Gamlar Ljósmyndir: Konungssýningin 1921

konungssyningin_fyrir_fornleif.jpg

Því miður var maðurinn sem hefur höndina inni í fingrabrúðunni Fornleifi, settur út af sakramentinu á smettiskruddubók "Gamalla Ljósmynda", því hann birti "ljótar" myndir af Gunnari Gunnarssyni í nasistastellingum. Gunnar er sumum Íslendingum eins og Múhameð spámaður er flestum múslímum. Höfuð fljúga ef maður leyfir sér að birta myndir af Gunnari eins og hann var. Gömlum ljósmyndum er sýnilega stjórnað af einhverjum gömlum DDR-kommum eða framsóknardraugum sem þykjast vera kratar.

Frá Konungskomunni 1926

konungskoman_1921.jpg

Áður en mér var mjög ódrenglega varpað út af glansmyndafeisbókinni Gamlar Ljósmyndir, sem er undir stjórn Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings og kynlegra kvista Þormars ættarinnar, sem seldi Gunnari Gunnarssyni Skriðuklaustur, leitaði ég þar upplýsinga um kvikmynd Bíó-Petersens og Magnúsar Ólafssonar, sem þeir tóku við konungskomuna árið 1921.

Mig langar mjög að sjá kvikmyndina, til að athuga hvort ég gæti séð afa minn sýna fimi sína fyrir konung og frítt föruneyti hans. Afi minn var í fimleikaflokki ÍR sem gerði æfingar við Konungssýninguna árið 1921.

1921_konungssyningin_2_1254174.jpg

Afi stökk yfir hest og sýndi listilegar sveiflur á tvíslá. Fyrir það fékk hann medalíu sem afi gaf mér þegar ég var um það bil 12 ára gamall. Medalían hafði verið útbúin úr dönskum silfurpening frá 1916. Á myndinni efst er fimleikahópur ÍR og afi, Vilhelm Kristinsson er sá lágvaxni og sæti, 4. frá vinstri í efri röðinni.

vilhelm_afi_vilhjalms.jpg

Afi varð síðar einn elsti kratinn á Íslandi og keypti manna lengst bleðil þann sem bar nafnið Alþýðublaðið. Honum leist ekkert á þá krata sem komu fram á sjónarsviðið eftir Eið Guðnason. Hálfsystur hans, Sigríði Jensen í Kaupmannhöfn, tókst einnig það afrek að verða krati lengst allra í Danmörku. Kratar í Danmörku urðu ekki gamlir, því þeir reyktu allir. Tante Sigga, eins og Sigríður frænka var kölluð í fjölskyldunni á Íslandi, varð hins vegar 102 ára, ef ég man rétt. Ég og kona mín heimsóttum hana stuttu eftir 100 ára afmælið. Kratar í Danmörku böðuðu hana blómum, svo hún gat vart verið í litlu íbúðinni sinni í Gladsaxe. Mektarmenn á við Anker Jørgensen heimsóttu hana á afmælisdaginn, sem tók tvo daga.

Ef einhver getur útvegað mér kvikmynd Bíó-Petersens og Magnúsar Ólafssonar, eða hefur vitneskju um ljósmyndir frá Konungssýningunni árið 1921, þá þætti mér vænt um að heyra frá ykkur.

Morgunblaðið fjallaði um komuna og upplýsir að fimleikasýningin hafi farið fram á íþróttavellinum (Melavellinum).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri dr. Fornleifur.

Ég legg til að þú stofnir nýja síðu í stað þessarar sögufölsunarsíðu sem þú gerir að umtalsefni. Sú nýja gæti til dæmis heita Gamlar og góðar ljósmyndir. Síðan geta menn dreift upplýsingum til þeirra sem eru áhþeirri ritskoðuðu og hvetja þá til að koma með efnið sitt yfir á þá nýju óritskoðuðu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 8.2.2015 kl. 12:28

2 identicon

Rasshönd Fornleifs lokar á undirritaðan á sínu bloggi, (sem er svo sem allt í lagi) þannig að þessi ritskoðunarárátta er víða í gangi!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 8.2.2015 kl. 15:01

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Bjarni Gunnlaugur, í kerfi bloggsins Fornleifs upplýsist þetta:

Þú hefur ekki bannað neinum notendum að skrá athugasemdir. Til að gera það, þarf að smella á athugasemd og velja Banna notanda.

Athugið að þetta er aðeins hægt fyrir athugasemdir frá skráðum notendum blog.is.

Þú ert því greinilega að fara með anushönd þína á röng mið. Áttu brúnskitna ljósmynd af óæðri endanum á sjálfum þér, þá mæli ég með að þú sýnir hana á "Gömlum Glansmyndum" og látir lesendur Fornleifs í friði með sálarvandamál þín. Hér hefur enginn verið bannaður því hér koma sjaldan dónar. Þér verður svo ekki svarað frekar , og ef þú verður með ofstopa hafa umsjónamenn Morgunblaðsbloggsins samband við þig og jafnvel Davíð Oddsson

FORNLEIFUR, 8.2.2015 kl. 15:52

4 identicon

Sannleikanum verður hver sárreiðastur!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 8.2.2015 kl. 15:57

5 identicon

Ég mæli með að bakhöndin (ef þér finnst það eitthvað skárra) slaki sér nú aðeins niður og fari að hlusta á þrælvel lesna passíusálma á kvöldin eftir 10 fréttir á rás 1.  Veitir greinilega ekki af smá siðabót!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 8.2.2015 kl. 16:03

6 Smámynd: FORNLEIFUR

Höldum okkur við efnið. Ef einhver liggur á kvikmynd Bíó-Petersens og Magnúsar Ólafssonar, þætti mér vænt um upplýsingar um, hvort leikfimisflokkur ÍR sjáist í henni.

FORNLEIFUR, 8.2.2015 kl. 16:22

7 Smámynd: FORNLEIFUR

Hr. Predikari, prýðis hugmynd og maður gæti svo beðið fólk sem er í Samfylkingunni um að senda ljósmyndir af forfeðrum sínum sem voru nasistar eða á Komintern fundum í Moskvuborg.

Nei, vandi Gamalla ljósmynda er einvörðungu að einn ritstjóranna þar er skyldur Gunnari Gunnarssyni og annar er gamall ritstjóri Sunnudags-Þjóðviljans og því í blóð borið að skrifa sérstakar helgalygar eins og þær væru sannar.

Ég á margar gamlar ljósmyndir, sem ekki eru glansmyndir, sem munu birtast hér.

FORNLEIFUR, 8.2.2015 kl. 16:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband