Gísla Gunnarssyni svarað

Samansemmerki

Gísli Gunnarsson sagnfræðiprófessor (emeritus) er, þrátt fyrir latínubótina sem stagað er í afturendann á síðasta fasta starfstitli hans, alls ekki dauður úr öllum æðum. Í bókstaflegri meiningu þýddi emeritus aflóga, þegar Rómverjar notuðu þetta lýsingarorð einna mest um vinnuhesta og akuxa. Gísli hefur alltaf verið mikill vinnuhestur og engin gapuxi. Fylking sú sem fylgir Gísla á FB tilheyrir þó oft síðarnefndu tegundinni. 

Til að halda sínum góðu, gráu sellum í sambandi og liðugum stundar Gísli mikla leikfimisæfingar á FB, og það mest um hásvartnættið; stundum svo mjög að óhollt má þykja. Þessar æfingar hans eru mun herskárri en t.d. Müllers-teygjur eða almennilega daglegur göngutúr sem Jóni Árnasyni þjóðsagnaþul var ráðlagt að stunda af sérfróðum Skota, þegar Skotinn sá hve visinn og aumur Jón var fyrir neðan mitti af endalausri setu yfir lygasögum. 

Á FB sinni stundar Gísli þá æfingu heilsu sinni til bóta, að verja rétt Palestínumanna með því að vera plötusnúður og útsendingastjóri fyrir málstað Hamas og Fatah.

Gísli sendir í gríð og erg út greinar sem hann finnur á veraldarvefnum, og upp á síðkastið margar greinar um litla hópa gyðinglegra þverhausa sem eru á móti Ísraelsríki og hafa aðrar skoðanir á vanda Miðausturlanda en stór meirihluti gyðinga heimsins, bæði þeirra sem búa í Ísrael eða utan.

Það er í sjálfu sér ekki syndsamlegt að nota heilasellur sínar til þess að styðja baráttu sárhrjáðra manna sem Gísli vill að eignist vel vopnað ríki. Vandamálið hefst þegar hin hrjáða þjóð sýnir umheiminum, að hún kann ekki með þessi vopna að fara nema til þess að uppfylla heit sín um að útrýma nágranna sínum. Eins og margir Íslendingar, hefur Gísli valið sér Palestínumenn til að styðja sérstaklega, og reyndar fram yfir aðra hrjáða menn sem hafa þurft að þola miklu verri örlög en Palestínuarabar.

Gísli Gunnarsson bað mig á FB sinni í nótt, þegar ég svaf svefni hinna saklausu, um að skýra fyrir sér hvernig gangrýni á Ísraelsríki geti stundum talist til hreinræktaðs gyðingahaturs.

Þegar hann og heilasellurnar vakna í kvöld og hann hefur enn á ný leit að þriggja manna "samtökum "gyðinga sem hata Ísraelsríki - eða að grein eftir einhvern sem finnst bresku stjórnmálamennirnir Jeremy Corbyn og Ken Livingstone einstök gæðablóð, þá verður þetta svar tilbúið til lestrar fyrir hann. Þið lofið að vekja Gísla ekki af værum svefni fyrr en kl. 19 eða 20 að staðartíma út af þessu svari. Þær gráu í fólki sem er komið yfir fimmtugt þurfa nefnilega á nægri hvíld að halda, sérstaklega áður en haldið skal á Vesturbakkann eða til Gaza í huganum, meðan aðrir eru í Jerúsalem í draumum sínum.

Hvenær verður gagnrýni á Ísrael gyðingahatur?

Gagnrýni á Ísraelsríki á vitaskuld rétt á sér, en stundum væri málefnalegra að dreifa gangrýni sinni á ríki þar sem ástandið er miklu  en í Ísrael og á friðsemdareyjunni Íslandi norður í Ballarhafi. 

Gagnrýni á Ísraelsríki, Ísraelshatur og það sem sumir kalla antisíonismi, getur hins vegar auðveldlega snúist yfir í hreint gyðingahatur ef menn varast ekki orðaval sitt. En nú er orðaval einu sinni oftast nær birtingarmynd skoðana og tilfinninga manna. Hér skulu nefnd nokkur dæmi sem varða Gísla sjálfan í von um að það bæti skilning hans á því hvenær gagnrýni á Ísrael er orðin að gyðingahatri.

1) Gísli hefur um árabil bent á að núlifandi gyðingar séu flestir komnir af Khazörum, þjóð sem að hluta tók gyðingdóm um tíma. Þessa kenningu hefur Gísli tekið miklu ástfóstri við líkt og margir stuðningsmenn Palestínumanna - Hún sýnir þeim að nútímagyðingar séu ekki gyðingar í raun og veru og séu að mestu óskyldir þeim sem uppi voru á tímum Jesús frelsara sumar Íslendinga.  Þrátt fyrir að allar nýjar DNA-rannsóknir sýni að það sé engin fótur fyrir þessari kenning (sem reyndar var upphaflega sett fram af gyðingi) og sem notuðu var grimmt af nasistum áður en stuðningsmenn Palestínuaraba fóru að nota hana.  Þeir sem enn vitna í  Kahzarakenninguna eru gyðingahatarar. Þeir reyna að útrýma tilvist gyðinga með því að segja að þeir séu ekki "ekta gyðingar". Eins lítilmótleg  og ömurleg sem þessi óvísindalega samlíking er, þá er hún enn notuð á meðal þeirra sem safnast að Fjasbók Gísla sem flugur á mykjuskán, þegar hann skrifar um Palestínu. Gísli hefur þó sem betur fer nýlega gefið þessa dogmu um sagnaþjóðina Khazara upp á bátinn.


2) Margur maðurinn sem sækir í FB Gísla líkir Ísraelsríki í sífellu við Þýskalands nasismans og Ísraelsmenn og gyðinga við nasista, sem  og Gaza við gettó. Þetta fólk, sem ég held stundum persónulega að sé léttkexruglað þegar að þegar að áhugamálið þeirra kemur, telur það málstað Palestínumanna til stuðnings að tala í sífellu um þjóðarmorð í Palestínu. Ef það er ekki kúlan í kanónunni, það eru gyðingar vændir um að stunda þjóðernishreinsanir. Þetta síðasta kemur einfaldlega til af því að fólk í Palestínuiðnaðinum hefur greinilega ekki andlega burði til að kynna sér skilgreiningu SÞ og annarra alþjóðlegra stofnanna á þjóðarmorði.  Samlíkingar gyðinga/Gyðinga/Ísraelsmanna við böðla gyðinga í Evrópu er gyðingahatur. Það hefur fyrir löngu verið skilgreint og niðurneglt af sérfræðingum, bæði gyðingum og þeim sem ekki eru gyðingatrúar. Alþjóðlega samtök ganga einnig út frá því að þegar Ísraelsmönnum og gyðingum er líkt við nasista, þá sé það í raun svæsnasta gerð af gyðingahatri - þ.e. þegar fórnarlambinu er líkt við böðul sinn. Þetta gera margir á FB Gísla emirítus, sem gerðist sjálfskipaður gyðingafræðingur á Íslandi í ellinni.

Gísli Gunnarsson 2009

Lækjartorg 2009. Táknin eru greinileg. Ekkert slys, aðeins hatur.


3) Ég get vel skilið að menn í hita átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs æstist í hvert sinn sem átök hefjast aftur á Gaza, en samlíkingar þeirra, sem maður sér Palestínumenn einnig nota, sem og afneitun á Helför Gyðingar og engum ósóma, er engum til gagns og síst af öllu Palestínumönnum. Herferð Gísla er í hæsta lagi æsingur aldraðs manns í cyberspace og ekkert annað. Hann hjálpar engum og fær ekki einu sinni verðlaunapening frá Hamas eins og Sveinn Rúnar hefur fengið. Gísli hefur ekki heldur ort: "Israel, Israel über alles" líkt og Sveinn Rúnar Hauksson gerði hér um árið. Með því að sætta sig við fólk komi við á FB sinni með gyðingahatri er Gísli meðsekur í gyðingahatrinu.


4) Gísli Gunnarsson hefur einnig gert sig sekan um aðra gerð af svæsnu gyðingahatri. Árið 2003 skrifaði undir undirskriftasöfnum í HÍ, (með fólki eins og Helgu Kress og Þorbirni Broddasyni, https://notendur.hi.is/~peturk/ISRAEL/askorun.htm ) þar sem hann hélt sig vera að styðja áskorun frá 187 ísraelskum prófessorum sem að sögn vöruðu við þjóðahreinsunum Ísraelsmanna á Palestínumönnum í skjóli Íraksstríðsins. Gísli og aðrir lærðir menn hoppuðu umsvifalaust á þetta gabb, sem ættað var frá einum af mörgum áróðursmiðstöðvum Palestínumanna. Enginn prófessor í Ísrael hafði sett nafn sitt undir slíka undirskrifasöfnun eða beðið kollega á Íslandi að vera með. Gísli og líkt þenkjandi fólk gleymdi í andrá öfganna, að það eru Palestínumenn sem sífellt tala um að ryðja Ísraelsríki í sjó fram og "myrða gyðinga hvar sem þá er að finna", en ekki öfugt. Það var hreinræktað gyðingahatur sem Gísli Gunnarsson skrifaði undir og hvatti til, er hann taldi öruggt að Ísraelsmenn myndu stunda þjóðarhreinsanir í skjóli Íraksstríðsins.

Læt ég þessar skýringar nægja hinum aldna og virðulega prófessor sem stundar leikfimisæfingar með gráu sellurnar sínum til stuðnings hinna hrjáðu Palestínuaraba, sem reyndar hírast í best vopnaða "gettói" sem sögur fara af. Svokölluð gangrýni í garð Ísraels getur mjög auðveldlega tekið á sig mynd hreinræktaðs gyðingahaturs og gerir það oft hjá lesendum Gísla á Facebók hans. Sjón er sögu ríkari. Svo er líka bíó fyrir Gísla. Þetta er líklegast "áróðursmynd" samkvæmt Gísla.

Where anti-Zionism crosses into anti-Semitism should also be obvious: dehumanizing or demonizing Jews and propagating the myth of their sinister omnipotence; accusing Jews of double loyalties as a means to suggest their national belonging is of lesser worth; denying the Jewish people’s right to self-determination; blaming through conflation all Jews for the policies of the Israeli government; pursuing the systematic “Nazification” of Israel; turning Zionism into a synonym of racism. Roger Cohen

Vísindavefsskandallinn

Gísli Gunnarsson komst heldur betur í sviðsljósið nýlega, þegar Merrill Kaplan ungur aðjúnkt í Iowa í Bandaríkjunum, sem dvalið hafði á Íslandi við vinnu á doktorsritgerð sinni benti á villur og meinlokur í skýringargrein Gísla á gyðingahatri á Vísindavefnum. Gísli gerði talsverða umbætur, enda jaðraði það sem hans skrifaði við gyðingahatur. Gísla vini mínum, og sjálfskipuðum verndara til 30 ára, má segja það til hróss að hann er ekki einn um ruglið og þekkingarleysið á því sem hann hefur verið spurður um á Vísindavefnum. 

Eitt sinn var Guðrún Kvaran beðin um að skýra uppruna orðanna gyðings og júða en einnig skýra hvers vegna orðið júði er niðrandi? Í dönsku og þýsku eru notuð nauðalík orð um gyðinga sem ekki eru niðrandi. Guðrún Kvaran svaraði og sýndi þar með ljóslega fordóma sína og þar með algjöra vankunnáttu á því sem hún var spurð um:

"Neikvæða merkingin í júði á líklegast rætur að rekja til þess að gyðingar sem stunduðu viðskipti víða um heim á síðari öldum, þóttu erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar og efnuðust oft vel. Þetta litu aðrir hornauga og farið var að nota jew, jøde, júði í neikvæðum tón um kaupsýslumenn af gyðingaættum. Hin neikvæða merking sem Jude fékk í Þýskalandi á árunum milli stríða og í síðari heimsstyrjöldinni er af öðrum toga og var tímabundin. Hún náði yfir allt fólk af gyðingaættum, ekki aðeins kaupsýslumenn".

Þarna blandar fræðimaður að hluta til orsökum og afleiðingum saman og sýnir algjört þekkingarleysi á því sem hún hún skrifar um. Rómverjar og kristin kirkja ólu á hatri gagnvart gyðingum og hvaða nafn sem þeir og aðrir notuðu, þá var það tengt neikvæðni í garð gyðinga og trúarbragða þeirra. Ástæðan fyrir því að gyðingar stunduðu lánastarfssemi er ekki skýrð af Guðrúnu Kvaran. Kirkjan lék aðalhlutverkið í því hve litla starfsmöguleika gyðingar höfðu. Guðrún gleymir því einnig að flestir sem hafa orðið fyrir illmæli með gyðinganafnbót eru ekki gyðingar, heldur okrarar sem kallaðir eru því ljótasta sem mönnum dettur í hug. Ég hef áður bent á þekkingarleysi Guðrúnar Kvaran (sjá hér) og læt þetta nægja nú. Gísli er svo sannarlega ekki einn á þessum furðulega hatursdalli HÍ.

Gyðingahatur nútímans er mikið vandamál á Íslandi. Sem betur fer hafa gyðingar búsettir á Íslandi aðeins orðið fyrir aðkasti í litlum mæli. Bílar þeirra hafa verið rispaðir og drullu kastað í hús þeirra og túlípanar hafa verið rifnir upp í görðum þeirra.

En ef menn hugsa sig ekki um og fara með offorsi í samlíkingum og hatursræðu í hvert skipti sem öryggið losnar á sprengjukösturum hryðjuverkasamtakanna Hamas (sem sumir Íslendingar skilgreina sem eins konar hjálpasveit skáta), þá sjáum oftar hroðalegt gyðingahatur á Íslandi í meintu hatri manna á hinum "vonda síonisma" Ísraelsríkis.

Gyðingur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gagnrýni Vilhjálms á mig lýsir homum betur en mér. Mörg atriði þar eru alr0ng, önnur eru mistúlkanir.
En fyrst þetta: Frá barnsárum hef ég borið hag gyðinga fyrir brjósti. Ég hef fylgst með sögu Ísraels lengi, lært hana m.a. við breskan háskóla fyrir 60 árum, verið í skriflegum tengslum við fulltrúa MAPAM-flokksins á 7. áratug síðustu aldar. Læt þetta duga en sný mér að efnisvillum í grein Vilhjálms.
1. Mér hefur alltaf þótt kazarakenning Arthurs Koestlers vera ófræðilegt innlegg, fremur skáldskap en fræði. Þetta á Vilhjálmur að vita, og veit sennilega þótt það henti honum í hita deilunnar að kenna mig við hana. Ég hef bent á að DNA-rannsóknir á uppruna gyðinga séu enn þá komnar skammt og eru með innbyrðis ólíkar niðurstöður. Raunar er flest sem BENDIR TIL að Askenazi-gyðingar séu bæði komnir af þjóðum Vestur-Asíu og Evrópubúum en það er enn þá of snemmt að nefna hér ákveðnar hundraðstölur.
2. Annað sem Vilhjálmur ásakar mig um flokkast sem ásökunina "gulity by association", sekur vegna tengsla við vonda menn. Mikið er um slíkt. Þetta er ekki áreiðanleg aðferð til að komast að réttri niðurstöðu. En undirritun mín á ákveðnu plaggi var fengin á forsendum sem reyndust vera lygi og er því sú undirritun ógild.
3. Annað sem Vilhjálmur ásakar mig um byggist á tveimur fyrrnenfdnum málum og lýsa honum betur en mér. 
Að lokum þetta: Tilfinningar mínar eru með gyðingum, eins og Vilhjálmur veit, en sumt i skynsemi minni segir mér að stundum sé eitthvað rotið í samskiptum stjórnar Ísraels við nágrannaþjóðir. En tilefni þess að Vilhjálmur skrifaði þessa grein er spurningar sem ég sendi honum um þessi efni: A) Greinir þú á milli andsemítimsa og andzíonisma? B) Er öll gagnrýni á stjórnafar í Ísrael andzæionismi?
Hversu vel hefur Vilhjálmur svarað þessum spurningum?Svari hver fyrir sig.

Gísli Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 19:15

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Vitaskuld svarar þú fyrir þig, Gísli Gunnarsson, og ég fer ekki að senda svar þitt til "baka í tölvupósti, ef ég birti það ekki" eins og þú skrifaðir mér í skilaboðum á FB. Sú ósk segir líklegast meira um þig en mig, svo notaður sé þinn vinsælasti frasi.

En þú ert ekki að svara gangrýni. Ég svaraði aðeins spurningum sem þú barst undir mig á FB þinni. Kannski var svar mitt ekki nógu greinilegt.

Öll gagnrýni á stjórnarfar í Ísrael er ekki andsíonismi. Það held ég að komi vel fram í öllu sem ég rita. Ég skýrði vel (sjá hér að ofan) hvaða þættir veldu því að menn teldu andsíonsisma vera gyðingahatur - og ekki bara af mér. Ég tel andsemítisma ekki var gott íslenskt orð. Við notum orðið gyðingahatur, en antisemítismi er í raun rugl sem var fundið upp af þýskum gyðingahatara, Wilhelm Marr, og það veist þú ef þér er svo annt um gyðinga, líkt og þú heldur ávallt fram.

Stuðningur þinn við öfl sem vilja eyða þjóðríki Gyðinga, sýnir mér þvert á móti, að þér geti ekki verið hlýtt til gyðinga af einhverjum ástæðum sem mér eru enn duldar - í ljósi þess að þú heldur (og heldur fram) að þú sért mikill vinur þeirra. Ef svo væri í raun, hefði þér væntanlega ekki borist athugasemd frá Merrill Kaplan. Ef svo væri, safnaðist ekki þversniðið af verstu gyðingahöturum landsins á FB þína. Fólk sem t.d. skrifar um mig að ég sé "mesti öfga júði sem ég veit um á netinu".
Sá sem það ritaði hefur farið fram með enn verri munnsöfnuði, svo ekki sé minnst á þá sem skrifa að þeir séu leiðir yfir því að Hitler hafi ekki lokið ætlunarverki sínu.

Hvað varðar spurningu þína um, hvort ég greini á milli "andsemítisma" og "andsíonisma", þá tel ég mig hafa greint skilmerkilega frá því í svari mínu til þín. Antisíonismi getur verið gyðingahatur. Ég gaf dæmi um það af þínum eigin skrifum.

Ég er ekki á því að þér hafi þótt Khazarakenningin vondur pappír og það er ekki lengi síðan að ég greindi þér frá því að hún væri algjörlega úr myndinni. Nýjustu rannsóknir sem ég setti hlekk við á FB þinni á síðasta ári sýna, að innbyrðis skyldleiki Ashkenaza og Sefaradim er miklu meiri en fyrr hefur verið álitið. Vissulega eru gyðingar sem dvalið hafa í útlegð í Evrópu blandaðir öðru fólki (vegna nauðgana og annarra þátta) og Sefaradim eru margir með blóðfokkatýpu sem er "sub-Saharan", það er blönduð svörtu fólki frá Afríku. Gyðingar eru einfaldlega stoltir af báðu.

Tilranir þínar og annarra stuðningsmanna Palestínuaraba til að gera Ísraelsmenn að rasistum hefur verið í gangi í mörg ár. Þú hefur baunað að ástæðulausu á Ísrael fyrir "illa meðferð" á eþíópískum gyðingum. Ég held að þegar Íslendingur gangrýnir á þann hátt, væri honum nær að sjá sögu síns eigin lands og rasíska stefnu stjórnmálamanna á Íslandi (óháð flokkum); eða hugsa dæmið til enda: Hve margir arabar búa í Ísrael og hve margir gyðingar búa í arabalöndum? Hvar er hið eiginlega Apartheid sem bestu vinir þínir í Palestínugóðgerðastarfseminni eru alltaf að reyna að klína á Ísraelsmenn.

Við verðum seint sammála. En ég sé því miður ekki að gagnrýni þín í garð gyðinga á Vísindavefnum og annars staðar sé gott dæmi um vinsemd.

Undirritun þín að skjali, þar sem menn voru hvattir til að koma í veg fyrir þjóðarmorð, var enginn sem snuðaði þig til að undirrita. Þú deildir þessu út ásamt Pétri Knútssyni (Peter Ridgewell). Fólk sem telur gyðinga vera þá sem framkvæma þjóðarhreinsun GETUR EKKI verið vinveitt gyðingum. Það er útrætt mál.

Endalaus sparðatíningur þinn á "samtökum" gyðinga sem ekki viðurkenna Ísrael á einn eða annan hátt er að mínu mati háðunglegur. Oftast eru þessi samtök örfáar hræður eða einstakir menn sem geyma sig á bak við "samtök". Gyðingar sem fá "kikk" út úr því að hata þjóðríki gyðinga, sama hver þar stjórnar, eru venjulega ekki alveg eins og fólk er flest. Þú verður að gera þér grein fyrir því að "vinir Corbyns" á meðal breskra gyðinga eru afar fámennur hópur. Það sæmir ekki sagnfræðingi, sem á að kunna metóðu og heimildarýni, að vera með sparðatínslu á slíkum hópum, málefninu til stuðnings. 

FORNLEIFUR, 25.3.2019 kl. 22:34

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Gísli, áskorun sú sem þú hvattir menn til að rita undir, finnst einnig hér http://archive.ph/gYm6w og víðar - að eilífu. Þú varst í forsvari þriggja manna sem tóku við undirskriftum í söfnun þessari. Þar brást þér bogalistin sem sagnfræðingi. En þetta er hins vegar alls ekki í eina skiptið sem þú trúir lygaáróðri úr smiðju áróðursdeilda Palestínumanna. Að þú skulir hafa trúað því að 187 prófessorar í Ísrael hafi varað við því árið 2003 að Ísrael stefndi að þjóðarhreinsun í skjóli Íraksstríðsins, er HREINRÆKTAÐ gyðingahatur, sem sýnir skoðanir þeirra sem tóku þátt í garð Ísraels og gyðinga.

FORNLEIFUR, 25.3.2019 kl. 22:44

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Þeir sem tóku þátt voru:

Áslaug Agnarsdóttir

Atli Jósefsson

Auður Ólafsdóttir

Baldur A. Sigurvinsson

Baldvin Zarioh

Bergljót Gunnlaugsdóttir

Bergljót Kristjánsdóttir

Bjarni R. Kristjánsson

Björg Sigurðardóttir

Einar Örn Lárusson

Elísabet Erlendsdóttir

Elísabet Jóna Sólbergsdóttir

Erlendur Haraldsson

Eva Benediktsdóttir

Garðar Baldvinsson

Gauti Kristmannsson

Gísli Gunnarsson

Grímhildur Bragadóttir

Gro Tove Sandsmark

Guðjón Ingvi Guðjónsson

Guðmundur H. Guðmundsson

Guðmundur Víðir Helgason

Guðmundur Jónsson

Guðný Guðlaugsdóttir

Guðrún Ása Grímsdóttir

Guðrún Ingólfsdóttir

Guðvarður Már Gunnlaugsson

Gunnar Grímsson

Gunnar Þór Jóhannesson

Gunnar Karlsson

Haraldur Ólafsson veðurfræðingur

Heiðrún Guðmundsdóttir

Helga Kress

Helgi Þorláksson

Hjalti Hugason

Hólmfríður Tómasdóttir

Inga Huld Hákonardóttir

Ingibjörg Áskelsdóttir

Ingólfur V. Gíslason

Ingvar Arnason

Jakob Smári

Jón Ingólfur Magnússon

Jónína Einarsdóttir

Lárus St. Guðmundsson

Lilja Hjartardóttir

Karl Benediktsson

Kristín Ólafsdóttir

Kristín Á. Ólafsdóttir

Kristján Árnason bókmenntafræðingur

Magnús Jóhannsson

Magnús Már Kristjánsson

Margét Guðnadóttir

María Þorsteinsdóttir

Oddur Benediktsson

Ólafur Páll Jónsson

Ólöf Benediktsdóttir

Pétur Knútsson

Robert Cook

Robert J. Magnus

Rósa Guðrún Bergþórsdóttir

Rósa Þorsteinsdóttir

Sigríður Björnsdóttir

Sigríður Þorgeirsdottir

Sigurbjörg Þorsteinsdóttir

Sigurður Steinþórsson

Sigurlína Davíðsdóttir

Skúli Sigurðsson

Soffía Auður Birgisdóttir

Stefán Karlsson

Svanhildur Óskarsdóttir

Sveinn Eggertsson

Sverrir Guðmundsson

Sverrir Jakobsson

Unnur Dís Skaptadóttir

Vésteinn Ólason

Viðar Þorsteinsson

Vilhjálmur Árnason

Vilhjálmur Þór Kjartansson

Þorbjörn Broddason

Þorgerður Einarsdóttir

Þórunn Sigurðardóttir

FORNLEIFUR, 25.3.2019 kl. 22:53

5 identicon

Ég nenni ekki að elta ólar við allar fabtasíur þínar. En fyrst þetta með undirskriftalistann. Ég mundi ekkert eftir homum fyrst þegar þú minntist á hann en fór að ryfja upp eitthvað í huganum. Og þá mundi ég óljóst eftir að einhver kom á skriftstofu mína í Árnagarði, hver nan ég ekki, og bað mig um að skrifa undir áskorun sem margir ísraelskir háskólakennarar hefðu þegar skrifað undir. Ég féll fyrir þessu. Mig minnir líka að ég hafi verið beðinn um að vera fulltrúi undurskrifta í Árnagarði og ég sagt já við því. En það var ekkert starf, ég safnaði engri undirskrift. 
Ég hef sagt þér frá þessu áður og þú tjáðir mér að þetta með undirskrift ísraelsku háskólakennarana væri uppspuni. Ég tók orð þín trúanleg og skrifaði eitthvað á þá leið að ég hefði verið hafður að ginningarfífli og þú virtist samþykkja það. Nú dregur þú það mál aftur úr hatti þínum til að finna rök gegn persónu minni. Maður er ráðalæus gagnvart slíkri þráhgyggju og ég endurtek aðeins. Í þessari undarskrifarsöfnun var ég hafður að ginningarfífli. Ég gerði mistök.
Hitt semég ræða við þig er sennilega ferlegur misskilningur þinn. Ég er allt of vel að mér í fólksfjöldafræði til að trúa Khasakarugli Arthurs Koestlers. Hér hlýtur misminni að trufla þig. Ég keypti bók hans, "The 13th Tribe", las hana lauslega og úrskurðaði að þar VÆRI EKKERT FRÆÐILEGT AÐ FINNA. Þú ert sennilega að blanda saman lauslegun hugleiðingum mínum um blandaðan uppruna askenazi-gyðinga en ég hef aldrei haft fasta skoðun á því máli. Raunar segir mér almennn kenning um fólksfjölda að uppruni fyrir 1000-1500 árum segi fremur lítiö um núverandi litnamengi svoneefndra afkomenda. Ég neyðist til að útskýra þetta frekar í sérstakri færslu. En hættuað tengja mig við skáldlegar og óvísindalegar kenningar. 

Gísli Gunnarsson (IP-tala skráð) 26.3.2019 kl. 00:29

6 Smámynd: FORNLEIFUR

Ágæti Gísli, sömu nótt og þú skrifar þetta svar þitt skrifar þú um tilgátuna um hinar "fjóru DNA formæður gyðinga" sem settar voru fram af PhD-nema í Ísrael og prófessor hans Skorecki. Kenning nýrnalæknisins Skoreckis hefur fyrir löngu verið afsönnuð. Reyndar er hún notuð af fólki sem enn trúir á Khazarakenninguna, meðal annars af hinum Eran Alhaik, sem enn trúir því að Khazarar séu forfeður Ashkenazim https://www.facebook.com/pg/KhazarDnaProject/about/?ref=page_internal. Svo ef þér finnst tilgátan um fjórar formæður ahskenaz-gyðinga góð og gild og finnst hún passa við demógrafíska útreikninga þína, þá ertu líklegast hallur undir Khazarakenninguna. Nýjustu rannsóknir sýna að fjórmæðrakenningin og vangaveltur Alhaiks eru út í hött og málfræðingar og sérfræðingar í jiddísku geta upplýst Alhaik, að íranska er ekki hluti af jiddísku, líkt og Alhaik telur, tilgátum sínum til stuðnings.

FORNLEIFUR, 28.3.2019 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband