Dýrðlingurinn í græna bolnum talar við Alþingi

Vololego

Volodimyr Zelenskij talar við Íslendinga í dag. Aðstoðarmaður Volodimyrs, Fedir M., sem stendur honum miklu nær en Volodimyr getur nokkurn tíman ímyndað sér, greindi mér frá því sem Volodimyr lét út úr sér þegar hann var búinn að lesa lofræðu sína til danska þingsins - sem Dönum þótti vitanlega afar vænt um.

Volodimyr spurði Fedir, hvort það sem hann hefði sagt um Dani væri nú allt saman rétt og satt. Volodimyr sagðist hafa lesið á netinu, að Danir hefðu haft nána samvinnu við Nasí-Þjóðverja, stefnu sem sumir kalla Samarbejdspolitikken en raunsærri menn kalla einfaldlega meðreiðar (kollaboration).

Volodimir hafði lesið að margar þúsundir Dana hefði gengið í Waffen-SS með blessun dönsku ríkisstjórnarinnar - og sumir þeirra myrt gyðinga; Volodimyr hafði einnig lesið að Danir hefðu vísað ríkisfangslausum gyðingum á flótta úr landi á tímabilinu 1940-43 og sent þá beint til Þýskalands.

Hann hafði séð að danskur forsætisráðherra, sem síðar varð yfirmaður NATÓ, hefði vorið 2004 beðist afsökunar á gerðum fyrrverandi stjórnmálamanna og yfirvalda í Danmörku. Hann hafði einnig lesið að danskar ríkisstjórnir á hernámsárunum hefðu hvatt atvinnuleysingja til að halda til Stórþýskalands og vinna þar á lúsalaunum. Einnig var ljót saga af því að Danir hefðu selt Þjóðverjum ógnina alla af matvöru í stríðinu og að 95% þeirrar vöru hafi verið notuð til að fæða heri Þriðja Ríkisins, m.a. þá hermenn sem myrtu meinta ættingja Zelenskijs sem börðust í Rauða hernum og milljónir annarra gyðinga. Hann hafði lesið í rúminu, þar sem hann dvaldi kvöldið áður, að danskir sjómenn hefðu hætt lífi og limum til að færa Þjóðverjum síld og danskir bændur hefðu grætt vel á svínakjöti og smjöri sem fyrrum var selt til Bretlandseyja en sem nú var selt Þjóðverjum a góðum kjörum

Að vonum var Zelenskij á báðum áttum og spurði, hvort rétt væri fyrir hann að líkja Rússum við Nasí-Þýskalandi. Samstarfsmaður Fedirs, Oleh K., sem einnig var staddur hjá Volodimyr, sagði það í fínum málum, því að Danir vildu flestir gleyma óþægilegum minningum úr síðara stríði; flestir vissu hvort sem er ekki neitt, þar sem sögukennsla hefði verið í mýflugumynd í Danmörku í marga áratugi. Taldi hann víst að Danir væru einnig flestir undir undir áhrifum hvítþvottameistarans B. Lidegaards, sem segir að Grænland hafi aldrei verið nýlenda. Zelenskij svitnaði nú heldu betur í græna bolnum.

Læknir Zelenskijs gaf honum því smá róandi og Volodomyr svaf þangað til í gær, er hann fór yfir það sem hann átti að segja við starfsmenn Gaggó-Vest á útvarðareyju frelsisins á hjara veraldar.

Fornleifur er farinn að kvíða því sem Zelenskij segir um Ísland, með hjálp CIA, en furðulegt þótti mér að hann hefði ekki nefnt LEGO, þegar hann talaði svo fallega til Dana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband