Braggadrengirnir og Halli-stæl

Iðnskólinn Braggar 2

Árið 1957 kom ónafngreindur Hollendingur, fljúgandi alla leið til Íslands. Hann var liðtækur ljósmyndari, líklega fagmaður. Bölvanlegt að vita engin deili á honum. Hér er mynd sem hann tók á Skólavörðuholtinu. Iðnskólinn hafði verið reistur, en braggar voru enn á holtinu. Í þeim bjó fátækt fólk, og nú voru útlendingar meira að segja farnir að hafa áhuga á þeim.

Tveir strákanna á myndinni eru enn í fótbolta, í strigaskóm og gallabuxum, alveg eins og væru þeir klipptir út úr mynd frá yfirgefnum kolabæ í Bandaríkjunum. Hinir eru í pásu að skoða leikara,að tyggja tyggjó og stæla um hvort þeir séu indíánar eða kábojar. Kannski bjuggu þeir í bröggunum, eða í nágrenninu?

Þjóðviljinn kallaði fólk sem þarna bjó "þetta fólk" árið 1946, þegar fyrst kom til tals að flytja íbúana í aðra bragga í Fossvogi til að reisa minningarkirkjuna um Hallgrím gyðingahatara. Samkvæmt öðlingnum "Bæjargesti", sem skrifaði Bæjarpósti Þjóðviljans línu, því merka alþýðuvinablaði, þá "forpestaði" fólkið í bröggunum andrúmsloftið í Reykjavík með útikömrum. Árið 1957 var "þetta fólk" greinilega enn þarna, góðvinum öreiganna á Þjóðviljanum til lítillar gleði.

Jónasistar í Framsóknarflokknum voru hins vegar fremri Þjóðviljamönnum í hatri sínu á bröggum og fólkinu sem í þeim þurfti að húka. Forfeður fátæklinganna hafði verið barðir í sveitum landsins og nú átti "þetta fólk" ekki að vera fyrir kirkju heilags Hallgríms gyðingahatara. Braggar fóru alla tíð mjög í taugarnar á þeim sem voru svo vel í álnum að þeir þurftu ekki að búa í þeim sjálfir.

Halli StyleAllt í einu stekkur einhver spjátrungur í nýjustu, ammrísku rokktískunni inn í myndina. Við skulum kalla hann Halla. Hann hafði greinilega stúderað myndir með James Dean og Elvis. Hann er í hvítum sokkum, mokkasínum, vel straujuðum sjínóbuxum og college-jakka, líkt og hann hafði labbað inn í settið við skólavörðuna, beint frá Sunset Búlevard með smástoppi í Vinnufatabúðinni.

Ísland var á góðri leið með að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Halli hafði greinilega uppgötvað að útlendingur var að taka af honum myndir þar sem hann var að leika sér við yngri drengi. Það mátti Halli ekki.

Ef einhver kannast við söfnuðinn þarna við klappirnar efst á holtinu, þætti ritstjórn Fornleifs kært að fá upplýsingar. Ef Halli er á lífi, er hann kominn vel yfir áttrætt. Þetta eru næstum því fornleifar.

Eitthvað held ég þessi braggar myndu kosta í endurgerð í dag, en þarna hefði ef til vill verið tilvalið að hafa Hallgrímsbar. 700 milljónir, án samninga á Dags gengi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Endurgerð svona slotta kostar sitt og óþarfi að fetta fingur út í það. Ábyrgðarmenn framkvæmdarinnar hafa samhljóma ákveðið að engin ástæða sé til að rannsaka það. Svo þetta er þá líklega ollræt. Vigdís bara að mismæla sig eina ferðina enn.

Þetta er gert af fólki sem gerir ekki mistök og ekki púst um það meir. Enda ekki bofs í fréttum um það frekar og verður ekki. Hefði hugsanlega verið ef vonda fólkið hefði gert þetta.

Hefði líklega dugað til að byggja blokkaríbúðir fyrir alla braggabúa á sínum tíma. Nú eða Iðnskólann sjálfan, en skítt með það. 

Átfittið á drengjunum kannast maður við og gekk í svona sjálfur allt frá bómullarskyrtu niður í vírbuxur og háa strigaskó. Seinna komu dralonpeysurnar rafmögnuðu. Maður þurfti að jarðbinda sig og afrafmagna áður en maður tók í hurðarhúna svo ekki spryttu eldingar af fingurgómum.  En þær voru töff.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.10.2018 kl. 15:57

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki má væna Dag um að sinna ekki verstu eymingjunum. Hann hefur nú keypt 20fm gáma fyrir þá til að setja upp í útnárum borgarinnar, svo þeir hafi næði Þeir kosta litlar 18 milljónir stykkið, enda með náðhúsi innandyra.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.10.2018 kl. 16:07

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þessar vírbuxur hefðu ekki þótt inn í dag, þegar svalast er að vera með boruna úti með lói og öllu saman. Þarna var keypt við stærð svo strengurinn rúmaði tvö strákstrá. Þetta kallaði á lakkrísbelti þar sem sylgjan var reyrð við þind og brett uppá skálmar þriðjung úr legg. Rassvasarnir rétt undir herðablöðum. "One Size fits all" var þá ekki einusinni fundið upp en bræður frá 7-16 gátu léttilega nýtt sér sömu brók.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.10.2018 kl. 16:28

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Já Jón Steinar, braggablús Dagsverðaraurapúkans myndi í hvaða siðmenntuðu landi sem er kosta borgarstjóra vinnuna og æruna. En nú erum við að tala um Ísland, þar sem menn hafa í brátt 80 ár farið með stjórn landsins og "stórborgarinnar" líkt og sitt eigið seðlaveski eða vasa.

Gámadæmið fyrir eymingjana minnir óneitanlega á flutning "braggapakksins" og Höfðaborgarbúanna í gamla daga.  Þeir vel efnuðu vilja eymdina úr sjónmáli og reisa því Ciesielski-raðhús til að friða samviskuna. Helst lengra í burtu en hesthús aðalsins. Hugsaðu þér, hrossin þeirra gætu tryllst ef þau sæju fátæklinga. Mér er sagt að íslensk hross séu næsta rasísk og snobb, og vilji helst ekki bera útlendinga eða þurfalinga, enda hefur verið farið betur með þau í gegnum tíðina en beiningafólk og sauðgráa alþýðuna. Við sem komin erum af þurfalingum í Skagafirði þekkjum þetta.

Dagur er ekki og verður aldrei sósíalisti, frekar en flest fólk í íslenskum stjórnmálum. Flest er þetta lið í eiginhagsmunapoti. Almannafé er fyllt á vasana en seðlarnir hverfa jafnótt og þeim er troðið, því á vasanum er alltaf gat. Upp um læri stjórnmálamannsins skríða afætur og sníkjudýr tilbúin að gleypa það sem fellur niður gatið á vasanum. Það er borist á, ekkert síður en hjá Sjöllunum.

FORNLEIFUR, 5.10.2018 kl. 04:33

5 Smámynd: FORNLEIFUR

Tískan var: Gallabuxur og axlabönd, gúmmískór og Andrés önd. Man þetta með hryllingi og átti samt enga bræður sem gætu hafa mýkt buxurnar eða tekið við pari með hnébótum úr nælonleðurlíki.

FORNLEIFUR, 5.10.2018 kl. 04:42

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Já, allstaðar annarstaðar en á íslandi hefðu hausar fokið við svona skandal. Hér eru þó litlar líkur á að hægt sé að þyrla upp flórstormi í skeiniblöðum rétttrúnaðarins ef kratar eiga í hlut. Gagnvart öðrum stjónmálasannfæringum nægir að fjarskyldur frændi hafi ekið yfir á rauðu á sjöunda áratugnum, til að hægt sé að slíta ríkisstjórnum eða henda fólki berrössuðu fyrir samfélagsmiðlaljónin til kjamms og gnags.

Rannsóknir á rannsóknir ofan á minnstu bagatellum eru sjálfsagðar án tilefna og skýrslugerðir sérfræðinga um allt og ekkert orðin hagsæll iðnaður fyrir meritlausu flauelsjakkana í Hí.

Skýrslur verða þó, nóta bene, að vera frá réttu sjónhorni til að kallast marktækar. (Sjónhorn í eintölu þar sem annað þekkist ekki)

Jón Steinar Ragnarsson, 5.10.2018 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband