Vegir liggja til allra átta
18.8.2020 | 16:18
Vissuđ ţiđ lesendur góđir, ađ tveir bandarískir hermenn á Keflavíkurflugvelli lentu í miklu basli vegna ţess ađ ţeir léku í kvikmyndinni 79 af stöđinni áriđ 1962? Líf hermannanna var ađ ákveđnu marki lagt í rúst. -
Nei, auđvitađ vitiđ ţiđ ekkert um ţađ; Og hvernig ćttuđ ţiđ svo sem ađ vita ţađ? Nöfn ţeirra eru meira ađ segja enn rituđ rangt á öllum listum yfir leikara myndarinnar, ţótt einn ţeirra hafi sannast sagna veriđ mun betri leikari en Gunnar Eyjólfsson.
Hér verđur borin fram stór og mikil kvikmyndfornleifafrćđi-langloka. Fyrir ţá sem eru fyrir litlar og lummulega samlokur međ miklu gumsi og stóryrđasalati, ţá gćti ţetta orđiđ erfiđ lesning. Ţađ verđur fariđ vítt og breitt og til allra átta.
Ţessi lestur er ţví ekki fyrir óţolinmótt fólk sem ekki getur lesiđ nema eina málsgrein án ţess ađ leggjast í rúmiđ af kvölum. Reynt hefur veriđ ađ létta lesturinn međ mörgum myndum og tónlist.
Sagan byrjar í Árósum
Sagan byrjar fyrir minna en mánuđi síđan, í lok júlímánađar 2020 í Árósum, nćststćrstu borg Danmerkur.
Árósar voru ţá ekki búnir ađ hljóta hina vafasömu útnefningu Smittens By í stađ gamla gćlunafnsins Smilets By sem bćrinn gengur jafnan undir, án ţess ađ nokkur viti af hverju.
Ég og litla fjölskyldan mín vorum í heimsókn í Árósum hjá mágkonu minni, sem býr í gömlu húsi í miđbć Árósa, rétt norđan viđ árósinn (sem er reyndar ađeins einn), sem bćrinn hefur hlotiđ nafn sitt af.
Snemma morguns lćddist ég og kona mín út til ađ ná í morgunbrauđ í góđu bakaríi á horni Badstuegade og Rosengade, ţar sem á okkar skólaárum var ágćtt missjónskaffihús, ţar sem áfengi var úthýst og jafnvel heiđingjum líka.
Ţegar ég sit á dyrapallinum og er ađ fara í skó, heyri ég einhvern opna hurđina á hćđinni fyrir ofan og ganga niđur. Ég vík vel fyrir eldri manni á tröppunni til ađ halda allar COVID-19 siđareglur. Mađurinn var ađ fara út eins og viđ og líklega til ađ kaupa inn eđa ná sér í dagblađ.
Ég virđi manninn ađeins fyrir mér og heilsa honum fyrir kurteisi sakir. Ţegar konan og ég erum líka komin út, hef ég strax á orđi ađ mađurinn komu kunnuglega fyrir sjónir. Ég taldi mig muna andlit hans frá Árósaárum mínum (1980-1993). Frú Irene fussađi og tók ţessu fálega eins og einhverju karlagorti.
Ţegar viđ snúum aftur úr verslunarferđinni er mér litiđ á nafnskiltiđ á jarđhćđinni. Ţar sé ég, ađ á hćđinni fyrir ofan systur konu minnar, býr mađur mađur sem heitir Arne Abrahamsen. Ţađ kveikir strax á perunni, ţví hann hef ég hitt og vissi hver hann var.
Abrahamsen kom viđ á Stöng í Ţjórsárdal í ágúst 1984, ţegar ég og ađstođarmađur minn Einar Jónsson, vorum ađ grafa nokkur sniđ í skálarústirnar ţar. Hann kom í fjögurra manna hópi sem var ađ gera sjónvarpsmynd fyrir DR (Danmarks Radio) sem er systurstofnun RÚV í Danmörku.
Einar Jónsson viđ teikningu um ţađ leyti sem Arne Abrahamsen kom í heimssókn á Stöng. Ljósm. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.
Titill myndarinnar, sem var sýnd um haustiđ áriđ 1984, var En rejse til Island i Martin A. Hansen og Sven Havsteen-Mikkelsens Hjulspor. RÚV hafđi útvegađ danska liđinu stóran Land-Rover jeppa gegn ţví ađ myndin yrđi síđar send ađ kostnađarlausu í íslenska sjónvarpinu.
Ég sá ađeins lítiđ brot af ţćttinum haustiđ 1984 í litlu svart-hvítu sjónvarpi sem ég átti á ţeim tíma, er ég bjó í lítilli einstaklingsíbúđ á stúdentagarđi í úthverfi Árósa.
Ţegar kona Arne Abrahamsens hafđi veriđ mikiđ veik á sjúkrahúsi í vetur, fćrđi mágkona mín honum mat, og fyrir ţađ var hann henni mjög ţakklátur. Ţegar viđ vorum komin heim eftir Árósaför setti Birgitte mágkona mín mig strax í samband viđ Abrahamsen.
Arne varđ ekki lítiđ glađur yfir ţví ađ ég hefđi ţekkt hann eftir 35 ár eđa tengt hlutina svona hratt saman. Hann skrifađi mér strax ţegar hann hafđi heyrt söguna frá Birgitte, og minningarnar voru margar.
Hann sendi mér handrit ađ tillögu ađ ţćttinum sem hópurinn hafđi notađ áriđ 1984 og ég er búinn ađ lofa ađ sćkja hann heim nćst ţegar ég kem til Árósa, til ađ sjá međ honum ţáttinn, sem hann á diski.
Arne og 79 af Stöđinni
Fyrir utan ferđalög danska ţáttargerđafólksins á Íslandi áriđ 1984, langađi Abrahamsen greinilega ađ segja mér frá frćgđarför sinni til Íslands á yngri árum sínum.
Ég varđ ađeins á undan, ţar sem ég var búinn ađ njósna um hann á Google. Ţar hafđi ég ţegar séđ ađ hann hafđi einnig veriđ 2. ljósmyndari viđ kvikmyndatökur á 79 af Stöđinni, skáldsögu Indriđa G. Ţorsteinssonar, sem var kvikmynduđ eftir handriti Guđlaugs Rósinkranz, sem var í forsvari fyrir íslenska kvikmyndafélaginu Saga-Film. Myndinni var leikstýrt af Erik Balling, sem síđar var međal fremstu kvikmyndaleikstjóra Dana.
Ljósmynd sem Arne Abrahamsen sendi mér og sem sýnir hluta af teyminu sem vann viđ tökur á 79 af Stöđinni. Abrahamsen situr í neđstu röđ lengst til hćgri.
Gamla manninum líka gott ađ sjá, ađ hann vćri ekki alveg gleymdur í tengslum viđ 79 á stöđinni. Erik Abrahamsen var vinnan í tengslum viđ myndina á Íslandi greinilega mjög minnisstćđ og nefndi hann í ţví samhengi í tölvupósti sínum ađ í myndinni hefđu leikiđ tveir Bandaríkjamenn af Vellinum, sem hefđu veriđ látnir fjúka úr flotanum fyrir ađ hafa tekiđ ţátt í gerđ myndarinnar. Ţađ voru fréttir fyrir mig. Nú kviknađi áhugi yfirritstjóra Fornleifs, sem aldrei ţótti mikiđ til 79 af stöđinni eđa Indriđa G. Ţorsteinsson koma. Ég man ţegar ég sá myndina fyrst í Sjónvarpinu áriđ 1970. Mér ţótti hún leiđinleg og langdregin.
Pigen Gogo var kanamella
Fyrst verđur ađ minna á ađ Gógó Faxen, sem Kritbjörg Kjeld lék, var ekki beint nein óspjölluđ jómfrú, heldur vel ţroskuđ kona sem samkvćmt íslenskum lýđ hafđi framiđ einn versta glćp sem sögur fóru af á Íslandi, áđur en Íslendingar uppgötvuđuđ barnaníđinga, rotna útrásavíkinga og fóru ađ sýkna morđingja í löngum bunum í hreinum leiđindum sínum.
Kvikmyndin 79 af stöđinni var fyrsta alvöru kvikmyndin sem alfariđ var kvikmynduđ á Ísland, fyrir íslenskt fé, var eins og áđur segir framleidd í Danmörku af danska leikstjóranum Erik Balling. Félagiđ Saga-Film var stofnađ til ađ halda utan um myndina og til ađ kría fé út úr íslenskum fjárfestum. Fyrir ţví félagi fór Gunnlaugur Rósinkranz.
Greint var frá myndinni í dönskum vikublöđum sumariđ 1962. Myndin er vinsamlegast send mér af Arne Abrahamsen
Indriđi G. Ţorsteinsson var höfundur bókarinnar sem verkiđ byggđi á, en hann lét ađ Gunnlaug Rósinkrans um ađ útbúa leikbúning ţess. Hinn nýlátni tónlistastjóri Bent Fabricius-Bjerre, sem ţekktastur mun vera fyrir titillagiđ í Olsen Banden myndunum, stjórnađi hljómsveitinni dönsku sem lék tónlist Jóns Sigurđssonar og Sigfúss Halldórsson međ glćsibrag. Ţetta var á Íslandi talin vera "alíslensk" klassamynd fullsett fyrirtaks dönsku kvikmyndafólki sem eftir var ađ gera ţađ gott í Danmörku og DDR. Á dönsku fékk myndin heitiđ Pigen Gogo. Hún var sýnd í Danmörku, en aldrei fyrir fullum sölum ţar frekar en í Svíţjóđ ţar sem hún var einnig á prógramminu.
Ég man helst hve leiđinlegur eltihrellir Gunnar Eyjólfs (Ragnar á leigubílnum) var; Og svo man ég ađ Ómar Ragnarsson var statisti í myndinni eins og Dr. Gunni hefur svo smekklega bent á í einni af doktorsritgerđum sínum:
Ţetta er annars nokkuđ fyndin mynd, ţá ađallega ţví ţađ er svo gaman ađ sjá allt í gamla daga. Flosi og Bessi Bjarnason eru ţarna ungir og hressir í leigubíl og Ómar Ragnarsson sést snarvitlaus í nokkrar sekúndur káfa á brjóstunum á einhverri dömu á leigubílastöđinni.
Ađ sögn Ómars sjálfs tók um tvo tíma ađ taka leik hans upp, en mestmegniđ af ţví var klippt í burtu. Súrt sjóv ţađ
Tvö af tíu andlitum Ómars, sem hann sýndi ţjóđinni í Fálkanum áriđ 1962. Hann var hins vegar eins og hvutti í 79 á stöđinni.
Ég verđ líklega einnig ađ láta Dr. Gunna lífga upp á minni mitt og neytenda langloku Fornleifs, hvađ innihald myndarinnar varđar - ţó svo ađ Dr. Gunni sé merkilegt nokk mér miklu yngri mađur. Hann gerir ţađ alveg listavel og nú man ég allt um 79 af Stöđinni og meira til.
Dunhagi 19 nú á tímum - og sumariđ 1962. Arne Abrahamsen sendi mér neđri myndina sem birtist í B.T.
Svo segir Dr. Gunni: Horfđi aftur á 79 af stöđinni til ađ endurnýja kynnin viđ frćga nágrannahurđ mína hér á Dunhaganum [Viđb. Fornleifur: umrćddar dyr voru á íbúđ Gunnlaugs Ţórđarsonar og frú Herdísar Ţorvaldsdóttur]. Ţetta er sögulega mikilvćg hurđ ţví Ragnar á leigubílastöđinni hangir á henni lon og don til ađ komast inn til Gógó Faxen sem býr fyrir innan.
Gógó er í ástandinu og ţegar Ragnar kemst ađ ţví verđur hann brjálađur sem von er og ekur til mömmu sinnar í sveitinni (ţví ţar er lífiđ, ekki í solli borgarinnar, skv. gildum myndarinnar og Indriđa). Ţađ endar ekki betur en svo ađ hann keyrir út af og deyr. Sem betur fer hafđi Ragnari tekist ađ njóta ástarmaka viđ Gógó nokkrum sinnum áđur. Kynlífsatriđin hafa eflaust valdiđ umtali 1963, en virka í dag ísköld og máttlaus, enda liggur Gunnar Eyjólfsson hreyfingarlaus ofan á Kristbjörgu Kjeld eins og hrađfrystur nautaskrokkur.
Yndislegt. Dr. Gunni má eiga ţađ, ađ hann getur peppađ upp óáhugaverđugustu söguţrćđi, en hann gerir sér ţó ekki grein fyrir ţví ađ "ástandiđ" var ađeins í gangi á stríđsárunum. Áđur en menn gera allar konur ađ "Kanamellum" í ástandi, er vert ađ muna ađ eftir stríđ völdu margar íslenskar konur Bandaríkjamenn fram yfir Íslendinga. Af hverju voru ţćr afgreiddar sem billegar drćsur af Íslendingum? Hrokakarlar telja sig eiga konur og eru ţví alltaf hrćddir viđ útlendinga.
Um Kanamellur
En samúđ Fornleifs er hins vegar öll hjá dátum og meintum "Kanamellum", en ekki hjá herforingjum, vćngbrotnum íslenskum sveitarasistum og heimalningum, eđa ţeim Íslendingum sem fengiđ höfđu ţá flugu í hausinn ađ Bandaríkjamenn vćru á Íslandi til frambúđar fyrir Íslendinga - ţeim sem fengu áfall hér um áriđ ţegar Verndarinn fór bara!
Ég kenni ţó alltaf dálítiđ til međ Ómari R, sem notađi svo mikinn tíma í upptökur á 79 af Stöđinni viđ ađ gramsa á brjóstum kvenna suđur á Velli.
En ţađ er ađ "Kanamellur" hafa veriđ krossfestar af skyldleikarćktuđum lýđ, sem ekki gerđu sér grein fyrir ađ konur sem "fóru í Kanann" voru ósjálfrátt ađ reyna ađ flikka upp á illa slitiđ genamengi Íslendinga.
Mannaval á Íslandi leiddi međal annars til "ástands".
Kanarnir í 79 á Stöđinni og hefnd Sáms frćnda
Á lista yfir leikara kvikmyndarinnar kemur fram ađ í henni hafi leikiđ tveir Bandaríkjamenn, John Tasie og Lawrence Schnepf.
Viđ vinnslu myndarinnar í Kaupmannahöfn, eđa jafnvel fyrr, hefur einhverjum orđiđ á í messunni. Eftir ţó nokkra leit mína ađ ţessum mönnum og örlögum ţeirra í BNA kom í ljós ađ ţeir hétu í raun John D. Tacy (1926-1984) frá Lawrence í Massachussets og Lawrence (Larry) Win Schneph frá bćnum le Mars i Iowa.
John Tacy lék byttuna Bob međ miklum tilţrifum í 79 af Stöđinni. Svo góđur ţótti leikur Tacys, sem ranglega var kallađur Tasie, ađ tekiđ var viđ hann hann viđtal í gamla Vísi í águst 1962, sjá hér.
John Tacy
Myndin sem hafđi fengiđ metađsókn á Íslandi, spilađi sig inn á nokkrum vikum á Íslandi, ţar sem ţúsundir manna sáu hana í Háskólabíó og Austurbćjarbíói. Í Danmörku gekk hún ekki eins vel.
En mesta athygli hlaut myndin vćntanlega í Bandaríkjunum. Ţađ var greint frá efni hennar í tímaritinu Variety. Endursögn á innihaldi greinarinnar var t.d. í Daily News í New York 26. apríl 1963:
Umsögn Variety, og jafnvel kvikmyndin sjálf, hleyptu illu blóđi ţingmann fulltrúardeildar bandaríska ţingsins, Frank J. Becker frá New York, sem var harđkristinn repúblíkani af ţýskum ćttum. Eftir síđara stríđ létu slíkir menn góđ bandarísk gildi og ameríska ţjóđerniskennd mjög til sín taka. Greinin í dagblađinu Daily News í New York ţann 26. apríl 1963, lýsir vel hvernig Becker og skođanabrćđur hans á hćgri vćngnum í BNA litu á myndina, ţó ţeir hefđu örugglega aldrei séđ hana. Becker hunsađi líka upplýsingar flotans sem komu frá manni sem varđ heimsfrćgur sem talsmađur hers BNA í Víetnam:
The Variety review said the movie was lousy anyhow but that the appearance of the American officers had made the front pages in the Swedish Press. The Navy reexamination of the affair followed receipt of Becker´s letter.
Assistant Defense Secretary Arthur Sylvester said that he did not have the name of the information officer who asked for, but never received a copy of the script. But Sylvester said Lt. (j.g) Lawrence W. Schnepf, then an ensign, and Electricians Mate 1 Cl. John Tracy had obtained permission and appeared as actors in the film.
Schnepf, a reservist, will complete his active duty tour in June, Sylvester said, while Tacy is a career enlisted man. Sylveser said the information officer had been assured there was nothing derogatory in the script.
Becker, sem eins og margir kanar ruglađist á Svíţjóđ og Danmörku, taldi hins vegar myndina koma ljótu orđi á Bandaríska herinn og ađ hermennirnir vćru eins konar föđurlandssvikarar ţar sem ţeir hefđu leikiđ erindreka lands síns í einskennisbúningi sem fyllibyttur (Tacy) og kvennaflagara sem eltust viđ íslenskar stúlkur og jafnvel eiginkonur (Larry).
Becker ţessi var mađur sem var vanur ađ taka til sinna ráđa. Hann kom ţví til leiđar ađ bandarísku hermennirnir sem léku međ í 79 af Stöđinni (Gogo the girl) var úthýst úr bandaríska hernum. Gaman vćri ađ fá frekari upplýsingar um ţađ. Sjá frekar um máliđ hér.
Danska blađi BT og sćnsk blöđ greindu frá ţessum snörpu viđbrögđum í Bandaríkjunum, sem ritađ var ţó nokkuđ um í BNA. Í kjölfariđ voru Morgunblađiđ og Alţýđublađiđ međ fréttir af málinu.
Viđbrögđ Indriđa G. Ţorsteinssonar
Miđađ viđ ţá ţekkingu sem mađur hefur á framsóknarmanninum Indriđa, sem fćddur var áriđ 1926 og sem síđar á ćvinni var mjög utarlega til hćgri í skođunum, ţá sýnist mér ađ Indriđi hafi samt, líkt og margir Íslendingar haft frekar lođnar kenndir til erlends hers á Íslandi. Ţó voru viđbrögđ Indriđa nokkuđ sérstök. Í nýrri blokkíbúđ sinni norđarlega í Stóragerđi í Reykjavík tók hann sig til og ritađi Frank J. Becker ţingmanni. Ţađ kom fram í Mbl. 27. apríl 1963.
Ţessu skrif Indriđa til repúblikanans Becker lýsa hugsanlega manngerđ Indriđa, sem var blanda af rithöfundi, ritstjóra, leigubílstjóra, sveitapilti sem varđ ađ götustrák sem vildi áfram í heiminum, til ađ verđa milljón dala ríkur og frćgur - eins og Björk varđ síđar, og Arnaldur sonur hans enn síđar.
Ekki ađeins Bandaríkjamenn gerđu ráđstafanir
Íslensk yfirvöld (eđa ákveđinn flokkur) töldu ađ 79 á Stöđinni vćri einfaldlega of djörf fyrir landsbyggđina. Ţau eintök sem sýnd voru utan Reykjavíkur höfđu veriđ ritskođuđ. Einum ţóttu bólferđir Gunnars Eyjólfs og Kristbjargar Kjeld vera hćttulegar landbyggđarfólki. Ímyndiđ ykkur hve hátt hefđi veriđ hlegiđ ef menn hefđu séđ hve líflaust kynlífiđ var fyrir Sunnan.
Örlög vegna kvikmyndar
Ég hafđi samband viđ góđvini mína hjá CIA og FBI (sem Indriđi G. sá í hverju horni á Keflavíkurflugvelli og var oft tíđrćtt um er hann var viđ skál eđa ţurfti ađ láta á sér bera á Hressó).
Ég fékk upplýst ađ Tacy hafi lengst af búiđ í N-Karólínu og Virginíu, ţar sem hann andađist 2. maí 1984 - ađeins 58 ára ađ aldri.
Tacy var samkynhneigđur (jamm, allt er FBI međ nefiđ í), og hafđi hann haldiđ áfram ađ starfa a fjölum leikhúsanna. Hann vann/lék um tíma međ leikhópi sem var undir stjórn ţekktra og hálfţekktra leikara frá New York, m.a. Donald Renshaw, sem lék í einhverjum kvikmyndum áđur en hann leikstýrđi í London og Ţýskalandi. Ţessi leikhópur ferđađist um Virginíu og víđar. Tacy hafđi einnig greint frá ţví áriđ 1962 í viđtali sínu viđ Vísi ađ hann hefđi starfađ viđ leikhús í Memphis í Tennessee.
Vonandi hafa endaloks hans sem sjónvarpsmanns, og eins og frumkvöđlum Kanasjónvarpsins á Keflavíkurflugvelli, ekki haft of slćm áhrif á líf hans. Hann andađist í borginni Alexandríu í Virginíu.
Íslendingar mćrđu sjálfa sig međan ađ Tacy og Schneph gleymdust
Hvorugum leikaranna af Vellinum var bođiđ í frumsýningarveislu Saga-film áriđ 1962. Larry var um ţađ leyti ađ fara aftur til síns heima og John hafđi veriđ settur í "sóttkví" uppi á velli, ţar sem hann vann nokkra mánuđi, enn sem ţulur á Channel 8, Kanasjónvarpinu.
Viđ börnin á Reykvískum menningarheimilum, ţar sem ekki var aliđ á sjúklegu Kanahatri og fordómum um börn sem "fćđast dökk međ snúinn fót" suđur á Velli, horfđu á Roy Rogers, Trigger og týnda kjötfarsiđ á ţeirri stöđ, nćrri ţví frá blautu barnsbeini. Afi minn, Vilhelm Kristinsson, sem var Reykvískur heiđurskrati, fékk sér sjónvarp til ađ horfa á Kanana áriđ 1963 og ári síđar foreldrar mínir. Á Kanasjónvarpiđ var mikiđ horft ţangađ til mild ásjóna Vilhjálms Ţ. Gíslasonar birtist á alíslenskum skjá. Ríkisjónvarpiđ kom ţó aldrei í veg fyrir ađ amerísk menning flćddi áfram út í Reykvískar stofur á sjónvarpslausum fimmtudögum, og heldur ekki teiknimyndirnar sem sýndar voru alla laugardagsmorgna. Teiknimyndirnar urđu örugglega til ţess ađ mađur talar síđur enskuna međ íslenskum fjárhúsahreim.
Ţess ber ađ lokum ađ geta, ađ fyrir utan starf sitt viđ sjónvarpsstöđina á Keflavíkurflugvelli var John Tacy mikiđ partýljón og međ í country-western hljómsveitinni Eagle Westerners sem tróđ upp á Keflavíkurstöđinni.
Ţiđ sjáiđ gripinn hér fyrir neđan á ljósri treyju, ţar sem hann virđist klípa í rassinn á Lovísu Bílddal (síđar Reusch) söngkonu frá Siglufirđi, sem andađist í Orlando í Florida áriđ 2003 eftir ađ hafa búiđ lengst af búiđ í Illinois (Chicago-svćđinu). Til vinstri viđ hana sést gríđarlega kanalegur gći. Ţađ var ţó enginn annar en bassaleikarinn Erlingur Jónsson, síđar ţekktur sem myndhöggvari. Hann var ađ Vestan og var fađir Ásgeirs Erlingssonar sem las latínu í MH međ ritstjóra Fornleifs. Ásgeir, sem kallađi sig löngum Rossó Greifa, lék einnig listavel á bassa. Ţó ekki sveitarokk.
Heimurinn er lítill - og margir verđa útundan - en allir skipta ţó máli. Einnig útlendingarnir sem Íslendingar fyrirlitu, nema einna síst ef ţeir voru Ţjóđverjar eđa gyđingamorđingjar á flótta, og viđurkenniđ ţađ nú - Íslendingar eru ekkert betri en ađrar ţjóđir. Og ţegar vantar einhverja til ađ hatast út í á Íslandi, t.d. dauđa útlenska presta, er hatur lagt á ţjóđir viđ botn Miđjarđarhafs.
Ég er nokkuđ viss um ađ Indriđi G. Ţorsteinsson, og margir íslenskir karlmenn á hans aldri, hafi séđ sjálfa sig í sveitamanninum sem gerđist leigubílstjóri og dó vegna (fjall)konu sem hafđi "falliđ". Indriđi sýndi okkur birtingarmynd fordóma í garđ kvenna og útlendinga. Persónulega tel ég ađ bréf hans til Frank J. Beckers ţingmanns í Bandaríkjunum hafi veriđ hreinn og beinn tvískinnungur.
Kvikmyndafornleifafrćđi | Breytt 23.2.2025 kl. 19:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Frćndi minn međ hundakerruna
15.8.2020 | 08:36
Fađir minn sagđi mér nokkru sinnum af frćnda sínum einum, sem hét Roiter (Royter) ađ eftirnafni og var úr móđućtt ömmu minnar sálugrar í Hollandi. Ţessi frćndi var fćddur á 19. öldinni en fađir minn hafđi ţó séđ hann. Karl ţessi var ekki alveg eins og fólk er flest, og ţví ef til vill miklu betri fyrir bragđiđ. Hann hafđi ofan af fyrir sér af sölumennsku hvers konar, og fór um sveitir Hollands, norđarlega og seldi alls kyns varning sem hann ók međ um ţjóđvegina í hundakerru. Ţess konar kerrur kalla Hollendingar Hondenkar.
Svo vel gekk ţessi sölumennska ađ karlinn varđ nokkuđ auđugur en lifđi sparlega. Hann fékk á einhverju stigi stóra medalíu, eđa ţađ sem á Íslandi var kallađ ćrulaunamedalía (á dönsku: Fortjenstmedalje), frá konungsvaldinu. Karlinn átti enga afkomendur og ég á ţví ţessa medalíu í dag. Ég geymi hana vel til ađ minna mig auđmjúkan á hvađa kotungsliđi ég er kominn af, ţegar ég er ekki ađ monta mig af ţeim sveitaómögum sem eru forfeđur mínir á Íslandi fyrir utan kynóđa munka, fáeinum prestsskratta og vergjarnar prófastsmaddömur, sem ég rćđi sem minnst.
Ţegar ég sá ţessa mynd, laterna magica-glerskyggnu frá 10. áratug 19. aldar, til sölu um daginn á Kornvöllum á Englandi, hjá herra White sem selur mér laterna magica skyggnur, gat ég ekki á mér setiđ og gaf mér myndina í sextugs-afmćlisgjöf. Mađur verđur ađeins sextugur einu sinni á ćvinni.
Myndin sem er framleidd á England, er mjög vandlega lituđ og sýnir ungan sölumann međ kerru sem dregin var áfram af hundum. Sláninn sem rak ţetta eyki seldi grćnmeti í den Haag í Hollandi. Ekki get ég stađsett myndina nákvćmlega út frá bakgrunninum. Fólkiđ umhverfis grćnmetisnjólann sýnist mér geta veriđ af gyđingaćttum, enda var ţađ ekki óalgengt ađ gyđingar í den Haag seldu grćnmeti. Mér finnst pilturinn furđulíkur föđur mínum á yngri árum. Ţađ er ţví viđ hćfi ađ sýna ásjónu hans á svipuđum aldri á skólabekk í den Haag áriđ 1941, skömmu áđur en hann var sendur til Fríslands. Til den Haag hafđi fjölskyldan flust um 1935 frá Amsterdam.
Grćnmetissláninn á myndinni sem ég keypti virđist nú ekki hafa hugann mikiđ viđ salatiđ eđa blómkáliđ. Hann heldur á blekpenna (lindarpenna), sem hann virđist afar stoltur af.
Ţví verđur viđ ađ bćta ađ hundakerrur voru ekki sjaldséđar í Hollandi og Belgíu, sér í lagi á Flandri og víđar - á 19. öld og langt fram á ţá 20.
Líkast til eiga margir Hollendingar frćndur og frćnkur sem höfđu viđurvćri af ţví ađ selja varning sem dreginn var um strćti og vegi af hundum. Ţađ var ekki fyrr en 1963 ađ hundakerrur voru bannađar međ lögum í Hollandi, vegna krafna um dýravernd frá bónuđum gólfum ESB. Dráttarhundar urđu ađ leita sér ađ annarri vinnu.
Hundar draga mjólk á Flandri. Laterna magica skyggna frá 1890-1900.
Mér ţykir hundakerra nokkuđ rómantískt fyrirbćri. Hver veit nema ađ mađur fái sér slíka kerru og teymi fyrir henni tvo veglega hvutta og falbjóđi íslenska menningu og skreiđ fyrir utan ESB hallirnar í Brussellu.
Ţór Óđins-Jarđarson á ađ undirbúa för međ Tanna 1 og Tanna 2 fyrir framan höll sína Bilskirni? Eđa er ţetta ađalsdrengur á Englandi?
Hér í lokin lćt ég svo flakka ýmsar myndir af netinu af fólki sem áttu kerrur og vagna sem dregnir voru af hundum og geitum. Átti Öku-Ţór ekki slíkan vagn sem hann ferđađist í međ hjálp geithafranna Tanngnjósturs og Tanngrisnirs? Kannski hefur Ţór veriđ hollensk hugmynd eins og svo margt annađ.
Á eyjunni Walcheren viđ landamćri Belgíu.
Belgískur hermađur međ kanónuhunda; Líklega í smáskotaliđinu.
Mjólkurvagninn í Belgíu um 1885.
Í Frakklandi voru menn alltaf međ önnur kerfi. Ţess ber ađ geta ađ ţessi reiđmennska hefur enn ekki veriđ bönnuđ í ESB.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fiat Lux 5
11.8.2020 | 12:04
Hér skal leystur blíđur vindur í hitabylgjunni í Danmörku. Kannski er ţetta hálfgert prump, en sumir hafa ef til vill gaman af ţví líka, ef ég ţekki lesendahóp Fornleifs rétt.
Vind heitir hollenskt tímarit, sem ég hef eitt sinn skrifađ grein í og vinn nú ađ annarri. Nú vita allir Íslendingar sem aliđ hafa manninn í Niđurlöndum, ađ vaffiđ á hollensku og í orđinu Vind er boriđ fram međ sem íslenskt F. Vind er boriđ fram á niđurlensku líkt og fynd í fyndni á íslensku, og hefur ekkert međ vind ađ gera. Vindurinn á hollensku er wind. Vind (fundur) er hins vegar nafniđ á merkilegu og mjög fjölbreytilegu tímariti/magasíni um sögu, listasögu og fornleifafrćđi. Ţađ er í einstaklega háum prentgćđum og inniheldur hágćđaljósmyndir. Greinarnar í tímaritinu, sem kemur út 4 sinnum á ári, eru ekki allt of langar og mjög lćsilegar fyrir ţá sem geta lesiđ sig fram úr niđurlensku, ţó ţađ sé ađeins í litlum mćli eins og ţađ er raunin međ mig. Svo er tímaritiđ ekki dýrt í áskrift (sjá hér). Síđasta tölublađ er 210 blađsíđur. Eitthvađ af auglýsingum er í ritinu, sem skýrir hve ódýrt ţađ er. Auglýsingarnar eru ţó ekki til ama. Á međal ţeirra eru kynningar á mikilvćgum sýningum, uppbođum og menningarviđburđum víđa í Evrópu. Fyrir ţá sem eru ađ hugsa um ađ kaupa sér Rembrandt og álíka, ţá er gott ađ líta í tímaritiđ Vind.
Gluggum í ritiđ. Sem dćmi tek ég eina grein í nýjasta hefti Vind, sem ég byrja á í áskrift minni. Greinin er eftir Marloes de Moor um altaristöflu meistarans frá Haarlem, Dieric (Dirk) Bouts (1415-1475) sem stendur í dómkirkjunni í Leuven í Belgíu. Taflan er taliđ til einna af helstu meistaraverka Niđurlanda á gotneska tímabilinu í myndlistasögunni.
Ţegar ég var yngri og lćrđi fornleifafrćđi miđalda í Árósum, bráđvantađi mig góđa mynd af ljósahjálmi sem hangir yfir síđustu kvöldmáltíđinni á altaristöflunni í Leuven. Mađur varđ á einhverju stigi kandídatsnámsins ađ skrifa 14 daga ritagerđ um lausamuni frá miđöldum. Ţađ fólst í ţví ađ mađur hóf rannsóknarvinnu og bjó til 6 heimildalista yfir 6 mismunandi gripi sem mađur afhenti til samţykktar. Ţegar ritalistarnir höfđu veriđ samţykktir hófst lestur og nokkru síđar fékk mađur dagsetningu á eitt af efnunum sem mađur hafđi fundiđ og dundađ sér viđ. Ţar á eftir hafđi mađur ađeins fjórtán daga til ađ skrifa. Mér var faliđ ađ ađ skrifa um ljósahjálma og kom mér ţađ einkar vel, ţví ég hafđi mikinn áhuga á efninu enda er um auđugan garđ ađ gresja er kemur ađ ljósahjálmum sem varđveist hafa á Íslandi. Afrakstur áhugans getiđ ţiđ kynnt ykkur á neđarlega á hćgri spássíunni hér á Fornleifi, ţar sem má finna ýmsan fróđleik um ţessi forláta ljósfćri sem Íslendingar keyptu fyrir nokkra kýrrassa og notuđu fyrst og fremst í kirkjum sínum. Pistlarnir um ljósahjálma kalla ég Fiat Lux, Verđi Ljós.
Ţegar ég var í námi, voru ekki til góđar myndir á veraldarvef eins og í dag. Nú getur mađur nánast hlađiđ niđur ljósmyndum listaverkum og safngripum eins og t.d. töflunni í dómkirkjunni í Leuven, og ţađ í nćr óendanlegri upplausn (sjá hér). Í ţá daga, á síđustu öld, varđ mađur ađ gera sér ađ góđu ljósmyndir í lélegri upplausn úr bókum. Ég dró útlínur hjálmsins í Leuven í gegn á smérpappír, og endurteiknađi síđan útlínumyndina međ bleki á teiknifilmu fyrir ritgerđ mína. Myndin átti ađ sýna hvernig sumir ljósahjálmar af sömu gerđ og ţeir sem varđveist hafa á Íslandi, birtust í "samtímalist" meistara 15. aldar.
Á Íslandi varđveittust ljósahjálmar vel ţví ţar voru kirkjur ekki rćndar öllum málmgripum, líkt og gerđist víđa um Evrópu. Ţar geisađi nćr endalaust stríđ hjá friđsemdarfólkinu. Málminum (messing og bronsi) sem rćnt var úr kirkjum, var beint komiđ í vopnaframleiđslu.
Ritgerđ minni frá 1983 gaf ég titilinn Metallysekroner i senmiddelalderen og prófverkefniđ sem lagt var fyrir mig hafđi hvorki meira né minna en ţennan titil:
Der řnsker en beskrivelse af den senmiddelalderlige malmlysekrone i Vesteuropa. Desuden řnskes der en diskussion af anvendelse og produktionsforhold set pĺ baggrund af en kortfattet oversigt over bronzestřberiets historie i det senmiddelalderlige Nordeuropa.
Ritgerđin fjallađi um hina mörgu hjálma sem varđveist hafa á Íslandi međal annars í samhengi viđ ritađar heimildir, efnahagssögu, fornleifafrćđi og út frá listsögulegu samhengi.
Hér fyrir ofan sjáiđ ţiđ hjálm Bouts í ritgerđinni minni frá ţví fyrir 37 árum síđan. Ţađ er miklu auđveldara ađ skrifa háskólaritgerđir í dag miđađ viđ í "gamla daga1a" ţegar mađur varđ ađ standa á haus í bókasöfnum til ađ finna ţađ sem mađur ţurfti á ađ halda.
Kirkjugripir | Breytt 12.8.2020 kl. 07:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Cassida sine cornibus
8.8.2020 | 12:22
A distinguished professor from Durham has written an interesting article on a helmet.
Long time ago I stayed, without my horns, for two term as a visiting scholar in Durham, when the author, Professor Chris Caple, started working at the institute in Durham. I remember him only vaguely. Now he has come to the conclusion that a helmet from Yarn, which is on display in the Preston Park Museum in Great Britain is nothing less than "Viking" - see here.
It seems to me that the the Brits might suffer from some kind of aggression towards the good old Scandinavian horned helmet.
I (in irony) hew the following runes on the FB-wall of the Preston Park Museum with my axe, because i find a lot of confusion with regards to the origin of the helmet in the presentation of the Preston Park museum of the helmet.
O thou less horny one. Thee must knowest the the the answers to all your questions can bee found by reading between the lines of the honourable Icelandic Sagas and the less honourable Book of Settlement. That combined with the fine arte of interpretation DNA- sequencing of Modern Icelanders gives the clue. Like most of you know, the early Icelanders (specially those before the Landnam) where Norwegian men, who brought their favourite ewes with them to their newfound Island. In those olden days, the horne was well screwed into the all Icelandic shepherds. Eventually few of the shepherds missed the odd Norwegian girl for fun and for making more ga..happy shepherds. Since the shepherds were big shoppers they knew that the price for a lass in the Orkneys, Shetlands, Hebrides and Ireland was much lower than for original Norwegian blondes. However the Insular babes didn´t fancy them ´uge ´orns on the Icelandic boys. Due to the fancy of the British islanders the horn disappeared among the Viking Icelanders. The helmet you see before thou is the result of such an early cultural iconoclasm. Social outcast in Viking-land soon became known as "hornkerlingar" (horn-ladies).
The de-horned helmet of Yarm, on exhibit in the Preston Park Museum, is probably the second "Viking helmet" which can be verified as "most likely Viking" by valid arguments rather than hard-core dating. The other one is the world famous Norwegian motor-bike con goggle helmet from Gjermundbu, which is a bad Norwegian spelling of Geirmundsbú. But is the Gjermundbu-helmet in an Anglo-Scandinavian fashion from the Viking-Age, or is it a 9th-11th century Anglo-Scandinavian helmet without accessories? It is really difficult to come to any conclusion by reading Caple´s article. The helmet is loose on the head
The Gjermundbu-helmet is also a classic Viking, or Anglo-Scandinavian - or is it as Saxon-tradition biker helmets with goggles? The article in Medieval Archaeology by Chris Caple does unfortunately doesn´t clarify essential aspects.
The next "Viking"-helmet we work on must be found on a skull, which can be radicarbon dated and DNA-sequensed as Viking, before we draw any conclusions about the helmet.
Archaeology is not fiction.
Here one can view the helmet from different angles and below a modern Viking-weapon expert, archaeologist Philipp Roskoschinski, (Altertumswissenschaftler, Prähistorischer Archäologe) gives his assessment:
Bloggar | Breytt 9.8.2020 kl. 04:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Gröf Davíđs konungs
26.7.2020 | 10:52
Mynd ţessa keypti ég nýlega. Ţetta er laterna magica skyggna frá ţví á síđasta áratugi 19. aldar og ljósmyndin er líklega tekin um 1890 - í morgunsólinni sýnist mér.
Myndin er af svćđi í gömlu Jerúsalem sem gegnum tíđina hefur stjórnast af mörgum herrum, Gyđingum, Rómverjum, múslímum og kristnum.
Ţarna töldu kristnir sig finna gröf sjálfs Davíđs konungs. Deildir úr ţremur trúarbrögđum hafa síđan trúađ ađ svo sé. Ekkert er ţví til sönnunar og menn halda ađeins í hefđina.
Í dag er gröfin undir umsjá hóps heittrúađra ţjóđernissinna sem fylgja gyđingdómi. Fyrir nokkrum árum síđan braut brjálćđingur fornar flísar frá ţeim tíma er ţarna var moska. Skemmdarverkiđ var unniđ í ţví húsi sem gröf Davíđs er talin vera í. Margt gćti hins vegar bent til ţess ađ bygging sú sem hýsir meinta gröf Davíđs hafi veriđ samkunduhús gyđinga á 2. og 3. öld e.Kr.
Takiđ eftir gröfunum í forgrunninum. Ţćr eru margar horfnar nú, ţví kristnir menn ákváđu í byrjun aldarinnar ađ byggja ţarna á svćđinu nýtt klaustur og kirkju í byrjun 20. aldar. Ţađ olli ekki öfgum og óeirđum, líkt og ţegar hróflađ er viđ grafreitum múslíma í dag. En virđingarleysi hefur oft veriđ mikiđ á Zíonsfjalli sem er nafn sem notađ um ţessa hćđ í suđurhluta gömlu Jerúsalemborgar.
Til samanburđar set ég hér ađ lokum ljósmynd eftir franska stórljósmyndarann Felix Bonfils sem tekin var áriđ 1865.
Gamlar myndir | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Gluggađ í skjalasafn heiđrađrar fornleifanefndar - Anno 1996
20.7.2020 | 21:50
Ţegar ég sá myndina hér ađ ofan á tímarit.is um daginn, var mér af einhverjum ástćđum hugsađ til setu okkar Bjarna F. Einarssonar í Fornleifanefnd um 1996. Ţar sat einnig Ţór Magnússon Ţjóđminjavörđur, en fyrir nefndinni sat lögfrćđiprófessor, mjög formfastur mađur, eins og lögfrćđingum ber ađ vera - fyrir utan ađ ţekkja reglurnar.
Ţađ var Páll Sigurđsson og Páll má ekki vamm sitt vita, og ţví til jarteina hefur einhver (og líklegast hann sjálfur) skrifađ lengsta kafla um nokkurn mann, íslenskan, á Wikipediu.
En, eins og fornleifafćđingum, og ekki síst lögfrćđingum sem ekki vita ađ ţađ er falliđ á silfur sem finnst í jörđu, getur lögfrćđiprófessorum einnig orđiđ á í messunni. Eitt sinn, svo vitađ sér, henti ţađ Pál Sigurđsson, og skal sagt frá ţví hér.
Páll Sigurđsson kallađi til fundar í Forleifanefnd ţann 22. júlí 1996 međ ólöglega stuttum fyrirvara. Ég frétti ađeins af fundinum fyrir tilviljun. Ţá voru menn ekki komnir međ tölvupóstkerfi og ţess háttar. Bođleiđin brást og hún brást hjá Ţór Magnússyni. Hann gleymdi ađ segja mér frá fundi í nefndinni.
Páll Sigurđsson vísađi mér ólöglega af fundi
Viđ upphaf fundar vísađi Páll mér af fundinum. Ég vissi ekki hvađan á mig stóđ veđriđ. En ţađ kom fljótlega í ljós. Páll hafđi greinilega ekki haft tíma til ađ lesa fundargerđina, sem Ţór Magnússon hafđi tekiđ saman, ţó ađ síđarnefndi ćtti ekkert međ ađ gera ţađ. Ég maldađi í móinn viđ Pál, en var ţá skipađ af yfirgefa fundarherbergiđ og fékk ekki ađ skýra mál mitt. Allt sem ég reyndi ađ segja viđ formanninn viđ dyr fundaherbergisins, sem einni var ađalkaffistofa safnsins, drukknađi í orđskrúđ Páls, sem oft gat veriđ fjandi kúnstugt og "barokkt", ef hćgt er ađ nota ţađ orđ fyrir málnotkun í íslensku máli. Sem dćmi má nefna ađ Páll svarađi oft mönnum og vísađi í "heiđruđ" bréf ţeirra.
Ţađ var hins vegar ekki heiđruđ međferđ sem ég fékk frá ţessum heiđvirđa manni, heldur skagfirskur ruddaháttur sem ţekktur er frá örófi alda ţegar fautar í ţví hérađi hafa brunađ yfir lítilmagnana á hrossum sínum.
Páll hafđi séđ í fundarbođi, sem hann hafđi ekki haft fyrir ţví ađ nćrlesa, ađ mál var á borđi nefndarinnar varđandi eitthvađ Miđhús. Hann ályktađi ađ um vćri ađ rćđa Miđhús viđ Egilsstađi, sem nokkur styr stóđ út af á ţeim tíma, sérstaklega heima hjá Ţórarni Eldjárn.
Ég tel víst ađ hinir nefndarmennirnir hafi veriđ á sömu skođun og Páll, ţví ţeir gerđu engar athugasemdir viđ brottrekstur minn af fundi, og heldur ekki Bjarni Einarsson sem ţó vissi betur en ţeir sem ekki höfđu lesiđ fundarbođ og málsgögn, enda fyrir löngu búiđ ađ ákveđa ađ ég skyldi "tekinn af lífi" varđandi ţetta margfrćga silfurmál sem einnig tengdist miđhúsum. Glćpur minn var ađ vera sammála breskum sérfrćđingi.
Prófessor Páll Sigurđsson ýtti mér bókstaflega út úr gátt fundarherbergi safnsins, og ég hundskađist upp á skrifstofu mína í turni Ţjóđminjasafnsins. Í góđu stuđi skrifađi ég ţegar harđort kvörtunarbréf vegna ţess ađ mér var meinađ ađ setja fund í nefnd sem ég var skipađur í. Bréfiđ sendi ég Menntamálaráđuneytinu og síđar fékk hin heiđvirđa Fornleifanefnd einnig bréf dags. 29. júlí 1996.
Hvort ţađ var vegna mjög langra sumarleifa starfsmanna ráđuneytinu, fékk ég ekki svar ţađan fyrr en 9. september (sjá bréfiđ hér). Ţađ kom frá gamalli skrifstofurottu ráđuneytisins, Árna Gunnarssyni, sem ósjaldan var haukur í horni ţegar forsvarsmenn Ţjóđminjasafns óku útaf í fjármálum og öđrum málum. Árni Gunnarsson tjáđi mér ađ prófessor Páll myndi svara mér. Takiđ eftir ţví ađ bréf Árna Gunnarssonar er dags. 9. september 1996 - en 9. September 1996 er einnig dagsetning á svari Páls til mín. Bođleiđin á milli Ráđuneytis og prófessors í lögfrćđi var greinilega hrađvirkari en svarviđleitni viđ doktorsrćfil í fornleifafrćđi sem vissi, án ţess ađ vera stađkunnugur, ađ Miđhús er mjög algengt nafn á kotum um land allt.
Eins sjá má tók ţađ málskreytingamanninn Pál Sigurđsson 11 línur ađ komast ađ merg málsins og niđurstađan sem er furđu klaufalega er ţessi:
... Sökum ónógrar stađkunnáttu minnar á Austurlandi hef ég ţá ekki áttađ mig á ţví ađ leyfisumsóknin mun ekki hafa beinst ađ rannsóknum á ţeim bć, sem málaferlin tengjast, heldur öđrum, samnefndum, sem einnig er á Fljótsdalshérađi en í öđru sveitarfélag. Hér er um mistök mín ađ rćđa, sem ég ábyrgist ađ öllu leyti einn. Á ţeim mistökum biđst ég velvirđingar. (Sjá bréfiđ í heild sinni hér).
Ţetta var furđuleg niđurstađa í ljósi ţess ađ Miđhús viđ Egilsstađi höfđu ekkert veriđ rćdd í nefndinni.
Ég sćtti mig vitaskuld aldrei viđ ţessa afsökunarbeiđni. Hvađa erindi hann átti sem formađur í ţessa nefnd var alltaf ofar mínu skilningi. Hann er einn af ţessum skrýtnu köllum sem stjórnađ er af mönnum međ nábláar hendur sem trúa ţví sem eđlilegum hlut ađ silfur finnist óáfalliđ í jörđu á Íslandi. Hvar annars stađar en á Íslandi?
Vanţekking Páls prófessors á Miđhúsum var líka merkileg, ţegar tillit er tekiđ til ađ afi hans, Stefán Vagnsson hagyrđingur, fćddist á einum af mörgum ţessara Miđhúsa, en ţađ var á Miđhúsum í Blönduhlíđ. Ekki er ţví hćgt ađ kenna bláum krumlum um fávisku prófessorsins um stađarnöfn landsins. Mađur bjóst viđ meiru, ţví um skeiđ var prófessor Páll líka ofarlega í stjórn Ferđafélagsins.
Skömmu síđar ţetta sama sumar 1996, óskađi Ţór Magnússon ekki starfa minna á Ţjóđminjasafni vegna opinberrar gagnrýni minnar á störf hans, til ađ mynda á óstjórn og framúrkeyrslur á ráđstöfunarfé stofnunarinnar. En fyrir slíkan utanvegaakstur var honum ađ lokum vikiđ úr starfi međ mikilli skömm eins og frćgt er orđiđ. Sjálfur hafđi ég um voriđ 1996 ákveđiđ ađ flytja úr landi. Kona mín fór fyrst međ dóttur okkar nýfćdda og ég fór síđar á árinu. Viđ settum síđan ađ í besta stađ í Kaupmannahöfn í janúar 1997. Ţar pakkađi ég skjöl mín varđandi Fornleifanefnd niđur í kassa og skođađi ţau ekki ađ ráđi aftur fyrr en hér um daginn. Ég gat ekki setiđ á mér og varđ ađ deila sögunni af ţessari valdbeitingu í dyragátt kaffistofu Ţjóđminjasafns 22. júlí 1996. Hún er ţó ekkert einsdćmi um dómgreindarleysi manna sem titla sig prófessora í íslenskum lögum.
Málsbćtur til handa Páli Sigurđssyni áđur en dómur fellur
Einu langar mig viđ ađ bćta, háheiđruđum Páli Sigurđssyni til málsbóta, ţrátt fyrir svínslega međferđ hans á mér, og ţađ á afmćlisdegi mínum mínum. Páll var kominn í mikla ormagryfju ţegar hann tók ađ sér stjórn Fornleifanefndar. Sumir fornleifafrćđingar sem sátu í nefndinni notuđu hana óspart í sinn hag. Ađrir notuđu allan sinn tíma til kćrumála, enda komiđ stríđ um töglin og hagldirnar í ţessum málum á Íslandi. Hér fáiđ ţiđ eitt sýnishorn: Félag Íslenskra Fornleifafrćđinga (FíF) nauđađi á ţessum árum mikinn og barmađi sér. Félagsmenn sumir sem gengu í liđ viđ bláu höndina og fengu hana nćr upp í afturendann, kvörtuđu ţá undan framgangi Bjarna F. Einarssonar í nefndinni. Félagsmenn ţar útbjuggu ţetta skjal og sendu Ţór Magnússyni. Ef menn fletta yfir á bls. 2. sjá ţeir afrit til Páls Sigurđssonar af bréfinu međ miđa Bjarna F. Einarssonar til Páls (ţ.e. Bjarna međ arabísku augnperlurnar).
Bjarni, vinur minn, sá greinilega ástćđu til ađ greina Páli frá ţví ađ "varamađur minn í nefndinni hefđi stutt ályktun FíF".
Ég man ađ ég hló ţegar ég sá ţetta, ţví mér var sannast sagna ekki vel kunnugt um hver var varamađur minn, og enginn samskipti hef ég haft viđ hann (hana?) um athćfi Bjarna sem sjálfskipađan fornleifalögreglumann. Mest hló ég ţó í einhvers konar angist, ţví mér varđ ljóst ađ mađur sem ég taldi til vina minn, var greinilega svona falskur.
Bjarni óđ einnig í villu eins og oft áđur og síđar. Varamađur minn í Fornleifanefnd var Margrét Hallgrímsdóttir sem ég hafđi engin tengsl viđ, hvorki persónuleg né fagleg. En núverandi ţjóđminjavörđur hafđi vitaskuld mörg horn í síđu Bjarna F. Einarssonar á óvenjulegri leiđ hennar í ţćr stjórnunarstöđur sem hún sótti í. Ţađ var ekkert leyndarmál. Horn hans stóđu einnig í síđu hennar. Ţađ var ţó ekkert sem ég lét mig varđa, og kom ekkert starfi í Fornleifanefnd viđ - ađ ţví er ég held. En í klíkuveldinu Íslandi veit mađur aldrei.
Líklegt tel ég ađ Bjarni Einarsson, međ miđur hreina samvisku sína í "Miđhúsaupphlaupinu" ţ. 22. júlí 1996, hafi veriđ ađ reyna ađ koma ţví inn hjá lögfrćđiprófessornum, ađ ég stćđi á bak viđ gagnrýnina á sig međal félagsmanna í FÍF. Ég hafđi ekkert samband viđ ţađ fólk.
Já, ţannig eyddu menn tíma sínum og skattpeningum landsmanna áriđ 1996. Fróđleiksfúsir menn gćtu vissulega spurt: Hefur nokkuđ breyst síđan ađ ég sat rúmt ár í ţessari nefnd? Svari ţeir sem svara vilja.
Bloggar | Breytt 21.7.2020 kl. 07:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Metin falla
18.7.2020 | 08:43
Glöggir lesendur Fornleifs, (sem ţeir eru vitaskuld allir), muna kannski eftir grein um met frá fornrústinni Bólstađ í Álftafirđi og hliđstćđu ţess, nokkuđ minni, sem fundist hefur í grafreit norrćnna manna í Wales.
Í gćr frétti ég af meti (sjá mynd efst, sem tekin er af Tor-Erik Krokmyrdal) sem fundist hefur á Hálogalandi í Norđur-Noregi, og sem er af sömu gerđ - og mjög líkt metunum frá Bólstađ og Llanbedrgoch á Angelsey í Wales sem ég greindi frá áriđ 2013.
Met frá Anglesey í Wales
Metiđ frá Bólstađ í Álftafirđi vestri.
Norska metiđ fann fornleifafrćđingurinn Tor-Erik Krokmyrdal sem nýlega lauk mastersnámi í fornleifafrćđi viđ háskólann í Tromsö. Hann fór um miđjan aldur í nám í fornleifafrćđi vegna brennandi áhuga síns á málmleitartćkjum.
Efniviđur ritgerđar hans voru merkir fundir sem hann hafđi fundiđ međ tćkjum sínum í Sandtorgum (Norska Sandtorg, upphaflega ef til vill Sandhörgi) i Tjeldsund, sem er í bćjarfélaginu Harstad í Ţrumu (Troms og Finnmark fylke) - ţađan sem margir landnámsmanna á Íslandi voru ćttađir. Hér á vefsíđu Háskólans í Tromsö má lesa um árangur mjög merkilegra rannsókna Tor-Eriks Krokmyrdals.
T-Erik telur Sandtorg geta hafa veriđ mikilvćgan verslunarstađ og byggir ţađ m.a. á rökum örnefnafrćđingsins og fornfrćđingnum Oluf Rygh sem uppi var á 19. öld. Mín ţekking á ţeim meistara er sú ađ ţađ verđur ađ taka hann međ fyrirvara ţegar kemur ađ örnefnarannsóknum hans, sem oft voru tómar stađhćfingar. Sandtorg ţarf ekki ađ hafa rótina torg líkt og sumir telja, heldur getur rótin vel veriđ hörg, og var ţví nafni ef til vill upphaflega Sandhörg. Hörg (eđa hörgur) voru heiđnir blótstađir kallađir og orđiđ ţekkist í ýmsum örnefnum á Íslandi (t.d. Hörgárdalur, Hörgsholt og Hörgshlíđ svo eitthvađ sé nefnt). Nafniđ getur ţví hćglega ţýtt blótstađur á Sandi. En viđ blótstađi og hof var oft blómleg verslun eins og síđar viđ útvalda kirkjustađi, eđa ţar sem fólk hittist oft ţegar menn fóru í stađ. Á Sandtorgi gćti ţví vel hafa veriđ blómleg verslun.
Ég hef gert Krokmyrdal viđvart um metin á Íslandi og í Wales, sem eru hliđstćđur metsins frá Sandtorgi, en hann ţekkti ţau ekki og ţau eru ekki nefnd í lokaritgerđ hans sem má lesa i heild sinni hér. Metin sem Krokmyrdal fann eru nefnd á blađsíđu 38.
Ég er nú alls ekki alveg sammála ályktun Krokmmyrdals um aldur metsins. Í kumlateignum í Llanbegdrgoch (mynd hér fyrir ofan), ţar sem sams konar met hefur fundist, fannst mynt sem er frá 10. öld. Mannabein úr kumlateignum hafa einnig veriđ aldursgreind til 10. aldar og hér fyrir neđan get menn skemmt sér viđ ađ skođa túlkun á ţví hvernig fólkiđ sem ţar var heygt, leit út. Ţađ var allt innbyrđis skylt ađ sögn mannfrćđinganna. Mér sýnist nćsta víst ađ ţetta hafi veriđ Íslendingar, ja ef vera skyldi "Hálygingar" eđa Hálogaverjar eins og ţeir eru kallađir einhvers stađar í fornum ritum. En mig grunar einnig ađ mannfrćđingarnir/listammennirnir sem unnu ţessar styttur í Manchester hafi starfađ fyrir kvikmyndirnar Apaplánetuna. Höfukúpurnar og önnur bein í Llanbegdrgoch eru af fínlega byggđu fólk, en ég ţykist sjá samísk einkenni - og er vitaskuld međvitađur um ađ engum hafi dottiđ ţađ í hug í Wales, en mađur verđur ađ koma sínum metum viđ, eins og sagt var til forna.
Nú eru met af ţessari gerđ ţessi talin hafa veriđ framleidd á Bretlandseyjum eđa á Írlandi, og ţađ ţykir mér líklegt. Hins vegar er mjög athyglisvert ađ sjá víđáttumikla dreifingu ţessarar gerđar af metum nú. Líklega breytist myndin síđar, ţegar fleiri met finnast.
Ţyngdin er mismunandi. Metiđ frá Bólstađ er 86,5 gr. en Llanbedrgoch er léttara eđa 57,2 gr. Gaman vćri ađ fá ţyngd metsins frá Sandtorg.
Til gamans skal hér látinn fylgja elsti ritađi texti ţar sem nefnt er stađarnafniđ Sandtorg í Ţrumu, en hann er frá 1321 og varđar ađ sjálfsögđu kaup, og lesiđ nú ţađ sem Nútímanorđmenn skilja ekki bofs í. Ég hef lent á tali viđ frćđimenn í Noregi, sem ekki trúa ţví ađ ég og ađrir Nútímaíslendingar geti lesiđ texta sem ţennan:
Ollum monnum ţeim sem ţetta bref sea eđa heyra, senda
Ogmundr prestr a Ţrondarnese ok Jwar loghmađr a Haloghalande, Q.G. ok sina, yđr se kunnikt. at vit varom ţar hia i Oddzhusum i Vaghom a friadaghen nesta eptir kross messo vm varet anno domini millesimo, trescentesimo, vicesimo primo. er Helgi huasse lauk herra Ellingi Viđkunnar syni međ handa teke spannzleighu iarđar i Sandtorghe j sakareyri ţan sem Helgi var honom skylldugr, frialsa ok veđeslausa firir huerium manne. Ok til sanz vitnisburđar settom vit okor insigli her firir.
Forngripir | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvítt dusilmenni verđur undir í glímu á Snćfellsnesi
14.7.2020 | 09:16
Já, á Snćfellsnesi arkar vel skyldleikarćktađ dusilmenni um međ svart frímerki á efrivörinni og límir eins og óđur mađur miđa međ skítkasti út um allt.
Líklegast kemst slíkur mođspređill í kynferđislegt stuđ ţegar hann er ađ líma haturssnepla sína. Ţađ er ágćtt ađ fá frétt í Morgunblađiđ um slíka límstauta. En hjá blađinu skrifar einn ungritstjóranna reglulega greinar um heri og hermenn nasista og "glćsileg" afrek ţeirra á vígvöllum sem nasisminn skapađi.
Ţađ verđur ađ teljast flókiđ og frekar sjúkt hobbí sem blađamađurinn fćr ađ deila međal áskrifenda Moggans. Áskrifendur eru ekki einu sinni spurđir hvort ţeir vilji lesa um Gunther og Frantz, sem í ímynduđum glćsileika "germanans" brytja niđur Igor og Leonid á Austurvígstöđvunum. Ţađ hefur líklega fariđ fram hjá ţessum kúlupenna Moggans ađ Kalda Stríđiđ er fyrir löngu forbí.
Dusilmenniđ á Snćfellsnesi lćtur sig hins vegar dreyma um hengingar í Suđurríkjunum, sem er miklu verra en ađ skrifa hermannasögur á Mbl. Fjölmiđlar Íslands ćttu ađ líta sér ađeins nćr. Ţađ er ekki nóg ađ skrifa um kynţáttahatur á útkjálkum Íslands - nasistadýrkun á síđum Moggans er líka tímaskekkja.
Lesiđ sögu svarta mannsins á Íslandi á dálkinum hér til vinstri, en viđ hana bćttist enn einn ljótur kafli međ Miđalími á Vegamótum. Einnig má benda á skođanakönnunina efst á hinum siđvandađa dálki Fornleifs.
![]() |
Rasísk skilabođ límd á bíl mćđgina |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fornt hatur | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Ţeir eru ađ fáana á Spáni
13.7.2020 | 10:47
Ţeim sem ţykir gaman af líkneskjum aftan úr pápísku og sem lásu greinar mínar um Madonnuna frá Múla nýlega (sjá hér og hér, mynd hér til vinstri) ţykir líklega sú veiđifrétt sem sögđ verđur hér nokkuđ góđ fiskisaga.
Í miđri ánni Sar, sem á íslenskan mćlikvarđa er töluverđ sprćna en ekki straumhörđ ţegar hún rennur gegnum Santiago, hrasađi Fernando um hálan stein ţegar hann leitađi betri fótfestu í eltingaleik sínum viđ ţann stóra. Honum var litiđ á bölvađan steininn eins og menn gera ţegar ţeir kenna dauđum hlutum um klaufsku sína. Á móti starđi kona upp úr slýgrćnni ánni. Fernando Brey datt um fornt líkneski, styttu af Maríu mey, sem situr í sömu stellingu og Madonnan frá Múla, sem er sjúkdómsteppt í Barcelona međ soninn í kjöltunni.
Ţađ bar vel í veiđi hjá spćnska stangveiđimanninum Fernando Brey, sem í byrjun júní brá sér í veiđiferđ viđ ána Sar nćrri Santiago de Compostela á Norđvestur-Spáni. Eins og margir Spánverjar, langţreyttir og hrjáđir af faraldrinu sem hrjáir okkur öll, sótti Fernando út í náttúruna til ađ róa geđ sitt í einangruninni. Stöng og vöđlur er leiđ hans til afslöppunar.
Brey gerđi safnafólki ţegar viđvart og sérfrćđingar frá Pílagrímasafninu (Museo das Peregrinacións) í Sankti-Jakobsborg komu á vettvang međ grímur. Í veiđifatnađi og í tilhlýđilegri fjarlćgđ frá hverjum öđrum, dáđust fornleifafrćđingar og listfrćđingar safnsins ađ styttunni í ánni.
María komin á Safn Pílagrímanna í Santiago.
Undir fćti styttunnar í ánni var höggviđ blóm og fléttuverk. Kannski hefur steinninn veriđ endurnotađur? Kannski var styttan tilraun ungs steinhöggvara, sem mistókst?
Styttan er um 700 ára gömul og er líklega eitthvađ yngri en Múla-María, sem er frá seinni hluta 13. aldar. Fariđ var međ styttuna til Santiago til rannsóknar og lítiđ hefur síđan frést til hennar, nema hvađ upplýst hefur veriđ ađ hún sé um 150 kg. ađ ţyngd.
Hvađ olli ţví ađ menn losuđu sig viđ svona forlátafína styttu skal ósagt látiđ, en henni hefur ekki veriđ kastađ ţar nýlega. Líklega skođa sérfrćđingar kirkjur og klaustur í nágrenni fundarstađarins til ađ leita ađ hugsanlegum uppruna Maríumyndarinnar í ánni Sar. Guđshús eru ţar fjölmörg, enda áin Sar nćrri Sankti Jakobsvegi, sem sífellt verđur vinsćlla ađ arka eftir, sama hvađa trúar mađur er.
Nú bíđur forvarsla.
Kirkjugripir | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Skođanakönnun á Fornleifi
7.7.2020 | 09:11
Takiđ ţátt efst á vinstri dálkinum hér á Fornleifi
Hvađa orđ mega helst heyra sögunni til ţegar rćtt er um ţeldökkt fólk?
Eftir ađ ég birti grein um grafalvarlegt mál á blogginu Fornleifi hér um daginn (sjá hér), fletti ég yfir á nýja síđu á Tinna-veggjadagatali mínu (ţiđ vitiđ hvađ barnalegur ég er í anda). Ég var búinn ađ gleyma ţví ađ ţađ var kominn júlí. Tinna-myndin fyrir júlímánuđ á vel viđ greinina á Fornleifi. Ţótt Tinni hafi mikiđ veriđ gefin fyrir drengi, trúi ég ţví ekki upp á hann ađ hann hafi talađ eins illa um svart fólk og hann talađi um konur. En sá sem skóp Tinna var greinilega međ gömul rasistagleraugu sem voru algeng víđar en í Belgíu ţegar hann var ađ alast upp.
Hvađ finnst ykkur lesendur góđir? Eru orđ eins og blökkumađur og ţeldökkur of hlađin til ađ viđ getum notađ ţau á 21. öld? Látiđ í ljós skođun ykkar. Ég er sjálfur farinn ađ vera í vafa um notkun ţessara og annarra orđa, eftir ađ ég fékk tölvupóst frá Íslendingi sem lítur á sig sem litađan mann. Orđ eins og svertingi, blökkumađur, ţeldökkur, surtur, blámađur, og meira mćtti telja upp, eru ekki lengur nauđsynleg, sér í legi ef ţau sćra fólk og ef ţau eru einvörđungu notuđ til ađ hćđast ađ fólki.
Hvađ finnst ykkur? - Takiđ vinsamlegast (nafnlaust) ţátt í skođanakönnuninni um nokkur orđ.
Lesiđ ykkur til frćđslu sögu svarta mannsins neđar á vinstri spássíu Fornleifs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)