Hvað á þetta fólk sameiginlegt?
7.5.2014 | 08:45
Myndin sýnir Humphrey Bogard, Jacqueline Kennedy-Onassis, Black Jack Bouvier og Cornelius Vanderbilt. Þið þekkið vitaskuld öll hann Bogie. Hin snoppufríða Jackie var eins og allir vita bara gift honum JFK og síðar skipakónginum Onassis, en Jack Bouvier var faðir hennar. Cornelius Vanderbilt var frægur athafnamaður og miljarðamæringur og forfaðir trilljónamæringa. Nokkrir Íslendingar hafa ugglaust búið á hótelum sem kennd eru og voru við þá ætt.
Allt á þetta fólk á það sameiginlegt að hafa verið afkomendur eins manns, Anthony Janszoons van Salee sem flutti til Ameríku frá Hollandi árið 1629. Antonius Jansen (1607-1676), eða Anthony Jonson eins og enskumælandi samtímamenn kölluðu hann, var meðal fyrstu hollensku íbúa Nýju Amsterdam (New York). Í skjölum frá þessum frumbyggjatíma Long islands og Manhattan er ritað að hann hafi verið mulatto og síðar er einnig vísað til hans sem The Turk, The Terrible Turk, van Fez og Teunis.
Stúdía Pieter Paul Rubens (1577-1640) af negra. Musées Royaux Des Beaux-Arts, Brussel.
Komin af sjóræningja
Öll þessi viðurnefni voru engar tilviljanir. Anthony var sonur Jans Janszoons frá Haarlem í Hollandi (ca. 1570-1641). Jan Janszoon var enginn annar en sjóræninginn Murat Reis (yngri) sem talinn er hafa staðið á bak við Tyrkjaránin á Íslandi árið 1627.
Jan Janszoon var kaupmaður og skipstjóri sem gerði út frá Cartagena á Spáni, en síðar hóf hann að herja á Spánverja og gerðist að lokum sinn eigin herra í hinni síðarnefndu útgerð. Hann var tekinn höndum af sjóræningjum í Alsír og gekk í þjónustu þeirra og tók nafnið Murat Reis og gerðist múslími. Ekki má rugla honum við sjóræningja með sama nafn sem kallaður var Murat Reis eldri, en sá var ættaður frá Albaníu.
Jan Janszoon/Murat Reis átti margar konur, og var önnur kona hans þeldökk og múslími frá Cartagena á Spáni. Hún var móðir Antons og einnig bróður hans Abrahams, sem síðar fluttu báðir til Hollands og þaðan áfram til Ameríku. Talið er að þeir bræður hafi báðir verið múslímar. Talið er að Anthony hafi fæðst í Salé í Marokkó, eða að minnsta kosti alist þar upp. Þess vegna tók hann sér nafnið van Salee.
Anthony Janszoon hefur vart verið skrifandi. Hann undirritaði skjöl með A[nthony] I[anszoon] og greinilega með viðvangslegri rithönd.
Anthony Janszoon, sem var víst afar dökkur á brún og brá og risi af manni, gekk að eiga Grietje Reyniers (Grétu Reynisdóttur), þýska konu sem hafði skandalíserað ærlega í Hollandi fyrir saurlifnað sinn og vergirni. Þau voru gefin saman á skipinu á leið til Nýju Haarlem. Með henni átti Anthony fjórar dætur: Evu, Corneliu, Annicu (sem er formóðir Vanderbiltanna) og Söru og af þeim er fyrrnefnt frægðarfólk komið.
Vegna ósæmilegrar hegðunar hvítrar eiginkonu sinnar í Nýja heiminum neyddist Antonius van Salee að flytja frá Manhattan og Long island yfir á Coney Island (sunnan við Brooklyn í dag). Coney Island, var allt fram á 20. öld einnig á tíðum kölluð Turk's island eða Tyrkjaeyja, og líklegast með tilvísunnar til Antons van Salee
Prófessor einn, Leo Hershkowitz við Queens University, taldi að Anthony van Selee hafi aldrei snúið til kristinnar trúar. Kóran, sem talið er að hann hafi átt, mun hafa verið í eigu eins afkomenda hans þangað til fyrir tæpum 90 árum síðan. Því miður veit enginn hvar kóraninn er niður komin nú. En ætli Anthony van Salee hafi getað lesið Kóraninn, ef hann gat ekki skrifað nafn sitt með rómverskum bókstöfum?
Jackie Kennedy vildi ekki vera negri
Þegar Jackie Kennedy var eitt sinn beðin um að koma fram og segja frá "afrískum rótum" sínum, þ.e. forfeðrum sínum i Sale í Marokkó og Cartagena á Spáni, til að vera manni sínum innan handa í baráttu hans gegn kynþáttamismunun, mun Jackie hafa krafist þess að vitnað væri til van Salee-ættarinnar sem gyðinga. Frúin vildi ekki vera af blökkukyni - þá var nú betra að vera gyðingaættar.
Þá vitið þið það. Fína fólkið í Ameríku eru afkomendur þýskrar portkonu, sem og sjóræningjahöfðingja sem réðst á Íslendinga árið 1627 og sem olli því að Vestamanneyingar voru með PTS (post traumatic stress) í 200 ár þar á eftir, og sumir enn.
Play it again, Sam, eins og afkomandi sjóræningjans sagði í Casablanca. Það verður víst að setja Árna Johnsen í að krefjast bóta fyrir Tyrkjaránin.
Skyld færsla: Mínir bræður, víðar er fátæktin en á Íslandi
Meginflokkur: Sagnfræði | Aukaflokkur: Ættfræði | Breytt 10.3.2025 kl. 07:06 | Facebook
Athugasemdir
Var að fá í pósti fréttabréf Dýrfirðingafélagsins sem ég er félagi í,sem er tvíblöðungur.Aftan á því er rammi sem vekur athygli á ,,fornleifum á Vestfjörðum,, á facebook. Námskeið verður haldið um kortlagningu fornminja í grunnskólanum á Suðureyri, 13. og 14. júlí n.k. Langaði að spyrja hvort þú kemur eitthvað nálægt þeirri fræðslu. Mb. Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 7.5.2014 kl. 11:46
Þar er ég því miður ekki á ferð og veit ekki hverjir eru með þetta námskeið. Það er vonandi eitthvað gott fólk. Býst þó fastlega við því að Minjastofnun Íslands sjái um slík mál, en er það verksvið stofnunarinnar, þótt aðrir aðilar hafi líkast til skráð fleiri fornminjar en hún.
FORNLEIFUR, 7.5.2014 kl. 12:26
Mjög fínt að vera kominn af aríum og sjóræningjum heldur en að vera kominn af öpum og svinum. :-)
Aðalbjörn Leifsson (IP-tala skráð) 7.5.2014 kl. 12:41
Ég skil ekki alveg hvert þú ert að halda með þessari jöfnun Aðalbjörn.
FORNLEIFUR, 7.5.2014 kl. 12:45
Nei ég er að bulla. Ljótukallarnir segja að guð þeirra hafi breytt gyðingum í apa og svín. Negrar voru taldir til villimanna og mjög ófínt. Flottast þótti að vera kominn af aríum og rómantískum sjóræningja höfðingja í denn. En auðvitað erum við öll kominn af Adam syni Guðs. :-)
Aðalbjörn Leifsson (IP-tala skráð) 7.5.2014 kl. 14:39
Takk fyrir fróðlega grein
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.5.2014 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.