Nú gerist Bjarni bjöllusauđur íslenskrar fornleifafrćđi

502608849_24169574319306348_8861911783914520573_n

Litlar bjöllur frá landnámsöld, höfđu fundist einar fjórar á Íslandi, ţegar Bjarni F. Einarsson og teymi hans bćtti einni í safniđ nú fyrir skemmstu. 

Bjarni fann sína bjöllu viđ rannsóknir í hinum merku rústum/fornminjum austur á Stöđ í Stöđvarfirđi (sjá mynd efst), ţar sem er ein mesta náma forngripa frá landnámi Íslands. Menn deila hins vegar um, hvort á Stöđ sé fundiđ "norrćnt landnám fyrir norrćna landnámiđ" líkt og Bjarni vill vera láta.
bjalla_2

Bjallan frá Brú

Fjórar bjöllurnar, ţ.e. 1) sú bjalla sem nú er fundin á Stöđ, 2) bjalla úr kumli ađ Kornsá í Austur-Húnaţingi (Kumlateigur, Kt 63), 3) bjalla frá Brú í Biskupstungum (Kt 35) og loks 4) bjalla sem fannst í bátskumli III ađ Litlu-Núpum í Ađaldal áriđ 2012, eru örugglega af gerđ sem talin er vera frá Englandi og er stundum skilgreind sem Hiberno-Norse.

468336963_10161565777800967_663270018677842088_n

 

Bjallan frá Litlu-Núpum í Ađaldal

Breski fornleifafrćđingurinn Colleen Batey hefur m.a. ritađ um ţessar bjöllur (Sjá hér) og einnig má benda á ţessa grein til ađ sjá fleiri bjöllur af svipuđum toga á Bretlandseyjum. Ţess ber sömuleiđis ađ geta ađ skyld bjalla hefur einnig fundist á Jótlandi og mun ég setja inn mynd af henni ţegar ég kemst yfir hana.

batey_bjalla_2Bjallann frá Fresweick á Caithness, Katanesi, á Skotlandi.

Fig.1 eksempel b

Bjalla frá Fćsted á S-Jótlandi. Myndin er birt međ leyfi Lars Grundvads fornleifafrćđings viđ safniđ í Sřnderskov.

5) Fimmta bjallan sem fundist hefur á Íslandi, sem fannst í bátskumlinu í Vatnsdal í Patreksfirđi (Kt 54), gćti veriđ ađ sömu gerđ, en ţađ er ekki hćgt ađ segja međ vissu vegna lélegrar varđveislu (sjá hér síđar). Um hringaskreytiđ sem er á fjórum bjallnanna má lesa hér.

Til heiđurs Bjarna syngur Bob frćndi hér sálminn Ring them bells:


Bloggfćrslur 10. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband