Hrókur alls fagnađar eđa skák og mát
5.6.2019 | 20:10
Nú er ekkert annađ fyrir sanna Íslendinga ađ gera en ađ heimta Ljóđhúsataflmennina aftur heim og kaupa hrókinn sauđalitađa sem nú stendur hćstbjóđanda til bođa í Lundúnum. Hrókurinn flýr vćntanlega land eins og allt frá Bretlandseyjum í Brexitinu.
Enginn vafi skal leika á ţví ađ taflmennirnir frá Lewis voru skornir út í tönn á Íslandi. Hvar annars stađar en í naflanum uppi viđ haus? Ţar var ađ verki hagleikskonan Margrét Skögultönn sem fékk ađ sitja í Skálholti og skera og saga tennur fram í háa elli.
Margrét var afar afkastamikil kona og miklir haugar af brotum úr rosmhvalstönn hafa ekki fundist ruslahaugum viđ fornleifarannsóknir í Skálholti - eins og kunnugt er. Svo ţrifin hefur hún einnig veriđ, ţó hún hafi fyrst og frems veriđ til í "tuskiđ".
Margrét var einnig međ húđflúrsskemmu vestan viđ dómkirkjuna. Ekki ţótti Margréti Skögultönn takast vel upp viđ ađ flúra eđa skera út augu. Ţau ţóttu stara um of á ţann sem á horfđi. Íslenskur lćknir, Ţingeyingur, hefur sýnt fram á ađ ćttgeng gerđ af gláku hafiđ leikiđ Íslendinga grátt á miđöldum. Eđa var ţađ grá stara? Sama hvort er, sjúkdómurinn fannst ađeins á Íslandi og komst ekki á skip til Niđurlanda, sem var líklega fyrir bestu, ţar sem glámskyggni var ţar fyrir og er enn í ríkum mćli.
Ţessi hrćđilegi krankleiki olli ţví ađ Íslendingar gengu um međ uppglennt augu, bćđi bólgin og rauđsprengd, og tóku ekki eftir helmingnum ađ ţví sem gerđist í kringum ţá. Bestu annálaskrifarar ţjóđarinnar misstu af flestum eldgosum á Íslandi vegna glenniblindu, sem sjúkdómurinn var kallađur. Menn sáu smáatriđi en ekki heildarmyndina. Enn eru íslendingar haldnir ţessum sjúkdómi og halda ađ ţeir búi á miđpunkti alheims, sem er vitaskuld alveg rétt eins og Guđ almáttugur hefur stillt jörđinni upp út frá sínu sjónarhorni.
Gvöđ minn góđur! Glenniblindan var mikiđ vandamál á Íslandi á 12. öld. Sérstaklega fyrir listakonu sem aldrei hafđi séđ riddara spranga gráan fyrir járnum um túndrur Íslands. Fyrirsćtur voru ekkert vandamál. Jón Kíghósti sat fyrir sem riddari og biskupar komu og fóru.
Eitt er ţađ sem beinlínis sannar ađ taflmennirnir frá Ljóđhúsum og Íslandi hafi veriđ út skornir af Margréti. Búmark hennar og skjöldur sýnir eina merkustu uppfinningu Íslendinga fyrr og síđar fyrir utan skyriđ.
Ţegar ástin í hjónabandi ţessarar merku hagleikskonu kulnađi og eiginmađur hennar Runólfur Tanni (ekki ćttfćrđur í Íslendingabók inni nýju) hóf suđurgöngu til Rómar til ađ fá skilnađ frá Margréti, fann hún upp Sofnísinn. Rúnki komst aftur á móti aldrei á leiđarenda og dó ofan á írskri portkonu í Andvörpum.
Köld eru kvenna ráđ og neyđin kennir nakinni konu ađ búa til ís eins og sagt var. Margrét setti oft á tíđum mynd af sofnís á hagleiksverk sín. Líkt og skyrinu var stoliđ frá Íslendingum fyrir slikk á okkar tímum, fór sofnísinn sömu leiđ og er nú á dögum kallađur soft-ice. Í skemmu norđan kirkju var Margrét međ ísbúđ. Já, ţiđ lesiđ rétt. Skemmur voru í lok 12. aldar út um allt.
Ein auglýsinganna fyrir handverk Margrétar sést til dćmis á baki hásćtis eins af kóngum Margrétar sem rak í land í Ljóđhúsum er knörr Dehla hins ţýska fórst á leiđinni til Dyflinnar. Ekki nóg međ ţađ. Á kónginum eru leifar af 1104 gjóskunni úr Heklu. Margrét notađi vafalaust H-1 vikur til ađ fínpússa verk sín, ţví á ţessum tíma var hvorki til sandpappír né vatnspappír í Skálholti.
Ţađ er ekki ađ spyrja ađ hugviti og listfengi Íslendinga fyrr á tíđum. Margrét keypti járn sín og sagir í Brynju. Lítiđ hefur breyst.
Ef vel er ađ gáđ, lesendur góđir, ţiđ ţrjú sem enn lesiđ Moggabloggiđ, er ţetta nú vitaskuld ekki ís međ dýfu, né heldur hnetum, sem er miđreitis aftan á hásćti eins kónganna frá Lewis. Ţarna er greinilega tilraun til ađ sýna köngul barrtrés. Nú vitum viđ ekki hvort Margrét Skögultönn gerđist nokkru sinni víđreist; hvort hún hafi tekiđ međ sér köngla í minningunni frá heimsreisu, eđa ađ hún hafi jafnvel smyglađ honum til landsins (sjáiđ viđurlög viđ ţví í Grágás). En ef ţessi ágćta eđalkona fór aldrei suđur, líkt og margir, ţá er ég nćsta hrćddur um ađ "ísinn" á hásćti konungs sé allgóđ rök fyrir ţví ađ taflmennirnir frá Lewis hafi ekki veriđ skornir út á Íslandi.
Made in Norway. Íslendingar voru hins vegar miklu fyrr í abstraktlist en frćndur ţeirra - líkt og taflmađurinn frá Baldursheimi í Skútustađahreppi sýnir glöggt. Hann sýnir einnig geđstreitu ţá sem lengi hefur einkennt Ţingeyinga, og gott ef ekki er, ţá er hann einnig međ glenniblindu á lokastigi.
Íslenskur hrókur metinn á milljón pund | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Mér finnst skepnuskapur ađ vera ekki sammála hinum ágćta framsóknarmanni Guđmundi Ţórarinssyni.
Ţorvaldur Sigurdsson (IP-tala skráđ) 6.6.2019 kl. 13:38
Ég er sammála ţér, en stundum er sannleikurinn trunta.
FORNLEIFUR, 6.6.2019 kl. 20:42
Ţetta er misskilningur hjá ţér, Villi minn. Ţađ er nútíminn sem er trunta og ekki bara stundum heldur alltaf og ćvinlega. Sannleikurinn er hinsvegar oft "fake news".
Sćmundur Bjarnason, 8.6.2019 kl. 11:55
Nei Sćmi, sannleikurinn getur vel veriđ trunta líkt og nútíminn. Fyrir Íslendinga er sannleikur greinilega "leikur" einn. Er ţađ ekki lygilegt? Hvađ sem ţví líđur, held ég ţó ađ ofmetnađur í íslensku minnimáttarkenndinni hafi gert taflmenninga frá Ljóđhúsum ađ íslenskri framleiđslu. Ţađ er ekkert sem sannađ getur slíka hugaróra. Menn mega setja ţá fram ef ţeir vilja, en hugarórar geta aldrei orđiđ ađ tilgátu, og ţađan af síđur ađ kenningu. Gömlu góđu sönnunarbyrđina vantar oft á Íslandi. T.d. sýkna menn dćmda morđingja og standa uppi međ týnda menn sem áđur voru taldir hafa veriđ myrtir og ef til vill milljarđagat á ţjóđarreikningnum sem annars hefđi veriđ hćgt ađ koma í veg fyrir. Er nema von ađ Tyrkjanum ţyki íslendingar hálfgerđir klósettburstar. Ţeir hafa nćstum ţví minni húmor en Tyrkinn.
FORNLEIFUR, 11.6.2019 kl. 15:10
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.