Köttur úti í mýri setti upp á sér stýri úti er ævintýri
25.1.2021 | 09:20
Þann 17 janúar sl. horfði ég á þátt í röðinni Fyrir alla muni, sem var sýndur í Sjónvarpi. Þætti í þessari röð hef ég horft á áður og í sannleika sagt þótt frekar þunnur þrettándi. En þátturinn sem hér um er fjallað (sjá hann hér meðan að hægt verður) var reyndar aðeins betri en fyrri þættir í þessari röð hafa verið.
Í þetta sinn var fjallað var um stýrishjól úr skipi í eigu manns í Reykjavík. Eigandi stýrisins (rattsins), Ingi Ingason, er barnabarn Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns, ráðherra, sendiherra i Frakklandi m.m. Ingi hafði fengið þá sögu með sér úr föðurhúsum, er hann erfði hjólið, að það væri líklega úr Pourquoi Pas? sem fórst árið 1936 við Álftanes á Mýrum (en ekki á Álftanesi og Mýrum líkt og stendur í frásögn RÚV um þáttinn (sjá hér og skjámyndina hér neðar).
Skiltið á Pourquoi Pas? (hinu fjórða) með áletrunni ´Fyrir Heiðurinn og Föðrulandið´ fannst rekið á Álftanesi á Mýrum árið 1936 og sést það illa farið á ljósmyndinni efst.
Margir Íslendingar kunna mjög vel sögu skipsins og strandsins árið 1936. Þátturinn um meint stýri úr Pourquoi Pas? bætti þar litlu við. Þetta var mestmegnis þvaður um "stýri" sem Albert Guðmundsson hafði keypt sem "stýri úr skipi" sem stýrishjólið tilheyrði reyndar aldrei.
RUGLIÐ Á RÚV gerir það ekki endasleppt. Skjámynd af frétt RÚV um þáttinn. Er þetta hægt í efni sem er unnið til sýninga hjá RÚV? - þ.e. að "stranda á skerinu Hnokka út af Álftanesi og Mýrum uppi í Borgarfirði" ?? Einnig er gegnum nær allan þáttinn talað um stýrið á skipinu, sem er allt annar hlutur en stýrishjólið (eða rattið eins og sumir kölluðu það) Menntun á Íslandi stendur greinilega á lægra stigi en hér áður fyrr. Til að skýra út fyrir landkröbbum, þá er stýri það sem Englendingar kalla Rudder, Danir og norðmenn kalla Ror og Hollendingar kalla Roer. Á frönsku er orðið fyrir stýri Gouvernail (sem er komið úr latínu Gubernacula). Stýrishjól er hins vegar allt annar handleggur. Frakkar tala t.d um Barre de gouvernail eða bara Bateau. Þess má einnig geta að Frakkar, sem skrifa af vanefnum um skipsskaðann árið 1936, rugla Álftanesi á Mýrum við Álftanes í núverandi bæjarfélaginu Garðabæ.
Þessi fornleifafræðingur, sem að mestu heldur sig ofansjávar og fjarri fósturlandinu, horfði á þáttinn 17. janúar, og það þrátt fyrir óvægan dóm minn á fyrri þáttum, sem sumir hverjir voru hrein hörmung. En þótt þátturinn nú hafi verið nokkuð áhugaverður, voru efnistökin ekki nógu fræðileg. Það eina sem gnæfði yfir hálfgerða æsifréttamennsku þáttastjórnandanna voru vís orð Ragnars Edvardssonar fornleifafræðings, sem benti á að ef hlutur sé horfinn frá/úr upphaflegu samhengi sínu, væri oftast nokkuð erfitt að segja til um samhengið. Mér þótti samt nokkuð skondið að Ragnar var samt nokkuð heitur fyrir því að stýrið væri jafnvel úr Pourquoi-Pas?
Viðtali við konu um vel þekktan máf um borð á Pourquoi Pas? hefði nú eiginlega verið hægt að sleppa, ef þáttastjórnendur hefðu haft fyrir því að lesa t.d. bók Illuga Jökulssonar um skipið og endalok þess - kannski bara Laxness, þó svo hann hafi ekki verið ólyginn - eða leitað á Timarit.is eftir upplýsingum. Það er ekki nóg að senda bréf til Frakklands. Fólks sem fæst við að búa til skemmtiefni með fræðilegu ívafi, verða líka að eyða örlitlum tíma í lestur og smá grúsk.
Með mikilli fyrirhöfn (bréfaskriftum til Frakklands) var haft upp á tveimur ljósmyndum sem sýndu stýrishjólið í stýrishúsinu miðskips á Pourguoi Pas?, en þær voru teknar löngu fyrir 1936. Síðan bárust þáttarstjórnendum upplýsingar frá Frakklandi um að skip sem bar nafn Jean-Baptiste Charcot hefði verið byggt árið 1908. Það skip var síðar leigt út til Noregs og síðar framleigt til Íslands. Á Íslandi fór þetta skip í slipp, þar sem fóru fram á því miklar endurbætur. Líklegast má því telja að stýrið sem þátturinn var spunninn utan um hafi komið úr Jean-Baptiste Charcot, en ekki Pourguoi Pas?.
Charcot við stjórnvölin á Pourquoi Pas? árið 1910 við strendur Chile.
En ef haft hefði verið samband við ofansjávar-fornleifafræðinginn sem þetta ritar, hefði hann getað bent leitandi sálum á ljósmynd af aftara stýrishjólinu (sem var beint yfir aftara stýrinu og beintengt í það) á Pourquoi Pas?.
Áður en ég sá þáttinn um stýrishjólið þann 17.janúar 2021 var ég búinn að finna mynd af Jean-Baptiste Charcot við aftara stýrið um borð á Pourquoi Pas árið 1910 úti fyrir ströndum Chile. Myndin var tekin í Öðrum leiðangri Jean-Baptiste Charcot til Suðurskautslandsins á Pourquoi Pas? (4. skipinu með því nafni), en smíðum á því var lokið árið 1908. Það var einmitt sama skipið og fórst árið 1936 við Íslandsstrendur. Þó myndin sé ekki skýr, er ljóst að árið 1910 hafi aftara stýrishjólið á Pouguois Pas? heldur ekki verið það sama og það sem er í eigu Inga Ingasonar.
Af hverju fann þáttagerðarfólkið ekki þessa mynd? Hana er auðveldlega hægt að finna með hjálp Google og lágmarks frönskukunnáttu? Ef menn gera heimildaþætti, er Google hentugt hjálpartæki. Kannski treystu þáttastjórnendur ekki upplýsingum úr leitarvélinni margfrægu? Mig grunar að þau hafa breytt þættinum töluvert og klippt til, þegar þau fengu bréf frá fróðum mönnum í Frakklandi.
Það er auðvita mest gaman að gera sjónvarpsþætti og vera ekkert að eyða spennunni og skemmtun þegar í fyrsta hlutanum með sannindum. Sjónvarp og uppspuni eiga best saman. Spenna og skemmtun er það sem fólk vill fá - frekar en blákaldar og leiðinlegar staðreyndir. Ákveðinn fjöldi fólks í þjóðfélögum vill líka alltaf láta ljúga að sér. Kannski veiti ég einhverjum litlum hópi grúskkarla með sannleikann sem þráhyggju skemmtun og fullnægingu með því að benda á að einnig sé til mynd af aftara stýrishjólinu á Pourquoi Pas? og ekki bara ljósmyndir af fremra hjólinu, sem sýndar voru í þættinum af stýrinu miðskips. Svo getur restin látið ljúga að sér hverju sem vera vill.
Stýrishjól hafa oft gengið kaupum og sölum. 2. febrúar árið 1978 var hinn vel þekkti kaupahéðinn Magni R. Magnússon í Frímerkjasölunni að reyna að losa sig við stýrishjól með smáauglýsingu í Dagblaðinu. Um tíma voru seld á Íslandi "puntuhjól fyrir gervisjóara" sem aldrei höfðu migið í saltan sjó migið. Ætli Magni hafi selt einhverjum slíkt hjól í það skiptið, eða var hann með hjólið góða úr Slippnum?
Ég tók svo eftir því, að það var ekki bara ég sem hnaut um ýmsar vitleysur í þættinum um Pourquoi Pas. Á FB heiðursmannsins Jóns Viðars Jónssona voru áhugaverðar athugasemdir varðandi þáttinn. Ég vona að fólkið á bak við Fyrir alla muni, læri fyrir alla muni af þessari gagnrýni minnig og rausi og geri betur næst.
Þegar ég var í París í febrúar pestarárið 2020, vissi ég ekki enn að J. B. Charcot var borinn til hinstu hvílu í kirkjugarði neðst við Montmartre norðanvert, aðeins smáspöl frá íbúðinni sem ég var í efst á fjallinu. Næst geri ég kannski sjómanna´onnör í kirkjugarðinum, en ekki fyrir alla muni.
Myndirnar hér neðst, sem eru frá útför áhafnar Pourquoi Pas? (utan eins manns sem bjargaðist) og heiðursverði við skipshlið í Reykjavík, hafa ekki birst áður. Þær eru úr dagbók dansks diplómats sem var nýkomin til starfa á Íslandi, er Pourquoi Pas? fórst.
Athugasemdir
Hnaut við þetta líka. Sýndist stýrið vera heldur smágert fyrir þetta skip. Forleifafræðin þarna er í anda Ómars Ragnarssonar alvitrings, sem fann út að Fönikíumenn hefðu numið hér land fyrstir fyrir um tvö þúsund árum. Þetta byggði hann á siglutré sem fannst einhverstaðar á söndunum og var talið úr sedrusviði. Sedrusviður er jú svo exótískur og miðjarðarhafslegur að það leiðir beint af að það hafi tilheyrt fönísku skipi.
Um þetta gerði Rúffið heilan þátt.
Ég vann annars við leikmynd þar sem skipið kemur við sögu. (Svo á jörðu sem á himni) þar fengum við lánaða ýmsa muni af mýrum, m.a. Rakskál og skáp kapteinsins. Þrátt fyrir að mikil heimildarvinna hafi verið unnin var aldrei minnst á að þetta stýri væri til. Stýri sem passar frekar tólf tonna skakbát en stóru seglskipi.
Jón Steinar Ragnarsson, 25.1.2021 kl. 13:29
Ef styrið er borið saman við þessar myndir sem þú birtir þá munar talsvert á stærð, en það sem ólíkast má sjá er að rennismíðin á pílárum og handföngum er gerólík. Einnig er gjörðin á RUV stýrinu galvaniserað járn í stað messings, sem allavega er sýnilegt gljáandi á öðru stýrinu.
Jón Steinar Ragnarsson, 25.1.2021 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.