Þar misstu Íslendingar enn einu sinni af sögu sinni
29.11.2011 | 12:41
Fjölmiðlar einblína mikið á falsanir á málverkum íslenskra meistara sem endalaust eru boðnar upp í Danmörku. En þegar dýrgripir, sem eru mikilvægir fyrir sögu Íslands, eru boðnir upp, heyrist ekkert. Þá er enginn áhugi. Ríkisútvarpið gerði þó grein fyrir vasanum sem í gær var seldur fyrir 130.000 danskar krónur (2.8 milljónir íslenskar) hjá listaverka-uppboðsfyrirtækinu Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn. Fyrir minna verð en Skóda Fabia gátu Íslendingar hneppt mikilvæga heimild um Ísland. Vasinn fór líklega í staðinn til einhvers safnara í Þýskalandi, en að minnsta kosti ekki til Íslands. Það staðfesti Bruun Rasmussen nú rétt áðan.
Ekki eru mörg ár síðan að Íslendingar keyptu allt steininum léttara, og þyngra, í Danmörku, svona til að sýna að þeir væru orðnir þjóð sem taka ætti mark á. Þjóð með peninga. Ef það voru ekki hótel og dagblöð, þá voru það fasteignafyrirtæki, flugfélög og bjórverksmiður. Ég varð eitt sinn vitni að stórinnkaupum íslensks bubba á uppboði á Bruun Rasmussens. Þar var á ferðinni mikill og feitur víkingur, sem m.a. er þekktur fyrir að hafa tæmt sjóð sem frænka hans stofnaði í Ameríku, sem átti nota til að styðja listamenn. Sá maður á nú ekki bót fyrir rassinn á sér, er búinn að fá skuldafyrirgreiðslu í bankanum sínum. Hann kveikir líklegast upp í ofninum með Kjarvölum sem hann keypti fyrir peninga frænkunnar.
Í aumingjaskap sínum misstu Íslendingar af þessum kostagrip og heimild, meðan þeir voru að rausa um rétt einhvers Kínverja uppi á Grímsstöðum. Í stað þess að Menntamálaráðuneytið friðar skúra í Skálholti, hefði það átt að senda mann til Kaupmannahafnar til að bjóða í þennan vasa. Þetta er ómissandi saga og heimild sem Íslendingar misstu hér af.
Konungur kemur ríðandi með fylgdarliði um Gálgahraun, nokkuð meira úfið en það er í raun og veru.
Fyrr á árinu fór fyrir lítið lituð pennateikning eftir Frederik Theodor Kloss, sem sýndi kyssandi par á Þingvöllum árið 1834. Það fór á skitnar 4200 DKK (90.000 ISK), og örugglega ekki til Íslands (sjá myndina neðar). Árið 2009 fór málverk eftir Kloss, sem málað var í Reykjavík árið 1834 á 8000 DKK (172.000 ISK). Spottprísar, en var þetta keypt til Íslands? Nei, íslendingar vilja miklu frekar fá endurgerð "miðaldaflugskýli" í Skálholti og skemmur ofan á friðlýstar fornminjar. Verðmætamatið er brenglað.
Fyrirgefið mér að ég segið það. Margir Íslendingar eru menningarlegir óvitar, en nýi vasinn hans Helmuths fer örugglega vel við ísbjarnarteppið.
Viðbót: Helmuth borgaði 130.000 DKK fyrir vasann.
Málverk, myndir, listaverk | Breytt 2.5.2020 kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)