslýsingu sinni og heldur ekki eins og lítið brot þjóðarinnar að hann búi í Bananaríkjunum.

Einn örgustu stuðningsmanna kauphallar-Franklíns fór mikinn á FB sinni í gær, 22.júní 2020, og setti fram nær vatnshelda  ameríska samsæriskenningu um hvarf krossins á spírunni lágreistu á Bessastaðakirkju. Hafið þið tekið eftir því að krossinn er farinn?

Þvílíkt og annað eins.

bessastadir_22

Enginn kross var á turnhattinum á 19. öld. Turninn stóð fullbyggður árið 1823, og það ártal stóð á vindfánanum.

Stuðningsmaður Franklíns skrifaði reyndar tvær færslur; Ein fauk út í Álftanesvindinn seinni partinn í gær, því hann sá ugglaust að hann hafði hlaupið örlítið á sig, þótt hann hefði glögglega sýnt fram á að kross sem á kirkjunni fallegu var sé horfinn. Kross var líklegast ekki settur á Bessastaðakirkju fyrr en eftir 1940, eða eftir lýðveldisstofnun.

Fyrri færsla mannsins leiddi til þess að vinir áskoranda Guðna forseta fóru mikinn. Sumir töldu að Guðni hefði látið fjarlægja krossinn vegna þess að hann væri trúlaus. Aðrir töldu víst að hann hefði horfið í skjóli nætur vegna þess að forsetafrúinn er gyðingur (sem hún reyndar er ekki).

Menn þurrkuðu sem betur fer ekki skítuga skó sína á Dorrit blessuninni í þetta sinn. Stuðningsmenn Franklíns töldu sumir hverjir að kirkjan væri orðin moska, en aðrir voru vissir um að Kínverjar hefðu keypt krossinn af kirkjunni. 

Stuðningsmenn Franklíns eru svo sannarlega ekki alþjóðasinnar, nema í samsæriskenningunum sínum - svo mikið er víst.

1381256_532590390150690_1366776172_n

Fyrir fáeinum árum misstu Íslendingar enn einu sinni af stórgóðri heimild um Bessastaði. Vasinn á myndinni, sem boðinn var upp í Kaupmannahöfn og sem Fornleifur ritaði þá um, sýnir ekki kross á Bessastaðakirkju. Þetta er með nákvæmustu myndum af kirkjunni frá 19. öld. Vasinn er í miklu uppáhaldi hér á ritstjórnarskrifstofunni.

Stuðningsmaður Franklíns hafði hringt í forsetaembættið og þjóðkirkjuna og þar komu allir af fjöllum. Ég held meira að segja að þjóðkirkjan hljóti að hafa benti manninum á, að það þurfi ekki að vera kross ofan á kirkjum.

Eftir að ég hafði vinsamlegast bent stuðningsmanni Franklíns á að til væri prýðisgóð skýrsla um útlit, þróun og viðgerðir Bessastaðakirkju eftir Þorstein Gunnarsson arkitekt og leikara. Í skýrslu þeirri kemur óbeint fram að kross hafi ekki verið á turnspírunni fyrr en á 20. öld. Hann hvarf síðan við viðgerðir á kirkjunni árið 1998. Á 19. öld og fram á þá 20. var á turnspírunni flötu spjót sem gekk meðal annars í gegnum ríkisepli og vindfána með byggingarári kirkjunnar.

Gröndal 1844

Benedikt Gröndal málaði þessa mynd árið 1844. Engan Kross má sjá en fluga hefur nær dritað á vindhanann á turninum sem var reistur úr grjóti úr Gálgahrauni. Ætli Gröndal hafi verið alþjóðasinni eða kommi?

Þegar þarna var komið við sögu sá stuðningsmaðurinn að sér og fjarlægði allar athugasemdir, og byrjaði upp á nýtt. Hann leitar eðlilega enn að krossinum, því kauphallaforsetar verða vitaskuld að hafa kross til að krjúpa við þegar þeir setja fólk á hausinn.

Þrátt fyrir nýja færslu um krossleysið á Bessó er aftur komið fólk á FB stuðningsmanns Franklíns sem veltir fyrir sér krossleysi vegna Kínverja og Múslíma. En þeir hafa nú verið fullvissaðir um að Þorsteinn Gunnarsson Arkitekt sé á bak við hvarfið og augu hans er auðvitað hálfkínversk.

Eina spurningin sem réttmæt er varðandi Bessastaðakrossinn er þessi: Af hverju var ekki sett upp upphaflegt spíruskreyti, fyrst menn voru að setja kirkjuna í sitt upphaflega form.

Kirkjan á Bessastöðum stendur hálfkollótt án krossins sem var sett á turnhattinn flata á seinni hluta 20. aldar. Best væri ef Guðni fagnaði sigri sínum með því að kosta nýtt turnspjót með epli, vindfána og öðru pjátri. Nóg hefur Guðni sett af gulli til hliðar og hann er áhugamaður um sögu og er mér um margt sammála, en auðvitað ekki um allt.

isl1957005akrnr

Stuðningsmenn Franklíns er annað hvort svo ungir eða svo elliærir að þei muna ekki eftir þessum 5 kalli. Framhlið hans sýnir styttuna af Ingólfi þrælahaldara og stöðvarbraskara, sem sögulaus þjóð vill rífa niður af manngæsku við blökkumenn í Bandaríkjunum. Bakhliðin sýnir Bessastaðakirkju án Kross. Ekki er nema von að krónan hafi fallið þúsundfalt í gengi eftir að þessi seðill sá dagsins ljós. Best hefði verið ef á fimmkallinum hefði staði in God We Trust eins og á dollurunum á peningaeik Franklíns westur í Ammríku.

Ritstjórn Fornleifs telur víst, að ef kauphallar-Franklín ætti nokkra von um að verða forseti, þyrfti ekki að setja vindhana á kirkjuna, því einn yrði fyrir í Bessastaðastofu. Flöktandi dalur (dollar) kæmi væntanlega í stað vindfánans og gylltur kjétbauti (hamborgari) í stað ríkiseplisins og jafnvel kjúklingabiti af klofnum hana. En þannig steikarteinn (á franklínsku kallast slíkur teinn Barbecue skewer) verður þar nú ekki.


Niðurbrotsmenn nútímans

LeeStatueRemoval2-1250x650

Hið íkónóklastíska háttalag mannskepnunnar er eitt af frumstæðustu kenndum hennar, fyrir utan öfund, hatur og fávisku.  Niðurbrot á minnum, helgitáknum, og jafnvel trú þess sem úthrópaður er sem óvinurinn, hefur því miður fylgt manninum síðan á hellisstiginu, og alveg fram í rauða byltingu og dauðamessu fasistanna.

Thorgeir

Nú sjáum við vel menntað fólk fara um heiminn og fjarlægja styttur bæjarins.  Ja hérna...  Hvað hafa blessaðar stytturnar gert kjánunum. Mér sýnist á allri þessari niðurbrotsöldu, aðallega í Bandaríkjunum, að það séu ekki Svört Líf sem Skipta Máli fyrir niðurrifsfólkið - heldur hinn ömurlegi sjálftökuréttur til að eyðileggja með vandlætingu menningu og sögu "óvinarins" á sama hátt og t.d. ISIS brytjaði niður leifar menningar sem þeir telja móðgun við hið háheilaga Íslam. Skríllinn vann einnig þessa byltingu, og þar með er byltingin töpuð.

200621081902-north-carolina-henry-wyatt-statue-large-169

Íkónóklasmi eru heilkenni sem lýsa sér hjá fólki sem er of frumstætt til að geta tjáð sig með orðum - í máli, myndum eða tónlist. Eyðilegging og útrýming er greinilega eina lausnin. Ég verð eiginlega að segja eins og Dr. Huxtable gerði, áður en hann fór í fangelsið: Sýnið umburðarlyndi!

Líf svartra einstaklinga eru meira virði en það þurfi að eyðileggja stjarfar styttur úr kopar og tini fyrir þau.

200607151856-03-edward-colston-bristol-statue-0607-exlarge-169

Í BNA þurfa íbúarnir í raun ekki að fjarlægja eina einustu styttu; Ef forseta BNA verður velt af stóli og Bandaríkin fara að stunda jöfnuð eins og hann þekkist í lýðræðisríkjum, er stigið stórt skref fram á veg. Ef gargandi vitleysingar BNA, sem ekki geta tjáð sig nema í niðurbroti múgæsingar, sjá ekki að eina styttan sem þarf að fjarlægja, er Trump, þá á þessi volaða þjóð enga von.

image Middelalder

Trump er hins vegar búinn að ná allsherjar klofbragði á bandarísku þjóðinni. Hann heldur hreðjataki á þjóð sem í skugga farsóttar er svo tæp að hún gengur berserksgang gegn sjálfri sér, í stað þess að nota mátt orðsins, myndarinnar og tónlistarinnar til að koma hvirfilvindhærða hreysikettinum burt úr Hvíta Húsinu.

2017-08-18T183719Z_1_LYNXNPED7H1FN_RTROPTP_4_USA-PROTESTS-STATUESÞjóð sem ekki vill jafnræði, en frekar glundroða hópæsingar, fær það sem hún biður um: Fjögur ár í viðbót með vanstilltan mann í Hvíta Húsinu, sem er haldinn alveg sömu kenndum og ISIS-liðinn hér á myndinni og þeir sem telja sig leysa vandamál með niðurbroti. Styttubrjótar nútímans eru andlegir frændur Trumps.

VAsC


Trimmkarlinn - in memoriam

Trimmkarlinn

Ritstjóri Fornleifs var óttalegur trimmkarl á yngri árum og synti eins og óður maður til að verða sér út um gullmerki og trimmkarla.

Áhuginn á Trimmkarlinum var mestur árið 1972, minnir mig. Ég æfði sund hjá KR og því var lítið mál að ná sér í Trimmkarl. Synda þurfti 100 sinnum 200 metra til að mega kaupa trimmkarlinn. Þar sem oft voru syntir 2 km eða meira á æfingu gekk hratt að hala sér inn trimmkarl. Ég átti þrjá, en finn nú aðeins tvo. Sár er sá missir.

Maður missti svo sem áhuga á trimmkarlinum og svo hvarf hann af sjónarsviðinu og dó þar með Drottni sínum eins og mörg önnur dellan í landinu.

Trimmkarlarnir

Síðar hlupu allir á Íslandi í breiðu bókstafina, nema þeir sem hömuðust í heilsuræktum í iðnaðarhverfum. En þeir fengu enga trimmkarla. Veskið þeirra var hins vegar trimmað vel. Á slíkum ræktum hafði ég einnig viðkomu og hafði gott af, en sá aldrei einn einasta trimmkarl. Ég kemst ekki sem stendur þótt mig langi í ræktina, þar sem ég er að bíða eftir að kviðnum á mér verði sprett upp um nafla og þar stungið inn görn sem gægðist öðru hvoru út eftir lélegan lokafrágang skurðlækna sem fjarlægðu úr mér ónýtt nýra fyrir þremur árum síðan. Ég er því líka kominn í kviðslitsfélagið. 

Nú nálgast fimmtugsafmæli Trimmkarlsins á Íslandi. Trimmkarlinn á því tvö ár í að verða hálfgerður forngripur. Væri ekki tilvalið að senda alla þjóðina í smá lýsisbræðslu í laugunum, eða er gullforði landsins uppurinn?Screenshot_2020-06-07 Þjóðviljinn - 249 tölublað (03 11 1972) - Tímarit is(1)

Sumir, og þá sér í lagi snúðugir blaðamenn Þjóðviljans, voru í vafa um gæði Trimmkarlsins, og gaf Þjóðviljinn í skyn, að gullið í gullhúðuninni á honum væri afar lítið ef þá nokkuð. Ekki veit ég, hvort einhver rannsókn fór fram á því, en ekki hefur fallið á gullið í mínum trimmmerkjum og trimmkörlum síðan 1972, og medalíurnar mínar hafa alls ekki verið hreinsaðar með Miðhúsasilfurleginum góða sem komst á markaðinn árið 1980. 

Jú, Trimmkarlarnir lifðu Þjóðviljann með glæsibrag, enda voru það svo sem ekki allt gullmolar sem í honum var logið og verulega er fallið á sannleika þess fjölmiðils.

Smá viðbót á mánudegi:

Á FB ritstjórnarfulltrúa Fornleifs kom til tals ýmislegt um uppruna og fyrirmynd Trimmkarlsins. Menn voru farnir að hallast að áhrifum frá punki, (hver fjandinn er það), og viðlíka bábilju. Ég hafði í gamni á orði að við nánari rannsókn Þjóðminjasafns Dana á gullsamsetningu Trimmkarlsins hefði komið í ljós að í honum væri ónákvæm blanda af glópagulli og Rússagulli. Rauði kamburinn var áróðurstækni Kremls til að koma Íslendingum í betra form. Í öðru lagi slengdi ég því út að sumir teldu karlinn vera nákvæma fyrirskallamynd af Ómari Ragnarssyni ungum. En það er vitaskuld út í hött, Ómar var sköllóttur frá því fyrir fermingu. Þriðja kenningin sem ég reyndi að vera fyndinn með er sú, að höfuð karlsins sé stíliserað Íslandskort og að svarti strókurinn neðst sé gjóskan úr Helgafelli.

GF5EO86FÖrlítil uppfletting leiddi hins vegar í ljós að ég óð í villu. Það var Magnús E. Baldvinsson heitinn, úrsmiður sem var maðurinn á bak við Trimmkarlinn. Magnús stóð jafnhliða úrsmíðunum í merkjaframleiðslu ýmiskonar. Ekki verður lokum fyrir það skotið að Magnús úrsmiður hafi haft sjálfan sig í huga þegar hann teiknaði trimmkarlinn, því í minningargrein um hann í Morgunblaðinu má sjá að Magnús var glettinn karl með nef ekki ósvipað og á Trimmkarlinum.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband