Ég ætla að mála allan heiminn, elsku mamma

selardalur_ljosmynd_jo_minjasafn_slands-Colorized

Eftir að MyHeritage.com gerði fólki kleift að lita gamlar svarthvítar ljósmyndir, hefur verið mikið að gera á síðunni. Ég prófaði apparatið á tvær gamlar ljósmyndir Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar sem hann tók í Selárdalskirkju árið 1913. Myndirnar eru varðveittar í Þjóðminjasafni.

Myndirnar tvær voru frábærar í sínum upphaflega fjölbreytileika grámyglunnar, sem getur verið afar fallegur. Hér sýni ég ykkur hvað leiktæki það sem MyHeritage hefur upp á að bjóða getur gert. Það er gaman af þessu föndri, sem þið getið reynt á myndir ykkar sjálfra. Ég held hins vegar fast í upphaflegu litina. Líklegast er hægt að gera það sama á góðum ljósmyndaforritum. En ég á ekkert slíkt og fitla sjaldan við myndir, nema til að gefa þeim smá skerpu.

Ég hef skrifað um forna ljósahjálma á Íslandi í nokkrum greinum sem menn geta fundið neðarlega á hægri spássíu bloggsins Fornleifs, Fyrsta greinin heitir Fiat Lux.

Selardalur 1913 lille colorized

Ljósahjálmurinn sem hékk í Selárdalskirkju er einstakur í heiminum. Hjálmurinn hangir nú einhvers staðar bakdyramegin á Þjóminjasafninu og er ekki sýndur almenningi, enda var hann tekinn úr kirkjunni í óþökk sumra heimamanna fyrir vestan. En við getum líklegast öll verið sammála um að hjálmurinn á best heima á Þjóðminjasafninu. Það ræði ég því ekki frekar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ekki er hægt að neita því, að litasamsetningin á þessum tveimur myndum er  harla góð og kemur sennilega vel heim og saman við rakaskemmdir, myglu og annað, sem sennilega hefur hrjáð innviði og gripi óupphitaðrar Selárdalskirkju, þegar myndirnar voru teknar. Hvort eigi að fitla eitthvað við ´´orginalana´´er hinsvegar alltaf spursmál. 

 Uppeldisfaðir föður míns tók mikið af ljósmyndum á fyrri hluta síðustu aldar, sem hann síðan ´´litgerði´´ með því að mála ofan í þær. M.a. eina fræga Heklumynd, ásamt ótal myndum af föður mínum kornungum, ketti hans og dúfu.

 Þakka pistilinn.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 22.4.2020 kl. 00:59

2 Smámynd: Upprétti Apinn

Ljóshjálmurinn lítur út fyrir að vera skúlptúr af Yggdrasil.  Ockelbo rúnasteinninn hefur margt sameiginlegt.

Upprétti Apinn, 22.4.2020 kl. 19:44

3 Smámynd: Upprétti Apinn

Arnolfini hefur keypt ljóshjálminn í sömu verslun og Arnolfini. https://westernarthistorybysuzy.wordpress.com/2016/07/17/painting-review-the-arnolfini-portrait/

Upprétti Apinn, 18.5.2020 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband