"Ţeir eru öfundsverđir sem afskektir eru"
11.10.2013 | 15:04
Nýveriđ renndi ég augum yfir ágćta B.A. ritgerđ eftir ungan og upprennandi sagnfrćđing, Óđin Melsteđ.
Eins og mér er tamt, finn ég gjarnan villur og geri ađfinnslur ef ástćđa er til. Ég setti mig ţví í samband viđ Óđinn og greindi honum frá ţví ađ í ágćtum lista hans yfir erlenda tónlistarmenn á Íslandi í ritgerđinni hefđi ađ mínu mati vantađ tvo áhugaverđa einstaklinga, sem ef til vill báru höfuđ og herđar yfir flesta ţá sem músíseruđu sig um Ísland á 20. öld.
Annan ţeirra, dr. Dennis Zakal, hef ég ritađ örlítiđ um á öđrum vettvangi. Hinn var öllu merkilegri og leitt er ađ hann hafi ekki haft lengri viđkomu á Íslandi en í ţau tvö skipti sem hann heimsótti landiđ.
Hann hélt ţrenna tónleika á Íslandi í apríl áriđ 1935 og fimm tónleika í október áriđ 1938. Hann hét Ignaz Friedman en upphaflega Soloman Isaac Freudman. Hann var fćddur Podgorze-hluta Krakow í Póllandi áriđ 1882 og sáu menn snemma ađ í honum bjó undrabarn viđ slaghörpuna.
Friedman var tvímćlalaust snillingur og međal fremstu túlkenda Chopins fyrr og síđar. Hlustun er sögu ríkari, klikkiđ hér inn á YouTube og njótiđ ţessa snillings. Hlustiđ einnig á hann tala um Chopin hér.
Friedman bjó um tíma í Kaupmannahöfn, en ferđast víđa um heiminn, allt til Íslands og Hawaii. Á Hawaii var hann bađađur blómum, en í Reykjavík ákvađ úrval arískra pilta sem sáu framtíđ sína međ Hitler og Stórevrópu ađ sletta fúkyrđum um hann í öfundarkasti í málgagni sínu Íslandi.
Ţegar Friedman kom fyrst til Reykjavíkur hafđi hann međ sér flygil frá Hornung & Mřller í Kaupmannahöfn. Fyrir utan nasistana, sem voru lítilmenni, ţó ţeir yrđu síđar lögreglustjórar og seđlabankastjórar, voru allir á Íslandi í skýjunum af hrifningu yfir leik Friedmans. En mikiđ er stundum furđulegt hve vel menn međ verkamannahendur og smiđsputta geta leikiđ.
Í merkisviđtali sem F tók viđ viđ Ignaz Friedman, og sem birtist í Morgunblađinu ţann 27. apríl 1935 kom ţetta fram (sjá hér);
"Ţeir eru öfundsverđir sem afskektir eru....
En eitt get jeg sagt ykkur, ađ ţiđ eruđ öfundsverđir hjer á Íslandi. Ţiđ hafiđ enn sem komiđ er komist hjá mörgum ţeim erfiđleikum, sem ađrar ţjóđir hafa viđ ađ stríđa. Og eins og nú horfir viđ í heiminum er gott ađ vera afskektur og hafa úthaf fyrir nágranna á alla vegu. - En međal annarra orđa, segir Ignaz Friedman. Jeg hefi heyrt ađ ţiđ eigiđ hjer merkilegt ţjóđminjasafn, ţar sem m. a. er sýnishorn af gömlum vefnađi. Er slíkur vefnađur gerđur hjer enn - og er hćgt ađ fá hann? Og hvar eru merkustu handritin af sögunum ykkar?
Ţegar blađamađur Morgunblađsins "F" og Páll Ísólfsson gengu á fund Friedmans á Hótel Borg, sat hann og las í símaskránni. Ţađ var lengi siđur gyđinga, ţví ţeir gerđa ţađ oft ţegar ţeim var ljóst ađ á matseđlinum á Hótelum var svínaschnitzel í öll mál. Gyđingar leituđu hvorn annan uppi eđa reyndu ađ kynna sér hvort í bćnum vćri gyđingasöfnuđur.
Friedman var stoltur af gyđingdómi sínum og hann skilgreindi sjálfan sig sem gyđinglegan píanóleikara. Erfitt var ađ fá kennslu í Póllandi fyrir undrabarn af gyđingaćttum vegna fordóma , en pólski píanókennarinn Leschetizky í Vín tók hann í tíma. Leschetizky hélt ţví fram, ađ ţrír ţćttir gerđu menn ađ snillingi; Mađur yrđi ađ vera slavneskur, gyđingur og undrabarn. Lechetizky bćtti ţví viđ, er hann heyrđi Friedman í fyrsta sinn, ađ fyrir gyđing ađ vera ćtti drengurinn ađ spila betur en hann gerđi. Ađalsmađur nokkur í Vín bauđst til ađ borga fyrir alla menntun Friedmans ef hann kastađi trú sinni. Ţví svarađi móđir hans: "sonur minn er ekki til fals".
Blómum skrýddur Friedman á Hawaii
Eitt sinn var Friedman á hljómleikaför í Egyptalandi og ritađi fjölskyldu sinni: Svćđiđ sem viđ sjáum frá bátum okkar [á Níl], er sendiđ, ţurrt og einstaklega leiđinlegt. Nú veit ég af hverju gyđingar ílentust hér aldrei. Skopskyniđ vantađi greinilega heldur ekki.
Friedman byggđi sér snemma á 20. öldinni mikiđ hús í Bolzano á Ítalíu, sem hann kallađi Villa Friedman, ţar sem hann bjó međ konu sinni og dóttur, er hann var ekki á ferđ og flugi um heiminn. Honum tókst ađ flýja til Ástralíu í stríđinu og ţar andađist hann helsjúkur áriđ 1948.
Alan Evans hefur skrifađ bók um ţennan merka mann, ţar sem munu vera upplýsingar um hann á Íslandi. Barnabarn Friedmans, Nina Walder, hefur einnig skrifađ bók um hann á frönsku sem út kom áriđ 2010. Sjá vefsíđu hennar til heiđurs Ignaz Friedman.
Meginflokkur: Tónlistarsaga | Aukaflokkar: Gyđingar, Tónlist | Breytt 22.2.2022 kl. 07:01 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.