Klaustrið og Gunnar

Fornmenjagarður

Óska ber menningarsetrinu að Skriðuklaustri í Fljótsdal, ja öllum Íslendingum, til hamingju með nýja fornminjasvæðið sem opnað verður á 500 ára vígsluárstíð klaustursins sem er eftir nokkra daga. 

Varla hefur það farið framhjá nokkrum, að miklar fornleifarannsóknir hafa farið fram að Skriðuklaustri og ekki hefur heldur verið sparað á reikningi yfirlýsingagleðinnar. Um tíma mátti skilja, að Skriðuklaustur hefði verið hospítal fyrir ínuitakonur frá Grænlandi, (í þá tíð er íslenska heilbrigðiskerfið var annálað), og jafnvel konu með "fílamannseinkenni", sem var kallaður Paget sjúkdómur (sem sumir halda í óráði að hafi hrjáð Egil Skallagrímsson). Það er auðvitað allt bölvuð vitleysa, eins og var t.d. líka tilfellið með franskan pening sem fannst á Skriðuklaustri og örvarodd sem sagður var af lásboga og margt fleira. 

Fyrir utan hinn netta fornmenjagarð, sem nú er búið að hanna á Skriðuklaustri, og sem er til sóma, hafa fornleifarannsóknirnar þar haft ákveðið skemmtanagildi fyrir þjóðina í gúrkutíð undanfarinna sumra. Ekki er þó öllum atriðunum lokið. Nú vantar grand fínalið, þar sem fremstu embættiskonur landsins leggja blessun sína með nærveru sinni.

Hugsýn Skriða

 

Þessi ekki ófína teikning af hugsýn manna af því hvernig klaustrið hafi litið út, er hreint út sagt kjánaleg. Ekki hef ég séð neitt í fornleifunum eða í sparsömu myndefni aldanna á eftir sem bent getur til kirkju eins og þeirrar sem er sett fram í þessari hugslettu. Þetta er hugmynd sem ég býst við að komi út í bók um rannsóknirnar, sem ég hlakka til að sjá. Kannski er búið að leiðrétta eitthvað að hinum glannalegum yfirlýsingum sem hafa skemmt allslausum fornleifafræðingum eins og mér hinn síðari ár.

Gunnar Gunnarsson

Ég tel  persónulega nokkuð víst, að kirkja á Skriðuklaustri hafi aldrei litið svona út. Ég er reyndar jafnviss um það og að Gunnar Gunnarsson rithöfundur, sem að sjálfsögðu er heiðraður á bæversku sveitasetri sínu á Héraði, var brennandi og ósvífinn nasisti, þótt því sé ævinlega staðfastlega neitað og engar heimildir að finna um slíkt á heimasíðu Skriðuklausturs eða í fórum íslenskra menningarvita sem hafa ritað sögu hans í greinum eða bókum.

Eins og ég hef leyft mér að leiðrétta alvarlegar meinlokur sem upp hafa komið í Skriðuklaustursrannsóknum, leyfi ég mér að nefna eina eða tvær heimildir um hve atkvæðamikill Gunnar Gunnarsson var, og mikilsmetinn félagi, í nasistasamkundunni Nordische Gesellschaft. Sem dæmi má nefna, aðallega þar sem þeir sem mest hafa skrifað um Gunnar hafa misst af því , að veturinn 1936-37 hélt félagið 75 fundi og jafnmörg erindi voru flutt á þeim. Þriðjungur allra erindanna, eða 25 talsins, voru flutt af engum öðrum en Gunnari Gunnarssyni, bændasyninum frá draumsýnarlandinu Íslandi. Félag, sem m.a. gaf út tölublaðið Rasse, notaði skáld frá Íslandi sem aðalsprautuna á samkomum sínum. Þess má geta að Heinrich Himmler sat í stjórn Nordische Gesellschaft.

Fornleifafræðingar teikna gjarna prófíla af viðfangsefnum sínum. Íslendingar eru hins vegar enn ekki búnir að sjá hinn sanna prófíl Gunnars Gunnarssonar, þrátt fyrir doðrant Jóns Yngva Jóhannssonar um Gunnar (2011). Hann kemst að þeirri niðurstöðu að Gunnar Gunnarsson hafi ekki verið nasisti.

Meðan nasistar brenndu bækur á torgum, héldu þeir bókasýningu, (les áróðurssýningu), í Kaupmannahöfn í september 1937. Þar komu allir þeir sem mætur höfðu á nasismanum og þeim helstu var boðið  í þýska sendiráðið í Kaupmannahöfn, þar á meðal Gunnari Gunnarssyni,  "bóndasyni", enda Gunnar vel styrktur af þessu sendiráði 3. Ríkisins. Þetta kom fram í tímaritinu Norden, sem nasistar gáfu út.

Gunnar 3
Gunnar horfir til veðurs 1938. Hann var hvorki vísari né víðsýnni en það, að hann sá friðsamlega vinda blása frá Þýskalandi.

 

Gunnar Gunnarsson bankaði upp á hjá Adolf Hitler í Berlín í byrjun árs 1940 og fékk einkafund. Sömuleiðis óskaði  hann sama ár eftir því að lesa upp úr verkum sínu fyrir þýska hermenn. Hann ætlaði karlgarmurinn í samkeppni við Marlene Diedrich um hylli.  En samt geta menn verið að neita því að hann hafi verið nasisti. Hvað þarf til? Halda menn að aðeins þeir sem hafi starfað í útrýmingarbúðum nasista hafi verið nasistar?

468px-Bundesarchiv_Bild_146-1969-067-10,_Alfred_RosenbergHeinrich_Himmler

Himmler og Rosenberg yfirmenn Gunnars í Nordische Gesellschaft

Samstarfsmenn Gunnars í Nordische Gesellschaft gerðu útrýmingarbúðirnar að veruleika. Gunnar ritaði einum þeirra, Alfred Rosenberg, forstöðumanni Nordische Gesellschaft eftir 1933, bréf árið 1938, þar sem hann lýsir ánægju sinni yfir innlimum nasista á Austurríki. Gunnar skrifaði:

"Hræsni hinna gömlu Friðarpostula veldur mjer meiri hugaræsingu, en hitt, hvernig Þýskaland fór nú að ráði sínu."

Þetta hefur Rosenberg örugglega þótt vænt að heyra, en hann var hengdur i fyrir stríðsglæpi  árið 1946. Svo furðar það fræðimenn af yngri kynslóðinni á Íslandi, að setulið bandamann á Íslandi hafi rannsakað húsakynni Gunnars Gunnarssonar og heimsótt hann á Skriðu.

Hvern er verið að reyna að plata, eða vill fólk láta plata sig? Af hverju geta rithöfundar eins og Böðvar Guðmundsson og Einar Már Guðmundsson ekki séð nasistann í Gunnari Gunnarssyni. Af hverju er hann stikkfrí. Aðrar þjóðir dæmdu vægðarlaust listamenn þá sem höfðu gert hosur sínar grænar gagnvart 3. ríkinu. Á Íslandi fengu menn sem dufluðu við nasismann stórriddarakross með stjörnu.

Gunnar sagði þetta í viðtali við á Gads Danske Magasin árið 1938:

„Ég er ekki stjórnmálamaður, en minn stuðningur við Þýskaland varð til á þann hátt, að mér fannst að það væri vansæmandi að meðhöndla mikilhæfa þjóð eins og Þjóðverja á þann hátt sem gert var í Versailles og Genéve. Ég hef verið nálægur og horft á Þjóðverja í þeirra ýtrustu neyð, þar sem allur fjöldi fólksins hálfsvalt og hafði varla klæði til að hylja með nekt sína. Og ég hef séð Þjóðverja rísa upp undir hinni nýju forystu með aðdáunarverðum krafti og öðlast frelsi, það frelsi sem við Norðurlandabúar vorum fyrstir til að syngja lof. Auðvitað eru þættir þróunarinnar, sem ég hefði óskað öðruvísi, en - það er svo auðvelt að dæma og fordæma [...] Við Norðurlandabúar teljum okkur skylt að framfylgja réttlætinu, en það verður að vera hlutlaust. Við hefðum t.d. ekki átt að taka sæti í Alþjóðasambandinu sem fullgildir aðilar, meðan hinn stóri nágranni okkar í suðri átti einungis rétt á helmingsþátttöku, menningarþjóð sem hefur gefið okkur svo mikilvæg andleg verðmæti í tímanna rás [...] Ég trúi í raun og veru á friðarvilja Þjóðverja ..."

Þetta sýnir okkur kannski bara að Gunnar var vitlaus og einfaldur bóndason? Það held ég ekki að Gunnar Gunnarsson hafi verið.

Er Gunnar hafði verið á einum af fyrirlestraferðum sínum í Þýskalandi 1940, þar sem hann trauð upp í að minnsta kosti 40 borgum og bæjum, náði dagblaðið Berlingske Tidende tali af honum. Gunnar greindi frá viðdvöl sinni hjá Hitler:

„Já, ég ræddi persónulega við ríkiskanslarann. Hitler ræðir mjög blátt áfram og eðlilega við gesti sína, rétt eins og þar röbbuðu saman góðir kunningjar. Og umræðuefnið eru sömu hlutir og atburðir og - kringumstæður - sem koma okkur öllum við. Hann minntist á hinar miklu byggingarframkvæmdir um allt ríkið sem nú lágu niðri vegna stríðsins, og hann sagði, að auðvitað hefði hann aldrei óskað stríðs sem mundi raska hinni miklu ráðgerð hans um uppbyggingu Þýskalands."

Fyrr á 20. öldinni hafði Gunnar reyndar einnig heillast af Stalín, hinum stóra böðlinum, sem hann hitti sem blaðamaður í Moskvuborg árið 1927.

Veður einhver í villu um, hvers konar karl Gunnar Gunnarsson var? Nei, hann var ekkert edjót! Hann var blindur nasisti.

15773935200633996488

Þessi feiti, ljóti morðingi, Hinrich Lohse, kom með Gunnari Gunnarsyni af fundinum með Hitler 20. mars árið 1940:

Der isländische Dichter Gunnar Gunnarson wurde im März 1940 vom Führer und Reichskanzler empfangen. Gunnarson und der Leiter der Nordischen Gesellschaft, Gauleiter [Hinrich] Lohse, verlassen die Reichskanzlei (geleitet von einem Offizier der Leibstandarte SS Adolf Hitler);

Ljósmynd mun vera til af þessum merka viðburði. Hinrich Lohse bar ábyrgð á morðum á gyðingum í Lettlandi, bæði á þarlendum gyðingum og öðrum. Alveg er ég viss um að svona upplýsingar séu ekki tiltækar á Gunnarsstofu á Skriðuklaustri.


Bloggfærslur 16. ágúst 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband