Leirhausinn og Schütz eru nú hinir grunuðu

Schutz und Gunnar
Þegar leirhausar vistast á Þjóðminjasafni, eru þeir líkast til sjálfkrafa orðnir að efni hér á Fornleifi.

Eins og siðmenntað fólk veit, skal mikil aðgát höfði í nærveru leirhausa. En þegar menn fara að hugsa einum of mikið um þannig hausa, eða jafnvel eins og leirhausar, er nú ekki nema von að útkoman verði einhvers konar leirburður.

Það gerðist einmitt nýverið er listakonan Ólöf Nordal tjáði sig um þá skoðun sína, og það á besta útsendingartíma RÚV. Ólöf telur að tveir Leirfinnar hefðu verið í umferð á meðan að rannsókn Geirfinnsmálsins stóð yfir.

Líklegast var best að þær vangaveltur, sem greinilega byggja á alvarlegri sjónskekkju á listrænu auga, hafi ekki orðið til áður en margfræg skýrsla Starfshóps um um Guðmundar- og Geirfinnsmál kom út árið 2013.

Ef þessi dæmalaust ruglaða leirhausakenning Ólafar hefði hins vegar verið hnoðuð saman eitthvað fyrr, hefði hin leirkennda hugarsmíð líklega fengið byr undir báða vængi í hinni furðulegu skýrslu yfirvaldsins um Guðmunds- og Geirmundarmál frá 2013. Vafalítið hefði þá síendurtekið verið ritað um tvo hausa í skýrslunni frá 2013 og sú upplýsing höfð eftir "talsmanni Sævars" líkt og svo margt í því plaggi, sem síðar hefur orðið að heilögum sannleika. 

Nú, þegar heil þjóð er búin að sýkna áður dæmda morðingja, er ég á því að leirhausinn verði ekki bara gleymdur í geymslum Þjóðminjasafns í silfruðum kassa, heldur sem allra fyrst settur til sýnis á flugvallarfæribandinu kostulega á safninu, íslenskri réttarvitund til lofs og ævarandi virðingar.

En er ekki annars nóg er nú komið af rugli í kringum "Leirfinn" heitinn, eingetna sköpun listakonunnar Ríkeyjar (Ingimundardóttur)? Ríkey skóp Leirfinn reyndar eftir rissum teiknara frá Keflavík (sem aldrei hafa verið sýndar opinberlega), en teiknarinn var beðinn var að teikna mann sem kom við í Hafnarbúðinni í Keflavík.

Leirhausinn er reyndar ekki stórt listaverk ef það skal notað sem hjálpargagn í morðmáli. Sannast sagna lítur enginn út eins og Leirfinnur, nema að hann sé eins óheppinn að fæðast eins og  Magnús Leópoldsson. En Magnús er ekki einu sinnu líkur hinum kúkabrúna leirhaus sem óvart varð frægasta íslenska listaverkið á 8. áratug 20. aldar.

Nú orðið hugsar Leirfinnur fátt í geymslu Þjóðminjasafnsins suður í Hafnarfirði, enda hefur hann bráðskýra þjóð til að hugsa fyrir sig.

En greinilegt er að almennur skilningur á tilurð hans er afar lítill og frekar leirgerður. Því hefur til að mynda ítrekað verið haldið fram að leirstyttan hafi vísvitandi verið látin líkjast Magnúsi Leopoldssyni. sem síðar var handtekinn og haldið í Síðumúlafangelsinu í einangrun í 105 daga og fjórar klukkustundir. Teiknarinn úr Keflavík, Magnús Gíslason, hefur haldið því fram með algjörlega óundirbyggðum rökum að rannsóknarmenn hafi látið sig hafa ljósmynd af Magnúsi Leopoldssyni, sem fyrirmynd að teikningu, sem hann átti að gera af umræddum „Leirfinni“. Þessi ásökun hefur þó verið vísað til heimahúsanna af opinberum aðilum. Í skýrslu Láru V. Júlíusdóttur lögfræðings og setts saksóknara, sem Magnús Leópoldsson fékk í hendur árið 2003, sem m.a. fjallar um tilurð leirmyndarinnar, kemur glögglega fram að lögreglumenn ýttu alls ekki undir gerð myndarinnar með ljósmynd af Magnúsi. Þrátt fyrir þá vitneskju heldur goðsögnin um líkindi milli "Leirfinns" og Magnúss Leópoldssonar áfram að grassera á meðan að fólk getur ekki lesið sér til gagns.

magnús Club Sandwitch
Stundum er sagt að listamenn nái ekki eiginleikum þess sem þeir portrettera, og að sál listamannsins sjálfs fangist í andlitsmyndum hans af öðrum. Mér er næst að halda að hinn mikið umræddi Leirfinnur sé einfaldlega blanda af andliti Ríkeyjar Ingimundardóttur og Kristjáns Viðars Viðarssonar. Útkoman verður svona sirkabout eins og Magnús Leópoldsson, enda margir Íslendingar úr þessu sama steypumóti. Höfundur þessa pistils hefur kallað þessa íslensku "týpu" Hinn íslenska kubbahaus og er hann líklega afleiðing skyldleikaræktar og uppruna Íslendinga sem helst eru ættaðir úr Norður-Noregi. Það eru því margir "Leirfinnar" á ferli á Íslandi, t.d. sakamálafræðingurinn knái, Gísli H. Guðjónsson, sem var ungur rannsóknarlögreglumaður þegar Geirfinnsmálið var í algleymingi.

RýkMagnKris
Ég leyfi mér auðmjúklega að benda á, að ef maður málaði afsteypu af leirhausnum með andlitslitum, verði útkoman ekki ósvipuð Kristjáni Viðari Júlíússyni (áður Viðarssyni) fyrrum sökudólgi. Skítabrúnleitir leirhausar eru einfaldlega ekki til þess fallnir að leita uppi illmenni á meðal Íslendinga - frekar en skjannahvítar marmarastyttur eru til þess fallnar að lýsa staðreyndum um útlit Forngrikkja eða Rómverja. 

Leirfinnur Mogginn 1974Kristján Viðar lilleLeirburður séra Guðjóns Skarphéðinssonar

Jæja, nú yfir í aðeins aðra sálma -- Í fyrrnefndri skýrslu Starfshóps um Guðmunds- og Geirfinnsmál frá 2013 er mikið vitnað í nokkrar skýringar og útleggingar "umboðsmanns Sævars", sem byggja einvörðungu á frásögnum í skýrslu eftir Hlyn Þór heitinn Magnússon. Hlynur starfaði sem fangavörður í Síðumúlafangelsi á 8. áratug síðustu aldar, er Geirfinns og Guðmundarmálin voru í algleymingi. 

Ásakanir í garð lögreglu og fangelsisyfirvalda varðandi meðferðina á Sævari Marínó Ciecielski, sem ekki komu fram í réttarhöldum og endurupptökubeiðni Sævars, koma fram í skýrslu Hlyns frá 1996. Í Skýrslu Starfhóps um Guðmundar og Geirfinnsmál frá 2013 eru þær frásagnir svo bornar fram á silfurfati af umboðsmanni Sævars, næsta orðnar að heilögum sannleika, án þess að nokkurn veginn sé hægt að sannreyna þær.  Hvers konar vinnubrögð eru það eiginlega?

Stundum læðist að manni sá grunur að bráðnauðsynlegt hefði verið að fá Karl Schütz (sjá mynd efst með Gunnari Eyþórssyni og "Leirfinni") til landsins, og að hann hefði betur staldrað lengur við og haft eins og tug sagnfræðinga sér innan handar - þar sem íslenskir lögfræðingar geta víst ekki greint frumheimildir frá gróusögum (sbr. skýrlan frá 2013).

Hvernig hópurinn á bak við skýrsluna frá 2013 fer að því að fullvissa sig um að Hlynur Þór Magnússon hafi verið betra sannleiksvitni en aðrir menn, skil  ég ekki. Hlynur brillerarði árið 2014 á bloggsíðu Illuga Jökulssonar með því að halda því fram að Karl Schütz hefði verið gamall Gestapómaður og nasisti - sem Schütz var reyndar ekki. Þetta hafði Hlynur keypt hrátt og ósoðið úr frásögn Guðjóns Skarphéðinssonar, sem þá var orðinn ólyginn preláti og sálusorgari á snærum íslensku Þjóðkirkjunnar og Drottins Guðs hins almáttuga. 

Guðjón laug hins vegar vitleysunni áður í Óttar "Mayday" Sveinsson  í DV (Sjá hér), þar sem síra Guðjón Skarphéðinsson hélt þessu fram við Óttar að Karl Schütz hefði verið illræmdur Gestapómaður, sem hvað hafa yfirheyrt og myrt skæruliða á Ítalíu. En það sanna í málinu er að sá Karl Schütz sem kom til Íslands var ekki Gestapo-maðurinn sem hét Karl Theodor Schütz sem brotið hafði af sér á Ítalíu og víðar. Áður, eða árið 2014 hefur sá er þetta ritar greint frá þessari gróusögudreifingu Hlyns Magnússonar og uppspuna úr pontu síra Guðjóns Skarphéðinssonar. Hlynur Magnússon baðst afsökunar á vammi sínu -- En engin slík beiðni heyrðist frá upphafsmanni lygasögunnar.

Nú vill síra Guðjón fá milljarða frá íslenska ríkinu og skattgreiðendum. Ég geri þar af leiðandi ráð fyrir því að séra Guðjón vilji hafa nóg á milli handanna þegar afkomendur Schütz koma og krefja hann skaðabóta fyrir að kalla föður þeirra, afa og langafa stríðsglæpamann á Ítalíu. Slíkur leirburður gæti orðið dýr fyrir Guðsmanninn, og því gott að hafa eitthvað á milli handanna þegar að því kemur - en að því kemur, og Íslendingar geta líka trúað því eins og öllu öðru. Líka þeir kjánar á hinu háa Alþingi sem nú vilja að þýsk yfirvöld í nútímanum svíni Karl Schütz enn meira til en þegar hefur gerst á Íslandi. Þeir höfðu nýlega samband við Þýsk yfirvöld og heimtuðu gögn um Karl Schütz byggða á fordómafullum forsendum sem gerjast hafa á Íslandi vanþekkingarinnar.

Hver svo sem ástæðan er fyrir hinni stóru "sannleiksþörf" Íslendinga, þá á ég erfitt með að skilja hana, þegar menn sjá ekki að leirhausinn á Þjóðminjasafninu, sem enn er ósýknaður, er fyrst og fremst líkur manni sem dæmdur var fyrir morð, glæp sem hann hefur verið sýknaður af; og að annar dæmdur morðingi, og síðar fullsýknaður öðlingur, fær óáreitt að stunda fólskufullar lygar í útlendingahatursstíl um rannsóknaraðila í máli sínu. Ef það vekur ekki einhverjar spurningar í hausum landa minna, er þar kannski meira af leir en ég bjóst við.


Bloggfærslur 20. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband