Sonur forsetans dæmdi mann til dauða
25.10.2015 | 16:43
Ég sit þessa dagana og næstu mánuðina ásamt öflugum dönskum sagnfræðingi og leita uppi Dani sem gengu í SS-Frikorps Danmark 1942-43, og sem síðar voru þjálfaðir voru í illræmdum fangabúðum og vinnubúðum SS, Waldlager nærri Bobrusik í Hvítarússlandi. Þar voru gyðingar myrtir í þúsundatali og voru morð á gyðingum liður í þjálfun SS-manna frá Danmörku og annars staðar frá. Við vonumst til að finna á lífi einhverja þeirra 800 - 900 Dana sem fengu þjálfun í Bobruisk.
Fjöldi þessarar Freikorpssveitarmanna féll á Austurvígstöðvunum, Króatíu og víðar í þjónustu Þýskalands, en margir komust líka aftur heim. Þeir sem aftur sneru fengu 2-6 ára dóma, þá þyngstu fyrir skítlegt eðli sem þeir sýndu í Danmörku en alls ekki fyrir "störf" sín í Bobruisk. Framferði Danskra Frikorps-manna við gyðingadráp höfðu dönsk yfirvöld engan áhuga á. Flestir danskra Frikorpsmanna sem voru í Bobruisk voru sloppnir aftur út í þjóðfélagið eftir 1-2 ára vist í fangelsi. Tveir þessara manna voru þegar fundnir á lífi áður en rannsókn okkar Larsens fyrir Simon Wiesenthal Center i Jerúsalem hófst, og gengur annar þeirra, Helmuth Leif Rasmussen, frjáls ferða sinna um götur Kaupmannahafnar og hefur aldrei verið sóttur til saka fyrir þátttöku sína í gyðingamorðum í búðunum í Hvíta-Rússlandi. Hann hlær af fórnarlömbunum, m.a. þegar hann heldur því fram að hann hafi mestar áhyggjur af því að "vinir hans sem séu gyðingar snúi við sér bakinu" vegna upplýsinga um veru hans í búðunum í Hvítarússlandi.
Þegar íslenskur nasistaveiðimaður veiðir dönsk illfygli í dönskum skjalasöfnum er alltaf einhver aukaafli, fyrir utan kvótann. Ég hef þegar rekist á upplýsingar um íslenska nasista, þó ekki menn sem tóku þátt í gyðingamorðum í Waldlager við Bobruisk
Sonur forsetans
Þekktastur allra íslenskra nasista er líklega sonur fyrsta forseta lýðveldisins, sonur Sveins Björnssonar, Björn Sv. Björnsson. Um hann hefur verið rituð mikil ógrynni af efni í bókinni Berlínarblús, sem og í æviminningum Björns sem Nanna Rögnvaldsdóttir ritaði og sem út kom árið 1989. Nýlega birtist einnig grein á vefsíðunni Lemúrnum, þar sem birt voru áhugaverð gögn um Björn Sv. Björnsson sem ekki höfðu áður sést. Mesta furðu mína við lestur athugasemda við þá grein vakti það hve rómaður Björn Sv. Björnsson var meðal sumra samferðamanna sinna og nemenda.
Björn sýndi ófína takta á Stöng í Þjórsárdal árið 1986
Ég hef sjálfur mætt þessum manni tvisvar á ævinni. Fyrst sá ég hann ungur að árum þegar hann lék á fiðlu í uppsetningu óperettu í skóla á Seltjarnarnesi, þar sem annar hver söngvara söng rammfalskt. Afi mín og amma drógu mig og systur mínar með á þessa hörmung. Annað skiptið sem ég rakst á Björn var þegar hann kom sem fararstjóri með hóp þýskra ferðamanna að Stöng í Þjórsárdal, þar sem ég stýrði fornleifarannsóknum. Þetta var sumarið 1986.
Ég og 2-3 samstarfsmenn mínir voru önnum kafin við teikningar og ljósmyndun áður en rigning gerði vinnu okkar ófæra. Þegar Björn Sv. Björnsson, sem gekk með staf vegna bæklunar, hefur kjagað upp að Stöng, heimtaði hann með frekju og yfirgangi að ég héldi ræðu um rannsóknirnar fyrir þýsku ferðamennina. Ég segi honum fyrst mjög kurteislega að ég hafi ekki tíma til þess. Þá reiddist Björn, sem greinilega var vanur að fá það sem hann vildi þegar hann skipaði mönnum fyrir. Hafði hann í hótunum við mig um að hafa samband við Þjóðminjasafnið og Þjóðminjavörð og kæra mig. Ég sagði honum þá eftir stundarþögn, því fokið var í mig, að það væri honum velkomið að gera þar sem þessi rannsókn væri alls ekki á vegum Þjóðminjasafnsins, en ég gæti vitaskuld einnig sagt samferðafólki hans öll deili á honum og það á þýsku, sem og að ég teldi hann ekki vera Íslending. Við það lyppaðist karlinn niður og sagði ekki aukatekið orð, vappaði síðan um eins og særður fugl og haltraði niður hólinn. Rútubílstjórinn hans, sem varð vitni að ófyrirleitinni framkomu Björns í minn garð sem og erlendra samstarfsmanna minna, og blöskraði það, tjáði mér frá uppákomum á ferðum sínum með honum og sagði mér sögu af því hvernig Björn Sv. Björnsson hafði fengið hóp af þýskum gamlingjum til að syngja gamla nasistasöngva þegar hópurinn var staddur á Edduhótelinu í Skógum undir Eyjafjöllum.
Framkoma Björns Sv. Björnssonar á Stöng sýndi mér eðli þeirra manna sem heilluðust af nasismanum.
Faðir Björns Sv. Björnssonar, Sveinn Björnsson forseti, ræðir við Franklin D. Roosevelt í Hvíta Húsinu árið 1945.
Sonur forsetans dæmdi mann til dauða
Við vinnu mína í Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn, hef ég þegar rekist á nafn Björns í fjórum mismunandi dómsmálum. Í tveimur málum kemur hann við sögu sem settur útvarpsstjóri SS í danska Ríkisútvarpinu, þar sem hann hafnar vinnuumsókn eins manns. Í öðru máli gegn dönskum SS-manni kemur nafn hans fyrir á lista danska nasistaflokksins yfir Danska SS-liða, sem gengið höfðu i SS í Þýskalandi fyrir árslok 1943.
Það sem vakti þó mesta undran mína, m.a. vegna þess að það hefur ekki komið fram í ævisögu Björns eða öðrum bókum, er að að Björn Sv. Björnsson var skipaður í dómarasæti þann 30. apríl 1945 og dæmdi ásamt 2 öðrum SS-mönnum fyrrverandi danskan SS-mann til dauða fyrir liðhlaup og þjófnað:
"In der Strafsache gegen den dänischen Staatsangehörigen
SS-Rottenführer N.N.
Geb. 31.1.1915 in B...
SS-PZ. Gren. A.u.E. Batl. 11, Graz,
wegen Fahnenflucht u.a.,
hat das am 30. April 1945 in Kopenhagen zusammengetretene Feldgericht, an dem teilgenommen haben
als Richter:
SS-Hauptsturmführer und SS-Richter Dr. Espig, als Vorsitzer,
SS-Untersturmführer Björnson
SS Standarte "Kurt Eggers",
SS-Sturmann Dahlmann
SS-Standarte "Kurt Eggers", ...
...
für Recht erkannt:
Der Angeklagte N.N. wird wegen Kriegsverrats, Fahnenflucht im Felde, Preisgabe von Dienstgegenständen in 2 Fällen, Einbruchdiebstahls in 2 Fällen und wegen einfachen Diebstahls
zum Tode
Verurteilt, aus der SS ausgestossen und für wehrunwürdig erklärt."
Björn Sv. Björnsson, dauðadómari og síðar fararstjóri
Dómurinn yfir liðhlauparanum frá Fjóni var staðfestur þann 3. maí 1945, deginum fyrir uppgjöf Þjóðverja, og var dómnum að öllum líkindum þess vegna ekki framfylgt.
Í Berlín var árið 1944 skrifað á eftirfarandi hátt um íslenska SS-manninn Björn Sv. Björnsson:
"Sem yfirmaður Kaupmannahafnardeildar herdeildarinnar [Standarte Kurt Eggers] hefur Björnsson liðsforingi unnið framúrskarandi starf í nýliðun Waffen-SS-sveitanna og aukið ítök í dönskum fjölmiðlum. Reyndist einnig vel í bardaga sem hermaður við innrásina í Sovétríkin. Er sonur núverandi forseta Íslands, sem ber að hafa sérstaklega í huga við mat á frammistöðu og verkum hans".
Nú vitum við, að hinn ólánssami sonur forseta Íslands var einnig reiðubúinn að dæma aðra ólánssama menn til dauða, og fór létt með það. Það sýnir okkur að seint ber mönnum að treysta sjálfsævisögum og metsölubókum um nasista sem gefnar eru auðtrúa fólki sem jólagjafir.
Besættelsestiden | Breytt 18.2.2025 kl. 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Pabba kné er klárinn minn, en Hitler hann er foringinn
24.10.2015 | 18:53
Aldamótaárið 1900 sat fimm ára, prúðbúinn drengur í matrósafötum og á sauðskinnskóm á hné föður síns, Þórðar Guðjohnsens (1844-1926) verslunarstjóra á Húsavík. Drengurinn hét Halldór Jóhannes Guðjohnsen.
Þórður gamli, Halldór sonur hans og tvær systur hans sátu fyrir er Frederick W.W.Howell kom við á einum af ferðum sínum um landið sem hann eilífaði í frábærum ljósmyndum, sem maður þreytist seint á að rýna í. Kannski var tilefni myndatökunnar að Þórður var að hætta kaupmennsku á Húsavík aldamótaárið 1900, og fluttist hann skömmu síðar til Kaupmannahafnar þar sem hann vann lítillega við verslun. Þar óx Halldór sonur hans úr grasi ásamt sumum systkina sinna og lærði samkvæmt íslenskum heimildum (hinni óskeikulu Íslendingabók) búfræði og varð síðar á ævinni titlaður framkvæmdastjóri.
Ljósmynd Howells af Þórði og börnum hans þykir mér meðal bestu mynda Howells frá Íslandi. Þær eru nú varðveittar í Fiske-safninu í bókasafni Cornell háskólans. Ég hafði svo sannarlega ekki búist við að finna neinar frekari tengingar við þessa ágætu ljósmynd, en stundum rekst maður á menn á myndum í mismunandi samhengi.
Síðustu vikurnar og næstu mánuðina sit ég á Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn og stunda "nasistaveiðar" fyrir Simon Wiesenthal Stofnunina í Jerúsalem, sem Íslendingar bölsótuðust út í þegar stofnunin vildi lögsækja eistneskan morðingja sem hafði verið friðaður af íslenskum stjórnmálamönnum og eistneskum kollegum þeirra.
Þegar íslenskur örn veiðir dönsk illfygli fyrir alþjóðlega stofnun er alltaf einhver aukaafli, fyrir utan kvótann af vondum Dönum sem eru undir smásjánni. Ég hef þegar rekist á upplýsingar um löngu liðna íslenska nasista, sem ekki hafa birst í ritum um íslenska nasista, þ.e. í hinum annars ágætu ritum Berlínarblús eftir Ágúst Guðmundsson eða Íslenskum Nasistum eftir tómstundanasistaveiðarana Hrafn og Illuga Jökulssyni.
Íslenskur liðsmaður HIPO-sveitanna
Halldór Jóhannes Gudjohnsen (1895-1966) var einn af þeim sem heillaðist af nasismanum. Hann fékk 5 ára fangelsisdóm í borgarétti Kaupmannhafnar í lok janúar 1946 fyrir störf sín fyrir HIPO-korpset (Hilfspolizei), ET ("Efterretningstjenesten") sem var deild í HIPO-korpset, sem og fyrir deild C9 sem einnig var var kölluð Lorenzengruppen, og sem var botnlangi löðurmenna í HIPO-sveitunum. HIPO var sveit fúlmenna og lítilmenna sem unnu fyrir Þjóðverja við að herja á og myrða meðlimi dönsku andspyrnuhreyfingarinnar og til að brjóta niður hvaða mótþróa við Þriðja ríkið sem var. Sveitirnar muna menn mest eftir vegna óvenjumikils hrottaskaps þeirra, þegar þeir unnu skítverk fyrir setulið Þjóðverja í Danmörku.
Konan njósnaði í sporvögnum
Strax skal tekið fram, að Halldór Jóhannes Gudjohnsen var ekki í framvarðarliði HIPO-sveitarinnar sem barði á fólki. Málin þróuðust þannig að hann fékk vinnu hjá HIPO árið 1944 gegnum tengsl sem kona hans hafði, en hún var dæmd fyrir að vera Sporvognsstikker. Hún var með öðrum orðum launuð kjaftakerling, sem ók um í sporvögnum Kaupmannahafnar og hlustaði á allt það sem farþegar kynnu að segja ljótt um Þjóðverja og kom upplýsingum um það til Gestapo, HIPO eða annarra óþokka.
Halldór var hins vegar ráðinn til að kenna liðsmönnum Hipo leikfimi og Jiu-Jitsu sjálfsvarnarlist. Engar sögur fara af því hvar hann lærði þá list, en vart hefur það verið á Húsavík.
Liðsmenn Hipo-sveitarinnar voru hins vegar þekktar fyrir mest annað en sjálfvarnir. Barsmíðar á saklausu fólki og fólskulegar árásir þeirra voru þeirra sérgrein. Eitthvað hefur kennsla íslenskættaða Jiu-Jitsu meistarans hjá HIPO farið fyrir ofan garð og neðan.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu eftir stríð, þegar Halldór hafði verið handsamaður, bar hann því við að hann hefði aldrei gert annað en að kenna leikfimi og Jiu-Jitsu. Þegar kom í ljós að mjög fáir sóttu þessa tíma Halldórs, nema skrifstofublækur HIPO, ákvað einn yfirmanna HIPO að Halldór skyldi sinna vaktskyldum á götum Kaupmannahafnar í einkennisbúning E.T., leyniþjónustu HIPO. Halldór þvertók fyrir að hafa gert það og sagðist hafa neitað að gera það með óbeinum líflátshótunum frá yfirmanni sínum fyrir vikið. Nokkur vitna í máli Halldórs höfðu hins vegar með vissu séð hann við þá iðju og í einkennisbúningi E.T. Halldór sagðist hins vegar hafa fengið það hlutverk ásamt rauðhærðum liðsmanni HIPO að svara símum fautanna á skrifstofum þeirra á aðallögreglustöðinni í Kaupmannahöfn. Þar sagðist hann einnig hafa tekið að sér, þegar símarnir voru ekki rauðglóandi af klögumálum nasista, að hreinsa og smyrja byssur Jørgens Lorenzens sem eftir stríð var dæmdur til dauða og síðar til ævilangrar fangelsisvistar. Vitni upplýstu hins vegar að Halldór hefði einnig kennt vopnaburð og meðferð skotvopna hjá HIPO. Önnur vitni töldu einnig öruggt, að Halldór hefði tekið það að sér rétt fyrir stríðslok að brenna og eyða gögnum um HIPO sveitirnar.
Danskir HIPO-liðar. Margir þeirra voru dæmdir til dauða.
Ekkert verra sannaðist upp á Halldór Jóhannes Guðjohnsen - fyrir utan að andspyrnumaður einn í úthverfi Kaupmannahafnar, þar sem Halldór bjó ásamt konu sinni og tveimur börnum, upplýsti yfirvöld um að nágrannar Halldórs hefðu sagt sögur af honum og seðlabúntum með 100 krónu seðlum, sem Halldór var sagður veifa framan í fólk til að sýna því hve vel maður gat þénað í þjónustu sinni fyrir nasismann og Þýskaland, sem hann studdi heils hugar samkvæmt yfirheyrsluskýrslum dönsku lögreglunnar. Vel launaður var hann vissulega í þessu óheppilega starfi sínu. Þegar lögreglan ætlaði að hafa hendur í hári mannsins sem stærði sig af seðlum sínum, kom í ljós að hann sat þegar inni, og kona hans einnig. Þegar lögreglan hringdi í heimasíma Gudjohnsens fjölskyldunnar í Rødovre, svaraði dóttir þeirra hjóna og upplýsti að báðir foreldrarnir sætu í steininum.
Líkt og margir minniháttar nasistar í Danmörku var Halldór sýknaður ári eftir að hann var dæmdur til 4-5 ára fangelsisvistar. Fyrir landráðið sat Halldór því ekki meira en rétt rúm 2 ár.
Lýk ég þessum pistli um áður óþekktan, íslenskan nasista með ljósmynd af einum af liðsmönnum HIPO sem er að sparka mann til óbóta. Ólíklegt þykir mér að óþokkinn sá hafi lært brögð af Jiu-Jitsu meistara HIPO, Halldóri Jóhannesi Guðjohnsen. En hvað þykir ykkur góðu landar, kunnið þið Jiu-Jitsu?
Besættelsestiden | Breytt 7.9.2019 kl. 05:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Help build the Or HaTzafon Synagogue in Reykjavík
20.9.2015 | 12:29
In memory of all the Jews whom Iceland closed her doors on in the 1930s, as well as those who were expelled from Iceland to Nazi-Germany - and honouring the few Jews who made it to Iceland, who never dared practise their religion due to prejudice in the Icelandic society, I seek support from Israeli based firms and others who support the state of Israel, asking them to support the building of the very first synagogue in Iceland, which I find appropriate to call the Or HaTzafon synagogue - The Reykjavík synagogue of the Northern Lights - Samkunduhús Norðurljósanna in Icelandic.
The numbers of Jews in Iceland is steadily growing. Jews with very different backgrounds settle in Iceland. Jewish tourists are also numerous in Iceland all year round. Seders and other religious gatherings have been held regularly in Reykjavík - in later years in co-operation with the Chabad movement. Now is the time for a synagogue in Reykjavík.
(1) Otto Weg (Ottó Arnaldur Magnússon) a refugee from Leipzig, who despite his Ph.D. degrees never obtained a job in his field in Iceland. The University of Iceland, which was lead by two Nazi sympathising deans took care of that (2) Hans Mann (Chanoch ben Zelig/Hans Jakobsson), nearly got expelled from Iceland together with his mother (3) Helena Lea Mann. Olga (Mann) Rottberger (4), Hans Mann´s sister and Helena´s daughter was expelled from Reykjavík, Iceland with her husband Hans Rottberger(5) and two children.
In 1937 at a party in the Danish Embassy in Reykjavík the Prime Minister of Iceland Hermann Jónasson (1), said to a Danish diplomat in Iceland, C.A.C. Brun (2), who assisted many Jews harassed by Icelandic authorities: "It is a Principal issue, Iceland has always been a clean Nordic country free from Jews, and those who have have come into the country in recent years have to leave". The son of Jonasson, Steingrímur Hermannsson, was also a politician and a supporter of Yasser Arafat in Tunisia (see here) and Jónassons grandson, Guðmundur Steingrímsson, is the former chairman of the party Björt Framtíð (Bright Future), which was one of the parties which voted for the Boycott of Israel in Reykjavík. Also present in the Danish Embassy in 1937 was Thor Thors (3) who later became Iceland´s ambassador in Washington. With his speech at the UN assembly, co-authored with Abba Eban, he played an important role in the UN recognition of Israel in 1948.
Two of Iceland´s major authors in the 20th century, Guðmundur Kamban and Gunnar Gunnarsson were Nazis. Many Icelander are in denial of that fact. Here you can see Gunnar Gunnarsson leaving a meeting with Hitler in March 1940 together with Hinrich Lohse (with raised arm), the German who was responsible for the the ghettoization of the Jews of Latvia.
Remembering the victims of Icelandic anti-Semitism
Several families and individuals, who made it to Iceland as refugees in the late 1930s, were expelled from Iceland. The expulsions were ordered by the ministry of Justice and executed by the Reykjavík city Police, which in 1939 was lead by an Icelandic Nazi, Agnar Kofoed Hansen, who as a part of his training spent a summer in a SS-training unit in Germany.
Some of the ugly Icelandic racist faces of the past: (1) Björn Sv. Björnsson, a member of the Waffen SS, the son of the first president of the Icelandic Republic. He was rescued from prosecution in Denmark and lived many years in Argentina (2) Agnar Kofoed Hansen, an Icelandic Nazi, chief of Police in Reykjavík 1939. He received training with the SS in Germany (3) Davíð Ólafssson, a member of Icelandic Nazi Party studied in Nazi Germany (1936-1939) without obtaining any degrees; After WWII he was a MP and the director of the National Bank of Iceland (4)Nazis marching in Reykjavík. (5) Sigurjón Sigurðsson. Member of the Icelandic Nazi party. Sigurðsson was the Chief of the Reykjavik Police 1947-1985. Reykjavík´s Anti-Semitic history is not a new phenomenon.
Nazis marching in Reykjavík, a city with a dark past.
In the future the Or HaTzafon Synagogue in Reykjavík would be a proper way of remembering and honouring the victims of Icelandic anti-Semitism in the past and the present. A vibrant Jewish life in Reykjavík is the only way to fight the hate which has been burning in Reykjavík since Jews tried to find safe haven in this little/big city of Iceland before WWII.
(1) Karl Kroner, a Jewish doctor from Germany, who treated Hitler in WWI, was expelled from Iceland. He managed to get to the USA with his German wife and son. (2-3) Dr. Felix Fuchs and Dr. Stefanie Karpeles Fuchs of Vienna were expelled from Iceland. They fled to Copenhagen, from where they managed to sail with the last ship from Gothenburg in Sweden to the US, before Denmark was occupied by the Germans. (4) Alfred Kempner of Leipzig was expelled from Reykjavík to Copenhagen. The Icelandic authorities wrote to the Copenhagen Police that Iceland would pay for his further transport to Germany if that was necessary. These people survived the Holocaust but several Jews from Austria, Germany and Poland, who tried to get to Iceland, didn´t. They sent letters to the authorities in Reykjavík and the Icelandic embassy in Copenhagen as well as Danish consulates in Poland, Austria and Germany. They were denied help, BECAUSE THEY WERE JEWISH, but at the same time Iceland opened its doors to German and Norwegian workers. These Jews are the reason why there should be a synagogue in Iceland!
Why support from Israel?
Few days ago the Reykjavík City Council passed a motion which bans any use of Israeli products in the City of Reykjavík. The boycott was supposed to benefit the Palestinian people. When the City council realised that this sad and ridiculous move would hit Reykjavík harder than it would ever affect Israel, it was retracted for re-consideration.
There was a of course a great amount of hypocrisy of the Reykjavík city majority ruling. Therefore a building of a synagogue in Reykjavík with financial support from Israeli firms and organisation as well as organisations and individuals that support Israel, is important. What is more natural in such a free and understanding city like Reykjavík, to allow the building of a synagogue, where Jews can pray and peace can be respected.
Few years ago the Reykjavík City Council passed a motion which allows Icelandic Muslims to build a mosque in Reykjavík. That was a very understandable move taking into account that few extremist Muslims in Iceland, who fraternised with the US Embassy in Reykjavik, already had bought a house of prayer, where support to extremism is cherished. They were supported by extreme groups in Saudi-Arabia. The City Council of Reykjavík even donated a very good plot for the new alleged non-extremist mosque in Reykjavík. Allegedly support for the building of the first mosque in Iceland comes from the authorities and financial giants in Saudi Arabia. Such a mosque is of course necessary for all the Syrian refugees which Icelanders, who incidentally also are against circumcision of boys, ritual slaughter and Israel, now want to invite to Iceland.
Has anythin changed since the 1930s? No, when Israeli products are banned from the small North Atlantic capital city, while some Icelander find it acceptable for Icelandic Muslims to chant Dammed Jews (Icel. Helvítis Gyðingar) at rallies, where there are no Jews but only Icelandic supporters of Israel, there is still a problem in Reykjavík. A problem, which will very likely only be solved by a synagogue in Reykjavík.
Support the building of a Synagogue in Iceland
All those who love Israel should support the building of a Synagogue in Reykjavík. The location for the Synagogue could easily be right in front of the Town Hall of Reykjavík, where there are free plots. Certainly one of them can be used to honour those who were victims of Icelandic Nazis and anti-Semitic Politicians and officials. A monument remembering the victims of atrocities committed by Icelandic Nazi policemen, politicians and anti-Semitic public figures could be erected beside the synagogue.
Please pass this on to those who financially would like to support a synagogue in Reykjavík. If support is found, a foundation would be created in Reykjavík, lead by a committee of Jews in Iceland and Israel and hopefully the construction could begin in the near future, aided also by the Reykjavík City council in the same manner it facilitated the planned mosque of Reykjavík for not to mention the Russian Orthodox church, soon to be built i down-town Reykjavík.
(1-2) While Jews couldn´t find safe haven in Iceland, an Estonian war criminal could. Evald Mikson (who adapted the the name Eðvald Hinriksson in Iceland) had a good life in Iceland. When Dr. Efraim Zuroff of the The Simon Wiesenthal Center in Jerusalem in the early 1990s asked for an investigation into Mikson´s crimes, Icelandic Politicians collaborated with Estonian politicians to halt the investigations. Left wing politicians, among them a socialist Mayor of Reykavík, attacked Israel and argued that Mikson was an innocent man and a victim of an Israeli/Jewish man-hunt. An independent Estonian historical commission has since confirmed the crimes of Evald Mikson. (3) Ruth Rubin, one of Mikson´s victims. According to witnesses she was raped by Mikson in a Tallinn prison before she was shot. (4 and 5) Jón Baldvin Hannibalsson, formerly Iceland´s foreign Minister and Iceland´s ambassador to the USA, as well as the Icelandic hero in the independence process of the Baltic States. Despite a high fall from his political podium after it became known that he had sexually harassed minors, this man is still a star in the Baltic States and regularly attacks Israel and Jews in the Icelandic media.
(1) Due to anti-Israel and anti-Semitic sentiments among the Left in Iceland, this is the most usual way of seeing Israel's flag in Iceland. (2) Former World Champion Chess Master Bobby Fischer, and a anti-Semite got a special Icelandic citizenship and lived in Reykjavík for the rest of his life spewing vicious hatred of Jews of the Internet (3) Sign in a bike-repair shop in Reykjavík saying Jews are not welcome. A caravan rental in Reykjavík also excluded Jews as their customers (4) The "bike-Nazi", who put up the sign about Jews not being welcome in his shop (5) During an anti-Semitic exhibition at a Reykjavík art gallery a young Jewish couple from the US discovered this drawing on a blackboard on which guests at the exhibition were asked to express their feeling about Israel. This perversion is also an Icelandic product.
Further Reading:
Gerstenfeld, Manfred (2015) Iceland´s Anti-Semitism is Not New, It Just Resurfaced. An op-ed in Arutz Sheva / Israel National News Op-ed. published 20 September 2015.
Vilhjálmsson, Vilhjálmur Örn (2004) Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004, Jewish Political Studies Review 16:3-4.
Idem (2005). Medaljens Bagside - jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945. Forlaget Vandkunsten, Copenhagen. (In Danish)
Idem (2015). The first Jewish services in Iceland 1940-1943. Fornleifur an archaeological and historical blog written by the author).
Idem (2019).´Iceland´. In Antisemitism in the North: History and State of Research (ISBN: 978-3-11-063482-2)
Open access publication. Read my and other articles here; My article you can also read here. :
Zuroff, Efraim 2002, Operation Last Chance: One Man´s Quest to Bring Nazi Criminals to Justice. See also here and here for correct information on war criminal Evald Mikson in Iceland.
Trúmál | Breytt 21.1.2021 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hinn heilagi íslenski þjóðfáni
14.9.2015 | 09:00
Hér hefst röð nokkurra greina um merki Íslands, skjaldamerki fyrr og síðar, fána þjóðarinnar og skildi riddara hennar.
Ekki alls fyrir löngu sá ég í fréttum RÚV, að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlaði að setja fram fjölda mála á þingi, þó engin stórpólitísk eða vitsmunaleg (sjá hér, 8:50 inni í fréttatímanum). Eitt að af keppikeflum hins landsföðurlega unglings er að leggja fram breytingar á lögum á þjóðfánanum til að leyfa notkun fánans á verslunarvörum sem framleiddar eru á íslandi; sem og í vörumerkjum og umbúðum (á það líka við list, sem líka er verslunarvara?). Hann boðið slíkt lagafrumvarp í fyrra en kannski var það eitthvað annað?
Ljósmynd Haraldur Jónasson. Myndin efst er skönnuð af höfundi og er af safni hans af íslenskum fánum úr Turmac sígarettupökkum. Slík merki myndu ekki fá náð fyrir lögum Sigmundar Davíðs í dag.
Fáninn er sameign landsmanna. Frjálsa þjóðin í vestri er búin að nota Stars and Stripes í alls kyns tilbrigðum og Union Jack Breta hefur t.d. verið settur á kitlara (titrara/gervilimi) sem seldir eru í Soho, án þess að menn kippi sér hið minnsta upp við það. Það kemur því ekki á óvart að Sigmundur Davíð leikmyndahönnuður á Selfossi, maður með ríka fortíðarást gerist fánahyllir og leyfi fánann á hvað sem er, að því tilskyldu að framleiðslan sé alíslenskt og framleidd í landinu sjálfu undir strangri umsjón fánaeftirlitsmanna og fánalögreglunnar.
Þetta er auðvitað leynd aðför að minjagripasölumönnum á Íslandi, sem selja alls kyns rusl í fánalitunum og umvafið í þjóðfánann, búið til af börnum í Kína og Laos. Íslenskir minjagripir eiga að vera íslenskir og hráefnið í þá líka!
Rís þú upp unga Íslands merki
Þetta minnir mig allt á umbrot í MH á árum mínu þar (1976-79), þegar hópur kristinna í skólanum bað samnema sínu um að teikna Guð og þá var þjóðfáninn mönnum hugleikinn. Niðurstöðurnar voru birtar á sýningu og meðal þess kom í sarpinn var reður í reisn litað með fánalitunum. Einnig var teikning af Hallgrímskirkjunni sem portkona svört og mikið í netsokkum sat klofvega yfir og gerði síg líklega til að gleypa turninn. Síðastnefnd teikning var gerð af guðsdreng einum í skólanum, drátthögum mjög í erótískri list. Þessir draumórar hans spurðust þó ekki vel fyrir hjá rektor Guðmundi Arnlaugssyni sem var alveg mát, og lét banna sýninguna. Flestir nemar skólans hlógu sig máttlausa enda komnir tíma þar sem menn tóku merki lýðveldisins ekki eins alvarlega og lýðveldið sjálft, sem er miklu mikilvægara en merki þess.
Sifjarspell
Ósk Sigmundar um að hafa fánann einvörðungu á höndum íslenskra framleiðenda, minnir mig á frekjudrós að Norðan, fyrrverandi fegurðardís úr Sjallanum, sem fyrir nokkrum árum reyndi með lögfræðingaaðstoð að banna konu sem í mörg ár hafði rekið fyrirtæki undir nafninu SIF að nota það nafn, vegna þess að hún væri sjálf farin að nota nafnið í sínum atvinnurekstri og væri hin eina og sanna SIF JAKOBS alþjóðlegur skartgripahönnuður, lærð í Svíþjóð: "Einnig kemur fram að hún sé aðalhönnuður eins af stærstu skartgripafyrirtækjunum í Kína og sömuleiðis séu skartgripir hennar seldir í Leonard hér á landi. Þá hafi hún hannað skartgripi sem seldir hafa verið til styrktar góðum málefnum, svo sem til styrktar Neistanum (styrktarfélagi hjartveikra barna), blindum börnum og Krabbameinsfélaginu. Af þessu hafi hróður hennar sem skartgripahönnuðar spurst út og hún orðin þekkt hér á landi sem og erlendis fyrrverandi hönnuður hjá stærsta skartgripafyrirtæki Kína" . Málatilbúningur var allur hinn hjákátlegasti (sjá hér), enda tapaði Sif (sem reyndar heitir Guðný Sif) máli sínu með glæsibrag í úrskurði Einkaleyfisstofnunar. Skartgripir hennar minna mig á hundaólar með "blingi" og glerdemöntum, og virðast fjöldaframleiddir af börnum í Kína á ómannsæmandi launum. Þess vegna er ég búinn að hafa samband við Marc Jacobs og hef sagt honum frá Guðnýu sem sumir halda að sé systir hans. Frekja Sifjar minnir mig á vissan hátt á Sigmund Davíð, sem ætlar að banna öðrum mönnum en íslenskum að nýta sér íslenska fánann. Nú á þetta að verða Íslenski fáninn by David Gunlogs. Hefur ráðherrann ekkert betra við tímann að gera?
Þegar faðir minn vanvirti íslenska fánann.Faðir minn var erlendur maður að uppruna og kaupahéðinn. Þetta er hann á myndinni í æsku sinni. Eitt sinn fékk hann þá hugmynd snemma á 7. áratug 20. aldar að fá framleidd þjóðleg gluggamerki fyrir íslenskar bifreiðar, enda sá hann það greinilega fyrstur manna fyrir að Íslendingar myndu síðar flykkjast i ferjum til erlendra landa á drossíum sínum. Var þessu framtaki ekki tekið vel upp í ráðuneytum landsins þótt að merkin rokseldust. Faðir minn fékk bréf frá tveimur ráðuneytum og það í hótunarstíl. Honum var greint frá því að hann notaði skjaldamerki og fána Íslands í leyfisleysi.
Faðir minn, sem hafði í nær áratug verið íslenskur ríkisborgari hafði strax samband við Gunnlaug Þórðarson, sem oft hafði verið honum innan handa með lögfræðileg vandamál og var einnig um skeið endurskoðandi föður míns. Gunnlaugur sagði það af og frá að faðir minn væri að brjóta nokkur lög. Pabbi andaði léttar. En þá barst hótunarbréf um sektir og fangelsisvist og hvað eina, sem ég á því miður ekki búinn að finna. Hætti þá faðir minn sölu á þessum bílamerkjum og sneri sér að ermamerkjum með fána og skjaldamerki og lyklakippum með skjaldamerki Íslands sem aldrei var fett fingur út í og sem rokseldust í Rammagerðinni og í öðrum minjagripaverslunum, jafnvel á Langanesi.
Tel ég víst að einhver stór smásál að Norðan í íslenska stjórnkerfinu hafi ekki þolað að útlendingur væri að selja hinn heilaga íslenska fána. Gunnlaugur Þórðarson taldi hins vegar víst, að það hefðu hleypt galli í blóð stjórnvalda að faðir minn lét setja myndir af ýmsum opinberum byggingum á rúðumerkin, þannig að útlendingar sæju á bifreiðum Íslendinga hve kotungsleg dómkirkja, þinghús og forsætisráðuneyti landsins væru. Gunnlaugur taldi, sem sagt, að þetta kæmi við minnimáttarkenndina í sumum Íslendingum.
Fyrir nokkrum árum tókst mér að bjarga nokkrum gluggamerkjum, svokölluðum decals, sem faðir minn lét framleiða í Hollandi hjá fyrirtæki í Amsterdam sem bar heitið ALIMEX. Fleiri gerðir voru til en þessar. Ein var t.d. með íslenska fánanum á skildi og önnum með íslenska skjaldamerkinu. Mig minnir einnig að Leifsstyttan á Skóavörðuholtinu væri á einu merkjanna.
Þessi merki rokseldust, en voru í óþökk verndara hins heilaga, unga, íslenska fána, sem hins vegar var stundum hylltur á afar sérstakan hátt (sjá hér), líkt og í Kaldárseli árið 1989, þar sem sannkristnir menn hylltu fánann með "rómverska" laginu. Ekkert var sagt við því í ráðuneytunum. Myndin er fengin úr Barnablaðinu 2.tölublaði, 1989.
Heil eða Saluto Romano, sem er seinni alda tilbúningur og á ekkert skylt við Rómverja.
Menning og listir | Breytt 19.8.2020 kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Enn um Ólafíu - og Gordon Childe
2.9.2015 | 16:45
Ólafía Einarsdóttir var fyrsti menntaði fornleifafræðingur okkar Íslendinga og fyrsta íslenska konan sem lauk prófi í fornleifafræði. Það gerði hún árið 1948. Hún stundaði nám sitt í 4 ár við University College i Lundúnum og lauk þaðan B.A. prófi í fornleifafræði.
Hún starfaði þó mjög stutt sem fornleifafræðingur (1951-52) og sneri sér að öðrum verkefnum og fræðum, ekki minnst vegna þess að samstarfið við Kristján Eldjárn á Þjóðminjasafni Íslands, þar sem hún kom til starfa árið 1951, gekk ekki sem skyldi. Of mikill ágreiningur var á milli fornleifafræðingsins og Kristjáns Eldjárns þjóðminjavarðar, sem ekki hafði löglegan titil í fornleifafræði. Ólafía sagði upp starfi sínu árið 1952.
Bjarney Inga Sigurðardóttir skrifaði árið 2009 B.A. ritgerð í fornleifafræði um Ólafíu, þar sem má lesa um árekstra þeirra Kristjáns og Ólafíu, sem bæðu voru viljasterkar og menntaðar persónur. Mig langar að benda mönnum á að lesa ritgerð Bjarneyjar til að kynnast í fljótu bragði störfum Ólafíu, þó kannski sé of mikið gert úr kvenmannsleysinu í fornleifafræði í ritgerðinni, eins og það hafi verið eitthvað samsæri. Og hefur ekki úr ræst? Nú er nær allir fornleifafræðingar á Íslandi kvenmenn fyrir utan örfáa veikburða karla.
Ólafíu Einarsdóttur dvelur nú mög veik á elliheimili í Kaupmannahöfn og hefur eiginmaður hennar Bent Fuglede gefið gömlum nemanda hennar leyfi til að birta greinar og ritgerðir eftir hana á academia.edu og taka hluta af bókasafni Ólafíu í von um það gæti nýst einhverjum öðrum en Ólafíu. Hef ég og aðrir notið góðs af því örlæti, líkt og aðrir íslenskir fornleifafræðingar hafa notið góðs af örlæti Ólafíu á síðari árum, þegar hún með eigin fé hefur styrkt útgáfu tímaritsins Ólafíu, rits íslenskra fornleifafræðinema. Það sýnir örlæti og áhuga Ólafíu á sínu upphaflega fagi einna best.
Eitt af þeim verkum Ólafíu sem Jens Ulff-Møller hefur birt er licentiatsritgerð hennar frá háskólanum í Lundi, sem einnig fjallar um tímatal líkt og doktorsritgerð hennar frá 1964. Þessi Fil.lic. ritgerð frá Lundi er ekki nefnd í ritgerð Bjarneyjar Ingu um Ólafíu, enda hefur ritgerðin aldrei verið gefin út. En nú er hún aðgengileg. Hún er að ákveðnu marki athyglisverð, þó langur tími sé liðinn frá ritun hennar, en gaman er að skoða hana í tengslum við doktorsritgerð Ólafíu. Ég er viss um að einhverjum þyki gaman að henni.
Í minni vörslu er nú bók V(ere) Gordon Childes, Prehistoric Communitis of the British Isles, sem Ólafía Einarsdóttir las spjaldanna á milli og notaði í námi sínu í London. Bókin er full af athugasemdum og nótum BA-nemans Ólafíu.
Fyrir mjög mörgum árum síðan, þegar ég og kona mín fórum í mjög fínt kaffiboð hjá Ólafíu á Stúdentagörðum í Reykjavík, þar sem Ólafía hafði tekið íbúð á leigu meðan hún var stödd á Íslandi, talaði hún mikið og mjög innilega um Gordon Childe (1892-1957), sem hefur haft mikil áhrif á hana. Þegar Gordon Childe var komin á eftirlaun í London árið 1956 kom hann á þriðja Víkingafundinn sem haldinn var í Háskóla Íslands. Kristján Eldjárn sagði síðar svo frá, að þegar Childe hefði verið spurður, hvers vegna ekki fyndust minjar frá steinöld á Íslandi, hefði svar hans verið stutt og laggott: "Lélegir fornleifafræðingar". (Sjá Andrésson, K.E. (1966). Ísland hefur enga forsögu: viðtal við dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörð. Tímarit Máls og menningar, 27, 352-365). Líklega var þetta nú húmor einfarans Childes við kjánalegri spurningu - en hver veit ...
Nær hefði þó verið að heyra betur sögur Ólafíu af Childe, sem valdi til sín fáa nemendur sem hann hafið trú á, stundum ekki fleiri en 5-6 á önn. Ólafía, sem á fermingaraldri stóð í rigningunni í Þjórsárdal og horfði á fornleifafræðingana og féll fyrir fræðigrein sem hún aldrei fékk að starfa við, var ein þeirra útvöldu.
Ég hef áður skrifað um Ólafíu Einarsdóttur hér. Hér má lesa frásögu annars fornleifafræðings, Nancy Sandars, sem naut leiðsagnar Gordon Childes um svipað leyti og Ólafía, og allt ber að sama brunni. Aðdáunin á Childe skín út úr hverri setningu.
Þegar Childe kenndi Ólafíu var fornleifadeild University College í London í þessu húsi. St. John´s Lodge.
Fornleifafræði | Breytt 7.12.2022 kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bláklædd kona en fáklædd
29.8.2015 | 08:12
Ritdómur
Nýlega fékk ég í hendur sýningarritið Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli (2015, 72 bls.). Bókin, sem er "tvítyngd", íslensk/ensk, tengist sýningu á Þjóminjasafni Íslands endurrannsóknum á leifum úr kumli konu sem fannst á Litlu-Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá árið 1938. Bókin kom út meira en tveimur mánuðum eftir að sýningin var opnuð. Ég hef ekki haft tök á að sjá sýninguna, en nú hef ég lesið Bláklæddu Konuna.
Í dag, 29.8.2015, er málþing um rannsóknina á Þjóðminjasafni Íslands. Þetta er innlegg mitt til þess. Farið og spyrjið fræðimennina úr spjörunum bláu, en lesið fyrst þetta þótt langt sé:
Embættismenn og fræðilegir ráðgjafar
Bókin hefst á heldur hástemmdum inngangsorðum embættismanns, Margrétar Hallgrímsdóttur sagnfræðings og þjóðminjavarðar. Því miður tel ég samlíkingar þjóðminjavarðar á þessu kumli og rannsóknum á því við leifar "mýrarmannanna" Grauballe- og Tollundmannanna í Danmörku algjörlega út í hött. Margrét Hallgrímsdóttir líkir einnig leifum konunnar frá Ketilsstöðum við rannsóknir á Ötzi, "Ísmanninum" sem fannst í ítölsku ölpunum árið 1991. Það er víst orðum of aukið, því miðað við allar þær rannsóknir sem menn hafa gert á Ötzi eða mýrarlíkum í Danmörku, þá eru rannsóknir á kjálka og andlitsholdi konunnar frá Litlu-Ketilsstöðum afar viðvaningslegar og óábyggilegar.
Miðað við yfirlýsingar Þjóðminjavarðar í blöðum fyrr í ár, þar sem bláa konan var dregin inn í umræðuna um 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna á Íslandi (sjá hér), þá þykja mér niðurstöðurnar mjög rýrar og vel því að uppnefna blessaða konuna í kumlinu fáklæddu konuna, vegna þess hve lítt bitastæðar niðurstöðurnar eru.
Eftir hátíðleika embættiskonunnar kemur átorítetið í gervi Steinunn Kristjánsdóttir, sem Fornleifur skrifaði um í nýjustu grein sinni. Steinunn, sem er "fræðilegur ráðgjafi" við gerð bókarinnar (skv. upplýsingu á bókarkápu) er með stuttan inngang. Ekkert kemur fræðilega áhugavert fram í honum frekar en í kafla Söndru Sifjar Einarsdóttur sem tekur við keflinu og lýsir fundarsögu kumlsins. Þó dáist ég að kafla Söndru um kyngreiningu út frá gripum. Þar finn ég þessa setningu sem mér finnst betri á ensku en á íslensku:
"Western ideas about two sexes- male and female - have often determined the interpretation of gender and gender identity in graves, where only the grave goods were taken into account:"
Íslenska gerðin er öðruvísi og hefur orðið vestrænar (Western) að einhverjum ástæðum verið fjarlægt:
"Hugmyndir um tvö kyn, karlkyn og kvenkyn, hafa oft ráðið túlkunum á kyni og kyngervi einstaklinga þar sem aðeins hefur verið stuðst við haugfé í gröfum þeirra".
Vissulega féll ég karlfauskurinn í þessa "Western idea" gryfju, sem aðeins sér tvö kyn og geng næstum út frá því með vissu að skálaspennurnar í kumlinu frá Ketilsstöðum hafi ekki tilheyrt karli. Ég hugsaði ekki einu sinni til þess að þarna hafði verið grafinn bláklædd LBGT-persóna (Lesbian, Bisexual, Gay, Transsexual). Eins er ég svo ómodern í hugsun, að þegar ég hef velt fyrir mér miklu fjölda perla í kumlum íslenskra karla er meiri en meðal annarra norrænna karla á víkingaöld, þá ályktaði ég ekki út frá "kveifarlegum" gripum eins og perlum, að karlarnir hafi verið bi, trans eða gay. Ég veit að perlur finnast einnig í miklum mæli í gröfum samískra karla og sé meiri ástæðu til að tengja það þeim perlugleði íslenskra karla.
Ég reyni að varast að líta ekki menningarheima fyrir 1000 árum síðan með menningargleraugum míns eigin samtíma. Er það greinilega komið úr tísku. Þess vegna tel ég það vera gott að hægt sé að kyngreina með öðru en perlum. En þriðja kynið+ í fornleifum verður víst seint fundið með líffræðilegum aðferðum frekar en fjölda perla - enda skiptir það víst afar litlu máli, nú þegar við vitum að einstaklingurinn í gröfinni á Litlu-Ketilsstöðum var kona. Öðru máli hefði það gegnt hefði hún fengið sverð með sér í kumlið. Þá hefðu runnið á mig tvær grímum. En það er samt fyndið, að um það bil 20 árum eftir að kynjafræði fór úr tísku úti í heimi, þá eru sumir íslenskir fornleifafræðingar á kafi í slíku.
Klæðnaður og skart
Michèle Hayeur Smith ritar mjög mikilvægan kafla um klæðnað, skartgripi og textíla. Þar er lopinn því miður teygður meira en ástæða er til. Hvað varðar kopargripi, tvær skálanælur og þríblaða nælu, sem fundust í kumlinu, er ljóst, að viðtekin, gerðarfræðileg aldursgreining þeirra kemur ekki heim og saman við geislakolsgreiningar (AMS-greininga) á efniviði úr kumlinu (sjá neðar). Brjóstnælurnar eru af gerð sem mismunandi sérfræðingar hafa með góðri vissu og miklum samanburðargreiningum aldursgreint til 10. aldar og frekast til miðbiks aldarinnar og síðari hluta hennar.
Þótt kaflinn eigi að sögn líka að fjalla um perlur er eftirfarandi setning allt og sumt sem um þær er ritað, en aftar í bókinni er yfirlit yfir haugfé, þar sem þær eru einnig nefndar á þennan hátt:
"Þá gæti konan frá Ketilsstöðum hafa átt ættir að rekja til meginlands Evrópu. Hún bar reyndar perlufesti [Aths. Fornleifs: sem hér fyrrum var kallað sörvi af Kristjáni Eldjárn] sem hefur hangið á milli brjóstnælanna tveggja, og sumar benda til tengsla við sunnanvert Miðjarðarhafssvæðið."
Mér til mikillar furðu er þessi setning öðruvísi á enskunni:
"The woman from Ketilsstaðir may have had a family connection with continental Europe. She was actually adorned with beads that would have hung between her two brooches and some of these beads also suggest possible exchange with the southern Mediterranean".
Þessar upplýsingar mismunandi. Af hverju? Svör óskast.
Á blaðsíðu 65 er svo endurtekin upplýsingin um að perlurnar séu frá Suður-Evrópu og því er meira að segja haldið fram að aðrar séu jafnvel enn lengra að komnar og sagt er að " aldursgreining perlnanna bendir til að þær séu frá 10. öld. Vitnað er í mastersritgerð við HÍ frá 2005 eftir Elínu Ósk Hreiðarsdóttur, sem ber heitið Íslenskar perlur frá Víkingaöld. Þar kárnar gamanið fyrir mig, því sú ritgerð er ekki aðgengileg á netinu eins og margar MA ritgerðir í fornleifafræði á Íslandi. Rökin sem vitnað er í er ekki hægt að sjá. Það eru ekki góð vísindi.
Mynd úr bókinni. Stóra perlan svarta, er úr tálgukoli (gagati, sem á ensku kallast jet). Hún er mjög líklega komin frá Bretlandseyjum. Á myndinni sést ekki stór perla úr rafi sem fannst í kumlinu. Hinar perlurnar eru úr gleri. Sumar perlurnar voru gerðar á Norðurlöndum/Norður-Evrópu, en t.d. litla græna perlan og málmlituðu perlurnar (svk. "segmented metal foiled glass beads") eru ættaðar frá botni Miðjarðarhafs.
Þetta er auðvitað meinloka. Ég hef borið perlurnar undir fremsta sérfræðing Dana í perlum á víkingaöld, Claus Feveile, og hann telur ekki að perlurnar gefi ástæðu til að tengja þær uppruna þeirra sem báru þær, þó við vitum vel að málþynnuperlurnar og grænu perlurnar í sörvinu séu komnar - já, í milljarðatali- frá Miðausturlöndum, og hafa þaðan borist allt austur til Indónesíu, suður til Madagaskar og norður til Íslands, og ef ég sá rétt um daginn, alla leið til Ameríku. Þær geta verið miklu eldri en frá 10. öld en hafa verið í umferð lengi, áður en þær bárust til Íslands. Það hefur ekkert með uppruna fólks á Íslandi að gera hvort perlurnar eru frá "Suður-Evrópu" eða "lengra að komnar", en það skilur Michèle Hayeur Smith greinilega ekki. Perlur voru ein algengasta verslunarvaran á Járnöld og Víkingaöld! Í stað þess að vitna í MA ritgerð á íslensku, hefði hún átt að þekkja grundvallarverk Johans Callmers frá 1977 um glerperlur og greinar Claus Feveiles og annarra um perlur í Danmörku. Höfundur kaflans um klæðnað og skreyti hefur greinilega ekki grundvallarþekkingu á því sem hún ritar um.
Ég hafði einnig samband við Elínu Ósk Hreiðarsdóttur til þess að sjá, hvort þetta rugl var frá henni komið. Svo er ekki. Haft hafði verið samband við hana út af sýningunni og beðið um leyfi til að vitna í mastersritgerð hennar og hún hins vegar beðin um álit á einhverju atriðum þessu viðkomandi. Það voru mismunandi aðilar frá Þjóðminjasafni sem höfðu samband við hana oftar en einu sinni. Bauðst hún til þess að kíkja aftur á þær upplýsingar sem hún hafði undir höndum um perlurnar eða kíkja lauslega á perlurnar aftur og taka saman eitthvað um efnið fyrir sýningu/bók, en það var ekki áhugi á slíku. Henni var heldur ekki boðið að lesa það sem endaði í sýningu eða bók um perlurnar og henni ekki send bókin. Það eru eru einfaldlega óásættanleg vinnubrögð og Þjóðminjaverði og safni henni til lítillar frægðar!
Þrátt fyrir allt þetta spin í þessum kafla bókarinnar um klæðnað konunnar. Það leikur enginn vafi á því, að konan hafi verið bláklædd og upplýst er að það hafi einnig verið liturinn á vefnaði sem hefur fundist í 65% kumla kvenna á Íslandi. Því miður er ekki upplýst, hvort það sé í kumlum þar sem fundist hafa vefnaðarleifar, eða 65% allra kumla. Litarefnið er úr plöntu sem kallast Litunarklukka (Isatis tinctoria).
Aldurinn
Aldursgreininguna á kumlinu kynnir eiginmaður Michèle Heyeur Smith, Kevin Smith. Kevin er drengur góður sem er íslenskum fornleifafræðingum vel kunnur. Ungur að árum lagði prófessor einn í New York, Thomas H. McGovern hann í einelti, þar sem McGovern taldi ekki Ísland vera big enough for both of them. Það er önnur saga og ljótari, sem bráðlega verður sögð.
Strax þegar ég sé að greiningarnar hafa verið gerðar hjá Beta-laboratories, fer maður að efast. Þetta er fyrirtæki sem selur greiningar og fóru löngum ekki allt of góðar sögur af því. En þar sem bæði eru gerðar δ13C mælingar og aðrar nauðsynlegar leiðréttingar fyrir viðskiptavinina Beta í dag og að þetta er AMS greining, þá hljóta að vera aðrir og betri tímar. Það er þó ljóst, að Kevin Smith fremur það sem ég kalla elastic statistics (teygjutölfræði). Það er ekkert við greiningarnar þrjár sem ég hef einnig rennt í gegnum OX-forritið sem er hægt að gerast notandi að á netinu, sem gefur ástæðu til að álykta annað en að ullin sem greind hefur verið hafi vaxið á rollum sem uppi voru á 9. öld. Enn síður að tönnin (kollagenið í tönninni úr bláklæddu konunni sem greind var hafi verið á lífi og nýst henni fram á 10. öld, líkt og Kevin Smith vill halda fram. Það er 90% rökleysa.
Samkvæmt leiðréttum og kalíbreruðum AMS greiningunum er aðeins 3,5% líkur á því að konan hafi verið uppi í byrjun 10. aldar líkt og Kevin Smith heldur þó fram að sé líklegast að hafi verið sá tími sem hún lést á. 89% líkur eru hins vegar á því að hún hafi verið uppi á 9. öld, skv. AMS-greiningunum.
Með aldursgreininguna á nælunum í kumlinu í huga, tel ég þó líklegast að vandamálið sé enn sem áður óáreiðanleiki C-14 greininga á íslensku efni, sem er mikið vandamál fyrir íslenska fornleifafræði. Nælur í kumlinu á Litlu-Ketilsstöðum , sem m.a. er hægt að aldursgreina með samhengisgreiningum með dagssettri arabískri mynt, annarri mynt og gripum með þekktan aldur er að mínu mati áreiðanlegri aldursgreining en þessar þrjár greiningar. Konan sem heygð var á Ketilsstöðum dó að mínu mati á 10. öld, þó svo að tölfræðilega séu við mælingu geislakols greinilega meiri líkur á því að hún hafi látist á seinni hluta 9. öld. Kevin Smith hefur því miður ekki tekið á þessum greinilega ósamræmi. Konan og fötin hennar urðu til á 9. öld, ef trúa má AMS-greiningunum frá Beta-Lab, meðan að skartgripir hennar voru í tísku á 10. öld. Það er skrítið, ekki satt?
Líkamsmannfræðin
Svo kemur merkilegasta grein ritlingsins, en hún er eftir Joe W. Walser hinn þriðja, sem er með MSc gráðu frá Durham University á Englandi norðanverðu, þar sem ég vann veturlangt árið 1988-89 að doktorsverkefni mínu. Joe er einn þessara manna sem leitar svara í beinunum. Út frá lengd lærleggs þeirrar bláu kemst hann að þeirri niðurstöðu, að hún hafi verið 44-50 kg. að þyngd og 147-159 að hæð. Enginn mannfræðingur að viti, nema þeir sem rannsaka morð, myndu áætla lengd og þyngd á þennan hátt. Maður verður að hafa önnur bein til að fá rétta mynd. Hans Christian Petersen mannfræði- og tölfræðiprófessor við Syddansk Universitet i Oðinsvéum sem árið 1993 mældi bein úr kumlum og kirkjugörðum á Þjóðminjasafni Ísland (sjá hér), valdi t.d. ekki að álykta nokkuð um hæð konunnar í kumlinu á Litlu-Ketilsstöðum út frá einum lærlegg. Hann hefur upplýst mig, að það sé ekki hægt nema með mjög mikilli óvissu. BMI (body mass index) konunnar er einfaldlega ekki hægt að reikna út frá einum lærlegg.
Strontíum var það heillin
Strontíum-greining er aðal tískufyrirbærið í dag. Sitt sýnist hverjum og hefur t.d. Prófessor Kaare Lund Rasmussen ved Institut for.. fyrrverandi super-professor og forstöðumaður C-14 rannsóknarstofu Danska Þjóðminjsafnsins tjáði mér nýlega, að hann telji oft ekki vera tölfræðileg rök til stuðnings þess að álykta um fæðingarstað, þann stað sem fólk ólst upp fyrstu 4-5 árin, og þaðan að síður uppruna fólks út frá strontíum-gyldum i greiningum á tönnum eða öðru lífrænu efni.
Víkingavirkið Trelleborg á vestanverðu Sjálandi var rannsakað á 5. áratug síðustu aldar. Þar fannst m.a. kirkjugarður frá 11. öld, þar sem grafnir voru hermenn Haraldar blátannar, að því að talið er. Fyrir nokkrum árum réðust menn í að rannsaka strontíum gildi í tönnum þeirra sem lagðir hafa verið til hinstu hvílu á Trelleborg. Niðurstaðan var túlkuð á þann veg, að meirihluti þeirra sem þar lægju hefðu verið erlendir málaliðar, því þeir voru ekki með sömu strontíum gildin og mæld hafa verið á Trelleborg. Ályktað var, að þeir hefðu t.d. komið frá Póllandi eða Noregi. Prófessor Kaare Lund Rasmussen eðlisfræðingur telur ekki að það sé tölfræðilegur grundvöllur fyrir því að álykta á þann hátt (persónulegar uppl. 17.8.2015). Nýlegar mælingar á strontíum-gildum í Danmörku sýna svæði með miklu hærra strontíum í jörðu, vatni, gróðri sem og í þeim dýrum sem þar lifa en við Trelleborg. Reyndar er svæði, rétt hjá Trelleborg, sem er með nærri því eins há gildi og sumir einstaklingarnir á Trelleborg (rauðu svæðin á kortinu). En niðurstaðan um erlenda málaliða Haralds Blátannar er komin út í "heimsbókmenntirnar", þó þær séu vægast sagt hæpnar, og þeir sem birt hafa þessar niðurstöður virðast eiga mjög erfitt með að taka gagnrýni.
Áfram með Stínu Bláu
Fyrr í sumar var því haldið fram í fjölmiðlum, að bláklædda konan væri frá Vestur-Skotlandi eða hefði alið manninn þar á unga aldri. Eitthvað hefur þeirri niðurstöðu verið breytt fyrir bókina, því nú ályktar Joe Walser III, að ísótópagildi greiningarinnar séu dæmigerð fyrir vestur- og suður England, Írland, Wales og Skosku eyjarnar.
Það, að Joe heldur að strontíum-gildin í konunni sýni að hún hafi fyrstu ár sín búið á Skotlandi, Wales osfr., þá segir það ekkert um ætterni hennar. Hún getur allt eins verið ættuð úr Noregi, þó hún hafi fæðst á Skotlandi. Reyndar er það nú svo, að Joe Walser III hefur ekki einu sinni haft fyrir því að upplýsa lesendur, hvaða strontíum-gildi konan hefur. En ef hann telur sig finna svipuð gildi á Bretlandseyjum og fundust í tönn Ketilsstaðakonunnar, þá gæti hún alveg eins hafa fæðst og alist fyrstu ár sín upp í Noregi, því í Noregi eru strontíum gildi víðast hvar ekki ósvipuð þeim sem mælast á Bretlandseyjum. Ef Joe skoðar þessa grein, sér hann að mælingar á Bretlandseyjum og í Noregi gefa svipaðar niðurstöður. Sú bláa gæti þess vegna vel hafa fæðst og alist upp i Noregi, og því ekki það?
Glæsilegasta, en sömuleiðis vitlausasta yfirlýsing bókarinnar kemur svo á bls. 53., þar sem Walser skrifar:
"Sýni var tekið úr hægra gagnaugabeini konunnar og sent til fornDNA greiningar hjá Íslenskri erfðargreiningu. Niðurstöður þessara rannsókna liggja ekki fyrir en þær gætu veitt nánari upplýsingar um útlit konunnar, uppruna og búsetu."
Nema að menn finni smávægilegan litningagalla sem t.d. veldur því að fólk er rauðhært og hefur að því er okkur hinum finnst ramma svitalykt, er algjörlega út í hött að álíta að hægt sé að ákveða eitt eða neitt um " útlit" konunnar, nema að hún hafi verið haldin einhverjum erfðagalla (syndrómi) sem t.d. hefur bæklað hana. Að sjá mannfræðing sem álítur að fenótýpa (útlit fólks) geti ákvarðast 100% af genótypunni (erfðamenginu) er fjarstæðukennt. Vitaskuld geta DNA-rannsóknir hugsanlega sagt eitthvað til um, hvort konan í kumlinu hafi verið t.d. negri eða frá Miðausturlöndum, en eins og perlurnar, þá sýnir DNA hennar ekki útlit hennar og þaðan af síður nokkuð um þjóðerni (etnicitet).
Lokagrein ritsins er eftir Juliu Tubman, ungan forvörð, og fjallar um forvörslu á holdsleifum af andliti konunnar. Þar sem mig skortir þekkingu á forvörslu, þá verð ég að sleppa mati mínu á því, enda sýnist mér vinnuaðferð Tubmans vera mjög yfirveguð og nákvæm út frá lýsingum hennar.
Þessi annars rýra útkoma, sem hefur verið sett upp sem sýning á Þjóðminjasafni Íslands, og líkt við rannsóknir á Ötzi gamla í Ölpunum. Kumlkonan hefur meira að segja verið dregin inn í kvenréttindasögu Íslands, finnst mér ærin ástæða til að skýra bókina upp á nýtt: Fáklædda konan er nafn með rentu eftir meðferð fræðimannaliðsins á henni. Efnið er rýrt og rúið.Þessi einkennilega myndaröð fylgir grein Joe W. Walsers hins þriðja um beinin (bls. 48-9). Hvernig getur líkamsmannfræðingur með virðingu fyrir sjálfum sér sætt sig við að hold og húð sé teiknuð yfir útlínur hauskúpuleifanna og án þess að listamaðurinn geri sér grein fyrir því að þykkt mjúkra vefja á ýmsum stöðum á höfði hefur verið rannsakað skipulega af vísindamönnum um áratugaskeið og nota menn þær mælingar þegar útlit fólks er ákveðið út frá höfuðkúpu, t.d. í morðmálum? Maðurinn sem teiknar þetta er vissulega ekki mannfræðingur heldur Snorri Freyr Hilmarsson, hönnuður sýningarinnar um bláu konuna, sem kannski er betur þekktur fyrir að vera einn að hugmyndasmiðunum, ásamt Dr.in spe Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra Íslands, á bak við verkefni sem stefnir að því að byggja fornleifar, t.d. heilan leikmyndabæ í gömlum stíl á Selfossi. Það hefur farið fyrir konunni á teikningum hans líkt og hinni hálfgömlu Selfoss hugaróranna, að konan sem hann skóp með blýantinum er ákaflega óekta. Mér sýnist að þarna sé komin landnámskerlingin á mjólkurfernum hér á árum áður.
Ein dönsk grafskeið hlýtur að vera meira en nóg fyrir þetta miður glæsilega framtak í íslenskri fornleifafræði. Mér er meinilla við að búta niður grafskeiðar til að gefa minna. Skeiðina fær hönnuður bókarinnar, Sigrún Sigvaldadóttir hjá Hunangi. Fornleifur gefur mest 6 skeiðar.
Að lokum syngur Leonard Cohen um the Famous blue Raincoat. Njótið nú snillinnar!
Ritdómur | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Klausturrannsóknin undir smásjá Fornleifs
27.8.2015 | 19:28
Í ár og í fyrra hafa fréttir borist með jöfnu millibili af klausturverkefni prófessors Steinunnar Kristjánsdóttur og félaga. Steinunn er reyndar ekki með neina menntun í miðaldafornleifafræði og klausturfræðum, þótt hún hafi gert miðaldir og klausturlifnað að "sérfræðisviði" sínu á prófessorsstólnum í HÍ. Verkefni hennar hefur fengið nafnið Klaustur á Íslandi og svo enska nafnið Monasticism in Iceland, sem vitanlega er alls ekki það sama og "Klaustur á Íslandi". Verkefnið hefur því hlotið tvö mjög mismunandi heiti á tveimur tungumálum. Það vekur náttúrulega strax furðu.
Jarðsjá er eitt af þeim verkfærum sem beitt er í verkefninu sem er styrkt af Rannís. Þetta er merkilega verkfæri, sem ég mæli þó ekki með að menn taki tröllatrú á, þó apparatið geti við vissar kringumstæður verið hentugt. Þetta tól hefur nú sýnt trúuðu fólki eins og Steinunni Kristjánsdóttur og samstarfsfólki hennar, að á Þykkvabæ hafi verið 1800 fermetra bygging, sem hún telur vera hluta af klaustrinu á Þykkvabæ. Það þykja tíðindi út fyrir landsteinana, líklega á við grænlensku konurnar og fílamanninn með "paget-sjúkdóminn" og önnur furðuverk sem Steinunn hefur grafið upp. Það voru fræðileg viðrini sem Steinunn fann hér um árið á Skriðuklaustri, áður en þau drógu sig í hlé, eins og pínlegar villur hugarheimanna eiga það til að gera. Þótt Steinunn Kristjánsdóttir muni að eigin sögn eftir sérhverri beinagrind sem hún grefur upp (sjá hér) sem væru þær börnin hennar, þá hefur henni greinilega þótt best að gleyma beinunum úr blessuðu furðufólkinu sem hún umgekkst og fór með í fjölmiðlana. Enginn góð skýring hefur enn komið á því, af hverju eskimóar og fílamaðurinn urðu loks úti í Austjarðarþokunni. Ekkert var nefnt í fjölmiðlunum um hvarf þeirra úr rannsóknarsöguninni. Hvers konar fræðimennska er það? Hvað er um að vera?
Til að ganga úr skugga um hvað um var að vera í rústaþyrpingu á Þykkvabæ sem menn hafa kallað Fornufjós, eftir að jarðsjármyndir þaðan voru skoðaðar, fékk Steinunn sérleyfi frá Minjastofnun Íslands til að grafa 5 metra langan rannsóknarskurð nú í sumar. Það leiddi því miður ekkert afgerandi í ljós.
Það að halda sig hafa fundið byggingu á stærð við dómkirkjuna í Niðarósi er Fatamorgana, hyllingar, sem auðtrúa fólk að upplagi sér oft þegar það fer að trúa alveg blint á maskínur eins og jarðsjár, eða þá DNA-rannsóknir, AMS-greiningar og strontíum-mælingar svo eitthvað sé nefnt.
En stóð ein stærsta bygging Norðurlanda á miðöldum, 1800 fermetrar að flatarmáli, virkilega á Íslandi? Ég leyfi mér að efast um það, líkt og ég gerði þegar ég frétti af inúítakonum og fílamanninum á Skriðuklaustri, sem og margri annarri bábilju (sjá t.d. hér, hér, hér og hér) sem hefur komið úr smiðju Steinunnar Kristjánsdóttur gegnum árin. En klaustur getur þó hæglega hafa verið á þessum stað, það útilokar maður ekki fyrr en hefðbundnar fornleifarannsóknir fara fram.
Konan á klukkunni, ljótt dæmi um fræðilega vangetu í íslensku klausturrannsókninni.
Á FB Monasticism in Iceland birtist fyrr í ár afar furðulega tilgáta sem virðist nú orðin af staðhæfingu, sem ekki gefur ástæðu til kinnroða. Það sýnir mér að þeir sem að rannsóknunum standa fjalli um rannsóknarefni sín af mjög mikilli vanþekkingu. Í þessu tilfelli er það ekki blessuð jarðsjáin sem notuð er til að ná uppljómun.
Kirkjuklukka ein, sem á okkar dögum er varðveitt í Helgafellskirkju er til umræðu. Myndir hafa birst af henni í ritröðinni Kirkjur Íslands. Einn nemandi Steinunnar, Vala Gunnarsdóttir, uppgötvar fyrr í ár, að mynd sem sett hefur verið í það mót sem bjallan var steypt með sýni Katrínu af Aragon, fyrstu eiginkonu Hinriks 8. Skrifaði hún um skoðun sína til sérfræðings erlendis, sem ekki svaraði (sjá hér). Sjá nokkrum dögum síðar var Katarín af Aragon samt komin í Fréttatímann:
Steinunn segir einsetu og klausturlíf hafa verið notað sem undankomuleið frá hagsmunahjúskap. Hún vinnur nú að því að skrá allar minjar úr klaustrum á Íslandi frá kaþólskum tíma og þegar hefur fundist kirkjuklukka sem er merkt sjálfri Katrínu af Aragon, fyrstu eiginkonu Hinriks áttunda Englandskonungs.
Á FB íslensku monasticistanna er því nú einnig slegið föstu að myndin sýni Katrínu af Aragon sem andaðist árið 1535. Því til stuðnings er því haldið fram að á merkinu sjáist rós Tudor-ættarinnar, ættar Hinriks, og granatepli tákn ættar Katrínar.
Hortus Conclusus
En nú vill svo til að konan á myndinni sem situr við lestur er sýnd með geislabaug. Katrín af Aragon hefur aldrei verið tekin í heilaga manna tölu. Einnig má benda klausturrannsóknarfólkinu á, að rósin sem Tudor-ættin notaði var mjög algeng gerð skjaldamerkjarósar. Slíkar rósir sjást m.a. á legsteinum og innsiglum án þess að þær hafi nokkuð með Tudor-ættina að gera. Reyndar var rós Túdorættarinnar rauð, en rós hreinleikans tákns Maríu meyjar var hvít. Nú er myndin á bjöllunni vissulega ekki í lit, en nokkuð víst þykir mér að þarna sitjir hún María mey við lestur i Hortum Conclusum, sem ég bendi klausturfólkinu á að lesa um hér sér til gangs og halds, því greinilegt er að það er ekki vel að sér í guðfræði miðalda eins og miðaldafornleifafræðingar verða þó að vera.
Í þessum lokaða garði gerðu menn sér á miðöldum í hugarlund að María Mey hafi beðið erkiengilsins Gabríels. Í garðinum voru hin fallegustu tré, blóm og ávextir og rósir. Þar var brunnurinn sem greint var frá í GT, Ljóðaljóðuum 4:12 Lokaður garður er systir mín, brúður, byrgður brunnur, innsigluð lind,("Hortus conclusus soror mea, sponsa, hortus conclusus, fons signatus"), sem og í Ljóðaljóðunum 4:13 Laut þín sem garður af granateplum, með gómsæta ávexti, henna og nardus. Á miðöldum trúðu menn því að einhyrningur tölti í þessum himneska garði sem sótti sér fyrirmyndir í GT (lesið endilega öll erindin í Ljóðaljóðum 4). Voru gyðingar ekki alveg eins og íslenskir sauðabændur af góðum framsóknarættum?
Hve fögur ertu, ástin mín, hve fögur,
og augu þín dúfur
undir andlitsblæjunni.
Hár þitt er sem geitahjörð
sem rennur niður Gíleaðfjall,
2tennur þínar ær í hóp,
nýrúnar og baðaðar,
allar tvílembdar
og engin lamblaus.
María var vitaskuld í Paradís, Edens garði. Allt eru þetta tákn Maríu Meyjar. Hinn lokaða garð reyndu menn svo að skapa á jörðu í klausturgörðum. Kannski hefur verið einn slíkur á Þykkvabæ upp á 1800 fermetra og hví ekki smáreitur að Helgafelli?
Tígulmyndaði ramminn kringum myndina af Maríu á bjöllunni á Helgafelli er einmitt stílfært gerði kringum garðinn og hún situr fyrir framan birgðan brunninn og innsiglaða lindina, sem af og til eru sýnd sem gosbrunnur, og hún les og les. Hún las mikið á þessum biðtíma sínum. Það virðist geta verið gosbrunnur bak við Maríu, en mögulegt er einnig að það sé Turn Davíðs, sem einnig greinir frá í Ljóðaljóðum og sést hann einnig oft á málverku frá hámiðöldum þar sem María er sýnd í garðinum.
Granateplið táknar á myndmáli miðalda og endurreisnartímabilsins að hún sé þunguð. Granateplið var einnig tákn eða allegoría fyrir kirkjuna sem safnar sama þeim sem trúa (með vísun til berjanna/fræjanna í fræbelgnum), og á síðmiðöldum er granateplið stundum sýnt í hendi Jesúbarnsins og táknar hið nýja líf sem fórnað er fyrir mannkynið.
Madonna della melagrana eftir Sandro Botticelli (d. 1510). Botticelli kunni vitaskuld myndmál (ikonografíu) trúar sinnar betur en flestir. Hér sjáum við Maríu og ávöxt hennar. Rósin og granateplin eru tvö af fjölmörgum táknum, attributum, hennar. Það er tilviljun að Henrik 8, sem notaðir rós í innsigli sínu kvæntist Katrínu sem notaði granateplið á ættarskyldi sínum. Sumir telja einnig að Botticelli hafi málað myndina hér fyrir neðan af Granateplakristi, en hún er að minnsta kosti eftir ítalskan samtímamann Botticellis.
María drekkur vatn úr hinum birgða brunni og innsigluðu lind úr þýskum glerbikar og hefur greinilega borðað granatepli. Þarna er María í mörgum hlutverkum. Myndin er þýsk eftir hinn svo kallaða Meister des Frankfurter Paradiesgärtleins.
Þess má enn fremur geta, að Marteinn Lúther notaði einnig sem merki sitt hvíta rós (vitaskuld Tudor-rós) sem var með rautt hjarta í miðjunni sem á var kross. Allt voru þetta kaþólsk tákn sem Lúther endurnotaði, enda hafði Lúther verið kaþólikki. York-ættin á Englandi notaði einnig hvíta rós í merkjum sínum.
Katrín af Aragon, sem andaðist árið 1535, birtist vitaskuld ekki á málmsteypumynd á kirkjuklukku sem búin hefur verið til árið 1547. Katrín var engum hugleikin í Niðurlöndum, þar sem klukkan er að öllum líkindum steypt 12 árum eftir dauða hennar. Samband hennar við Hinrik var úr sögunni og hann margbúinn að gifta sig aftur, skaufinn sá. Bjallan er einföld, lítil Maríubjalla.
Mislestur?
Það er dýrlingur á myndinni, og er kirkjuklukkan á Helgafelli líklega friðarklukka, ef dæma skal út frá orðunum DA PACEM DOMINE IN DIEBVS NOSTRIS MDXLVII sem þýðir: Gef þú Drottinn frið á vorum dögum - 1547.
Klausturliðið, sem fær styrk frá RANNÍS, heldur því einnig fram að á hinni hlið bjöllunnar standi HG. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Þar stendur HC, sem mér þykir mjög líklegt að sé skammstöfun fyrir Hortus Conclusus. Friðarbjöllur báru oft áletrunina DA PACEM DOMINE IN DIEBVS NOSTRIS. Mér sýnist á öllu að Klausturrannsóknin hafi ekki starfsmenn sem þekkja til epigrafíu, áletrunarfræði, miðalda. Við háskólann í Árósum þurfti ég á 9. áratug síðustu aldar að fara í próf í þeim fræðum til að fá kandídatsgráðu. Í Gautaborg fór slík kennsla ekki fram, tel ég mig vera fullvissan um.
Ekki ætla ég að hafa þessa kennslustund lengri, því ekki er ég með prófessorsembætti í HÍ, og tek mjög hátt tímakaup fyrir meiri visku úr birgðum brunni mínum. En í stað þess að rannsaka málið niður í kjölinn, þá hoppar starfsfólk HÍ og rannsókna vel styrktra af RANNÍS beint út í galgopalegar tilgátusmíðar og innihaldslausar hugaróra um að klukkan sé táknræn fyrir atburði á Helgafelli skömmu fyrir 1550. Það hefði nú eitthvað verið sagt í sama skóla ef prófessor HHG hefði leyft sér slík vinnubrögð. En á okkar tímum þegar friðurinn er úti, er það ekki sama hvort maður er séra Jón eða síra Gunna.
Vangaveltur Klausturverja um kirkjuklukku þessa, sem líklegast var steypt í Niðurlöndum eða Þýskalandi árið 1547, og um að hún tengist atburðum í klaustrinu að Helgafelli eru vægast sagt stórfurðulegar. Steinunn skrifar: "Val myndefnisins á bjöllunni er sérstakt en var vafalaust úthugsað. Gæti myndefni þessarar litlu saklausu bjöllu sýnt fram á mikinn mótþróa á Helgafelli við hina nýju trú sem var að ryðja sér rúms í landinu?" - Spurningar eru góðar, en þegar menn svara spurningum sínum sjálfir án mikilla eða djúpra athugana, og hlaupa síðan með svörin í blöðin til birtingar í alhæfuformi er fræðimennskan rokin út í veður og vind.
Á fornleifafræðin á Íslandi að vera teoretísk módelafornleifafræði eins og hún var einu sinni kennd sem allra fjarstæðukenndust við t.d. Gautaborgarháskóla, hinum gamla háskóla Steinunnar - eða á fornleifafræðin á Íslandi að byggja á fræðimennsku sem nýtir sér allar heimildir, ritaðar, málaðar, heimspekilegar, trúarlegar sem og jarðfundnar, hér á landi og annars staðar? Menn þurfa að þekkja biblíuna. Það þýðir ekkert að vera herskár trúleysingi á fullu í kynjafræðum og skíta á helg rit, ef maður ætlar að setja sig inn í hugarheim miðalda.
Hvort vilja menn facts eða fiction? Fornleifafræðin er ekki skemmtiatriði, þótt hún sé vissulega oft skemmtileg. Það er ekki hægt að slengja hverju sem er út, órannsökuðu, sérstaklega ekki ef það er einungis gert til að lappa upp á fréttaleysið í sumarleyfinu eða til að kæta fólk í leiðindum þess, og alls ekki til að fá fleiri peningum frá opinberum sjóðum. En allt gengur víst á Íslandi. Ekkert kemur á óvart. AMEN
Kirkjusaga | Breytt 9.2.2025 kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Listin að ljúga að ferðamönnum
18.8.2015 | 16:10
Fornleifar og fornleifarannsóknir á Íslandi eru á síðari árum orðið eitt aðalefnið á gúrkutíð fjölmiðlanna. Það er auðvitað gott að fræðigrein og fræðsla sé almenningi ánægja og jafnvel skemmtun, en þegar skemmtunin er orðið að hálfgerðum sirkus og fræðin eru virt að vettugi, þá verða menn að staldra við og segja skoðun sína.
Stundum rekst maður á svo mikið rugl um fornleifar á Íslandi í fjölmiðlum, að mann vantar orð til að lýsa því. Við höfum séð þetta vel sumarið 2015, þegar rúst skála sem rannsökuð hefur verið í Lækjargötu er síendurtekið sögð vera frá landnámi, þótt fornleifafræðingurinn sem rannsakar rústina segi af mikilli varúð, að hún telji hana vera "frá fyrstu öldum byggðar á Íslandi". Á þessu er mikill munur, en greinilega geta blaðamenn og fréttasnápar gúrkuvertíðarinnar ekki gert greinarmun á því.
Nýlega sá ég grein eftir írskan mann, Neil McMahon, sem hefur búið á Íslandi í tæp 40 ár og m.a. starfað sem kennari, leiðsögumaður og nú sem enskufréttamaður. Hann ritar um fornleifar á Íslandi í ókeypis-blaðinu Iceland Magazine sem dreift er til útlendinga á Íslandi og er það einnig aðgengilegt á netinu.
McMahon lýsir m.a. Þjóðveldisbæjarskömminni í Þjórsárdal á þennan hátt:
Stöng Commonwealth Farm in South Iceland
Here at Stöng is a fine reconstruction of one of over 20 houses in this once-fertile valley, destroyed in a massive eruption of the volcano Hekla in 1104. Several houses were excavated by a team of Nordic archaeologists in 1939 and the reconstruction of the best-preserved one in 1974 was part of the nations celebration of eleven hundred years of settlement. To commemorate Icelands adoption of Christianity in 1000 AD, a turf-clad stave church was erected nearby in the year 2000.(Sjá hér)
Ljósmynd Gernot Keller. Aldrei hefur verið hringlaga kirkjugarðsgerði kringum kirkjuna á Stöng.
Hér eru lesendur leiddir í þann vafasama sannleika, að Þjóðveldisbærinn sé á sama stað og Stöng og að eyðing Þjórsárdals hafi átt sér stað í Heklugosi árið 1104. En er það nema von, að frásagnaglaður Íri komist ekki að því sanna eftir hartnær 40 ár á Íslandi, þegar þeir sem standa að þjóðveldisbænum hella eintómum lygum út í upplýsingaefni á netinu.
Á vefsíðu Þjóðveldisbæjarins er upplýst að:
"The Commonwealth farm in Þjórsárdalur is one of Iceland's best kept secrets. The farmhouse, built on the site of one of the manor farms of the Age of Settlement, is constructed as experts thought it would have been." (Sjá hér).
Hér er ekki upplýst að Þjóðveldisbærinn sé byggður nærri þeim stað þar sem rústir Skeljastaða voru. Fólk heldur því auðveldlega að endurgerðin hafi verið reist ofan á rúst Stangar. Þar að auki er því haldið fram að Þjóðveldisbærinn, sem aldrei verður neitt annað en hugarfóstur eins þjóðernisrómantísks myndlistakennara, Harðar heitins Ágústssonar, sé afrakstur vinnu margra sérfræðinga.
Frá rannsókn á kirkjurúst og smiðjurúst undir henni. Myndin efst er frá rannsókn kirkjurústarinnar á Stöng. Ljósmyndir Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.
Af hverju allar þessar rangfærslur og veruleikafirring?
Ef nokkuð er, þá er alls ekki hlustað á sérfræðinga. Það er ekki verið að segja fólki að inni í veggjum Þjóðveldisbæjarins sé steinsteyptir veggir og að í allt of háreystri þekjunni sé nælondúkur sem var vinsæll á 8. áratugnum. Þjóðveldisbærinn er því miður ekkert annað en hugarfóstur sjúklegrar menningarminnimáttarkenndar sumra Íslendinga, sem endar í því að menn fara að byggja "fornleifar" til að eiga eitthvað "fínt" eins og "hinar þjóðirnar".
Mynd þessa tók höfundur árið 1992 þegar verið var að gera við austurgafl þjóðveldisbæjarins. Hænsnanet og gólflagningarefni höfðu menn ekki á Þjóðveldisöld. En á þennan hátt var nú leyst vandamál ævintýrasýnar Harðar Ágústssonar listmálara, sem fékk að stjórna byggingu fornhúss á 1100 ára afmæli búsetu í landinu. Á 8. áratug 20. aldar hófst auglýsingastofuþjóðernisstefna Íslendinga, og ef eitthvað er hefur hún enn aukist eftir Hrunadansinn árið 2008.
Þór Magnússon horfir eins og Plastgaukur á "forn" vinnubrögð við gerð Þjóðveldisbæjarins.
Sumir menn sem standa í slíku braski eru að mínu mati jafnvel að reyna að reisa minnisvarða um sjálfa sig. Menn eru greinilega enn að. Reistur var hryllingur sá í Skálholti sem kallaður er Þorláksbúð og menn dreymir um miðaldadómkirkjur og leikmyndar-Selfoss. Íslendingar sakna greinilega Disneylandsins. Þeir gleyma hins vegar að spyrja sig, hvort þetta sé það sem ferðamennirnir hafi áhuga á að sjá. Kannski eru ferðamenn einmitt að flýja heim plasts og yfirborðsmennsku í heimabyggð sinni og vonast eftir einfaldleika hreinleikans á Íslandi.
Kirkjan sem reist var við þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal, á ekkert skylt við kirkjurúst þá sem ég rannsakaði ásamt samstarfsfólki mínu að Stöng. Ekkert samstarf var haft við mig, fornleifafræðinginn sem fann og rannsakaði kirkjurústina, varðandi endurreisn og gerð kirkjunnar. Stjórn Þjóðveldisbæjarins hefur aldrei viljað leiðrétta rangfærslu þær sem þeir flytja í upplýsingaefni og það er enn verið að vega að heiðri mínum sem sérfræðings um fornleifar á Stöng og í Þjórsárdal, með því að nefna ekki niðurstöður rannsókna minna - að þegja þær i hel. Það er gömul íslensk aðferð, sem oft tekst, en ekki til lengdar. Svik komast upp um síðir.
Hvað varðar Stöng, þá ætti ekki að vera vandamál fyrir þá sem sjá um ferðamannaiðnaðinn í Þjóðveldisbænum að sækja sér réttar niðurstöður um fornleifarannsóknir í Þjórsárdal. Nóg er að finna hér á Fornleifi.
Ferðamönnum í Þjóðveldisbænum er ekki sagt frá þessu.
Þessi "eftirlíking" úr plasti og steinsteypu, sem falin er undir skinni síðbúinnar þjóðernisrómantíkur og menningarminnimáttarkenndar, er rekin í samvinnu við Þjóðminjasafnið. Og er því líklegast er ekki við aumingja fólkið í ferðamannaiðnaðinum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að sakast.
Þjóðminjasafnið, samstarfsaðili um rekstur Þjóðveldisbæjarins, getur heldur ekki greint rétt frá endalokum byggðar í Þjórsárdal. Rangar upplýsingar eru um eyðingu byggðar í Þjórsárdal í sýningum safnsins, sem og á Sarpi, þegar lýst er forngripum úr Þjórsárdal. Er það nema von, að einhverjir asnist til að ljúga að ferðamönnum, þegar logið er að þeim af einni helstu menningarstofnun íslenska ríkisins?
Sjá einnig: Plastöldin í Þjórsárdal.
Fornleifar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vel grafið og dróni Guðnýjar Zoega
14.8.2015 | 14:53
Ég hef áður dáðst að verkefnum Guðnýjar Zoega og félaga í Skagafirði, t.d. að Seylu, þótt samverkamenn hennar hafi reynt að breyta myntsláttusögu Dana á heldur ógagnrýninn hátt með því að halda því fram að Danir hafi slegið koparmynt á tíma sem þeir slógu aðeins silfurmynt (sjá hér og hér). Það var heldur ekki mynt sem þeir fundu.
Rannsókn kirkjurústar í Keflavík í Hegranesi er afar áhugaverður hluti af Skagfirsku kirkjurannsókninni sem staðið hefur yfir síðan 2007, mestmegnis fyrir styrktarfé frá Bandaríkjunum. Ekki fyrir það að þar hafi fundist kirkja og grafir. Það heyrir vart til tíðinda lengur. Hins vegar hafa fornleifafræðingarnir grafið varlega niður að H-1 laginu úr Heklugosinu árið 1104. Svo hefur Guðný tekið í notkun nýtt leikfang, sem verður ómissandi í íslenskum fornleifarannsóknum framtíðarinnar, nú þegar geimverur eru hættar að taka loftmyndir.
Drónamynd Guðnýjar er sko ekki dónaleg. Hún sýnir okkur, hvernig H-1 hefur lagst eins og næturhrím á hringlaga, skagfirska kirkjugarðinn. Sjá má að nokkrar grafir hafa verið grafnar eftir 1104. En þar sem 1104 lagið er yfir, eru líklegast óhreyfðar grafir undir (nema ef gjóskan hafi fokið til).
Vissulega er H-1 askan ekki eins þykk og í t.d. Þjórsárdal, þar sem ég þekki hana best. Kirkjan í Keflavík er hreint út sagt álíka falleg og kirkjan á Stöng. Skagfirðingar létu ekki þessa gjósku á sig fá frekar en Þjórsdælir og hélst búseta áfram á báðum stöðum.
Gaman væri að fá að sjá grunnmynd af Keflavíkurkirkju í Hegranesi.
Hér er mynd frá rannsókn á kirkjugarði í Keldudal, en þá var ekki kominn dróni. Minnir mig af myndum, að John Steinberg hafi haft með sér dreka, sem lét illa af stjórn í skagfirsku rokinu. Tæki eru misgóð. Drónar eru framtíðin.
Pöntun
Nú væri gaman að fá eins og 2-3 kolefnisaldursgreiningar á ungum einstaklingum (börnum) sem voru greftruð áður en H-1 gjóskan féll, og síðan 2-3 aldursgreiningar á börnum sem voru greftruð síðar. Í raun hafa menn aðeins tekið það sem gefið, að H-1 askan sé úr gosinu árið 1104 - og er það vitaskuld líklegast - en alls ekki fullsannað. Fyrst töldu menn gjóskuna úr gosi árið 1300 og um tíma var talað um 1158 sem gosárið. Með slíkum kolefnisaldursgreiningum af ungum einstaklingum sem létust fyrir og eftir gos, gætum við endanlega gengið úr skugga um aldur H-1.
Heimildir: https://www.facebook.com/icelandscass
Sjáið hér hvernig fornleifafræðingarnir í Skagafirði eru farnir að nota IPad í rannsókninni. Fyrst börn eru farin að nota slíkt á forskólastigi er eins gott fyrir fornleifafræðinga að kunna á þetta amboð, sem þó er enn ekki hægt að grafa með.
Fornleifar | Breytt 15.8.2015 kl. 05:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hundur má hann heita
11.8.2015 | 16:54
Sænskir fornleifafræðingar og kafarar telja sig hafa fundið leifar flaks danska konungsskipsins Griffen eða Grib(p)shunden sem sökk árið 1495 við strönd Blekinge, rétt úti fyrir bænum Ronneby, þar sem flakið liggur nú á um 10 metra dýpi. Hér er að öllum líkindum kominn upp hluti af skipi sem sigldi á sama tíma og Kólumbus fann Ameríku á skipum byggðum á sama hátt og skipið sem nú er fundið úti fyrir strönd Suður-Svíþjóðar.
Talið er að Griffen hafi verið konungsskip Dana, þ.e. helsta skip flota Hans (Jóhnnesar) Danakonungs. Skipið sökk þegar eldur braust út um borð á ferð þess til Kalmars, þar sem Hans konungur ætlaði sér að ræða við menn um vandmál Kalmarsambandsins, þegar Svíar reyndu að draga sig út úr því. Margir um borð létu lífið áður en mönnum tókst að komast frá borði rétt áður en skipið sökk.
Telja fornleifafræðingarnir sig hafa fundið stafnmynd skipsins sem lyft var af hafsbotni fyrr dag, en rannsóknir fóru fyrst fram á flakinu árið 2001-2.
Áhugavert er að sjá að stafnmyndin (Gallíónsfígúran) er ekki sérlega stór og svo er þetta ekki "grif" (gryphus eða gryphon) heldur vargur eða einhvers konar dreki. Grífon voru skepnur með bakhluta ljóns en arnar og arnarfætur sem framlappir og svo voru þeir vængjaðir.
Venjulega voru stafnmyndirnar tilvísun í nafn skipsins. Má því vel vera að trjóna sem fannst sé af griff eða gribshundi,en á þessum tíma gerðu menn sér þó vel grein fyrir því hvernig sagndýrið gryphus átti að líta út. Skipasmiðurinn sem skar út trjónuna hefur kannski ekki verið með það á hreinu. En stafnmyndin sem nú er komin upp á yfirborðið gæti vel vísað til þess að menn hafi séð dýrið sem skipið er kennt við sem einhvers konar hundsskepnu. Þetta skýrir danski fornleifafræðingurinn Rolf Warming lauslega en ekki nógu fyllilega hér. Ef hann hefur ekki rétt fyrir sér, er hundurinn hugsanlega úr líklega úr öðru skipi - hver veit?
Í dag kom í ljós að "vargurinn" var með annað dýr í kjaftinum, á milli tannanna. Gaman verður að heyra hvaða dýr það er. Er þarna kannski kominn sjálfur Jónas í hvalnum? Það var algengt nafn á skipum fyrr á öldum.
Nú verður trjónan lögð í bað með alls kyns vökvum og síðar þurrfryst. Þannig vonast menn til að geta varðveitt hana um ókominn tíma.
Trjónan komin upp og er með eitthvað í kjaftinum
Neðansjávarfornleifafræði | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)