Frá allt annarri öld - og betri

Screenshot 2022-04-22 at 08-45-24 leskafli_skyggnir_1979_21333.pdf

Á 20 öld voru líffærin í Fornleifi mun skarpari en þau eru nú, og sum hver næsta ónotuð, t.d. heilinn. Nú hallar undan og allt gránar, stirðnar og fellur jafnvel af, en heilinn virkar vel og hefur líklegast aldrei verið skarpari, þó maður sjálfur segi frá í lítillæti sínu.

Árið 1979 skrifaði ég smásögu fyrir íslenskutíma í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Ég kallaði hana: Leskafla fyrir fólk með engar skoðanir. Þið getið lesið söguna hér.

Kennaranum í áfanganum, sem einnig var landsfrægur júdókappi og austantjaldsfari, líkaði sagan svo vel, að hann las hana upp í tíma og sagðist ætla reyna að fá hana birta í Þjóðviljanum. Hvort hún birtist þar veit ég nú ekki, en aðalmálgagn vinstri manna í MH, sem á þessum kaldastríðsárum gekk undir því ágæta nafni Skyggnir, tók greinina og birti með mínu samþykki.

Á Skyggni sálugum ríktu menn eins og Þorvarður Árnason, síðar  líffræðingur, sem um daginn var tekinn í því að hafa sopið sjóinn austur á Höfn í Hornafirði, og svo fjálglega að yfirborðið hefur lækkað til muna þarna kringum Hornafjörð samkvæmt hans eigin mælingum. Það gefur svo sannarlega eitthvað af sér í rannsóknarfé gæti mig grunað. Annar snillingur í ritstjórn Skyggnis var FB-vinur minn, heiðursmaðurinn Sveinn Ólafsson, sem menntaðist til að sinna bókum og skjölum og gerir það betur en flestir.

Mér sýnist að Skyggnir sé til í nokkrum bókasöfnum en blaðið er ekki hægt að lesa á Timarit.is. Úr því verður að bæta; ég á að minnsta kosti 1. árg. 2. tbl. Nóvember 1979. Ég teiknaði myndir af stuttbuxnaliði Sjálfstæðisflokksins í MH sem voru með í blaði Þjóðmálafélags MH árið 1979. Mig langar til að sjá þær myndir aftur.


Styttan sem átti að senda út í himinngeiminn

Screenshot 2022-04-15 at 15-41-11 40 Statue 1939 New York World's Fair Photos and Premium High Res Pictures - Getty Images

Myndin hér að ofan er tekin árið 1940 og er af listaverki Ásmundar Sveinssonar, sem bar titilinn Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. 

Verkið var til sýnis á 1939 New York World´s Fair og stóð í garði á sýningarsvæðinu fram til 1941. Styttan Ásmundar í New York var steinsteypt og stækkuð eftirmynd af verki Ásmundar, sem nú er dreift víða um heim í bronsafsteypum. 

Þessi saga fjallar einnig um tvær vígreifar konur í nútímanum, sem kinnroðalaust hafa viðurkennt fyrir alþjóð að þær fjarlægðu afsteypu af styttunni af Guðríði Þorvarðardóttur af stalli sínu vestur á Snæfellsnesi. Listakonurnar notuðu slípirokk og önnur groddaverkfæri við verknað sinn. Þær eru næsta upp með sér af þessi skemmdarverki sínu. En af eftirfarandi má vera ljóst að þær hafa enga ástæðu til þess að vera það.

Gudda í Vatíkaninu

Ég ritaði örlítið um eina af afsteypum af styttu þessari hér um árið, en á ítölsku (sjá hér og þýðið með google translate).

holy_trinidad_1078876

Það var um það leyti er fyrrverandi forseti lýðveldisins Ólafur Ragnar Grímsson gaf þýska páfanum í Rómi afsteypu af uppkasti Ásmundar Sveinssonar að styttunni af Guðríði. Okkar ástkæra frú Dorrit Grímsson bar við það tækifæri kaþólska prestshúfu sem vakti mun meiri athygli í Vatíkaninu (sjá hér) en rasistabílætið frá Íslandi.

Eftir sýninguna í New York árið 1939 hvarf styttan af Guðríði Þorvarðardóttur af yfirborði jarðar. Hún er enn á lista Interpol yfir stolinn þjóðararf Íslands.

Stoltir listamenn og skemmdarvargar tjá sig á RÚV

Screenshot 2022-04-15 at 19-59-47 Styttan rasísk og alveg í lagi að nema hana á brott

Listakonurnar fóru um daginn í viðtal á RÚV, þar sem þær skýrðu gjörning sinn. Þær söguðu einfaldlega Guddu af stalli með slípirokki eins og þær væru nánustu ættingjar keðjusagarmorðingjans í BNA. En um leið gáfu þær, og líklegast án þess að vita það, nasaþefinn af hinu dæmigerða viti skroppna samfélagi sem Ísland er að þróast í, þar sem dellur, dillur og fáviska ættaðar frá Vesturheimi ná heljartökum á fólki.

Listamennirnir héldu því fram, að Íslendingar hefðu verið valdir að fyrstu nýlendustefnunni á Grænlandi. Þar brást skólakerfið á Íslandi heldur betur eins og oft áður, nema að listakonurnar sé því vitlausari.

Kennsla um nágrannaþjóð Íslendinga á Grænlandi hefur ávallt verið í mýflugumynd á Íslandi vegna fordóma í garð Inúítanna/Grænlendinga, sem nú berjast fyrir sjálfstæði sínu undir hæl Stórdana.

Því er kannski ekki nema von að listakonurnar viti ekki að þegar norrænir menn (Íslendingar) settust að á Grænlandi var engin föst byggð Inúíta á þeim svæðum sem norrænir menn settust að á, hvorki í Eystribyggð né í Vestribyggð. Vankunnátta listakvennanna með slípirokkinn er skammarleg, en vankunnátta Íslendinga endurspeglar einfaldlega almennt áhugaleysi Íslendinga á Grænlendingum. Íslendingar hafa, eins og vel er kunnugt, ekki viljað vera settir í bás með Grænlendingum.

Nýr óvinur búinn til í þætti á RÚV: Rasistinn Moses

Brussurnar tvær með slípirokkinn héldu því einnig stoltar fram í útvarpsviðtalinu að stytta Ásmundar Sveinssonar á Heimssýningunni hefði síðar verið í vörslu "alþekkts bandarísks rasista" sem þær nefndu til sögunnar sem Robert Moses.

Þar kemur enn í ljós afburðarheimska slípirokkaranna, sem skáru Guddu af stallinum vestur á Snæfellsnesi, vegna þess að hún var "hvít" (afsakið litgreininguna). Hugsanlega kunna þessar konur ekki að afla sér heimilda.

800px-Robert_Moses_with_Battery_Bridge_modelRobert Moses (1888-1981) var gyðingur, sem er vitanleg ekki í frásögur færandi í Bandaríkjunum og alls ekki í New York.

En eins og gengur með marga meðlimi ofsóttra þjóðflokka vaxa fljótt á suma þeirra hjólsagir á olnboganum. Moses gegndi fjölda embætta í tengslum við borgarskipulag New York-borgar og var því ekki vinsælasti maðurinn í borginni fyrir að leyfa sér sem gyðingi að vera framagjarn.

Moses fékk fyrst rasistastimpil á sig, þegar blaðamaður einn, Robert Caro að nafni ritaði bók um hann árið 2007, sem fjallaði um borgarskipuleggjandann Moses.

Caro hélt því m.a. fram í bókinni að Moses hefði fyrirskipað að vatnið í sundlaugum sem hann lét byggja til að bæta hag New York-búa ætti að fylla með vatni á ákveðnu hitastigi, svo svartir (afsakið vinsamlegast orðalagið) færu ekki í sund, þar sem þekkt væri að blökkumenn (afsakið aftur orðalagið) þyldu ekki svo kalt vatn.

Þessi hugmynd varð reyndar algjörlega til í höfðinu á Robert Caro og fyrir henni er hvorki fótur né heimildir. Heimildir sýna annað en Caro heldur fram í bók sinni um Moses. Út úr höfði Caros kom einnig sú staðhæfing að vegabrýr út til almenningsstranda borgarinnar hefðu verið hafðar svo lágar að undir þær gætu ekki ekið strætisvagnar, og þar með ekki negrar. Í dag er vitað að þessar ógeðfelldu greiningar Caros eru vægast sagt uppspuni og versti blaðamannatilbúningur sjá t.d. hér. Reyndar var það svo að strætisvagnar komust alla tíð auðveldlega til stranda New York, en svartir þrælar borgarinnar voru ávallt að þræla fyrir lúsalaunum og gátu ekki veitt sér þann munað að fara út á strönd fyrr en síðar á öldinni. Þannig er það í BNA þar sem margir vilja helst greiða fyrir stríð og óöld trúða í Evrópu.

En Íslendingar eru aftur á móti mataðir af söguníðingum með slípirokk á RÚV. Þeirra útlegging er að gyðingurinn Moses hafi verið rasisti og hafi stolið styttu hins saklausa íslenska listamanns Ásmunds Sveinssonar. Alvísu spunakonurnar með rokkinn hafa spunnið á RÚV og hin auðtrúa þjóð segir "Hallelúja". Þjóðin verður kannski aldrei betri en útvarpið hennar? 

Afkomendum Moses hefur nú verið kynnt sú alvarlega ásökun sem sett hefur verið fram á ríkisfjölmiðli á Íslandi á hendur afa þeirra. Afkomendurnir, Solomon og Sue U. Moses munu hafa samband við íslensk yfirvöld vegna ófyrirleitlegra ummæla íslensku skemmdarvarganna um Robert Moses. Listakonurnar verða að sanna að Moses hafi stolið verki Íslenska listamannsins, sem kallaði það "Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku" og það örugglega undir þrýstingi frá Kananum.

Bertold_largeFjarskyldur ættingi Robert Caros, reyndi  að komast til Íslands. Hann hét Berthold Caro (f. 1990, mynd til vinstri). Honum var hafnað árið 1937 og svarið fékk hann frá sendiherra Dana í Berlín (dags. 27. januar 1937), því hann sendi fyrirspurn sína um búsetu á Íslandi til hans. Herluf Zahle sendiherra hafði hins vegar fyrirmæli um hvernig honum bæri að svara gyðingum varðandi Ísland. Kynþáttahatur leynist víðar en í henni Ameríku, þar sem hin mjallhvíta Gudda fæddi Snorra litla Þorfinnsson. Reyndar komst Bertold Caro til S-Ameríku, n.t. til Bólivíu, þar sem hann andaðist 25. ágúst árið 1948, aðeins 58 ára að aldri.

Þess má geta að í útvarpsþætti á RÚV nýlega, þar sem gerð var grein fyrir furðulegum rannsóknum bandarísks listakennara á flóttamönnum á Íslandi, var því haldið fram að nokkur nöfn, þar með tali Caro, sem ég nefndi í grein fyrir mörgum áratugum, væru uppspuni, þar sem Bandaríkjamaðurinn hafði ekki fundið þessi nöfn í þjóðskalasafninu í Reykjavík. Aumingja Kaninn var svo illa að sér, að hann vissi ekki að fæstir gyðingar sem leituðu eftir landvist á Íslandi gerðu það ekki hjá íslenskum yfirvöldum. Þeir leituðu fyrst og fremst til sendiráða og konsúlata í Evrópu, líkt og Caro. Megi Bertold Caro hvíla í friði fyrir fávitum og loddurum sem rekur að ströndum landsins.

Tumba_Bertold_1_large

Legsteinn Bertolds Caro í La Paz í Bolivíu

Gudda var ekki sú fyrsta sem fjölgaði hvíta manninum í Ameríku

En hún var reyndar ekki fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Það var Freydís Eiríksdóttir hins rauða, sem var mágkona Guðríðar um tíma. Freydís var alveg á pari við verstu rasista Ameríku síðar meir. Freydís átti sér leynivopn sem fáir myndu fúlsa við í daga í baráttu við "óæðra fólk" sem um tíma var forsetamarkað sem Bad People af löglega kosnum en kexrugluðum forseta BNA.

Freydís sletti einfaldlega brjóstum sínum á sverði til að hræða líftóruna úr "skrælingjum", en tók einnig þátt í fjöldamorðum þar Westra.

freydis

Mér þykir reyndar ekki ólíklegt að Freydís, fyrsta "hvíta" mamman í Vesturálfu, hafi talið brandinn sinn álíka stórfenglegt vopn og kynsystur hennar, skemmdavargarnir tveir, telja titrandi slípirokkinn sinn vera í dag. Það er einnig greinilegur ættarsvipur með þeim og Freydísi í Sögusafninu.

The "Missing Nipples" og pólitísk rétthugsun

Gudda with nipples in 1939

Ólíklegt þykir mér að hin hreinlynda Guðríður hafi haft  drápstæki eins og Freydís og listavargarnir, en þegar hún var afhjúpuð í Nýju Jórvík árið 1939 hafði Ásmundur gefið henni attrébút sem að mati sérfræðinga Fornleifs voru engu síðri.

Gudda Americana var með þessar gríðar brjóstvörtur sem kíktu út gegnum serk hennar eins og íslenskur þjóðarsómi. But Now these famous nipples are just a Saga.

Minus nipples

Pólitískt kórrétt Gudda, án brjóstvarta. Ofar má sjá brjóstvörtur þær sem Ásmundur Sveinsson skapaði Guðríði með fyrir sýninguna í Nýju Jórvík árið 1939. Töluverður munur er á styttunni sem var í New York og víðförlu styttunni af Guðríði nútímans. Greinilegt er, að einnig hefur verið framið eins konar "nose job" á Guðríði síðan hún póseraði stolt með batteríin í Nýju Jórvík. Ekki er heldur laust við að tyllinn á Snorra hafi verið stærri í New York en þegar hann var sendur til Vatíkansins, og það kannski ekki alvitlaus varnaraðgerð. Hér fyrir neðan sést að frummynd Ásmundar sem mynd birtist í Fálkanum árið 1939, er í engu lík hinni brjósvörtulausu hvítu Guddu sem er orðin útflutningsvara frá Íslandi. Styttan í New York var mjög trú frummynd Ásmundar Sveinssonar

Falkinn 1939 b

En á nýjustu útgáfunum af Guddu, sem Ásmundur Sveinsson hefur ekkert komið að - og sem sendar hafa verið til Kanada, Vatíkansins, Laugarbrekku, að Glaumbæ í Skagafirði og jafnvel víðar - hafa brjóstvörturnar á Guddu augsjáanlega verið sargaðar af. Kannski tottaði Snorri Þorfinnsson þær svona harkalega í Vesturheimi, enda annálaður brjóstakall? En líklegra þykir mér nú að einhver náhvítur siðapostuli nútímans hafi fjarlægt þær með slípirokk. Siðvendni Íslendinga er greinilega ekki við bjargandi og er jafnvel heldur meiri en í BNA, þar sem brjóstvörtur eru ekkert mál, nema að maður sé svartur.

Niðurstaða

Guðríður Þorvarðardóttir var kannski fyrsta hvíta móðirin í Ameríku, en Íslendingar eiga enn heimsmet í vitleysum.

iceland-wf-186r c

Á sýningunni í New York árið 1939 var Leifi heppna gert mun hærra undir höfði en Guðríði Þorvarðardóttur. Hann var hafður úti fyrir húsi Íslands á sýningunni. Leifur setti Guddu í samband við fyrsta eiginmann hennar, sem dó úr sótt. Annar maður hennar Þorsteinn Eiríksson Rauða, bróðir Leifs, dó úr farsótt. Þriðji maðurinn sem kvæntist Guðríði var Þorfinnur Karlsefni. Eignuðust þau soninn Snorra ca. árið 1004. Sumir vindhanar fræðanna og dellumakarar á Íslandi hafa haldið því fram að Snorri Þorfinnsson hafi fæðst á eyjunni Manhattan. Ja, það er ekki nema von að Íslendingar séu herslausir í NATÓ. Þeir berjast sökum fornar frægðar og brjóstaskaks á Vínlandi.


Eitt sinn var útsýnið gott úr Grjótaþorpinu

IMG_4101 d

Fornleifssafni vex fiskur um hrygg. Nýlegur safnauki kúnstkammers Leifs er Laterna magica myndskyggna frá 19. öld - nánar tiltekið frá 1882 eða 1883. Myndin er vafalaust ein af fyrstu "litljósmyndunum" sem til eru af Reykjavík. Myndin er vitaskuld handmáluð. Ég hef áður lýst einni slíkri mynd sem einnig er í Fornleifssafni en hún sýnir Austurvöll, Dómkirkjuna og Alþingishúsið (sjá hér).

Mynd þessi er gefin út af Riley Bræðrum (sjá frekar um þá og starfssemi þeirra til að kynna Ísland hér), og var gefin út með númerinu 4 í Standard V seríu fyrirtækisins árið 1893. 

David Francis safnvörður á Kent Museum of the Moving Image  hefur upplýst Fornleifssafn að safnið í Kent eigi sömu skyggnuna úr Standard V seríunni en ekki handlitaða. Eldri myndir af höfuðborgum og þorpum Evrópu sem til voru á lager úr eldri seríum Riley bræðra var safnað í nýja seríu, sem kölluð var Standard V. Þetta upplýsir Mr. Francis:

The slide you illustrate is the same as no 4 in the Standard V set. The Museum has the complete Standard V set. Riley Brothers "Standard" Series  were made up of odd slides they had in stock which were then worked into meaningful sets.

Meira um Mr. Francis hér.

Myndin var tekin af Sigfúsi Eymundssyni og hægt var að kaupa þessar myndir hans á ljósmyndastofu hans í Reykjavík. Á ljósmyndastofu Sigfúsar lá frammi albúm sem menn gátu pantað myndir úr og er það albúm á Þjóðminjasafni Ísland. Safnið hefur verið spurt um hvort mynd þessi sé í albúmi ljósmyndastofu Eymundssonar. Sumar myndir hans bárust til Bretlandseyja og voru notaðar við gerð Laterna Magica skyggnumynda. Meira má lesa um þá iðn í þessari grein Fornleifs, þar sem farið er ítarlega yfir Íslandsseríur Riley-bræðra og annarra skyggnumyndaframleiðenda á Bretlandseyjum.

Nýja myndin í safni Fornleifs er tekin úr vestri. Fúsi karlinn hefur staðið fyrir ofan Aðalstræti og eilífað höfuðstaðinn. Lóðirnar þrjár sem sjást fremst á myndinni eru neðst í Grjótahverfi. Litla húsið lengst til hægri var þar sem Túngata og Kirkjustræti mætast. Ingó á Horninu bjó þarna miklu fyrr.

Austar í Kirkjustræti var númer 10 risið (1879), sem og Alþingishúsið, en við austanverðan Austurvöll, þar sem Hótel Borg er í dag, má sjá elsta pósthúsið í Reykjavík. Styttan af Thorvaldsen var komin á stallinn árið 1874.  Allt smellur þetta vel við dagssetninguna 1882-83. Eymundsson 1886

Ljósm. Þjóðminjasafn Íslands.

Árið 1943 voru sumar af borgarmyndum Eymundssonar gefnar út á prentuðum einblöðungum sem ferðamenn gátu keypt sér. Það væri álíka og ef Rammagerðin færi í dag að selja ljósmyndir frá æsku ritstjóra Fornleifs. Menn söknuðu greinilega gamla tímans í Reykjavík árið 1943. Hvenær fara menn að fjöldaframleiða myndir af núverandi borgarstjóra?

Það voru oftast konur sem sátu og lituðu skyggnur sem framleiddar voru á Bretlandseyjum. Einnig var hægt að fá skyggnurnar ólitaðar, en þær lituðu þóttu fínni. Ef maður hefur í huga, að flöturinn sem litaður var, var innan við 8x8 sm., þá er hefur kona sú sem litað hefur þessa mynd tekist mjög vel við himininn austan við læk. Það er næstum því van Gogh-handbragð á penslinum og bleiki liturinn samofinn við þann ljósbláa og hvíta á himnum líkt og maður sér á ýmsum málverkum Vincent van Goghs frá því um 1888, þegar hann í ófá skipti málar sama ferskjutréð í Arles. Van Gogh var að sögn undir áhrifum frá japanskri list og drakk staup af grænum absinth þess á milli.

IMG_4101 f

Þannig lítur himininn út á skyggnu 4 úr Standard V seríunni, þegar ekki er lýst í gegnum hann. Ljósmynd V.Ö.V. 2022.


Vigdís, eina dökka barnið í bekknum

Umfjöllunin um Vigdísi Häsler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna fellur mjög að áhugamálum Fornleifs og sérfræðinga hans.

Stundum er hættulega skammt á milli sagnfræði og mannfræði annars vegar, og kynþáttafordóma hins vegar. Lýsingarorð geta líka verið hættulega eitruð í notkun eins og allir vita. Líkt og menn varast eftir bestu getu að nota rangan lit af skóáburði þegar þeir bursta skó sína, þarf að vanda val sitt á orðum þegar maður lýsir öðru fólki. Ég segi t.d. að allar konur séu gullfallegar, og hef enn ekki verið skammaður fyrir að smyrja of þykku lagi af hróskremi á hin ýmsu sköpunarverk Guðs á Íslandi.

Hassler

Ég stal þessari ágætu mynd úr Bændablaðinu af Vigdísi Häsler, gullfallegri og myndarlegri konu sem hefur tekist að fá Íslendinga til að gleyma litla Volodimyr eitt andartak og stríði hins frjálsa heims við vonda, illgjarna og dvergvaxna morðingjann í austri.

Vegna þráláts orðróms um að sumir menn á Íslandi sjái svart þegar þeir sjá Viggu yfirbónda, leyfði mér í gær að setja Vigdísi í litgreiningarforrit sem ég á í tölvunni.

Aðeins 17% myndarinnar reyndust svört. Það er mun minna en t.d. hjá Will Smith sem talinn er vera "black American", án þess að slá mann kinnhest í beinni fyrir að halda því fram.

Ég setti þvínæst nafnið Häsler í annað forrit sem gaf þá niðurstöðu, að það væri alþýskt nafn og fjarskylt Hitzler og álíka nöfnum. Vigdís leynir því greinilega á sér. Í lokin kom ALERT, óhljóð og eftirfarandi tilkynning: This individual is most likely a lawyer, beware she might sue you. Það mun vera nokkuð góð greining.

Bændablaðið upplýsti á sínum tíma, að stórbú Vigdísar væri í Garðabæ, en blaðið greindi því miður ekki frekar frá búskap hennar. Mér þykir líklegt að það sé einhvers konar fjárbúskapur, en það kann að vera rangt og byggja á fordómum mínum.

Lengi hafa menn vitað að að Framsóknarflokkurinn notar Rígsþulu til að lit- og kyngreina fólk, því það er öruggara en nútímalitgreining og eftirnafnakukl.

Ég hef persónulega lent í þessum fordómum flokksins. Í stað gargandi rifrildis í fjölmiðlum ritaði ég einfaldlega grein um galla sérútvalda Íslendinga þegar kemur að útlendingahatri, fordómum og sjúklegri sjálfvæntumþykju.

Svarti liturinn er líklegri, en aðrir annmarkar á fólki, til að menn freisti málsóknar gegn bleikbelgjuðum barónum Íslands, en gyðingahatur hafa aftur á móti ávallt verið talin grundvallarmannréttindi meðal félagsmanna flestra stjórnmálaflokka á Íslandi. Á okkar tímum er slíkt hatur eðlilegt athæfi í ýmsum flokkum á vængbrotna vinstri vængnum, nema að menn séu að tala um litla Volodimyr í Kív.

Sem dæmi um hvað ístruvaxnir, rauðbirknir framsóknarjarlar tönnlast lágmæltir á, fyrir utan svarta litinn, eru hér nokkur heilræði úr Rígsþulu um hvaða kyn heldri menn eins og Rígur eiga að varast er þeir leggjast í tilfallandi rekkjur á yfireiðum sínum um lendur:

 

Þar var hann at þat

þríar nætr saman,

gekk hann meir at þat

miðrar brautar;

liðu meir at þat

mánuðr níu.

 

Jóð ól Edda

jósu vatni,

hörvi svartan,

hétu Þræl.

 

Hann nam at vaxa

ok vel dafna;

var þar á höndum

hrokkit skinn,

kropnir knúar,

fingr digrir,

fúlligt andlit,

lotr hryggr,

langir hælar. ...

 

Þar kom at garði

gengilbeina,

aurr var á iljum,

armr sólbrunninn,

niðrbjúgt er nef,

nefndisk Þír.

 

Uppsala

Þessi hálærða framsóknarkona fékk verðskuldaðan doktorstittling í Uppsölum, fyrir rannsóknir sínar á svarta litnum í íslenskum miðaldakveðskap.

Nú síðast fann ég ágætt íslenskt forrit sem ég tróð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna með herkjum inn í. Forritið spýtti henni þó umsvifalaust út með þeim ummælum að hún væri með 96,7% líkum "Tæja". Ég hef einu sinni heyrt eldri hjón tjá sig um "gráðugar Tæjur", sem hópuðust fyrir framan kjötborðið í Hagkaupum í Kringlunni, því svínakjöt var á sértilboði þann daginn. Mikill hamagangur var í öskjunni og gekk það fram af gamla fólkinu sem einnig vildi komast í eitthvað feitt hjá SS. Ég gafst upp á slagnum um grísakjötið, því ég var aðeins á höttunum eftir lambakjöti. Verðið á heilögu lambinu hafði vitaskuld verið sett upp í tilefni lækkunarinnar á svíninu. Hélt ég rakleiðis í Nóatún. Ekki gef ég því mikið fyrir forritið sem gerði Vigdísi að Tæju, því nú veit ég vegna svartagallsraussins í Sigurði Inga, að Vigdís er vitaskuld frá Indónesíu.

Frændur okkar í Indónesíu eru ekki svartir. Sigurður Ingi þarf að fá sér betri gleraugu vegna þessarar myrku siðblindu sinnar sem nálgast algjöra nethimnulosnun. En kvilli þessi og hræðsla hans við allt sem virðist meira framandi en Massey Ferguson dráttarvél er nú ekki bara landlægur í Framsóknarflokknum.

Má segja að maður sé dökkur að lit þegar hann er það, þótt svart sé bannað?

En dökk er hún Vigdís sannarlega, og ekki er hægt að reka mig fyrir að segja það. Þannig var henni einmitt lýst í viðtali í Morgunblaðinu á því herrans ári 2012. Kannski á nú líka að banna Morgunblaðið eins og Illuga Jökulsson dreymir þrálátlega um, og um leið samtökin Íslenska Ættleiðingu sem einnig birti hina dökku lýsingu Moggans á Vigdísi Häsler?

Mikið er heimurinn nú bjartur hjá því fólki sem veltir sér upp úr svartagallsrausi íslenskra sérleyfishafa á allar hreinar hugsanir og kórréttar. Á það fellur sjaldan skuggi, nema helst skuggi hárreistrar heimsku. Hafa menn engar aðrar ólar að eltast við?


Rauða Torgið: Cut and Paste kemur til Íslands

IMG_8076 b

Er ritstjóri Fornleifs var miklu, miklu yngri en hann er i dag, var hann ekta sjónvarpsbarnastjarna og það langt á undan Boga Ágústssyni.

Stundin Okkar hét og heitir mikil menningaþáttaröð í Sjónvarpi á Sunnudögum, sem óefað er sá þáttur í Sjónvarpi sem lengst hefur gengið fyrir utan Bogafréttir. Þetta var á þeim árum að fólk leiddist út á hálar dráttarbrautir glæpa vegna þess að það var akkúrat ekkert í Sjónvarpinu á fimmtudögum.

En um sexleytið á Sunnudögum horfðu allir á Stundina Okkar. Einnig ykkar einlægur, sem bæði horfði á RÚV og Kanann, enda upp alinn á heimili, þar sem lengstum voru tvö svokölluð sjónvarpsviðtæki.

Fúsi Flakkari

Ég brilleraði hálfgert í spurningaleik fyrir krakka sem öðlingurinn Pálmi Pétursson stýrði. Hin landselskaða Kristín Ólafsdóttir stjórnaði Stundinni og menningardúkkan Fúsi Flakkari var helsta viðnámið gegn Roy Rogers og týnda kjötfarsinu í Herstöðvarsjónvarpinu frá Vellinum, sem enn var erfitt fyrir Menntamálaráðuneytið að ráða niðurlögum á um 1970. Sögusagnir herma, að Fúsi Flakkari og Bogi Ágústsson séu ein og sama persónan. Einhver tengsl eru líka við Hrannar Björn Arnarsson, þótt óljós séu.

Pálmi Pétursson hafði verið bekkjarkennari minn í 4. bekk (9. ára bekki) í Æfinga og tilraunaskóla Kennaraskóla Íslands, sem í dag ber hið borgaralega nafn Háteigsskóli. 

Screenshot 2022-03-30 at 09-43-39 18020274

Pálmi tók nokkra krakka úr gamla bekknum sínum og var með spurningakeppnir 1970-71. Það var eins og Pálmi hefði aldrei gert annað. Hefði hann verið upp á sitt besta síðar á öldinni hefði hann ekki haft undan því að stjórna skemmtiefni í Sjónvarpi.

Pálmi hvarf langt fyrir aldur fram yfir í annan heim Alzheimerssjúkdómsins. Ég var eitt sinn, snemma á 9. tug 20. aldar, á leið heim úr miðbænum í vagni nr. 3. Ég var í vetrarleyfi á Íslandi, en þá bjó ég í Danmörku. Ég sé Pálma og geng til hans og heilsa á hann. Hann þekkti mig ekki og ég sá þegar að eitthvað var að. Sambýliskona hans, að því ég tel, skýrði í fljótheitum hvers kyns var og ég sagði bara að Pálmi hefði eitt sinn verið kennarinn minn. Hann var frábær karl í alla staði og kunni sitt fag, sem ekki var hægt að segja um suma aðra kennara í fyrrnefndum tilraunadýraskóla.

Fólk tók fljótt eftir hvolpafeitum og hrokkinhærðum dreng, sem ekki var kominn yfir í hina hræðilegu bítlatísku. Á kvenfélagsfundum um land allt var mikið talað um þennan vel klædda og kembda dreng: "Bara að öll börn væru eins og hann" heyrðist sagt á bestu bæjum.  "Vertu eins og strákurinn í Stundinni okkar" heyrðist oft í Vesturbænum.

En svo breyttist allt á einum sunnudegi rétt eftir kl. 18. Idealkrakkinn, pattaralegi drengurinn í P&O fötunum frá C&A og SÍS féll af stjörnuhimnum því hann vissi hvar mynd sem liðunum var sýnd, var tekin. Upp fór armurinn og litla gáfnaljósið setti upp lítillætissvipinn og másaði næstum af gleði með byltingarglóð í aguum: "Rauða torgið í Mosku".

Í Velvakanda var vart ritað um annað í tvær vikur. Drengur í Stundinni okkar var svo heilaþveginn að hann vissi hvað Rauða Torgið var. Hannes Hólmsteinn Gissurarson helgaði síðar þessari spurningakeppni heilum kafla í einni af bókum sínum um Hættur Kommúnismans. Ég hafði reyndar aðeins séð Rauða Torgið á forsíðu Moggans.

9687624325_cab8b82b79_b

Ég lifði lengi á frægðinni úr þessum þætti. Það var tekið eftir þessu hjá Alþýðubandalaginu, og Þjóðviljinn rómaði þessa spurningaleiki Pálma Péturssonar, enda voru þeir góðir.

Langt fram yfir fermingaaldurinn var ég spurður, hvort það hefði ekki örugglega verið ég sem vissi hvað Rauða Torgið í Moskvu var; Og eins og þið sjáið var ég enn nokkrum árum síðar mjög upp með mér af því að vita það og lítillætissvipurinn var algjörlega farinn. Ég lifði lengi á Rauða Torginu.  Vilhjalmur-1978-0-Enhanced-Anima(1)Reyndar verður að viðurkennast, að besti heilinn meðal krakkana sem Pálmi Pétursson sérvaldi í Æfinga- og tilraunaskólanum fyrir þáttinn sinn var hún Olga heitin Harðardóttir, sem ég var lengi hálfskotin í vegna þess að hún var svo svakalega klár. Olga bjargaði alltaf okkar liði með hugarreikningi einum saman. Hugarreikningur í sjónvarpssal þótti góð og holl skemmtun fyrir börn í þá daga.

Jón Atli Benediktsson, í daglegu tali kallaður Beni Speni, núv. rektor HÍ, komst með í aðra umferð hjá Pálma Péturssyni í Stundinni. Jón brosti bara og sagði aldrei neitt og gat ekkert reiknað. En það skipti engu máli, þegar við höfðum Olgu Volgu. Jón Atli vildi bara komast í návígi við Fúsa Flakkara og var afar lukkulegur með að hitta hann í eigin persónu og talaði vart um neitt annað í heilt ár.

Fyrir fjölmörgum árum síðan, þegar einhver nostalgía færðist yfir ritstjóra Fornleifs, líkt og oft gerist þegar menn gerast eldri og virkum líffærunum þeirra fækkar, hafði ég samband við RÚV og spurði hvort að hugsanlega væru til einhverjir þeirra þátta sem ég trauð upp í án þess að fá greitt fyrir. "Bla,bla,bla ekkert var varðveitt, því þetta var tekið upp á fjölnota spólur og da dí da". Sem sagt - allt komið á öskuhauga sögunnar.

Því kemur sér vel fyrir íslenska sjónvarpssögu, að móðir vatnskembda drengsins í nælonskyrtunni með gáfumannabindið, lengst til vinstri á ljósmyndinni efst, var duglegur áhugaljósmyndari.

Fyrir daga Vídeós og Windows datt henni það snjallræði í hug að taka ljósmynd af sjónvarpstækinu í svefnherberginu. Hún skaut nokkrum sinnum, og með flassi sýnist mér.

Útkoman var því miður ekki góð, en Erla Vilhelmsdóttir (nú á 93. aldursári), gafst aldrei upp. Hún framkvæmdi Cut & Paste og það löngu á undan sinni samtíð. 

Þetta afrek mömmu litla kommúnistans á Rauða Torginu hefur varðveist fram á okkar daga. Efst sjáið þið andartak úr spurningakeppni barna í Stundinni Okkar árið 1970.

Ef einhver á betri myndir, hafið endilega samband.


Gullskipið enn eina ferðina

het_wapen_van

Í gær var frumsýnd heimildakvikmynd um leitina að Het Wapen van Amsterdam, gullskipinu sem sumir kalla svo. Sú leit er víst enn í gangi vegna misskilnings ævintýramanna sem ekki hafa fyrir því að lesa heimildir. Þessir ævintýramenn geta greinilega fengið í lið við sig auðtrúa fólk sem ekki hefur heldur hænuvit á því hvað heimildir og heimildarýni gengur út á. 

Mér til mikillar furðu voru mér færðar þakkir í rúllutexta síðast í þættinum. Ja, fyrir hvað, er mér spurn?

Screenshot 2022-03-14 at 08-37-33 Leitin að Gullskipinu - RÚV Sjónvarp

Fundur minn með Jóni Ársæli Þórðarsyni í Kaupmannahöfn 2019

Ég hélt fund yfir nokkrum kaffibollum og bakkelsi á listasafni í Kaupmannahöfn með Jóni Ársæli Þórðarsyni, sem ólmur vildi fá mig með í þáttinn þennan, þó hann þekkti afstöðu mína til allra leita að skipinu fram á okkar dag. Um skoðanir mínar er hægt að fræðast hér á blogginu Fornleifi.

Ég benti Jóni Ársæli á það sem ég hef skrifað um skipið (hér, hér og hér) og sé ég að lítið af því hefur komist til skila í þættinum. Svo vart er mér þakkað fyrir það. Ég heyrði aldrei frekar í Jóni eftir fund þennan, enda hefur honum örugglega skilist á mér að ég hefði lítinn áhuga á því að ræða dagdrauma fjársjóðaleitarmanna og furðudýrafræðinga.

Jón blessaður veiktist svo eins og alþekkt er orðið, og það mjög illilega af Covid-veirunni. Ég heyrði ekki meira frá Jóni um þáttinn fyrr en ég sé hann nú í gær. Nafn mitt á ekkert erindi í rennitextann á eftir þættinum. Það er enn verið að skapa eitthvað ævintýri, og skáldskap. Mig grunaði að það væri tilgangurinn með þættinum og þess vegna er ég feginn að ég tók ekki þátt í því að veita leitinni gæðastimpil forleifafræðings.

Aðrir meistarar nálarinnar í sandinum

Hinn látni meistari Þórður Tómasson í Skógum kemur fram í þættinum og fer því miður með rangar upplýsingar um kistuspjöldin. Hann hefur greinilega lesið greinar mínar en aðeins munað hluta úr því sem ég skrifaði. En gaman var að sjá Þórð, þarna á 100 ára afmæli sínu.

Þór Magnússon var einnig fyllingarefni, en hafði að vanda frekar lítið að segja. Áhugaverðara hefði verið að fá að vita, af hverju hann fór að trúa að því að skipið væri fundið skömmu áður en þýski togarinn birtist holunni miklu á sandinum.

Ómar Ragnarsson var þá nokkuð merkilegri til viðræðu og sagði það sem hann hefur áður haft eftir heimamönnum: Að leitað hafi verið á röngum stað á söndunum, þ.e.a.s á Svínafellsfjöru, en ekki á Skaftárfellsfjöru sem heimamenn tengja strandinu. Ómar benti einnig réttilega á breytileika árfarvega á söndunum og hvernig staðfræði sandanna hefði ef til vill breyst gegnum tíðina við það.

Fyrst mér er þakkað í heimildamyndinni, leyfi ég mér að setja hér hlekki (hér, hér og hér) í greinar sem ég hef skrifað um skipið Het Wapen van Amsterdam hér á Fornleifi, svo fólk geti lesið um vitleysuna sem hefur verið í gangi um áratuga skeið.

Upphaflegu gullskipaleitamennirnir höfðu engan áhuga á að vita hvað hollenskumælandi menn sögðu þeim og sýndu þeir samt þeim mönnum sem samband var haft við hroka og útlendingafyrirlitningu. Hér á ég við föður minn, sem þeir höfðu samband við, en vildu ekki hlusta á skýringar hans og þýðingu.

Síðar var notast við mann sem síðar var fréttamaður hjá RÚV, sem Gullskipsmenn vildu heldur trúa en þeim sem gátu lesið hollenskan texta. Það var Þorvaldur Friðriksson, sem var með í þættinum. Sem dæmi um þýðingartilburði hans á 17. aldar hollensku var að hann þýddi orð sem notað var yfir rauða himnu múskatblómunnar, foelie, sem "kylfur" (sjá hér).

000004_1276016

Rauða himnan utan um múskatblómuna (hnetuna) er það sem Hollendingar kölluðu á 17. öld foelie. Hún var þurrkuð og þótti besti hluti Múskatávaxtarins. Þegar Íslendingar kaupa hana í dag malaða, er hún í umbúðum með enskum texta, og kallast Mace. Sérfræðingurinn Þorvaldur Friðriksson þýddi foelie sem "kylfur".   

Er ekki frekar kominn tími til að íslenska ríki gefi upp þá heildarupphæð sem íslenska ríkið setti í gullgrafaraverkefnið á Skeiðarársandi, vegna þess að stjórnmálamenn létu líka glepjast og létu sig dreyma um gull og geimsteina? Það var mikið fjármagn, sumir tala um 50 milljónir, aðrir segja að það hafi verið hærri upphæð. Það var fjármagn sem aldrei var greitt til baka í ríkissjóð. Ríkisstjórn notaði almannafé í fíflaskap og ævintýri leikbræðra úti á stærsta sandkassa landsins.

Það hefur því miður lengi verið ævintýrafólk í íslenskum stjórnmálum og því verður Alþingi aldrei betra fley en þeir sem sigla því. En Het Wapen van Amsterdam er löngu sokkið og í sjónvarpsþætti Jóns Ársæls var ekki  minnst einu orði á skýrslu sem rannsóknarstofnun Bandaríska flotans í Maryland ritaði á sínum tíma og sem lengi var að finna á skrifstofu starfsmanns eins á Þjóðminjasafni Íslands, Guðmundar Ólafssonar. Guðmundur er ekki þakkað í rennitextanum við þáttinn í gær, og því býst ég við að ekki hafi verið haft samband við hann. Er ekki kominn tími til þess að Þjóðminjasafnið taki skán af skýrslu þessari og setji hana á netið, svo gullleitarmenn framtíðarinnar, sem læsir eru, geti fræðst. Skýrlan er til í Þjóðarbókhlöðunni.

Ég sagði Jóni Ársæli frá þessari bandarísku skýrslu (sem ég á nokkur ljósrit úr) á Cafe Polychrom á den Frie i Kaupmannahöfn í september 2019, og Jón fékk einnig að vita, hvar hann gæti náð í hana. Skýrslan segir allt sem segja þarf um strauma og krafta í sandinum, sem taka ætti af allan vafa um að nokkuð sé eftir af skipinu góða sem sumir kalla "Gullskip" - vegna þess að þeir lifa í draumalandi, þar sem menn vilja ekki taka sönsum eða þroskast.

Krydd varðveitist ekki vel í sandi og leit að ímyndun er heldur ekki nógu sterkt krydd fyrir mig. Ómar Ragnarsson taldi sig aftur á móti finna furðulega lykt í sandinum þegar þýski togarinn var að birtast. Lyktin var að minnsta kosti ekki af karrýpylsum (Currywurst) frá Berlín, því þær komu fyrst til sögunnar þegar stríðshrjáðir Þjóðverjar fengu óhemjumagn af karríblöndu frá velunnurum sínum í BNA árið 1949.

Screenshot 2022-03-14 at 09-40-29 Leitin að Gullskipinu - RÚV Sjónvarp

Hér rekur Ómar Ragnarsson nefið í togaraleifar og telur sig finna kryddlykt. Svo fleygði hann barasta sönnunargagninu í sandinn eins og einhverjum sora. Kannski var þetta fnykur af kylfum Þorvalds Friðrikssonar.

Gísli Gíslason gullgrafari 21. aldar. tjáir sig í upphafi þáttarins, þannig að ljóst má vera að fræðilegur tilgangur með leitinni er ekki meiri eða merkilegri en hann var á 20. öld. hjá Björgunarkörlunum, sem ekki vildu, eða gátu, lesið sér til gagns.

"Við erum ekki að þessu til þess að auðgast; við erum að þessu til að taka þátt í ævintýri og auðvitað væri gott að finna eitthvað þarna til að koma einhverju í ríkiskassann - ekki veitir af og fá einhver verðlaun, það væri gaman."

Fullorðnir karlar þurfa stundum að leika sér eins og smápollar, og af og til kostar það nú skildinginn. Það er alltaf gaman að því þegar menn koma upp um sig í sömu setningu og þeir neita öllu. Svo er Gísli Gislason einnig kominn í bullandi samvinnu við Rússa sem verður að teljast mjög vafasamt á þessum síðustu og verstu tímum. Kannski dreymir karlana þá um að verða olígarkar, þegar gulli og gersemum verður dælt upp úr sandinum.

Gull var reyndar ekki grafið úr jörðu eða unnið í Indónesíu á 17. öld (þó svo að það sé gert í dag í hinni risavöxnu námu í Papúa-hluta eyjanna) og það gull sem lestað var í skipalestina, sem Het Wapen van Amsterdam sigldi með frá Indónesíu/Suður-Afríku, var sett í lestar annarra skipa í Suður-Afríku.

Myndin efst: er málverk af skipi VOC deildarinnar í Amsterdam. Þarna er mjög líklega komið skipið Het Wapen van Amsterdam, þar sem skjaldamerki Amsterdamborgar (Het Wapen van Amsterdam) er listilega útskorið og steint á skut skipsins. Þar stendur einnig Banda, sem var heimahöfn Het Wapen van Amsterdam í Indónesíu. Í upphafi sjónvarpsþáttarins um leitina að gullskipinu er akrílmynd af skipi sem ekki einu sinni er með skjaldamerki Amsterdamborgar á skutnum. Það hefði nú verið við hæfi, þar sem skipið dregur nafn sitt af því. 


Danish journalist visited one of Ukraine´s modern day heroes - or so he thought

myhail-gredil5-583x430

This is a modern-day story, from a continent being wrecked by short destructive men like Putin, Biden and the new minute-man on the block, Mr. Volodimyr Zelinskij.

Sorry, I do not believe in short heroes, except for short women heroes.

A week ago, February 28, Danish State Broadcasting Service (DR) reported from a town close to Lviv. The town is Horodok (one of 6 towns bearing that name in Ukraine) The short-news item was posted at 20:22 local time in Copenhagen by journalist Sean Coogan.

The Danish journalists visited an alleged NGO-aid organisation called NGO Apostelska Chota, which is being lead by a Catholic priest by the name of Myhail Gredil, who is an ordained priest who studied at the a seminary in Lublin, Poland (Katolicki Uniwersytet Lubelski Jana Pawla II).

275204234_10209087827309497_2387022777531835837_n

The priest Gredil in his ornate.

Gredil is a very special type of clergy, to say the least. Apart for fighting with his congregation of extreme-nationalist and antisemites, he runs an organisation, which apart from hailing Jesus and his venerable mother Mary (as he should), also hails the WWII Ukrainian Nazi-collaborator Stepan Bandera, who was responsible for the killing of thousands of Jews in the Ukraine in 1941 (See here).

The Holy Trinity of Horodok

275014129_10209087841029840_8669287079879739590_n

Jew murderer and present day Ukrainian National Hero, Stepan Bandera (1909-1959) overlooks Catholic aid in Horodok - Apostelska Chota headquarters.

274187949_1181924969006707_3748813061692230258_n

Mihayl Gredil teaches hate in the name of the Catholic Church when he is't fighting the Russian minority in East-Ukraine ...

myhail-gradil-13-750x430

...splashing Holy Water on cars full of material for the fight against the Russian aggressors, whom Gredil calls Jews.

275185172_10209093453610151_5947229913987288743_n

In the hall of the building which houses Apostelska Chota in Horodok, one finds a painting of Jesus on one wall, mother Mary on another, but the Nazi-congregation's real hero, the Jew-killer Stepan Bandera, hangs on the third wall. The new Holy Trinity in the Ukraine is Jesus, Mary and St. Bandera the Jew-slayer.

The Catholic Church has a problem (or two). Some of the Gods´ children which Jesus asked us to send to him are not so innocent. Is Myhail Gredil something the Catholic Church wants to support? I hope someone in the Vatican reads this blog and makes the necessary arrangement to remove Mr. Gredil from his priesthood. An anti-Semite is not, and will never be a representative of a Jew later known as Jesus Christ. But we have seen some horrible dispensations from that for the past centuries.

202828805_4005257376225467_4046744568086754004_n

Gredil´s going to shoot the bullets of God. Look, he is a short man too. A tiny guy.

Back in war-torn Ukraine. A hero-apostle has risen on the heaven of European (and seemingly Jewish) stars. Only few weeks ago many Ukrainians demanded Volodomyr Zelinskij out of office, with the help of weapons if necessary. They wanted the former president Pedro Porochenko back in office. Porochenko is an exiled major league criminal. His followers wanted him back into the presidential palace, because they believed that he would give Putin a more firm fight than Jewish Zelinskij.

Well, didn´t Zelinskij prove them wrong. He is going to fight to the bitter end against the small character from Russia. Unfortunately, however, he will confirm Putins´ claims about Nazis. However, It is still to be seen who the drug-addicts are.

It will also help his obvious sainthood that Mr. Volodomyr Zelinkij has also praised Jew-killer Bandera. No, not in an ironic way in his former, allegedly hilarious, stand-up comedy shows. He has done so in  office as the president of the Ukraine:  "There are indisputable heroes. Stepan Bandera is a hero for a certain part of Ukrainians, and this is "a normal and cool thing" for these guys. He was one of those who defended the freedom of Ukraine" See here.

000_324E6BP-e1646326432856-640x400

The "Jew" who believes that nasty killer of Jews, Stepan Bandera, was a hero for some and that it´s cool and normal. Please do not blame me for not percieving Zelinskij as "cool or normal", nor associate me with Putin for doing so. In my opinion Volodimyr Zelinskij is also a part of the problem.

Jews, who support short-guy Zelinskij against the tiny character Putin, can do so if they wish to. The best scenario, however, would be to back out of the Ukraine which was created by Lenin in the Bloodlands for so many a Jew. The area was once a home to millions of Jews. Now it is a battlefield for nations with post-traumatic stress disorder after the Soviet Union experience, where certain portions of the populations still engage in Nazi-like worship, believing it is an antidote to their Soviet experience (or their bad national conscience (if they have any at all), from the days the themselves engaged in the mass-killing of Jews).

Bundesarchiv_Bild_101I-186-0160-12,_Russland,_Misshandlung_eines_Juden

Ukrainians killing Jews on the Street of Lviv in 1941

Denmark State Broadcasting Service (DR)-journalist removed his news about the Nazi-Priest in Horodok

Am happy to tell you that journalist Sean Coogan removed the "good news" about the priest in Horodok. I confronted the journalist with my knowledge about Nazi-priest Gredil. The journalist quickly and politely responded to my e-mail and removed the item without me asking him to so. Presented with facts about Gredil he knew what the right thing to do was. He had had absolutely no idea about the character he had been advised to visit in Horodok. He is my journalist hero for the moment. Unfortunately journalists in my native country, Iceland, seem to know it all, although they were born yesterday, and never make mistakes nor correct them. The modern day hero-reporter in Iceland is sometimes more preoccupied in committing burglary to be able to create the news. I am not using the expression "fake news" - it has too great an association and toxic-orange feel to it for my taste.

However, I will gladly argue that some journalists in Iceland seem to have the same gene-defects as Donald with the dead ginger raccoon on his head - yes I men the former US president who wasn´t like Daniel Boone at all, and who respected Putin in his own, strange clockwork orange universe. But can emperor Putin be blamed for that?

This song is for Putin, Volodomyr and Biden - Don´t want no short people here:

My sincere apology to all decent short men and women of the World, who are not engaged in the destruction of Europe. We will make it up to you later. There are lots of songs about huge people.


Rjúpur í Upernavik 1889

IMG_6420 e FORNLEIFUR

Það er orðið langt síðan að maður borðaði rjúpur. Þær eru dýrari en gull og Kobekjöt íslensku elítunnar. Maður leggur ekki í slíkar fjárfestingar.

Forfeður mínir á Íslandi, sem voru vitaskuld eintómir fátæklingar, (þó sumir afkomenda viðurkenni það ekki og haldi að þeir séu furstar), veiddu sér einstaka sinnum rjúpur til að lifa af í íhaldssömu landi, þar sem lífsbaráttan var hörð við sömu valdaættirnar og enn stjórna og stela á Íslandi. Sem betur fór borðaði heldra fólk helst ekki yfir sig af illfygli, svo rjúpan var í þá daga nógu helvíti góð fyrir fátæklinga og þurfalinga, meðan stórbændur og prestníðingar átu á sig gat svo landið blés einnig upp í kjölfarið.

Börnin á myndinni bjuggu í Upernavík á NV-strönd Grænlands. Þau voru send til skoskra leiðangursmanna til að þakka þeim góð kynni og gefa Skotunum rjúpur í morgunmat. Skotarnir voru að leita að týndum leiðangri sem fórst við Grænland. Leiðangursmenn komu í alla staði vel fram við heimamenn og leiðangurstjórinn og bróðir hans tóku ljósmyndir sem þeir framkölluðu stundum samdægurs og gáfu fólkið á staðnum mynd af sér á pappír. Það vakti mikla lukku. Fyrr sama ár höfðu þeir gert það sama á Íslandi. Þeir voru gáttaðir á því að bæði Íslendingar og Grænlendingar þökkuðu með handabandi. Nokkrar rjúpur á Grænlandi gátu verið meira virði en sauður á Íslandi. Börnin halda þarna á stórri gjöf.

Síðan voru myndirnar sem ónískir Skotar tóku gefnar út í nokkrum eintökum á Latterna Magica skyggnum. Örfáar þeirra eru enn til í dag. Fornleifur á sumar af þessum grænlandsmyndum og hefur rannsakað þær niður í kjölinn og líklega fundið út hvað börnin á myndinni hétu og mun birta það í fræði(mynda)grein síðar á þessu ári.

Ég læt Grænlandsáhugafólk vita þegar sú grein birtist, ef litlu karlarnir í Rússlandi og Úkraínu hafa ekki sprengt upp heiminn fyrir okkur hinum sem reynum að njóta hans án lítilla karlam þjóðernisrembu, merkjablætis og eiturefna.


Kingur Haraldar Blátannar ?

Thjms 2033  fr re B

Það er kannski úrillt af mér, og jafnvel höfuðsynd samkvæmt sumum, að benda á að endurútgáfa doktorsverks Kristáns Eldjárns, Kumls og Haugfjár, hafi ekki verið mikil viðbót eða búbót við fræðin. Kristján var vissulega barn síns tíma. Bókin hans, sem var stórvirki árið 1956, var kannski ekki fullkomin er hún kom út, en viðleitni fræðimannsins var með eindæmum.

Þeir sem hafa staðið að endurútgáfum á verkinu hafa aftur á móti ekki haft burði til annars en að endurtaka vísdóm Kristjáns og hafa bætt litlu nýju við, þó margt sé orðið úrelt. Trú á ævarandi gildi Eldjárns 1956 er kannski ekki gjaldgengt á 21. öld.

Ekki ætla ég að núa þessum veikleika fræðanna frekar um nasir þeirra sem fengnir voru til að halda merki Eldjárns á lofti. Þeim tókst ekki að gefa verkinu endurreisn.

Í þetta sinn er ætlunin að ræða um "silfurkross til að bera í festi", sem er líklegast er hvorki kross né undir "býsönskum" áhrifum eins og Eldjárn ályktaði með vísun í eldri menn. Þó hann skrifi ekki mikið um lausafundinn sem ég tók mynd af sínum tíma (sjá efst; ljósm. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson), þekkti Kristján til þess sem hafði verið skrifað um þessa gerð gripa, sem Kristján kallaði alla jafnan kingur.

En eftir 1956 og fram til endurútgáfu Kumls og Haugfjár, hefur mikið fljót runnið til sjávar í fræðunum. Fólk sem gefur út gömul fræðirit eins og Kuml og Haugfé ættu að hafa til þess burði að leita upplýsinga um nýja vitneskju. En því er ekki fyrir að fara, þó mikið hafi verið skrifað um gripi sem þessa.

Árið 2020 kom út harla gott verk, sem gefið er út af félagsskap danskra áhugafornleifafræðinga, Danske Amatørarkæologer (DAA). Ritið ber titilinn Glimt fra Vikingetiden. Fyrir utan að greina frá helstu fundunum frá Víkingaöld sem fólk með málmleitartæki hefur fundið á undanförnum árum, er bókin gott dæmi um gott samstarf milli danskrar fornleifafræði og áhugamanna sem fara í flokkum um nýplægða akra Danmerkur í leit að forngripum (með leyfi landeigenda). Flest þessara málmleitarmanna og kvenna skila fundum sínum á söfn og gegna því á margan hátt mikilvægu hlutverki fyrir fræðin. 

Helsti sérfræðingurinn um það sem hún kallar Rovfugleøsken-smykker er fyrrverandi kennari minn við háskólann í Árósi í Danmörku, Else Roesdahl. Roesdahl vinnur enn við fræðin og bætir við þau mörgu góðu, þó hún sér komin á eftirlaun. Hún hefur enn aðstöðu á Moesgaard og mætir þar reglulega og rannsakar Víkingaöldina sem er hennar sérfræðisvið.

Else Roesdahl er með góða grein í bókinni Glimt fra Vikingetiden (2020), þar sem hún kallar Magtsymboler - Harald Blåtands Rovfuglesmykker, þar sem hún rekur nákvæmlega rannsóknarsögu og gerðafræði þessara Ránfuglaskartgripa frá tiltölulega stuttum tíma á Víkingaöld. Það sem þessi gripir eiga flestir sameiginlegt er að hengið efst er stílfært ránfuglshöfuð, líklega fálkahaus.

Reyndar neyðist ég til að benda á, að persónulega sé ég ekki neina ástæðu til að tengja Ránfuglakingurnar við Harald Blátönn, þó brot af slíkum gripum  hafi fundist í dönskum hringborgum. Sennilegast er það svo að hringvirkin dönsku, Trelleborgene, séu fyrst og fremst til kominn til í tíð Sveins Tjúguskeggs, en ekki stjórnartíð Haralds Blátannar föður hans, en þeir feðgar börðust gegn hvorum öðrum undir lokin - segir sagan. Þetta hefur Klavs heitinn Randsborg réttilega benti á í Acta Archaeologica 79 (2008). Else Rosedahl gengur víða í ritverkum sínum út frá því að Haraldur Blátönn hafi andast árið 987, sem er árstal sem kemur frá Adam af Brimum, sem upplýsir hins vegar annars staðar í verkum sínum að Haraldur hafi látist árið 978. Saga er til af endalokum Haraldar, sem á Helganesi fór út í rjóður til að ganga örna sinna og var skotinn með ör sem hæfði hann beint í óæðri endann. Hann andaðist skiljanlega ekki löngu síðar. Athugum hvað hin íslenska Jómsvíkingasaga sem rituð var á 13. öld segir. Er Sveinn konungur bar banapíluna undir meintan drápsmann, sem Sveinn hafði alið upp, tók konungurinn til orða og mælti:

"Þú Pálnatóki," segir hann; "hvar skildist þú við þetta skeyti næsta sinni?"

Pálnatóki svarar:

"Oft hefi eg þér eftirlátur verið, fóstri, og ef þér þykir það þinn vegur meiri að eg segja þér það í allmiklu fjölmenni heldur en svo að færi sé hjá, þá skal það veita þér. Eg skildumst við hana á bogastrengnum, konungur," segir hann, "þá er eg skaut í rassinn föður þínum og eftir honum endilöngum, svoað út kom í munninn."

Endaspretta Haraldar, sem lýst er í Jómsvíkingasögu, gef ég ekki meira fyrir en tilgátu um að ránfuglakingurnar séu frá stjórnartíma Haraldar.

Rassskot Pálnatóka er harla góð saga frá 13. öld, en tenging Haralds konungs við kingur er bara óþarfa síðrómantík og rassskot. Grein Elsu Roesdahl er samt góð og gild fornleifafræði og ætti líka að vera íslenskum fornleifafræðingum kunn. Eins tel ég að fornleifafræðingar á Íslandi gerðu vel við sig ef þeir keyptu sér eintak af Glimt fra Vikingetiden, sem gæti reynst þeim góð handbók næstu árin, þó svo að þeir noti enn Kuml og Haugfé Eldjárns sem sína alheilaga biblíu, ef þeir fá ekki bara hugmyndir sínar að handan, eins og augu Allah eða eskimóakonur og fílamenn í klaustrum austur á Héraði.


Fátækleg minningarorð um meistara Þórð í Skógum

Þórður Tómasson 3

Þórður Tómasson var maður sem seint gleymist samferðamönnum sínum, og það verður aðeins endurtekning að fara út í þá sálma, þar sem svo margir hafa sömu sögu að segja af ánægjulegri komu sinni að Skógum; þar sem þeir geta lýst því hvernig Þórður gat verið með þremur hópum á mismunandi stöðum í byggðasafninu í einu.

Ég kynntist eldhuganum Þórði Tómassyni fyrst þegar Kristján Eldjárn reddaði mér sumarvinnu við fornleifarannsóknina að Stóruborg undir Eyjafjöllum. Kristján heyrði af því í banka í Reykjavík vorið 1981, að ég hefði ekki getað fengið neina vinnu í fræðunum. Eldjárn hringdi í Mjöll Snæsdóttur, sem hafði sem betur fer laust pláss. Þegar vinnan á bæjarhólnum forna hófst, kom fljótt í ljós að Stóraborg og Þórður voru óaðskiljanlegar stærðir.

Enginn gat verið í vafa um að Þórður elskaði það sem hann gerði í Skógum og það fékk fólk til að dáðst af honum. En ævistarf hans var miklu meira en safnið. Störf hans sem kennara voru rómuð og samvinna hans við Kristján Eldjárn við gerð þjóðháttaspurningalista Þjóðminjasafns Íslands í byrjun 7. áratugar síðustu aldar var stórvirki sem margir njóta góðs af nú og um ókominn tíma. Það starf verður ekki endurtekið.

Þórður sýndi þeirri fornleifanámu, sem rústirnar að Stóraborg voru, meiri virðingu en þeir sem stjórnuðu fornleifamálum á Íslandi. Brennandi áhugi hans á Stóruborg sýndi sig síðast í fyrra, þegar góðir menn gáfur út greinasafn eftir Þórð um Stóruborgafundi í tilefni af 100 ára afmæli fræðaþularins í Skógum.

Að mati Fornleifs geta menn verið fornleifafræðingar þó þeir grafi ekki. Það er vitaskuld gott að tengja þetta tvennt saman og í fágætum tilvikum þykir mér eðlilegt að kalla menn fornleifafræðinga, þó þeir hafi ekki numið fræðin eða grafið upp rúst. Að mínu mati er einn fremsti núlifandi fornleifafræðinga landsins Þórður Tómasson í Skógum. Honum hefur tekist að gera fortíðina vinsælli en mörgum fornleifafræðingnum með meistarabréf upp á vasann (Sjá hér).

Síðast þegar ég kom við í Skógum og hitti Þórð var árið 2016. Hann tók konunglega á móti mér og ferðafélögum mínum tveimur, Einari Jónssyni (fráfluttum Skógarmanni) og Kristjáni Sveinssyni. Við vorum í eins konar Gullskipsferð án þess að nota radar, flugvélar eða sérfjárveitingu frá íslenska ríkinu til að grafa upp þýskan togara. Skógarsafn geymir einn helsta fjársjóðinn úr skipinu sem er merkilegri en ímyndað gull og geimsteinar (sjá hérna) sem ævintýramenn og glópa með gullglampa í augum langar að finna. Fræðimenn voru ávallt velkomnir að leita í sarp Þórðar og njóta visku hans, og komu ekki að tómum kofanum.

Ég færði Þórði bók eftir mig, grein og nokkur blöð frá 19. öld að gjöf, en Þórður leysti mig út með einum af sínum merku bókum. Ánægja gamla mannsins yfir heimsókninni skein út úr fráum augum hans og ákefð hans við að miðla og fræða var engu minni en 36 árum fyrr, er hann tók fyrst á mótum ungum fornleifafræðinema í Skógum með pomp og prakt og af einstakri gestrisni. Þá naut hann aðstoðar systur sinnar, Guðrúnar og eiginmanns hennar, sem tekið hafa á móti ófáum gestinum í kaffiboð og mat á heimili þeirra og Þórðar í Skógum.

Þórður hjó og reisti sér sinn glæsilega bautastein sjálfur undir hinum fornu, grænu sjávarklettunum í Skógum. Hann geta allir farið og skoðað. Ævistarf hans var engu líkt. Geri aðrir betur. Ég votta aðstandendum hans samúð mína í sorginni, en góðar minningar lýsa allt tengt Þórði.

_or_ur_tomasson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband