Færsluflokkur: Heimspeki

Heræfingin í Þjórsárdal: Operation "Cuckoo on the Pole"

Kaptein Kata
Þinn tími er víst búinn, Katrín Jakobsdóttir. Þú ert algjörlega rúin öllum trúverðugleika. Nú síðast boðar þú til herleikja í Þjórsárdal með vinum okkar í varnarsambandinu NATÓ. RÚV sagði frá því í gær og nú er þetta í heimsfréttum.

Þau samtök eru vitaskuld nú orðið algjörar fornleifar og stunda alls kyns forneskjuhátt og fornaldarþrá með stríði og tilheyrandi hörmungum. Nýlega borgaði NATO t.d. fyrir kvikmynd í Litháen, þar sem gyðingamorðingjar á Lithaugalandi eru hylltir sem heiðursmenn og föðurlandshetjur sem börðust frækilega við Rússa eftir að gyðingamorðunum var lokið. NATÓ eru sem sagt samtök sem borga fyrir áróðursmyndir þar sem gyðingamorðingjar eru mærðir. Það var gert til að sýna hve hættulegur Pútín er.

NATÓ, sem nú á að hleypa á Þjórsárdalinn eins og brjáluðum bitrollum eftir heyleysi að vori, er líka á kafi í samvinnu við heri Úkraínu og senda sífellt lið til að aðstoða við uppbyggingu herafla þess lands, sem fyrr á árum stóðu sig einna best í aðstoð við herji Hitlers, t.d. í gyðingamorðunum. Lítið hefur augljóslega breyst.

Katrín Jakobsdóttir veit greinilega að strákar í herleik hafa gaman af víkingum og rúnum. Það hefur t.d. Azov-sveitin í Úkraínu, sem reynir á allan hátt að líkjast fyrirmyndinni, Waffen-SS í Þýskalandi. Þetta er hluti af her Úkraínu. Í þessum sveitum berjast nýnasistar frá Svíþjóð, Finnlandi og mjög líklega líka frá Danmörku. Noregur skipaði hins vegar Úkraínu að senda sinn skíthæl heim. Hann er eftirlýstur og unni áður fyrr Breivik hugástum, líkt og nokkrir Íslendingar gerðu víst líka. Meira um það síðar. Þar fyrir utan eru venjulegir hermenn frá Norðurlöndunum að vasast í Úkraínu.

Eins þið sjáið eru Úkraínskir vinir NATO með skildi sem þeir bíta í og skjaldarbólur að hætti ímyndaðra forfeðra sinna og merki Sveitanna minnir óneitanlega á fornt, norrænt búmark.

photo_2018-09-22_23-54-06

Hvað með tindátaleik í Dagsbragga?

Æi þessa sprengóða Kata ætti nú frekar að láta dátana ljúka sér af með tindáta í bragganum hans Dags. Það er spáð vondu veðri um næstu helgi þegar heræfingin á að fara fram. Dagur getur örugglega lánað þeim tölvuspil og Þjóðminjasafnið á örugglega nóg af rúnakeflum sem þeir geta æft sig á, litlu víkingarnir. Guðlaugur Þór Íslandskadett, maðurinn á bak við ruglið, getur svo verið með utanríkisbingó, þar sem skiltið af þýska sendiráðinu 1940 er í verðlaun og ein fálkaorða með tilheyrandi eimskipamerki frá Guðna bónda á Bessó (hann á alveg glás af fálkum í poka). Sérverðlaun fyrir heiðarlega framkomu í bragganum verður morðbúningur sonar fyrsta forseta íslenska Lýðveldisins. Pönnukökur á eftir í boði Ingibjargar Sólrúnar.

Til vara, ef engin úrkoma verður, er hægt að láta helvítis hermennina gera gagn og slíta upp helvítið puntbirkið sem búið er að planta ólöglega í aðra hverja rúst í Þjórsárdal á skjön við öll möguleg lög. Það er versti skæruhernaður sem farið hefur fram í dalnum, fyrir utan beit hrossa.

On the double, Kaptein Katrín!! Annars koma bara Pútín og Fornleifur í boði Soros. Hinn alræmdi skæruliðið Stefán Pálsson kemur einnig með rútufylli af grimmum VG-sveitum gráum fyrir pottum (Sjá hér), sem er afar nastí lið þegar að nærhernaði kemur. Varið ykkur.

Eða var þetta rúta af fullum VG-mönnum, Fornleifur?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband