Glerbrot í Reykholti

Glös af sömu gerđ og Reykholgsbikar

Íanda sumra kollega minna á Íslandi (sbr. hér) sletti ég hér vafasamri tilgátu, ţótt gúrkutíđinni í fornleifafrćđinni sé vćntanlega lokiđ í ár: Snorri Sturluson var veginn í kirkjunni í Reykholti áriđ 1241, ţar sem hann var ađ drekka af messuvíni úr forláta glerbikar frá Frakklandi. Hann missti glasiđ, sem brotnađi, og lét ţá ţessi orđ falla."Veriđ sparsamir á víniđ, piltar". Hné han svo niđur og var örendur.

Ég leyfi mér ađ álykta svo fjálglega, ţar sem í kirkjurúst einni í Reykholti hafa fundist brot úr vínglasi úr gleri. Mér ţykir líklegt er ađ Skúli jarl hafi gefiđ Snorra glasiđ og fimm önnur áriđ 1238 úti í Noregi, um leiđ og hann gaf honum jarlstignina. Gissur Ţorvaldsson, tengdasonur Snorra, sá glösin og vildi eignast ţau, (eđa réttara sagt eiginkona Gissurar). Hann eignađist fimm, ţví ţađ sjötta datt á gólfiđ í holrýminu undir kirkjugólfinu, ţar sem Gissur og ESB-sinnar 13. aldar réđust ađ Snorra og drápu hann. Hafđi Snorri ţá nýlokiđ ađ gefa út Heimskringlu og var enn ađ halda upp á ţađ eins og rithöfundar eiga ţađ til ađ gera. Gissur Ţorvaldsson tćmdi síđan vín- og ölkjallara Snorra, sem var undir kirkjugólfinu. Víniđ var haft ţar til öryggis. Gissur naut góđs af veigunum er hann undirbjó Gamla Sáttmála.

Snorri Killed

Snorri veginn. Lýsing úr Borgarhandriti,  AM 100 Foolio. Ólafur forvörđur telur lýsinguna falsađa, enda er tölvulykt af henni

 

Nú hefđi ţessi glannalega tilgáta veriđ ágćt og vel gjaldgeng í fréttir RÚV-Sjónvarpsins, eins og konan međ sjúkdóm fílamannsins, sem ađ sögn fannst ađ Skriđuklaustri nú fyrr í sumar, eđa eskimóakonurnar sem fundust líka ţar eystra fyrir nokkrum árum síđan. Ţćr fréttir, eins og margar ađrar furđufréttir RÚV, eru lýsandi dćmi um ţađ ástand sem skapast er fréttamenn og fornleifafrćđingar hafa misskiliđ hlutverk sitt og búa til fréttir í stađ ţess ađ greina frá ţeim.

Bikarinn, sem glerbrotin í Reykholti eru úr, er frá 14. öld.

Glas frá Reykholti

Glerbikarinn frá Reykholti, eđa réttara sagt brotin úr honum, voru til sýnis í Ţjóđminjasafninu í heilt ár (2009) á lítilli sýningu sem fjallađi um allar rannsóknirnar á guđshúsum í góđćrinu í fornleifarannsóknum á Íslandi, sem nú er víst lokiđ vegna fjárhagsvandans á Íslandi. Sýningin bar heitiđ Endurfundir. Á sýningunni mátti finna brot af bikarnum úr Reykholti í glerskáp. Afar fátćklegar upplýsingar fylgdu. Reyndar stóđ í sýningartexta, ađ glasiđ vćri frá 13.-14. öld, sem er ekki alveg rétt. Sérfrćđingar telja ađ minnsta kosti ađ vínglös ţessi séu frá tímabilinu 1300-1350. Snorri gćti ţví ekki međ góđu móti hafa drukkiđ af ţessum glerbikar, nema ađ hann hafi drukkiđ í gegnum einhvern. 

Ţađ furđađi mig, er ég sá ţessi merku glerbrot úr Reykholti í fyrsta sinn á Ţjóđminjasafninu í áriđ 2009, ađ ţar var ţví haldiđ fram ađ glasiđ hafi veriđ altariskaleikur. Glerílát frá ţessum tíma, sem og síđar, gátu ekki veriđ vasae sacrae, eđa heilög ílát, á altari í kaţólskum siđ á miđöldum. Sakramentin, líkama Krists, varđ prestur ađ bera fram í ílátum úr góđmálmi. Oblátuna, líkamann, á patínu og víniđ, blóđiđ, í kaleik úr silfri eđa gulli.

Glerbikarinn hefur ţví sennilegast brotnađ í kirkjunni í hefđbundinni fornicationi ecclesiae. Margir Íslendingar eru sem kunnugt er komnir af kaţólskum biskup og margir hverjir líka af ábótum sem stunduđu saurlifnađ. Kirkjur landsins voru fyrr á tímum oft ekki mikiđ betri en gluggalausa kompan í Bústađakirkju, ef sögur af  henni er eru sannar. Ţađ ţarf ţó ekki neina sannleiksnefnd til ađ segja meira um glerbikarinn frá Reykholti, eđa ţađ sem fornleifafrćđingarnir sem stjórnuđu ţeirri rannsókn vita greinilega ekki og miđla ekki til fólksins í landinu.

Bikarinn frá Reykholti er mjög líklega franskur. Svipuđ glös hafa t.d. fundist í Hollandi og á Bretlandseyjum (Sjá myndina efst). Glerbikar, sem fannst í kastalanum Niewendoorn norđur af Alkmaar í Hollandi og í rústum Ludgershall kastala í Wiltshire á Bretlandseyjum, gefa góđa hugmynd um hvernig svona glös litu út óbrotin. Ţetta hafa veriđ dýrindis hlutir, sem líklega hafa kostađ hátt í kýrverđ. En evrópsk samhengi glerbikarsins í Reykholti hefur greinilega ekki veriđ mikiđ áhugamál ţeirra  ţá sem rannsakađ hafa fornleifar á síđustu árum í Reykholti.

Ţađ vekur athygli mína, ađ á vef Skálholtskirkju var ţví haldiđ fram nýlega, ţegar kirkjan fékk nýjan kaleik í gömlum stíl, ađ kaleikar hafi fyrrum veriđ úr gleri, tré og leir. Ţetta er hiđ mesta rugl. Ţađ var ekki fyrr en eftir 1962 ađ kaţólska kirkjan leyfđi kaleika úr öđru efni en góđmálmum, gylltum málmblöndum eđa bergkristal. Á Íslandi er reyndar til kaleikur úr kókoshnotu međ silfurumbúnađi, en hann er úr lútersku kirkjuhaldi.

Almenn kirkjusaga er kannski ekki kennd lengur á Íslandi, og greinilegt er ađ fornleifafrćđingurinn, sem setti glerbikarinn á sýninguna á Ţjóđminjasafninu, er heldur ekki sleipur í miđaldafrćđum, enda hefur ţađ sýnt sig áđur, og býst ég viđ ţví ađ hún taki ţeim dómi ekki illa, enda ţaulvön ađ venja ađra um slćleika í frćđunum, eins og frćgt er orđiđ og dómur fallinn um. Sjá hér .

Nú verđur ekki meiri sannleika hellt í barmafullan bikarinn frá Reykholti... en auđvitađ álíta einhverjir ađ ţetta sé eitur sem í bikarinn fór, ţví gagnrýni er illa tekin í íslenskri fornleifafrćđi. Verđur saga glerbikarsins í Reykholti örugglega skráđ án ţess ađ ţessi athugasemd Fornleifs verđi nefnd. Ţađ er ţó alltaf auđveldara ađ vita betur ţegar mađur veit ekki neitt. Hér neđar er vinsamlegast tilvitnun í grein sem hćgt vćri ađ kynna sér.

Heimildir:

Harden, D.B. 1975: Table-glass in the Middle Ages. Rotterdam Papers II, A contribution to medieval archaeology.[Teksten van lezingen, gehouden tijdens het Symposium 'Woning en huisraad in de Middeleeuwwen' te Rotterdam, van 29 t/m 22 maart 1973] Uitgegeven onder dedactie van J.G.N. Renaud, Rotterdam 1975, bls. 35-45.

Grein ţessi er stytt útgáfa af ţessari fćrslu.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyţórsson

Ţetta er allt gott og blessađ og ţađ ćtti hver mađur ađ vita ađ glerbikar getur ekki veriđ kaleikur í kaţólskri miđaldakirkju. Hitt er óljósara međ aldursgreininguna. Ţú segir ađ „sérfrćđingar“ segi slíka bikara vera frá 14-15 öld. En hvađ hafa ţeir fyrir sér í ţví? Glergerđ er ćvaforn á Vesturlöndum og m.a. voru Rómverjar miklir snillingar í henni. Ţetta handverk hélst, ekki síst í Feneyjum, ţar sem glermunir eru smíđađir enn í dag. „Sérfrćđingarnir“ hljóta ađ taka miđ af stíl bikarsins, en ţađ er ómögulegt ađ vita međ vissu, hvenćr einhver stíll á upphaf sitt. Öllum yfirlýsingum um ađ glasiđ hljóti ađ hafa veriđ gert á bilinu 130-1350 á ađ taka miđ mikilli varúđ. Bikarinn gćti vel veriđ frá dögum Snorra, sem var jú ríkasti mađur Íslands á sínum tíma. Hitt er rétt ađ hann gćti hafa brotnađ og týnst á fjórtándu öld eđa síđar.

Vilhjálmur Eyţórsson, 8.10.2011 kl. 21:11

2 Smámynd: FORNLEIFUR

Gott kvöld nafni, 

Glerbikarar eins ţeir sem brotin fundust af í Reykholti eru aldursgreindir međ hjálp annarra gripum, t.d. mynt, sem gefur mjög góđar aldursgreiningar. Ritheimildir, sem og ađrar fornleifar útiloka til ađ mynda ţessa gerđ bikara í Niewendoorn í Hollandi á 13. öld. Kastalinn ţar var ekki reistur fyrr en 1365. Gleriđ í Ludgershall fannst neđst í fylltum brunni, og í efri lögum var fingurbaugur af ţekktri gerđ frá 14. öld, svo ég er nokkuđ viss um ađ relatív aldursgreining bikarsins í Reykholti sé líka ađ vćnta frá 14. öld ... eđa ţangađ til ađ annađ verđur sannađ. 

Ef Snorri hefđi átt gler, ţá heldi ég satt best ađ segja ađ hann hefđi skrifađ um ţađ. 

En gaman vćri nú ef sjálfur SNORRI STURLUSON hefđi drukkiđ af ţessu glasi og ef glannakenning mín vćri rétt.  En ég tel ađ Harden og J.G.N. Renaud ásamt fleiri gömlum meisturum í miđaldafrćđum hafi vafalaust ekki vađiđ í villu, er ţeir tímasettu ţessi fínu glös til 14. aldar. 

FORNLEIFUR, 8.10.2011 kl. 22:45

3 Smámynd: Vilhjálmur Eyţórsson

Ţótt bikarinn finnist í lagi frá 14. öld ţýđir ţađ ekki ađ hann hafi veriđ gerđur á 14. öld. Hann gćti veriđ áratugum eđa öldum eldri en ađrir hlutir, sem finnast á sama stađ. Ţetta var rándýr hlutur, sem menn pössuđu vel upp á og gat veriđ mjög lengi í notkun áđur en hann brotnađi.

Vilhjálmur Eyţórsson, 8.10.2011 kl. 23:35

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Ađ vissu leyti get ég fallist á rök ţín, en bikar ţessi er mjög líklegur til ađ hafa brotnađ mjög fljótt. Hann er mjög fíngerđur. Miđađ viđ annađ sem fór forgörđum á Íslandi á miđöldum, ţá ţykir mér ólíklegt ađ bikarinn hafi átt langa lífdaga.  Ég ţekki t.d. ađeins eina heila könnu úr tinglerjuđum fajanca (Hollensku -Delft leirkeri), sem er frá seinni hluta 17. aldar, sem varđveist hefur heil fram á okkar daga, enda er hún nokkuđ sterkleg.

Önnur rök fyrir ţví ađ ţessi gerđ bikara er frá 14. öldinni er ađ hún er sýnd í frönskum handritalýsingum frá síđari hluta ţeirrar aldar, en ekki fyrr.

Ég hef ekki séđ uppgraftarskýrslur Reykholtsuppgraftra um fundarađstćđur bikarsins, en ţađ gćti veriđ fróđlegt. Kannski hefur bikarinn fundist í lagi frá 15. öld og ţá veriđ passađ vel upp á hann? En á sýningunni í Ţjóđminjasafni var bikarinn reyndar sagđur vera frá 13.-14. öld.

FORNLEIFUR, 9.10.2011 kl. 08:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband