Pípa mánađarins er gyđingapípa

Pipe of the month
Pípa mánađarins er augsýnilega gyđingapípa. Konunglega Pípufrćđafélagiđ í Hollandi (PKN) hefur kosiđ ţessa pípu sem pípu júnímánađar 2019.

Pípan var framleidd af ţýskum pípuframleiđanda, Julius Wingender & Co í Höhr-Grenzhausen í Westerwald ekki alllangt frá Koblenz og miđja vegu milli Bonn og Frankfurt am Main. Pípan er frá lokum 19. aldar. Haus pípunnar er úr brenndum leir en hálsinn er úr beini.

Fyrirtćkiđ Julius Wingender sérhćfđi sig m.a. í pípum sem sýndu  kynţáttum. Ţađ er ađ segja, hausarnir voru međ andlitseinkennum eđa stereotýpum mismunandi ţjóđa og kynţátta. Ţađ var vitaskuld í takt viđ tímann, ţegar Ţjóđverjar og margir ađrir voru á kafi í flokkun á rösum og manngerđum til ađ hafa einhvern til ađ líta niđur á. 

Kannski hefur ţađ ţó alls ekki vakađ fyrir Wingender og hans pípugerđarmönnum. Ţeir hafa líklega búist viđ ađ gyđingar keyptu fyndnar gyđingapípur, Tyrkir  og svartir menn negrapípur o.s.fr. Ég er ţó ekki alveg viss. Ţjóđverjar eru dularfullur ţjóđflokkur. Einnig má spyrja hvort Wingender hafi selt Ţjóđverjapípur međ feitan pulsuţjóđverja međ einglyrni og 5 hnakkadellur eđa pípur eins og ţá sem ég hef sett neđst viđ grein ţessa.

Pijp van de Mand Juni 2019
Ekki taka ţó allir ţessum pípum vel og antropómorfískar pípur međ stór nef geta jafnvel í sumum löndum talist til gyđingahaturs. Ég er vitaskuld ađ tala um land viđundranna, Bandaríkin. Á Bandaríska Helfararsafninu, US Holocaust Memorial Museum í Washington, má finna ţessa pípu á međal safngripa.

USHMM Pipe
Pípu ţessa hér fyrir ofan kalla sumir Bandaríkjamenn gyđingafordóma. En ţjóđ sem kýs yfir sig appelsínugulan forseta og önnur furđudýr á ég orđiđ mjög erfitt međ ađ taka alvarlega, enda hefur stór hluti ţjóđarinnar ávallt veriđ á kafi í gyđingahatri. Pípa ţessi á Helfararsafninu í Washington minnir mig á engan síđri mann en góđvin föđur míns Ottó Arnald Magnússon (Ottó Weg) sem var međ nákvćmlega eins nef.

Menn, sem eru međ stór nef og bogin eins og ég er međ, eru venjulega stoltir af nefi sínu. Ég hef ađeins tekiđ eftir  öfund manna međ smáar og tíkarlegar kerlingasnoppur, frekar en ofsóknum vegna nefstćrđar minnar. Menn vita vel ađ stćrđ nefja gefur ýmsar ţarflegar vísbendingar. Ef menn ţola ekki slík nef og telja ţau til gyđingahaturs, er kannski eitthvađ ađ hjá ţeim sem telja svo vera.

600-x-300-nose-shaper

Lengi hefur veikgeđja fólk og hégómagjarnt veriđ í stríđi viđ stór og falleg nef. Ţetta tćki, nefbreytirinn Zello, var fundiđ upp í Ţýskalandi á fyrri hluta 20. aldar. Mönnum gat, ađ sögn framleiđanda, međ notkun ţessa tóls áskotnast grísk-rómverskt fornmálanef ađ lokum.

Nun hab´ ich jetzt echt die Nase voll

10631466_1


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband