Vel kemur oss nú refillinn inn góđi

Screenshot_2021-02-21 Explore the Bayeux Tapestry online - Bayeux Museum

Nú komu svo sannarlega gleđitíđindi fyrir okkur sem saumum mikiđ í og ađ.

Međ einu klikki er hćgt ađ fara suđur í Normandí til ađ fá refill á frćđin međ ţví ađ skođa Bayeaux-refilinn í smćstu smáatriđum.

Ég man ţá tíđ er ég keypti refilinn í 10 cm. hárri bók, sem var hins vegar 30 sm. breiđ, ţar sem refillinn var allur samanbrotinn. Ţađ ţótti framför um 1980. Refillinn er í raun um 70 metrar ađ lengd, en í bókinni var hann nokkrir metrar.

Skođiđ nú refilinn hér.

Ţiđ sjáiđ svo efst ađ ţćr skemmtu sér stúlkurnar sem saumuđu refilinn, hvort sem ţađ var nú á Englandi eđa í klaustrinu Saint Florent de Saumur í Leirudal. Viđ skulum ekki spinna meira um ţađ hér - en er ţetta ekki Sir Roy af Chippendale í eigin persónu? Er nokkuđ ţessu líkt á Njálureflinum á Hvolsvelli?

Vihjalmur fer til Bćjar

Vilhjálmur fer til Bćgisár/Bćjar (fr. Bayeaux/lat. Bagias)?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Ţetta efni verđur ekki kynnt á Facebook. Pempíur og međlimir á ţví meinlćtaklaustri ţola ekkert lendarkonfekt.

FORNLEIFUR, 21.2.2021 kl. 07:08

2 Smámynd: Upprétti Apinn

Ég man ađ ég last einhverstađar ađ starfsbrćđur ţínir teldu ađ refillinn hafi veriđ lengri og ađ ţađ vanti endirinn á hasarblađasögunni.

Upprétti Apinn, 22.2.2021 kl. 20:35

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Jú vissulega er hann dulítiđ snubbóttur í endann, apinn minn. Ţrennt kemur til greina.

1) Ritskođun

2) Stytting vegna ţess ađ nunnurnar hafa fríkađ út í strípalingum.

3) Léreftiđ var uppuriđ og Ódó (sem mun hafa pantađ verkiđ) ţurfti ađ fá refilinn tafarlaust. Frumsýningargestir geta ekkert beđiđ.

FORNLEIFUR, 23.2.2021 kl. 16:24

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband