Fiskveiđimaskína Sćmundar Magnússonar Hólm
8.9.2014 | 07:36
Ekki alls fyrir löngu skrifađi ég um 24 olíumálverk frá Íslandi sem Ţjóđminjasafninu áskotnađist áriđ 1928 úr dánarbúi dansks baróns. Ţau eru nú geymd í Listasafni Íslands. Myndirnar áttu ađ sýna ýmsa stađi á Ísland, en sýna miklu heldur ímyndunarafl listamannsins sem málađi myndirnar. Ég tel nokkuđ víst, ađ Sćmundur Hólm (1749-1821) hafi veriđ höfundur myndanna og ađ hanni hafi selt ţćr Otto Thott greifa. Fćrđi ég fyrir ţví ýmis rök (sjá hér og hér).
Otto Thott greifi skildi eftir sig meira sem Sćmundur hafđi gert og selt honum. Greifinn hefur ugglaust veriđ velunnari margra stúdenta á listaakademíunni í Kaupmannahöfn, en ţar var Sćmundur fyrsti Íslendingurinn sem stundađi nám. Otto Thott var líka mikill bóka og handritasafnari og safnađi m.a. ritum upplýsingaaldar. Eftir hann liggur eitt merkilegasta safn pólitískra ritlinga á franska tungu, sem margir hverjir varđveittust í Danmörku en ekki í ringulreiđ byltingar í Frakklandi fallaxarinnar. Thott greifi var afar upplýstur mađur. Hann safnađi sömuleiđis bókum og ritum um alls kyns atvinnubćtur og nýjungar í anda upplýsingaaldarinnar. Hann unni sömuleiđis mjög myndlist og fornum frćđum, ţó svo ađ hann hefđi ekki hundsvit á ţeim efnum. Í höll Thotts á Gavnř á Suđur-Sjálandi hangir fjöldi málverka af ţekktum persónum sögunnar. Myndirnar eru greinilega málađar eftir prentmyndum og koparristum. Gćđin eru ekki mikil og ţađ lćđist ađ manni sá grunur ađ Thott greifi hafi látiđ mála ţessar myndir fyrir sig á akademíunni. Vel get ég ímyndađ mér ađ Sćmundir ćtti ţar einhver verkanna.
Machina Sćmundar Hólm
Sćmundi var meira til listanna lagt. Hann úthugsađi líka vélar, Machinu, til fisk og selveiđa. Hann settist niđur og handritađi lítinn ritling á kynvilltri dönsku og myndskreytti, ţar sem hann lýsti tillögum sínum ađ veiđiađferđum á fiski og selum sem honum hafđi dottiđ í hug. Ritlinginn kallađi hann Nogle Tanker om Fiske og Laxe Fangsten.
Ég tel nćsta víst ađ verkiđ Traité général des pesches, et histoire des poissons qu'elles fournissent (Almennar frásögur af fiskveiđum, og saga af fiski ţeim sem ţćr fćra) hafi haft einhver áhrif á Sćmund. Höfundar verksins voru Henri-Louis Duhamel du Monceau (1700-1782), sem var einn af risum upplýsingaaldarinnar í Frakklandi, og Jean-Louis De La Marre. Byrjađ var ađ gefa út ritiđ, sem var í ţremur bindum, í París áriđ 1769. Hér er hćgt ađ fletta verkinu góđa.
Ugglaust hefur ţetta verk veriđ til í einkabókasafni Thotts greifa, og einn ţeirra 120.000 titla sem eftir hans dag voru seldir hinu Konunglega Bókasafnsins. Eins tel ég nokkuđ öruggt ađ Sćmundur hafi komist í ţetta verk og hugsanlega hjá greifanum. Ţađ var ekki langt ađ ganga frá Listaakademíunni yfir í Kaupmannahallarslot Thotts, sem kallađ var Det Thottske Palae, sem á okkar tímum hýsir franska sendiráđiđ í Danmörku. Svo tilgátusmíđum og vangaveltum sé haldiđ fjálglega áfram, ţykir mér allt eins líklegt ađ Sćmundur hafi, líkt og íslendinga er siđur, sniglast í kringum fyrirmenn og fengiđ ađ skođa og lesa í ţessu merka franska verki um fiskveiđar og fiskirćkt.
Ljóst ţykir mér af öllu, ađ Sćmundur hafi veriđ okkar fyrsti Georg gírlaus, en greinilega var hann einnig haldinn vćgum átisma. Hann gat ekki lćrt dönsku sér til gagns, og latína var ekki hans sterka hliđ ef dćma skal út frá fleygum orđum á latínu á forsíđunni. En hann sá hins vegar smáatriđi í eldgosum og úthugsađi vélar í smáatriđum til ađ efla veiđar. Ekki ćtla ég ađ dćma um notagildi fiskivélar Sćmundar, en skemmtileg er hugmyndin.
Hvort Sćmundur hefur hugsađ sér ritkorn sitt til útgáfu, er ekki hćgt ađ segja til um međ vissu, en ţađ ţykir mér ţó líklegt. Greinilegt er út frá lýsingum á stađháttum ađ Sćmundur hefur haft íslenskt umhverfi í huga, enda hvergi neitt landslag í núverandi Danmörku sem líkist ţví sem hann lýsir í ritlingnum. Handritiđ komst í safn Háskólabókavarđarins, guđ og sagnfrćđingsins Abrahams Kall, sem var einnig mikill safnari í samtíđ sinni. Safn hans var síđar selt Konunglega bókasafninu. Handritiđ međ ţönkum Sćmundar um fisk og laxveiđar fékk handritaeinkennisstafina Kall 628 b 4to.
Hér skal ráđin bót á ţekkingarleysi Íslendinga á ţessu framtaki Sćmundar Hólm. Fornleifur gefur hér međ út lýsingu Sćmundar Magnússonar Hólm á fiskveiđimaskínu hans. Bókina er ekki hćgt ađ kaupa.
Hér er hćgt ađ lesa ritling Sćmundar Hólms Nogle Tanker om Fiske og Laxe Fangsten og hér má betur skođa myndir ritlingsins.
Hér er síđan hćgt ađ lesa afritun mína af af textanum í ritlingnum međ myndum Sćmundar.
Menning og listir | Breytt 2.2.2021 kl. 18:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)