Landnám fyrir Landnám í Fćreyjum - enn eina ferđina!
18.9.2011 | 11:48
Í síđustu viku birti fréttastofa RÚV undarlega frétt af landnámi í Fćreyjum fyrir "hefđbundiđ" og "viđtekiđ" landnám norrćnna manna ţar á 8. eđa 9. öld. Halda mátti ađ útpóstar Rómarríkisins hefđu veriđ Ţórshöfn eftir ađ hafa heyrt ţessa frétt í Ríkisútvarpinu, sem var miđlađ af fornleifafrćđimenntuđum manni, Ţorvaldi Friđrikssyni.
Búast má viđ ađ fréttin úr Fćreyjum valdi fjađrafoki á Íslandi, ţar sem á Íslandi eru margir sem eru fullvissir um ađ landnám norrćnna mann á Íslandi sé eintóm haugalygi. Margir trúa á byggđ "kelta" og papa og ýmislegt annađ, en hafa ţó ekkert fyrir sér í ţví nema óbilandi trú, óljósar lýsingar og vafasamar frásagnir úr ritheimildum, sem ekki varpa ljósi á annađ en ađ menn gćtu hafa veriđ á ferđinni í Fćreyjum, Grćnlandi eđa Íslandi, miklu fyrr en útrás norrćnna manna á 9. öld. Ţetta trúfólk vill ađ fornleifafrćđingar grafi dýpra.
Fréttin um landnám á 4. öld í Fćreyjum er reyndar ekki ný og var ţegar sagt frá ţessum aldursgreiningum á sýnum frá Sandi í Fćreyjum ţann 28. maí sl. í fćreyska Sjónvarpinu, Kringvarpinu. Horfiđ og hlustiđ hér. Frásögnin í fćreyska sjónvarpin er dálítiđ öđruvísi en ţađ sem fréttamađur RÚV greindi okkur frá. Hvernig er hćgt ađ brengla frásögn á ţennan hátt?
Reyndar eru fréttir af snemmbúinni búsetu í Fćreyjum, sem byggja á háum kolefnisaldursgreiningum ekki alveg nýjar af nálinni. Ţessi grein frá 2000 sýnir ađ slíkar aldursgreiningar hafa sést áđur, ţó svo ađ öll sýnin séu ekki tekin úr búsetusamhengi. En hefur ţeim veriđ stungiđ undir stól? Ég hef ađ minnsta kosti ekki séđ neina málefnalega umrćđu um máliđ síđan ţá. Menn vita, ađ hafáhrif (Marine Radiocarbon Reservoir Effects) eru mikiđ í Fćreyjum og ţví ćttu óvćnt háar aldursgreiningar ekki ađ koma mjög á óvart. Menn hafa rćtt kolefnisaldursgreiningar í Fćreyjum í ţessari grein.
Niđurstöđurnar frá Fćreyjum hafa enn ekki veriđ birtar í frćđiriti, og ţegar ég hafđi samband viđ gamlan vin minn Símun V. Arge, fornleifafrćđing í Fćreyjum, sem ég vann fyrir á Sandi í Fćreyjum fyrir nćr 21 ári síđan, ţá kemur ýmislegt í ljós sem hefđi veriđ áhugavert ađ fá ađ vita í fćreyska sjónvarpinu í maí. Símun harmađi einnig viđ mig, ađ RÚV hafi birt fréttina án ţess ađ hafa samband viđ sig. Ţađ lýsir auđvitađ RÚV í hnotskurn. Á RÚV eru mjög oft búnar til fréttir, í stađ ţess ađ segja ţćr, eins og eđlilegast mćtti ţykja.
´
Símun V. Arge fornleifafrćđingur í Fćreyjum
Símun V. Arge skrifađi mér í morgun, ţegar ég innti hann eftir ţví hvort fundist hefđu fornleifar sem hćgt er ađ aldursgreina. Hann segir m.a.: "Nej - der blev ikke fundet genstande eller strukturer med tilknytning til disse tidlige lag. Men de daterede bygkorn, der er forkullede, ligger altsĺ i brćndt třrvemuld, hvilket klart indikerer menneskelig aktivitet pĺ stedet. Som sagt har vi ikke řnsket at gĺ ud med nogle tolkninger - vi břr fordřje dateringerne og tćnke grundigt!
Símun skrifar einnig ađ féttin hafi ekki veriđ birt rétt hjá RÚV, og ţađ hafi heldur ekki veriđ meiningin ađ fréttir af ţessu skyldu vera komnar á kreik, nema hvađ ađ hann hefur gefiđ Kringvarpinu í Fćreyjum upplýsingar. En fiskisagan flýgur hratt.
Vćntanleg er frćđigrein um rannsóknina, sem gćti skýrt máliđ frekar og mun ég ţá rita meira um ţetta áhugaverđa efni á Fornleif, hiđ nýja fornleifablogg. Ég tel, ađ best sé ađ halda tungunni í munninum og ég leyfi mér í nafni varkárninnar ađ vara viđ of mikilli kćti međal keltómana og papista. Kolefnisaldursgreiningar á korni er miklum vandamálum bundnar, og mig grunar ađ sýnin, sem greind hafa veriđ í Glasgow, geti hafa veriđ menguđ. Eins og Símun Arge segir: vi břr fordřje dateringerne og tćnke grundigt!
Ţar ađ auki verđa menn líklega ađ spyrja sig, hvort ekki séu einhver vandamál varđandi túlkun kolefnisaldursgreininga í Norđuratlantshafi. Á Íslandi erum viđ t.d. ađ fá mjög mismunandi niđurstöđur aldursgreininga úr eina og sama grafreitnum. Á Skeljastöđum í Ţjórsárdal hafa mannabein í kristnum grafreit greinst međ hefđbundnum kolefnisaldursgreininum til ţess tíma sem búist var viđ, ţ.e.a.s. til eftir 1000 e.Kr., en AMS-aldursgreiningar hafa gefiđ aldursgreiningar á beinum einstaklinga úr sama grafreitnum, sem sýna "landnám" fleiri hundruđ árum fyrir 870 e.Kr.
Í Fćreyjum hafa menn vitađ um hinar háu niđurstöđur, sem hafa komiđ úr kolefnisaldursgreiningum á sýnum, og ţví hlýtur ţađ ađ undra, ađ greining sem ţegar var gerđ áriđ 2002 á koluđu byggi Sandi, hafi enn ekki veriđ birt og rćdd. Sýniđ ţá var tekiđ af Ian Simpson viđ háskólann í Stirling og mun hafa sýnt aldursgreiningar frá 4. öld, líkt og sumar af nýjustu aldursgreiningunum frá ţessum stađ. En eru einhver áhrif sem valda "of háum" greiningum í Fćreyjum? Ég held ađ enginn geti útilokađ ţađ á núverandi stigi.
Fornleifafrćđi | Breytt 24.2.2021 kl. 19:44 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fornleifar og sjónminniđ
18.9.2011 | 10:39
Gott sjónminni er ágćtur eiginleiki ađ hafa ef mađur er fornleifafrćđingur. Tel ég mig hafa fengiđ ţann hćfileika í ríkulegum mćli í vöggugjöf. Hér fylgir stutt saga af sjónminninu í mér.
Sumariđ 1982, nánar tiltekiđ 16. ágúst, var ég staddur austur í Skógum undir Eyjafjöllum á heimili foreldra góđvinar míns Einars Jónssonar. Viđ unnum báđir sem ungir háskólanemar viđ fornleifauppgröftinn á Stóru-Borg hjá Mjöll Snćsdóttur. Viđ sátum og rćddum um heima og geima yfir glasi af whisky. Einar hafđi bođiđ mér í heimssókn, ţví ađ í sjónvarpinu var BBC-frćđsluţáttur um málmleitartćki, sem viđ vildum ekki fyrir neina muni missa af.
Í ţćttinum, sem á frummálinu hét Chronicle: Metal Detectors, var ýmis konar fróđleikur um tćki sem fornleifafrćđingar geta haft mikil not af, en sem ţeir eru hrćddir viđ í höndunum á óprúttnum fjársjóđaleitendum og ćvintýrafólki. Sumir málmleitartćkjamenn gera ţó meira gagn en ađrir. Merkustu gripir sem fundist hafa á síđari ára í Danmörku hafa t.d. oft fundist viđ leit á plćgđum ökrum og vísađ fornleifafrćđingum veginn.
Í lok ţáttarins var greint frá fyrrverandi hnefaleikakappa, sem hafđi ţađ ađ siđs ađ fara um byggingargrunna viđ Thames í Southwark (sunnan viđ ána) og í City, međal annars viđ Bull Wharf, sem var ţađ sem nú heitir Upper Thames Street.
Madonnan frá bökkum árinnar Thames
Allt í einu sé ég bregđa fyrir á skjánum grip sem hnefaleikakappinn hafđi fundiđ í eđjunni viđ bakka Thames. Lítiđ pílagrímsmerki úr tin- og blýblöndu, Heilaga Maríu, sem hélt á Jesúbarninu. Ég lyftist í stólnum austur í Skógum, ţar sem mér sýndist gripurinn vera alveg eins í laginu og pílagrímsmerki sem Gísli heitinn Gestsson (1907-1984) starfsmađur Ţjóđminjasafnsins og starfsmenn hans höfđu fundiđ í lítilli kirkjurúst í Kúabót í Álftaveri áriđ 1975. Merkiđ frá Kúabót var ţó mjög illa fariđ og hefur vafalaust lent í bruna. Ég greindi Gísla frá ţessari uppgötvun minni og tilgátum og hann og ţjóđminjavörđur leyfđu mér ađ fara utan međ merkiđ til frekari rannsókna.
Ég fékk gerđa ljósmynd af madonnunni brenndu frá Kúabót á Fornaldarsafninu á Moesgĺrd viđ Háskólann í Árósi á Moesgĺrd, og sendi ţćr til Brian heitins Spencers hjá Museum of London, eins helsta sérfrćđings í málmmerkjum frá miđöldum. Hann skrifađi mér um hćl og upplýsti, ađ ekki vćri nóg međ ađ ég hefđi rétt fyrir mér í greiningunni eftir ađ hafa séđ madonnumerkiđ frá Bull Warf í sjónvarpinu, heldur einnig ađ ljósmyndin af bakhliđinni á merkinu frá Kúabót sýndi, ađ ţađ merki og merkiđ frá Bull Wharf hefđu líklega veriđ steypt í sama mótinu.
Í september 2003 fór ég svo í pílagrímsför til Lundúna til ađ heimsćkja Spencer međ merkiđ frá Kúabót, sem ég hafđi haft međ mér til Íslands ţađ sumar. Í sýningu safnsins var merkiđ frá Bull Wharf til sýnis og var Spencer ţegar búinn ađ koma ţeim upplýsingum í sýningarskápinn ađ gripurinn ćtti sér hliđstćđu í merki frá Kúabót á Íslandi, og sömuleiđis ţeim upplýsingum ađ ekki vćri uppruni merkjanna kunnur. Líklegt verđur ţó ađ teljast, ađ hann sé ađ finna á Englandi.
Ég hef ekki heimsótt Museum of London nýveriđ og veit ekki hvort merkiđ er enn til sýnis. Á ţví safni er oft gerđar breytingar á sýningum. Ég man hve uppveđrađur ég var ađ koma ţar fyrst, og sjá menn nota tölvur í stórum stíl á safni í fyrsta sinn á ćvinni. Ţar tóku á móti mér merkir fornleifafrćđingar eins og Geoff Egan, sem var orđinn vinsćll sjónvarpsmađur áđur en hann dó nýlega, og Brian Spencer, og ţótti ţeim nokkuđ merkilegt ađ fá Íslending í heimsókn. Ég skilađi Madonnunni til Ţjóđminjasafnsins og Gísli Gestsson fékk fyrir andlát sitt allar upplýsingar frá mér um Maríu og barniđ frá Kúabót.
Nokkrum árum síđar var fjallađ um madonnuna í grein um rannsóknir í Kúabót (sem reyndar var aldrei lokiđ viđ), sem birtist í Árbók hins íslenzka Fornleifafélags 1986 (útg. 1987) Sjá hér og hér. Ţar rituđu Lilja Árnadóttir starfsmađur Ţjóđminjasafns og ađrir um rannsóknina í Kúabót ađ Gísla Gestssyni látnum. Ţar er greint frá ţví ađ grip áţekkan madonnunni frá Kúabót sé finna í Museum of London (samkvćmt bréfi frá Brian Spencer, Museum af London frá 20.1. 1987). Gögn ţau sem ég sendi Gísla virtust hafa tínst, en samt virđist hafa veriđ haft samband viđ Brian Spencer og ađra sérfrćđinga sem ég hafđi áđur haft samband viđ til ađ fá upplýsingar um gripinn, en ekki var samt haft fyrir ţví ađ fá ljósmynd af gripnum í London til ađ birta í Árbókinni.
Ég skrifađi 1994 um pílagrímsmerkiđ frá Kúabót og lét fylgja nokkrar upplýsingar um suđurgöngur Íslendinga á miđöldum. Grein mín um Madonnuna birtist í hinni ágćtu bók Gersemar og Ţarfaţing (1994), sem er eitt besta rit sem Ţjóđminjasafniđ hefur gefiđ út. Ţar skrifađi ég reyndar, ađ madonnan frá London hefđi fundist sunnan Thames, í Southwark, ţví ţannig hafđi ég skiliđ ţađ viđ ađ horfa á heimildaţáttinn austur í Skógum. Ţađ leiđréttist hér međ. Madonnan fannst í City, ţar sem menn grćđa bresku pundin í dag. Ferđalýsingu Nikulásar ábóta á Munkaţverá, sem ferđađist á tíma sem pílagrímsmerki voru sjaldgćfari en á síđmiđöldum, er hćgt ađ lesa í nýrri útgáfu bókaútgáfunnar Svarts á Hvítu. Eins er til gnótt af góđum greinum um pílagrímsmerki, sem finna á má á veraldarvefnum, sem og bćkur Brian Spencers og rit honum til heiđurs, sem enn er hćgt ađ kaupa á netinu.
Fróđleikur um málmleitartćki
Ţrátt fyrir ţađ sem ég skrifa hér framar um fundi merkilegra gripa í Danmörku međ hjálp málmleitartćki, er skođun mín sú, ađ ţađ eigi ekki ađ nota málmleitartćki á ţann hátt á Íslandi. Ţess ber ađ geta, ţjóđminjalög (16. gr.) banna alfariđ notkun málmleitartćkja á Íslandi, nema ţau séu notuđ međ fengnu leyfi ţjóđminjavarđar. Ţađ er ţó eitthvađ um ţađ ađ menn séu ađ selja og kaupa ţessi bannsettu tćki, og félagsskapur einn á Suđvesturhorninu telur, ađ ţađ ţurfi ađ breyta fornleifalögum, svo stórir drengir geti líka leikiđ sér međ svona tćki.
Fornleifafrćđi | Breytt 11.1.2020 kl. 07:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fornleifur stekkur á Stöng
18.9.2011 | 10:18
Hér hefur fornleifabloggiđ Fornleifur göngu sína. Einvörđungu verđa birt skrif sem fjalla um fornleifafrćđi, fornfrćđileg og sagnfrćđileg efni, sem og ýmis konar ţjóđleg frćđi. Eldra efni međ fornt innihald á bloggi mínu https://www.postdoc.blog.is/ (Er ekkert í ísskápnum?) mun smám saman verđa flutt yfir á fornleifabloggiđ Fornleif.
Fornleifur er hugsađ sem gagnrýniđ fornleifablogg, sem fyrst og fremst er skrifađ svo almenningur fái innsýn í ýmis atriđi ţeirrar virđulegu frćđigreinar sem á fornmálum kallast archaeologia.
Ćtlunin er ađ reyna ađ fá unga, ţormikla fornleifafrćđinga og ađra frćđimenn, sem og áhugfólk um forn frćđi til ađ skrifa smá greinar á bloggiđ um rannsóknir sínar eđa hugsanir í frćđunum.
Ţótt ekki sé eins mikiđ grafiđ á Íslandi í augnablikinu og í góđćri síđustu Víkingaaldar, er fornleifafrćđin annađ og meira en endalaus mokstur. Niđurstöđum ţarf ađ miđla til ţeirra sem borguđu fyrir rannsóknirnar og líklega er ekkert betra til ţess falliđ en netadrćsur ţćr sem kallađur er veraldarvefurinn.
Endrum og eins verđur hér á blogginu fornleifagetraun. Já, kćru lesendur, getraun, ţar sem ţiđ getiđ sýnt hver óhemju forneskjuleg ţiđ eruđ í hugarfari og háttum.
Fornleifafrćđi | Breytt 24.2.2021 kl. 20:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)