Glatađi sonurinn er fundinn
3.6.2012 | 15:34
Leiklistarsaga og saga kvikmynda eiga náđ fyrir ásjónu Fornleifs, enda hvortveggja búiđ ađ gerjast á međal okkar í meira en 100 ár.
Hér skal greint frá búningum sem teiknađir voru fyrir leiksýningu í Drury Lane Royal Theatre í Lundúnum áriđ 1905, og sem verđur ađ telja hluta af íslenskri leiklistarsögu, ţótt Íslendingar hafi lítiđ komiđ ţar nćrri, en leikritiđ gerđist reyndar á Íslandi - eđa einhvers konar Íslandi.
Um aldamótin 1900 heimsótti breski rithöfundurinn Hall Caine Ísland og heillađist af ţjóđ og landi. Hann ferđađist eitthvađ um Ísland. Er heim var komiđ, hóf hann ađ rita sígilda sögu um glatađa soninn, sem hann stađsetti á íslensku sviđi og í ţeirri náttúru sem heillađi hann. Verk hans The Prodigal Son kom út áriđ 1904 hjá Heinemann forlaginu og seldist vel í hinum enskumćlandi heimi. Hall Caine, sem hafđi alist upp á eyjunni Man, var einn af vinsćlustu höfundum síns tíma, en í dag telst hann ekki lengur til sígildra höfunda, enda var hann uppi á tímaskeiđi er leiklistarleg melódramatík og vćmnisviđkvćmni voru í tísku.
Fljótlega var tekin ákvörđun um ađ setja verk Hall Caines á sviđ í Lundúnum. The Prodigal Son var sýnt viđ sćmilegar undirtektir, en ekki fyrir fullum húsum á fjölum Drury Lane Royal Theatre i Lundúnum. Handlitađa ljósmyndin hér fyrir neđan er einmitt tekin áriđ 1905 og sést skilti á leikhúsinu í Covent Garden sem auglýsir Glatađa soninn.
Drury Lane Royal Theatre 1905
Hall Caine hafđi ţegar áriđ 1890 gefiđ út ađra sögu sem ađ hluta til gerđist á Íslandi og bar hún titilinn The Bondman: A new Saga (Leiguliđinn). Ţađ leikrit var einnig sett á sviđ í Drury Lane Theatre áriđ 1906, en ţá hafđi atburđarásin, sem var sú sama og á Íslandi, veriđ flutt yfir á ađra eyju, allfjarri Ísalandi. Sikiley varđ nú sögusviđiđ og í lok sýninganna, sem voru fáar, gaus Etna í stađ Heklu. Sagan var kvikmynduđ í Bandaríkjunum áriđ 1916.
Lítiđ er varđveitt frá sýningunni á Glatađa syninum í Lundúnum nema frábćrar vatnslitateikningar Attilio Comelli sem var einn fremsti leikbúningahönnuđur í Lundúnum á ţessum tíma. Fyrir fáeinum árum voru teikningar hans fyrir búninga sýningarinnar gefnar á V&A Museum (Victoria & Albert safniđ), sem um sinn ţjónar hlutverki leiklistasafns Breta, sem mun opna síđar í Covent Garden.
Skođiđ svo teikningar Comellis hér (kvenbúningar) og hér (karlabúningar).
Ekki er gott ađ segja til um, hvort leikhúsiđ hafi fylgt öllum stúdíum Comellis, sem greinilega hefur leitađ grasa í ýmsum verkum um Ísland. Ein mynd, sem Fornleifur hefur keypt vestur í Bandaríkjunum, af leikaranum Frank Cooper í hlutverki Magnús Stephensson á Drury Lane ári 1905, sýnir hann í búningi, kápu, sem svipar mjög til ţess búnings sem Attilio Comelli teiknađi fyrir hlutverkiđ.
Frank Cooper i The Prodigal Son og teikning Comellis af frakkanum
Sumariđ 1922 hélt 14 manna hópur frá Lundúnum til Íslands til ađ taka upp hluta af kvikmyndinni The Prodigal Son sem byggđi á bók Hall Caines. Kvikmyndaleikstjórinn hét A.E. Coleby og var nokkuđ vel ţekktur á sínum tíma. Međal leikaranna var ef til vill einn leikari sem var ţekktur og lék í yfir 150 breskum kvikmyndum, en ţađ var Stewart Rome (Wernham Ryott Gifford), sem lék eitt ađalhlutverkiđ, Magnús Stephensson. Kvikmyndin var m.a. tekin upp í húsi Ólafs Davíđssonar í Hafnafirđi, sem varđ ađ húsi Oscars Nielsens faktors í sögunni/myndinni, sem og á Ţingvöllum. Filmur voru flestar framkallađar á Íslandi. Heimsókn breska kvikmyndahópsins vakti töluverđa athygli og var skrifađ um hann í dagblöđum. The Prodigal Son var önnur leikna erlenda kvikmyndin sem tekin var á Íslandi.
Morgunbađiđ birti mynd af hluta breska hópsins ţann 16. ágúst 1922 (sjá ofar). og 30. júlí 1922 greindi blađi frá ţví ađ breskur lćknir hafi slegist í för međ hópnum sér til upplyftingar og hvíldar, eftir ađ hafa veriđ á vígstöđvunum í stríđinu. Lćknirin hét dr. Moriarty ???. Hópurinn lenti m.a. í aftakaveđri. Skođiđ ţađ á timarit.is
Stewart Rome var mikill sjarmör
Stoll Picture Theatre, sem var fullbyggt áriđ 1911 og var tónleikahöllin m.a. framkvćmd Rogers Hammerstein hins bandaríska sjóvmanns, sem langađi ađ leggja Lundúnir undir fót. Ţađ tókst ekki betur en svo, ađ hann tapađi 1/4 hluta ţess fjár sem hann setti í verkefniđ og tók ţá Oswald Stoll (f. Grey) viđ taumunum. Ţessi glćsilega höll var ţví miđur rifin áriđ 1958. Mikil bíósaga fór ţar forgörđum.
Kvikmyndin The Prodigal Son, sem frumsýnd var 1923, var löng og var sýnd í tveimur hlutum, og urđu sýningargestir ţví ađ fara tvisvar í bíó til ađ sjá hana til enda. Hún var frumsýnd í hinu risastóra Stoll Picture Theatre i Lundúnum. Gekk myndin fyrir fullu húsi í 6 vikur og einnig í öđrum kvikmyndahúsum í London.
Til Íslands kom kvikmyndin ekki fyrr en áriđ 1929, og var sýnd undir heitinu "Glatađi sonurinn" og var svo ađ segja engin ađsókn ađ henni í Nýja Bíói, ţar sem hún var ađeins auglýst í viku. Löngu áđur en myndin kom til Íslands, var hún sýnd í Vesturheimi:
Ţótt nokkuđ hafi veriđ skrifađ um sögur Hall Caines sem gerast á Íslandi í íslenskum dagblöđum, kom bókin ekki út á Íslandi fyrr en 1927 í ţýđingu Guđna Jónssonar. 1971-72 var hún framhaldssaga í Tímanum. Ţađ eru ţví ekki nema von ađ Framsóknarmenn komnir yfir fimmtug séu jarmandi vćmnir og sentímental. Lesiđ bók Hall Caines á frummálinu hér.
Meginflokkur: Leiklistasaga | Aukaflokkar: Kvikmyndafornleifafrćđi, Kvikmyndir, Menntun og skóli | Breytt 12.6.2012 kl. 01:55 | Facebook
Athugasemdir
Hef nú litlu viđ ţetta ađ bćta, enda hef ég aldrei heyrt af ţessu. Glatađa sagan um glatađa soninn. Skemttileg og fróđleg lesning. Ţessi búningahönnuđur hefur veriđ metnađarfullur og nokkuđ raunsćr og afar snjall teiknari verđ ég ađ segja. Teeikningar Halldórs Péturssonar ekki ósvipađar ţessu. Sérstaklega myndskreytingar hans viđ barnabćkur eins og Hjalta litla ofl.
Kannski fékk hann innblástur frá Comelli.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.6.2012 kl. 03:42
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.