Fornleifur og falkóner á kaffihúsi

20190214_122529 b

Í febrúarmánuði 2019 var ekkert kóv og engin hætta á því að Svíar myndu deyja út, líkt og þeir gerðu síðar. Ritstjóri Fornleifs brá sér grímulaus í bæinn. Borgarferðin, sem hér er til umræðu, var farin til að taka myndir af húsum á Christianshavn. Þreyttur ritstjórinn brá ser á kaffi og kökuhús og hann hefur vart verið sestur með bollu sína og þrefaldan espresso og vatnsglas, þegar inn kemur annar Íslendingur með miklu fjaðrafoki.

Reyndar var fjaðrafokið bara píkuskrækir í konum á öllum aldri sem sáu fálka í fyrsta sinn. Inn á kaffihúsið var kominn Stefán Blöndal, falkoner og listamaður (f.1964), sem var að ná í kökur fyrir sig og rússneska píanósnillinginn sinn. Ekki held ég að fálkar borði kökur. Stefán var með fálka upp á arminn og á öxlinni.  Fálkinn var sallarólegur, þótt að örn sæti á priki við gluggann að virða fyrir sér fugla og annað fiðurfé sem var úti að viðra sig í grámyglunni í Kóngsins Kaupmannahöfn. Fálki Blöndals var með huliðshúfu og sá því ekki nema í gegnum rassgatið, líkt og sumir fjölmiðlamenn og illfygli gera.

20190214_122538 d

Fornleifur sem ávallt gengur með púka á einni öxlinni og engil á hinni, hlustaði í þetta sinn mest á engilinn, enda engillinn með tvo púka á öxlunum og þar að auki mikill áhugamaður um rennilega fálka.

Sá gamli stóðst ekki mátið og smellti nokkrum myndum með lélegan síma sinn af fálkameistaranum Blöndal, sem hjólaði á brott frá kaffihúsinu með fálkann og kökurnar handa rússneskættuðu konunni sinni, píanósnillingnum Ninu Kavtaradze (f. 1946 (þið lesið rétt)), heima á Prinssessugötu á Kristjánshöfn.

Ef maður þekkir grúsískar konur rétt, sem eru eins og Stalín heima hjá sér án skeggs, hefur Nína  verið með heitt te á samóvarnum, þegar Stebbi og fálkinn komu heim, og kannski var dauður músarrindil úr dós handa fálkanum - eða "Sabana-kaka" eins og þær sem lesblindur bakari seldi í Reykjavík um tíma.

Ætli sé búið að gefa Stefáni Blöndal fálkabling? Guðni forseti situr eins og krummi á klettasyllu með fullar birgðir af fálkabíslagi sem hann nælir í mann og annan.

LeadingTemptingAlligator-max-1mb

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband