Bloggfćrslur mánađarins, maí 2022

Euro Ethnofeast 2022

1341877

Samanlögđ ritstjórn Fornleifs samgleđst yfir góđu gengi lappalöngu kúrekanna frá Íslandi sem nú gera garđinn frćgan í Građţjórsţorpi á Ítalíu. Söngur ţeirra og lag er mun betra en smalasöngur úkraínsku stepputataranna sem allir spá sigri, ţar sem áhugamenn um Eurovision hafa vitaskuld sterkari samkennd en hinn venjulegi, litli heterókarl eđa enn vesćlli Pútín-inn í Moskvuborg.

Nú vill svo til ađ Fornleifur ţekkir frćndgarđ íslensku smalanna nokkuđ vel. Ungur ađ aldri var Fornleifur sendill hjá RÚV og kynntist ţví langafa, ömmu og afa kúrekanna ţriggja. Pétur Pétursson var mikill öđlingur, og Ragnheiđur Ásta gaf sendlum oft súkkulađi, ţegar mađur fór međ skilabođ frá fréttastofu upp til hennar á 6. hćđ í beinni útsendingu. Fyrrverandi eiginmađur Ragnheiđar, Gunnar Eyţórsson hafđi einnig sinn sjarma, ţótt hann vćri ţurr og sarkastískur. Listaverk hans á herraklósettinu á Fréttastofunni á Skúlaötu 4 heilluđu ungan sem aldinn hal, ţar sem ţeir gerđu stykki sín gegnt skrifstofu móđur fráfarandi forsetaritara. Já, heimurinn er svo lítill.

Svo var Fornleifur í skóla međ föđurbróđur kúrekanna okkar í Torino. Pétur heitinn var hinn mesti öđlingur og góđur drengur. Fađir kúrekanna kom einnig viđ sögu, ţví hann stal eitt sinn hjólinu mínu. Ég hlustađi ţví ávallt međ mikilli varúđ á Mezzoforte og ţurfti oft ađ gera Dönum grein fyrir ţví ađ ţeir voru nú altsĺ Íslendingar - og ţá seytlađi danska öfundin út úr ţeim eins og brún sósa ţegar ţeir diskuđu áfram í Carlsbergvímu og polkamúsík sem dönum virđist einfaldlega í blóđ borin.

Í kúrekunum ţremur sé ég ćttareinkenni allra í frćndgarđinum sem ég hef mćtt á ferlinum og ţađ án ţess ađ fá rađgreiningu á ţeim systrum hjá Kára.

eismenschen_3Kannski vinna kúrekasystur ekki Evru-ţjóđernissöngvakeppnina í ár, ţó sumir veđmangarar í London og Berlín séu fyrir langa leggi í stígvélum eins og ég.

Ţađ hefđu ţćr hins vegar örugglega gert hefđu ţćr brugđiđ sér í gervi hvítingjanna (albínóanna) sem langafi ţeirra, Eyţór - og alnafni föđur ţeirra - kćrđi á sínum tíma til ţýskra og danskra yfirvalda fyrir ađ ţykjast vera Íslendingar. Gervi-Albínóarnir (sjá hér og hér á ensku) í Ţýskalandi voru í álíka sviđsbúningum og framlag Úkraínu tređur upp í í dag í Fíatborg á Stígvélalandi. Ţađ var nokkrum árum fyrir Helförina... ég segi ekki meira.


Dýrđlingurinn í grćna bolnum talar viđ Alţingi

Vololego

Volodimyr Zelenskij talar viđ Íslendinga í dag. Ađstođarmađur Volodimyrs, Fedir M., sem stendur honum miklu nćr en Volodimyr getur nokkurn tíman ímyndađ sér, greindi mér frá ţví sem Volodimyr lét út úr sér ţegar hann var búinn ađ lesa lofrćđu sína til danska ţingsins - sem Dönum ţótti vitanlega afar vćnt um.

Volodimyr spurđi Fedir, hvort ţađ sem hann hefđi sagt um Dani vćri nú allt saman rétt og satt. Volodimyr sagđist hafa lesiđ á netinu, ađ Danir hefđu haft nána samvinnu viđ Nasí-Ţjóđverja, stefnu sem sumir kalla Samarbejdspolitikken en raunsćrri menn kalla einfaldlega međreiđar (kollaboration).

Volodimir hafđi lesiđ ađ margar ţúsundir Dana hefđi gengiđ í Waffen-SS međ blessun dönsku ríkisstjórnarinnar - og sumir ţeirra myrt gyđinga; Volodimyr hafđi einnig lesiđ ađ Danir hefđu vísađ ríkisfangslausum gyđingum á flótta úr landi á tímabilinu 1940-43 og sent ţá beint til Ţýskalands.

Hann hafđi séđ ađ danskur forsćtisráđherra, sem síđar varđ yfirmađur NATÓ, hefđi voriđ 2004 beđist afsökunar á gerđum fyrrverandi stjórnmálamanna og yfirvalda í Danmörku. Hann hafđi einnig lesiđ ađ danskar ríkisstjórnir á hernámsárunum hefđu hvatt atvinnuleysingja til ađ halda til Stórţýskalands og vinna ţar á lúsalaunum. Einnig var ljót saga af ţví ađ Danir hefđu selt Ţjóđverjum ógnina alla af matvöru í stríđinu og ađ 95% ţeirrar vöru hafi veriđ notuđ til ađ fćđa heri Ţriđja Ríkisins, m.a. ţá hermenn sem myrtu meinta ćttingja Zelenskijs sem börđust í Rauđa hernum og milljónir annarra gyđinga. Hann hafđi lesiđ í rúminu, ţar sem hann dvaldi kvöldiđ áđur, ađ danskir sjómenn hefđu hćtt lífi og limum til ađ fćra Ţjóđverjum síld og danskir bćndur hefđu grćtt vel á svínakjöti og smjöri sem fyrrum var selt til Bretlandseyja en sem nú var selt Ţjóđverjum a góđum kjörum

Ađ vonum var Zelenskij á báđum áttum og spurđi, hvort rétt vćri fyrir hann ađ líkja Rússum viđ Nasí-Ţýskalandi. Samstarfsmađur Fedirs, Oleh K., sem einnig var staddur hjá Volodimyr, sagđi ţađ í fínum málum, ţví ađ Danir vildu flestir gleyma óţćgilegum minningum úr síđara stríđi; flestir vissu hvort sem er ekki neitt, ţar sem sögukennsla hefđi veriđ í mýflugumynd í Danmörku í marga áratugi. Taldi hann víst ađ Danir vćru einnig flestir undir undir áhrifum hvítţvottameistarans B. Lidegaards, sem segir ađ Grćnland hafi aldrei veriđ nýlenda. Zelenskij svitnađi nú heldu betur í grćna bolnum.

Lćknir Zelenskijs gaf honum ţví smá róandi og Volodomyr svaf ţangađ til í gćr, er hann fór yfir ţađ sem hann átti ađ segja viđ starfsmenn Gaggó-Vest á útvarđareyju frelsisins á hjara veraldar.

Fornleifur er farinn ađ kvíđa ţví sem Zelenskij segir um Ísland, međ hjálp CIA, en furđulegt ţótti mér ađ hann hefđi ekki nefnt LEGO, ţegar hann talađi svo fallega til Dana.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband