Furðuleg frétt um 417 ljósmyndir
13.1.2016 | 07:18
Það er víst séríslenskt fyrirbæri að segja frá fjögurhundruð og seytján áður óþekktum ljósmyndum á þann hátt sem þessi frétt gerir. Aðeins er nefnt að myndirnar hefi verið teknar í Íslandsferð fimm ungra Svía sumarið 1919. Þeir eru þó ekki nefndir á nafn og heldur ekki seljandinn. Merkilegt þykir hins vegar að þeir hafi tekið mynd af Matthíasi Jochumssyni og dóttur hans ári áður en að skáldið andaðist.
Þetta er svo dæmigerð birtingarmynd afstöðu Íslendinga til umheimsins. Allt fjallar um Íslendinga, en umheimurinn er algjört aukaatriði.
Mér til mikillar furðu fann ég ekkert um þessar 417 myndir, sem Þjóðminjasafnið hefur fest kaup á fyrir þjóðina, á forsíðu vefsvæðis safnsins. Vonandi verður ráðin bót á því hið fyrsta, því þjóðin á rétt á því að vita hverjir hinir fimm sænsku ferðalangar voru og að sjá myndir þeirra allar sem eina, sem nú eru sameiginleg eign landsmanna sem varðveitt er í Þjóðminjasafninu. Það eru til nógar myndir af Matthíasi t.d. kvikmynd (sjá hér), en náttúrulega er skemmtilegt að fá nýjar myndir þar sem hann er að skvetta úr slöngu í blómagarði sínum.
![]() |
Eignast yfir 400 ljósmyndir frá 1919 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gamlar myndir | Breytt s.d. kl. 07:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heiðursnasistar í Morgunblaðinu
11.1.2016 | 09:48
Grein Morgunblaðsins um Dietrich von Sauchen og Heinz Guderian er ófyrirleitin smekkleysa og blaðamanninum til mikils vansa.
Þó að "hetjan" Diedrich von Sauchen herhöfðingi hafi slegið í borðið hjá Hitler vegna þess að honum þótti vegið að æru sinni sem herhöfðingja þegar Hitler ætlaði að skipa honum að fara eftir tilskipunum ómerkilegs umdæmis- stjóra (Gauleiter) nasistaflokksins, sem var ótíndur glæpamaður, þá var von Sauchen engin hetja. Allir vita, að brjálaði eineistlingurinn Hitler snobbaði fyrir gamla heraðlinum í Þýskalandi og Hitler aðhafðist heldur ekkert gangvart von Sauchen fyrir að berja í borðið og taka ekki einglyrnið af.
Heinz Guderian, sem blaðamaður Morgunblaðsins telur einnig til "hetja" var svæsinn gyðinghatari og í lok stríðsins áður en Berlín féll lét hann þau orð falla að hann «hefði sjálfur barist í Sovétríkjunum, en aldrei séð neina djöflaofna, gasklefa eða þvíumlíka framleiðslu sjúkrar ímyndunar.». Þetta sagði hann 6. mars 1945 fyrir framan þýska og erlenda blaðamenn er hann gerði athugasemdir um fréttir af útrýmingarbúðum nasista. Þó stríðið væri tapað var hann enn til í að verja ósómann.
Bæði von Sauchen og Guderian börðust fyrir nasismann og fyrir það óeðli sem hann var. Þeir tóku hvorugur þátt í áformum um að setja Hitler af eða drepa hann. Þeir iðruðust aldri gerða sinna og þegar Guderian var leystur úr haldi bandamanna árið 1948 gerðist hann meðlimur Bruderschaft, samtökum gamalla nasista undir stjórn Karl Kaufmanns fyrrv. umdæmisstjóra i Hamborg. Árið 1941 stakk Kaufmann fyrstur umdæmisstjóra nasistaflokksins upp á því við Hitler at senda gyðinga frá Hamborg austur á bóginn, svo hægt væri að nota hús þeirra og íbúðir til að hýsa Þjóðverja sem misst höfðu heimili sín í loftárásum á borgina.
Skömm sé Morgunblaðinu að mæra nasista og glæpamenn - ENN EINA FERÐINA. Ef blaðamaðurinn sem skrifaði þessa meinloku er ósammála mér, má hann gjarna stíga fram opinberlega og verja skrif sín hér fyrir neðan í athugasemdakerfinu.
Guderian stendur hér lengst til vinstri og hlustar af andagt á hinn mikla "leiðtoga" og þjóðarmorðingja Heinrich Himmler
![]() |
Hellti sér yfir Hitler |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Dummheit ist: Glauben, genug zu wissen
2.1.2016 | 18:25
Þegar útlendingar voru fáir á Íslandi, sáu sumir Íslendingar gyðinga í hverju horni. Þó gyðingar væru löngum ekki velkomnir á Íslandi, frekar en flóttafólk í dag, töldu margir Íslendingar sig snemma vita hverjir væri gyðingur og hverjir ekki. Íslendingar vissu þannig allt um alla, jafnvel þó þeir töluðu ekki við útlendingana - og það hefur greinileg ekkert breyst að því er ég best fæ séð.
"Gyðingurinn" Tierney
Þannig kom t.d. til landsins á seinni hluta 19. aldar kaupmaður frá Leith á Skotlandi sem Tierney hét sem seldi Íslendingum gamla garma. Tierney þessi var baptisti, en á hann var strax settur gyðingastimpill. Menn töldu víst að engir aðrir en gyðingar seldu fátæklingum "gömul pestarföt" frá Evrópu. Ég sagði frá þessum manni á bloggi árið 2013 og öðrum sem fengu gyðingastimpilinn á Íslandi, og hef nú frétt að hinn mikli maður Thor Jensen hafi verið bölvanlega við "gyðinginn" Tierney og að Tierney sé afgreiddur sem gyðingur í sögu Borgarness. Fróðari menn hafa einnig sett gyðingastimpilinn á Thor Jensen, þótt albróðir hans Alfred Jensen Raavad í Danmörku (sjá hér og hér) hafi verið gyðingahatari og afkomendur systkina hans hafi barist fyrir Danmörku í SS. Alfred Jensen hefði einnig verið liðtækur í hirð núverandi forsætisráðherra Íslands í að teikna hús í gömlum stíl til að friðþægja þjóðernisminnimáttarkenndina í sumum Íslendingum.
Hriflu-Jónas hittir Anítu sumarið 1934
Einn helsti forsvarsmaður hreinnar, íslenskrar menningar var Jónas frá Hriflu. Hann vildi líkt og Hermann Jónasson, flokksbróðir hans, helst hafa hér hreint og skyldleikaræktað blóð. Líklega hefur hann heldur ekkert skinbragð borið á "óvininn" þótt hann stæði við hliðina á honum. Reyndar veit ég þó ekki til þess að Jónas hafi látið út úr sér óyrði um gyðinga, líkt og ýmsir aðrir menn á Íslandi gerðu á 4. áratug síðustu aldar - og síðar.
Á myndinni hér fyrir ofan, (sem má stækka til muna ef menn kunna það), má sjá Jónas með föngulegri konu, sem heimsótti Ísland árið 1934. Kona þessi var fædd í Rúmeníu árið 1902 og hét Anita Joachim (síðar Anita Joachim-Daniel).
Anita var gyðingur. Hún vann sem blaðamaður í Þýskalandi fyrir stríð og var á ferð á Íslandi fyrir Associated Press ásamt hinum heimsfræga hollenska blaðaljósmyndara Wim van de Poll sem tók frábærar myndir á Íslandi sem nú má sjá á vef Þjóðskalasafns Hollands í den Haag.
Mogginn eys af eitri sínu haustið 1934
Líklega hefur Hriflu-Jónasi þótt unga konan æði fönguleg og ekkert haft á móti því að vera eilífaður með henni fyrir framan Héraðskólann að Laugarvatni. Nokkrum mánuðum síðar þótti hins vegar ritstjóra Morgunblaðsins það við hæfi að líkja Framsóknarmönnum við gyðinga og ritaði þessi leiðindi í leiðara blaðsins þann 25. október: "
"Oftast er málið sett þannig fram, að þeir, sem orðið hafa fyrir ,,grimdaræði nazistanna" sjeu dýrðlingar einir, sem ekkert hafi til saka unnið annað en það að vera af öðrum þjóðflokki en nazista-,,böðlarnir". Nú er það vitað að þýska þjóðin stendur í fremstu röð um mentun og alla menningu. Þess vegna verður Gyðingahatur þeirra mönnum algerlega óskiljanlegt, ef því er trúað að hinir ofsóttu hafi ekkert til saka unnið. Hjer er ekki tilætlunin að bera blak af þýskum stjórnvöldum hvorki fyrir meðferðina á Gyðingum nje á pólítískum andstæðingum sínum. En hafa þá Gyðingarnir í Þýskalandi ekkert unnið til saka? Jú, þeir væru öflug hagsmunaklíka í landinu, ríki í ríkinu, ,,aðskotadýr, nokkurskonar ,,setulið", sem hafði lag á að ota sínum tota altaf og alstaðar þar sem feitt var á stykkinu Hatrið á þjóðflokknum stafar af því, að einstakir menn af Gyðingaætt höfðu misbeitt á ýmsan hátt þeirri aðstöðu, sem þjóðfélagið veitti þeim. Það er í rauninni hatrið á klíkuskapnum, sem hjer er orðið að þjóðhatri."
Fyndið, þegar maður hugsar út í eðli Sjálfstæðisflokksins. Ritstjóri Morgunblaðsins árið 1934 lauk þessari frumstæðu haturstölu sinni með þessum orðum:
,,Þýska Gyðingahatrið er sprottið af því, að einstaki menn þess þjóðflokks, þóttu hafa rangt við í leiknum. - Það er erfitt að fyrirbyggja það, að andúðin snúist til öfga, ef því fer fram að ranglátir menn og óþjóðhollir vaða uppi í þjóðfjelögunum. Og í því efni skiftir það engu máli, hvort þeir eru ættaðir frá Jerúsalem eða Hriflu." (Sjá hér).
Skyldi það vera svo að íslenska íhaldið hafi alltaf verið verstu gyðingahatararnir á Íslandi?
Heimskonan Anita borðar afdaladesertinn skyr. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá Anitu með Guðmundi Finnbogasyni og Jóni Leifs á Þjóðminjasafninu í Safnahúsinu við Hverfisgötu (nú Þjóðmenningarhúsinu). Vart hefur maður séð glæsilegri mynd úr gamla Safnahúsinu.
Dummheit ist: Glauben, genug zu wissen
Anita blessunin flýði tímanlega til Bandaríkjanna, því líkt og vitgrannir vinstri menn og öfgamúslímar gera gyðingum lífið leitt í dag, þá hamaðist Hitler í þeim á þeim árum. Í Bandaríkjunum hélt hún áfram ritstörfum þar til hún andaðist í því stóra landi möguleikanna árið 1978 - Hún ritaði og gaf út fjölda ferðabóka í ritröðinni "I am going to" sem komu út á ensku og sumar á þýsku í Basel í Sviss. Á seinni árum hefur hún, þökk sé veraldarvefnum, orðið þekkt fyrir þessa fleygu setningu, mottói sem ég hef lengi fylgt: "Dummheit ist nicht: wenig wissen. Auch nicht: wenig wissen wollen. Dummheit ist: glauben, genug zu wissen."
Þegar greint var frá myndum Wim van de Poll á hinni ágætu vefsíðu Lemúrnum og einnig Reykjavík.com árið 2012 hefðu blaðmennirnir nú mátt fylgja ofangreindu mottói Anítu. Myndir hollensk listaljósmyndara heilla Íslendinga því þeir sjá Íslendinga, en þeim er djöfuls sama um útlendingana sem á mörgum myndanna voru. Þannig hefur "What do you think about Iceland-afstaða Íslendinga alltaf verið. Ekkert bitastætt var því skrifað um Anitu Joachim eða Wim de Poll þegar fólk komst fyrst í myndirnar frá frá heimssókn þeirra á Íslandi árið 2012.
Til dæmis er þessi mynd af stúlku lýst svona á Reykjavik.com af breskri konu sem lítur á málið úr sínum sínum þrönga menningarkassa: "I wonder what this young lady pictured below was listening to; perhaps it was the golden age classic My Baby Just Cares for Me by Ted Weems and his Orchestra. We may never know, but it does make for a cracking soundtrack to go with these fabulous photos!"
Stúlkan á myndinni kallaði sjálfa sig Daisy og var ekki hætishót íslensk og gæti alveg eins hafa verið að hlusta á þýska eða danska slagara á ferðagrammófóninum frekar en eittvað engilsaxneskt raul.
Fyrst þegar þýskur rithöfundur, Anne Siegel, las um ferðir de Polls og Anitu Joachim til Íslands, var farið aðeins dýpra í efnið en pennar Lemúrsins, en Siegel er hins vegar fyrirmunað að greina frá uppruna Anitu Joachims líkt og hún í athyglisverðri skáldsögu sinni um þýskar konur á Íslandi eftir stríð fer kringum það eins og köttur um heitan grautinn af hverju þær þýsku komu yfirleitt til Íslands. Mætti halda að þær hafi allar verið að leita að afdalarómantík. Það er enn óskrifuð saga og fer í gröfina með þeim flestum ef fjölskyldur þeirra kunna ekki því betri deili á forsögu þýsku mæðranna og ættingja þeirra í gamla landinu sem rústaði Evrópu. Íslendingar hafa líklegast miklu frekar áhuga á því hvað þeim fannst um Ísland, frekar en að vilja vita einhver deili á þeim.
Ach so, þar sannast aftur gæði orða Anitu: Dummheit ist: Glauben, genug zu wissen.
Blessuð sé minning Anitu Joachim-Daniels! Hún vissi sko sínu viti.
Anita Joachim og Willem van de Poll á Íslandi.
Meistari Willem van de Poll (1895-1970) var að taka mynd af þér, án þess að þú vissir af því. Hún verður birt hér að neðan í athugasemdum, nema að þú hafir verið að lesa bloggið mitt nakin/nakinn.
Gamlar myndir frá Íslandi | Breytt 6.11.2019 kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Konungleg jól í fátæku landi
21.12.2015 | 07:33
Ef Íslendingar hefðu haldið tryggð við danska konunga, værum við þessa dagana líkast til að rífa demanta og eðalsteina af sjóreknum náum sýrlensks flóttafólks að ósk Bjálka höfuðmanns á Bessastöðum eða Pinds jústítsráðs í Kaupmannahöfn.
Andi jólanna virðist mér hafa gleymst í Danaveldi og flestir virðast sjálfum sér næstir um þessar mundir. Slíkt gerist reyndar stundum þegar gjafmildin hefur farið úr böndunum og menn eiga ekki í raun fyrir henni - eða þegar ölmusumóttakandinn er farinn að vera með uppivöðslusemi og frekju og lýsa lítilsvirðingu sinni á hinum vestræna heim sem hann leitaði upphaflega ásjár hjá. Íslendingar hafa hvorugt reynt og myndu líklegast segja eitthvað ef þeir fréttu í ofanálag, að nokkur hundruð Íslendinga hefðu ekki aðgang að eigin salerni. Þannig er því nefnilega farið í Danmörku samkvæmt síðustu fréttum af náðhúsaeign þeirra. En þannig var það einnig árið 1999, og segið svo ekki að sagan endurtaki sig ekki. "Danskerne er på røven." 30.000 Danir geta ekki skitið í eigin skál. Við slíkt ástand er ekki nema von að drýgja verði tekjurnar með "auðæfum" þeirra sem minnst mega sín. Menn eru vissulega gjafmildari öðlingar við förufólk í löndum eins og Íslandi, þar sem að minnsta kosti má finna eitt vatnsklósett fyrir sérhvern rass og nokkur að auki fyrir bágstadda botna sem bjargað hafa sér frá sveðjum og steinkasti í Barbaríunum sem heiðra hann Allann.
Svo minnst sé á steina. Mér hlýnaði um daginn um hjartarætur er ég hádegisverðarhléi mínu brá mér inn á steinmyndasafnið, Lapidariet, sem nú hefur verið komið fyrir í Kongens Bryghus. Starfsmenn safnsins höfðu fært fyrrum einveldiskonunga í jólabúninginn. Þegar ég sá Kristján 4 með jólasveinahúfuna sigaði ég gemsanum mínum áann og hugsaði með mér, að verstu einokunarkonungar fyrri alda hefðu varla sýnt eins mikinn náriðilshátt og núverandi yfirvöld í Danmörku sýna alheimi öllum. En kannski er þetta bara nátthúfa danskrar menningar, sem kóngsi er með á steinrunnum kollinum. Hver veit? Jafnvel er þetta hulinshúfa til að þurfa ekki að vera bendlaður við nútímann. Stjáni IV var sjálfur góður við minnihluta og bauð gyðingum að búa í Glückstadt, því hann taldi víst að þeir gætu útvegað honum gull og geimsteina. Hallgrímur Pétursson sem frægur varð af því að giftast konu sem kennd var við Tyrki, bjó einnig í Glückstadt, en Grímur var greinilega ekki eins hrifinn af innflytjendum eins og konungurinn í Kaupmannahöfn ef dæma skal út frá Passíusálmunum (sjá hér og hér).
Eitt veit ég þó, að oft tala margir Íslendingar af mjög lítilli þekkingu um danskt þjóðfélag og sjá ekki í fljótu bragði fátækt þess og ömurleika, fyrir tívolíum, Magasínum og d'Angleterre. Danskir Dagar og Jól geta verið mjög óhuggulegir.
Bloggar | Breytt 22.12.2015 kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Wir sind wieder da! Ómenningarleg dönsk jól 2015.
19.12.2015 | 17:51
"Danir eru Þjóðverjar sem tala skrítna þýsku" hefur maður svo sem heyrt Þjóðverja segja um Dani. Það þykir Dönum vitaskuld ekki gott að heyra nágranna sína segja, enda er þetta ekki alls endis satt.
Um það bil 85% Dana eru hins vegar eins konar Þjóðverjar á heljarþröm sem tala forna gerð þýsku og margir bera einnig þýsk ættarnöfn eins og Maack, Schram, Cortes og Bernhöft svo eitthvað vel þekkt sé nefnt. Vart er um að villast.
Þetta er mjög greinilegt fyrir þessi jól í Kaupmannahöfn, sem líklega eru þau ómenningalegustu sem ég man eftir. Nú er aftur hafin þýsk innrás sem kemur upp um þýskt eðli og uppruna Dana, og hvað þeir eru auðhlýðnir undir þýskan herradóm og frekju.
Heilu Hollí-rassa-hía-hó þorpin hafa risið á þekktustu torgum Kaupmannahafnar, t.d. Kultorvet, Højbro-Plads og Kongens Nytorv. Íbúar þar eru allir frá Þýskalandi og híbýlin í þýskum stíl, og eru álíka kræsileg og blanda af heiðarkofanum frá Schwartzwald og þýskum útrýmingarbragga í Auschwitz. Kofarnir í Kaupmannahöfn eru allir með opna búð á einni hliðinni og þar selur fátækt fólk frá Austur-Evrópu alls kyns þýskt jólasukk og svínarí, og það þrisvar sinnum dýrara en í Þýskalandi.
Það hefur svo sem lengi verið vitað, að Danmörk liggur spennt innan þýska Polka-beltisins og þessi smekkleysa sniðugra sölumanna höfðar greinilega til margra Dana, sem þykir þetta bara "hyggeligt". Genin segja greinilega til sín.
En "Hver sin smag" eins" og Danir segja, og apa eftir Þjóðverjum. Og svo rennur Herr Stockhausen í hlað beint undir verndara Kaupmannahafnar, Absalon biskup, sem getur ekki lengur öxi sína hreyft. Stockhausen kemur með birgðirnar í Þýskubúðir í Kaupmannahöfn og hlær síðan alla leiðina í bankann. Danir eru enn og aftur snuðaðir af frændum sínum í suðri. Þeir kaupa "jólagleðina" frá Stórevrópu á þreföldu því verði sem Þjóðverjar borga fyrir hana. Það er ekki bara Fräulein Merkel sem er mara á henni Evrópu um þessar mundir. En nú skil ég af hverju danska ríkisstjórnin vill hirða alla demantana af flóttafólki frá Sýrlandi. "Julen varer længe, koster mange penge", eins og gamall danskur jólasöngur upplýsir.
Ómenning og lýðskrum | Breytt 6.2.2016 kl. 07:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skálkaskjól
6.12.2015 | 13:57
Margir þekkja Skalk, danskt tímarit um sögu og fornleifafræði í litlu broti, sem ég og kollega minn Kristján heitinn Eldjárn höfum einir Íslendinga skrifað í (sjá hér og hér). Þetta er það tímarit í Danmörku sem hefur flesta áskrifendur, líklegast síðan að Eldjárn fækkaði fötunum og gerðist "side 9 dreng" í blaðinu hér forðum daga.
Skalk kemur út 6 sinnum á ári og í nýjasta heftinu er stærsta greinin (króníkan) í þetta skipti eftir mig. Fjallar greinin um ferð hins kvenholla konungs Friðriks IV til Ítalíu árið 1708-9, og sérstaklega um innkaupaferð hans til hafnarborgarinnar og fríhafnarinnar Livorno, sem á sumum tungmalum er kölluð Leghorn. Um þá ferð uppgötvaði ég nýja áður óþekkta hluti og tengi þá við lýsingu síra Ólafs Egilssonar sem kom við í Livorno árið 1628 er hann var frelsaður úr Barbaríinu (sjá meira um það hér).
Í grein minni er einnig greint frá því hvernig Vivaldi smjaðraði við Friðrik konung í Feneyjum og samdi nokkrar sónötur honum til heiðurs. Lesendur Skalks geta ekki hlustað á þær, en Fornleifur er alltaf skrefi framar og bíður hér upp á eitt af verkum Vivaldis til heiðurs Friðriki, Skálki og grein minni.
Nú er ekkert annað fyrir ykkur að gera en að gerast áskrifendur að Skálki - svo hann skaði ykkur ekki - eða bíða og bíða eftir því að Fornleifur birti greinina. Þið vitið hvernig Fornleifur er. Hann vill alltaf fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Forsíðumynd greinar minnar
Bloggar | Breytt 7.12.2015 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Olaf Olsen - In Memoriam
23.11.2015 | 11:12
Látinn er í sæmilega hárri elli prófessor einn í Danmörku, Olaf Heymann Olsen að nafni, sem einnig var fyrrverandi njósnari fyrir Rússa, sagnfræðingur, fornleifafræðingur og þjóðminjavörður Dana svo fáeitt sé nefnt. Olsen var 87 ára að aldri er hann lést.
Hvorki myndi ég nú syrgja hann, né skrifa minningarorð í anda íslenskrar hefða, ef þessi merki maður hefði ekki verið prófessor minn fyrsta árið sem ég stundaði nám í fornaleifafræði í Árósum í Danmörku. Hann var síðar eftir að hafa áhrif á líf mitt. Þannig menn neyðist maður að skrifa nokkur orð um, þó þeir muni með vissu aldrei lesa grafskriftina - enda er sjaldan neitt satt í íslenskum minningargreinum, sem oftast lofa menn og prísa í hástert og það mest að ástæðulausu. Líf Olsens var þó þannig, að úr báðum flokkum, lofi og skömm, var nóg að taka og því set ég þessa grein á Fornleif en ekki í aðsendar minningargreinar í Morgunblaðinu, þar sem ekkert ljótt má um liðna menn segja, þó það sé allt deginum sannara.
Síðla sumars 1980 birtist ungur maður frá Íslandi á Afdeling for Middelalder-Arkæologi við Árósarháskóla. Var þessi náungi hrokkinhærður og bjúgnefjaður, svo notuð sé lýsing Nóbelskáldsins íslenska á fólki með nef eins og ég fæddist með. Olaf Olsen var stofnandi þessarar deildar, og var hann einnig með myndalegt nef. Þetta haust vantaði bráðlega stúdent í studienævnet á deildinni. Heyrst hafði í hornum, að þessi íslenski stúdent væri hávaxinn piltur, ljóshærður og gengi í lopapeysu í síðsumarshitanum og töluðu menn um að sá íslenski væri mjög vel talandi á dönsku. Þarna voru eldri stúdentar reyndar að rugla saman Íslendingnum bjúgnefjaða og dönskum eilífðarstúdent frá Álaborg, Ole að nafni, sem var fyllibytta en hinn besti drengur, sem aldrei lauk námi og hætti eftir tvö ár í fornleifafræðinni. Að íslenska stúdentinum forspurðum, mæltu stúdentar með honum í þessa nefnd, haldandi að Ole fyllibytta væri íslenski stúdentinn. Þannig háttaði það sig nú að ég komst algjörlega grænn á bak við eyrun í studienævnet fyrir miðaldafornleifafræði. Íslenska steríótýpan í Danmörku var greinilega fyllibytta með ljóst passíuhár í lopapeysu - (sem reyndar var norsk) - og sem keðjureykti pípu. Í þessari nefnd kynntist ég fyrst Olaf heitnum Olsen. Það var stíll yfir prófessornum.
Ég sat í tvö ár í nefndinni, var engum til óþæginda og sagði lítið annað en já og ammen eftir efninu, enda sá ég fljótt að Olaf Olsen sat sem páfi á stól sínum og orð hans voru óskrifuð lög. Annars var Olaf skemmtilegur karl, sem barðist með bál og brandi fyrir sínu. Hann sagði meiningu sína óþvegna, og það þótti mér það besta í hans fari. Hann var vinnuþjarkur og svaf oft eftir langan vinnudag á Moesgaard, en svo heitir herragarðurinn sunnan við Árós, þar sem fornleifafræði og mannfræði voru kenndar. Fyndinn var hann, en hló gjarnan áður en hann sagði brandara sína. Vinsæll var hann meðal nemanda, og sérstaklega ef maður þoldi reykingar hans í fyrirlestrum. Tímar hans voru fjölsóttir en ég átti nokkuð erfitt með að skilja hann fyrst árið þar sem hann tuggði pípuna í einu munnvikinu meðan að hann talaði. Flestir reyktu í fyrirlestrum á Moesgaard á þessum árum en hinir fengu reykeitrun eða slæman astma.
Olsen var reyndar ekki fornleifafræðingur. Hann var sagnfræðingur sem snúist hafði til fornleifafræði og skrifað doktorsritgerðina Hørg, Hov og Kirke (1966), sem að miklum hluti fjallar um íslenskar fornminjar. Kom hann til Íslands í tvö skipti. Í fyrsta sinn kom hann þegar hann vann að doktorsritgerð sinni og fór þá m.a. norður í land að Hofstöðum, þar sem Daniel Bruun hafði grafið mikla rúst í fljótheitum. Olaf gróf ekki mikið á Hofstöðum og er flest af því sem hann hélt fram löngu afsannað og mótmælt af sagnfræðingnum Orra og fornleifafræðingnum Adolf, sem hafa stundað merkar rannsóknir á Hofstöðum. Olaf sagði mér eitt sinn að hann hefði fengið senda grein frá þessum piltum, en hefði ekki lesið hana. Spurði hann mig hvort eitthvað væri að viti í henni? Því vildi ég sem minnstu svara, enda hafði ég ekki lesið grein þeirra.
Olsen sagði mér síðar að Íslandsdvöl hans hefði ekki verið honum mikil ánægja, frekar en íslenska skyrið sem móðir hans hafði reynt að troða í hann og bræður hans á unga aldri þeim til mikillar angistar. Olaf þótti Kristján Eldjárn áhugalítill um það sem hann vildi gera á Íslandi og naut Olaf mest aðstoðar Gísla Gestssonar altmúligmanns á Þjóðminjasafninu, sem minntist hans sem "Óla litla" þegar við töluðum um hann síðar. Svo illa vildi til að Olsen fótbrotnaði líka á Íslandi, og ekki bætti það úr skák. Hann flaug á brott með lítinn söknuð í huga og kom ekki aftur til Íslands fyrr en hann var orðinn þjóðminjavörður Dana, og reynda fyrst í lok embættistíma síns.
Olsen hafði þó fyrr á ævinni þekkt verri mótbyr en beinbrot, þannig að óvinaleg ásjóna Íslands kom ekki að sök. Árið 1943 þurfti Olaf Olsen að flýja með foreldrum sínum og bræðrum til Svíþjóðar. Samkvæmt kynþáttalögum nasista og lögmáli gyðinga, sem er tvennt mjög ólíkt, var Olaf gyðingur. Móðir hans, Agnete Bing, var gyðingur af gamalli ætt bankamanna og kauphallahéðna í Kaupmannahöfn, en faðir hans var kristinn Dani, Alfred Olsen, sem var merkur sagnfræðingur sem m.a. hafði verið dósent í Árósum og prófessor fyrir stríð. Í Lundi stundaði Olsen nám í menntaskóla.
Þótt Olsen væri í sænskum skjölum og pappírum danskra andspyrnumanna skilgreindur sem flóttamaður af gyðingaættum, gerði hinn ungi Olsen sér far um að sýna mönnum að hann væri sannur Dani, enda var hann ekki alinn upp á neinn hátt sem gyðingur, hvorki trúarlega séð né menningarlega.
Olsen sagði eitt sinn frá því í sjónvarpsviðtali að hann hefði ávallt gengið niður á eitthvað torg í Lundi eftir skólann og sporðrennt "korv" (pylsur) með öðrum menntskælingum. Líklegast sýndi hann með þessu svínakjötsáti að hann væri ekki gyðingur. Sumir danskir samnemenda Olsens í menntaskólanum í Lundi voru gyðingar, t.d. Herbert Pundik, sem síðar varð þekktur sem ritstjóri danska dagblaðsins Politiken, en einnig sem gyðingurinn og síonistinn Pundik sem barðist í frelsisstríðinu 1948 í Palestínu. Þangað fór Olaf aldrei. Olaf fékk að ganga í den Danske Brigade, hersveit Dana í Svíþjóð, þar sem mjög fáum gyðingum var leyft að vera með. Það ríktu miklir frodómar. Olaf slapp í gegnum nálaraugað enda var hann ljóshærður og arískari í útliti en t.d. flestir danskir meðlimir Waffen-SS á stríðsárunum. Heim kominn gekk hann í DKP, Danmarks Kommunistiske Parti.
Sjálfur hafði Olsen flúið til Svíþjóðar vegna slíkrar hóphyggju smámenna, sem flokkast saman undir einhverja vafasama foringjum og skammstöfun á flokki í nafni "allra" og einhverrar byltingar sem er aðeins annað nafn á blóðbaði. Slíkir hópar finna sér fljótt einhverja einstaklinga eða hópa til að hatast út í, loka inni og drepa, því lausn þeirra á vandamálum er alltaf að kenna öðrum um það sem miður fer og úthella blóði þeirra. Því kom það mörgum á óvart árið 2012, er það var afhjúpað í Danmörku, að Olaf Olsen hefði verið heimagangur í rússneska sendiráðinu í Kaupmannahöfn á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Þar hafði hann þann starfa að útbúa spjaldskrá með nöfnum Dana í menningar og lærdómsheiminum, sem búast mátti við að samsinntu ekki hugsjónum þeim sem Sovétríkin voru rekin eftir. Listinn óx og óx og taldi að lokum um 500 einstaklinga. Ekki nóg með það, Olaf skrifaði ævikafla og ítarupplýsingar um 75 af þessum Dönum á lista sínum, svo Rússar hefðu nægar upplýsingar um mögulega andstæðinga, ef þeir skyldu nú birtast einn góðan veðurdag á Strikinu, líkt og Þjóðverjar höfðu gert árið 1940.
Olaf framdi landráð með því að stefna lífi samlanda sinna í hættu, ef vera skyldi að Rússarnir kæmu og tækju Danmörku. Það gerðu Rússarnir reyndar aldrei, nema í draumaheimi sumra manna. Þótt dönsk yfirvöld uppgötvuðu árið 1945 glæpsamlega ídeólógíska tómstundavinnu hálfgyðinglega stúdentsins með aldanska nafnið Olsen í rússneska sendiráðinu, þá komst Olaf hjá því að vera lögsóttur og dæmdur fyrir landráð, því hann átti líklega góða að og var ekki lögráða er hann framdi glæpinn. Á þessum árum urðu menn ekki lögráða fyrr en þeir urðu 21 árs.
Sjálfur bar Olaf Olsen því við árið 2012, að hann sæi eftir gerðum sínum, en hann hefði á þeim tíma verið " en ung, glad og naiv kommunist". Þetta sagði hann fyrst þegar fjölmiðlar greindu frá athöfnum hans og hann leysti frá skjóðunni í viðtalsgrein í Jyllands-Posten (sjá hér), og sagði nánar frá athöfnum sem upphaflega var lýst ónafngreindum í mikilli skýrslu um Kalda Stríðið og leyniþjónustur Dana (PET-rapporten) sem út kom í fjölda binda árið 2009. Það voru reyndar svo margir aðrir, án þess þó að starfa fyrir erlend ríki, sem talið var að gætu stefnt öryggi Danmerkur í hættu. Olaf þurfti greinilega, einhverra hluta vegna, að sanna trúnað sinn við "málstaðinn" betur en aðrir. Hugsanlega hefur ætterni hans þar átt einhvern hlut að máli.
Þess ber að geta, að Olaf hélt áfram að sporðrenna pylsum eins og hann gerði í Lundi til að falla inn í hópinn. Árið 1949, skömmu eftir að hann skráði samlanda sína fyrir sovéska leyniþjónustu og meðan að gyðingaofsóknir Stalíns voru sem ákafastar, ritaði Olaf Olsen grein í tímaritið Sovjet i Dag. Grein þessi bar titilinn 'Er der jødeforfølgelser i Sovjetunionen?'. Þegar GPU (fyrirrennari KGB) myrti listamanninn Solomon Michoels, þegar ríkisleikhúsi gyðinga í Moskvu var lokað, þegar gyðingum voru settar skorður til náms við háskóla og þúsundir gyðinga voru fangelsaðar og sendar í fangabúðir, þá skrifaði Olaf Olsen, að yfirlýsingar um þessa erfiðleika fyrir gyðingana væru aðeins "illkvittið og fjarstæðukennt slúður" ... "því vitaskuld væru ekki gyðingaofsóknir í Sovétríkjunum. Sérhver, sem hefði aðeins grundvallarþekkingu á kommúnistískri kenningu og sovét-rússneskri þjóðernispólitík, mætti skilja, að hvers konar kynþáttafordómar væru algjörlega óhugsanlegir í Sovétríkjunum", og enn fremur skrifaði hann að sovéskir gyðingar væru "frjálsari en gyðingar í nokkru öðru landi". (Sovjet i Dag, juli-august 1947).
Við sem höfðum Olsen sem lærimeistara fórum ekki varkosta af því að hann taldi sig vera mikinn "kommúnista". Sagði hann gjarnan frá langvinnri baráttu sinni við dönsk skattayfirvöld, sem ekki vildu gefa honum og öðrum húmanistum skattaafslátt á bókakaup sem tengdust fræðunum, en slíkan frádrátt gátu danskir læknar löngum skrifað á skattaframtalið og fengið góðan frádrátt. Lengi lifi byltingin!
Fyrir kommúnista var Olaf sæmilega sáttur við hirðir og kóngafólk. Hér er hann nýkominn af fundi og orðuveitingu hjá Danadrottningu.
Hina blindu sýn á Sovétinu virðist Olsen hafa varðveitt vel þegar hann var ekki í baráttu við skattayfirvöldin, því um miðbik 9. áratugarins var hann og miðaldafornleifadeildin við Árósarháskóla, sem þá var undir stjórn Else Roesdal cand.art. í miklu samstarfi við háskólann í Leníngrad og við frekar frumstætt "menntafólk" við háskólann þar í borg, sem m.a. höfðu sent samstarfsmann sinn, gyðinginn Leo S. Klein í Gúlag fyrir þær sakir að hann væri hommi.
Mér var m.a. boðið að fara til Nowgorod til að grafa í verkefni í þessu samstarfi. Ég afþakkaði strax gott boð, enda var ég upptekinn við eigin rannsóknir á Íslandi og þurfti því ekki að skýra afstöðu mína til Sovétríkjanna eða að ég á menntaskólaárum mínum hefði gengið með jakkamerki sem á stóð "Let my people go". Leo Klein, sem ég hef skrifað um áður (sjá hér), lifði af vist sína í gúlaginu. Þegar Klein kom í síðari fyrirlestraferð sína til Kaupmannahafnar í lok 10. áratugarins, bjó ég á Vandkunsten 6, beint á móti húsinu þar sem fornleifadeild háskólans í Kaupmannahöfn var lengi vel til húsa. Ég fór til að hitta aftur þennan merka mann og fékk blaðamann á Berlingske Tidende til að ræða við hann og skrifa grein um hann. Mjög fáir mættu á fyrirlestur hans. Þessi auma mæting varð til þess að Olaf Olsen, sem reyndar var ekki sjálfur viðstaddur fyrirlesturinn, skammaðist út í stúdenta í stúdentablaði Hafnarháskóla. Hann kallaði það skandal að svo fáir hefðu komið til að hlýða á hinn merka mann. Þá var mér nú hugsað til þess samstarfs sem Olsen hafði haft við háskólann í Leníngrad, meðan Leo Klein sat í Gúlaginu, þangað sem samstarfsmenn Olsens og Else Roesdahls lektors á Afdeling for Middelalder-Arkæologi í Árósum höfðu sent hann.
Eftir 006 vodka-class ár Olsens í þjónustu Sovétríkjanna, þegar hann var "ungur og einfaldur", hófst glæsilegur ferill í fræðimennskunni. Sumir hafa þó sagt við mig að Olsen hafi verið meiri "pólitíkus" en fræðimaður. Ekki legg ég neitt mat á það. Olsen skrifaði merka kandídatsritgerð um tukthús og barnavinnuhús Kristjáns konungs 4. Síðan kom doktorsritgerðin og 1971 var hann settur prófessor nýrrar deildar fyrir miðaldafornleifafræði við Árósarháskóla. Átti hann allan heiðurinn að stofnun þeirrar deildar. Þekktastur var Olsen fyrir rannsóknir sínar á Skulderlev-skipunum sem grafin voru upp í kví í Hróarskeldufirði á 7. áratug síðustu aldar. Sömuleiðis varð hann þekktur fyrir rannsóknir sínar á Víkinavirkinu Fyrkat nærri Hobro á Jótlandi, þar sem hann uppgötvaði m.a. að stoðirnar fyrir ytri stoðarholur skálanna á Fyrkat og Trelleborg á Sjálandi hefðu verið hallandi. Þetta breytti algjörlega þeirri hugmynd sem menn höfðu áður haft um útlit húsanna. Nákvæmar rannsóknir á stoðarholunum fékk Olaf til að skrifa grein, sem var skyldulesning og bar hún heitið Rabies Archeologorum. Þar predikaði Olsen að fornleifafræðingar ættu að skilja ákveðinn hluta fornleifa eftir í jörðu til að fornleifafræðingar framtíðarinnar gætu farið í saumana á því sem aðrir gerðu með betri aðferðum og meiri þekkingu.
Olaf Olsen var ekki þessi klisjukennda gerð af Indiana Jones-fornleifafræðingum, sveittum og skítugum í mismunandi ævintýralegum rannsóknarleiðöngrum. Olsen var hvítflibbafornleifafræðingur, sem oft er einkenni sagnfræðinga sem gerast fornleifafræðingar - eða fornleifafræðinga sem gerast sagnfræðingar. Olsen stjórnaði m.a. rannsóknum á Øm kloster á Austur-Jótlandi. Eitt sumarið, áður en ég hóf nám í Árósum, starfaði þar við rannsóknina bandarískur stúdent John Kudlik að nafni. Kudlik fékk nóg af snyrtimennsku Olsens, sem gekk í hvítum buxum og hvítum strigaskóm, sem aldrei virtust óhreinkast. Einn votviðradag þegar menn sátu og átu nesti sitt tók Kudlik sig til og hnoðaði drullukúlu á milli handanna og settist við fætur prófessors Olsens og gerði sér lítið fyrir og smurði hvíta strigaskó Olsens með forinni og sagði sísona: "I really hate how you can keep you shoes so fuc... clean". Olaf Olsen svaraði stutt og laggott: "Well".
Árið 1981 fékk Olsen stöðu Þjóðminjavarðar Dana og gegndi hann þeirri stöðu með glæsibrag fram til ársins 1995. Ekki voru þó allir ánægðir með Olsen, sem varð samnefnari mikils pólítísks niðurskurðar á Þjóðminjasafni Dana, þar sem safnið losaði safnið við vesalinga og hálfdrættinga í fræðunum sem bara höfðu setið þar árum saman og þegið laun og aldrei áorkað nokkru í fræðunum sem um var talandi. Gekk Olaf á þessum árum meðal sumra hatursmanna sinna undir nafninu 0-Olsen (Núll Olsen). Kom þetta nú aðallega af því að hann undirritaði bréf O.Olsen.
Síðari ferð Olafs Olsens til Íslands lagði hann í árið 1994. Þá var haldinn fundur Þjóðminjavarða Norðurlandanna í Borgarnesi, og sá ég og annar starfsmaður Þjóðminjasafns Íslands um undirbúning stefnunnar. Ráðstefnunni í Borgarnesi lauk með skemmtiför um Snæfellsnes, sem var Olsen mjög eftirminnileg. Daginn eftir var haldin veisla Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar á Hótel Holti, sem sló út allt í mat og drykk sem áður hafði sést á ráðstefnum þjóðminjavarðanna. Villigæs var í matinn og hélt finnski þjóðminjavörðurinn mikla lofræðu um veisluna í eftir-eftirrétt. Við sem um undirbúning fundarins höfðum séð, prísuðum okkur sæla fyrir að hafa haldið öllu innan fjárveitingarinnar til fundarins. Þeirri ánægju stútaði Þór svo fyrir okkur með því að panta dýrasta koníakið á Íslandi og vindla á línuna í koníakstofu Hótel Holts. Hann leit ekki einu sinni á verðið i verðlistanum sem þjónninn afhenti honum. Sjaldan hef ég fengið svo gott koníak en naut þess ekki sem skyldi.
Árið 2014 tók Olsen við verðlaunum afhentum af Danadrottningu. Bernskubrekin, þegar hann setti t.d. Niels Bohr á lista fyrir Rússana, komu ekki að sök.
Meðan Guðmundur Magnússon var settur þjóðminjavörður, þegar menntamálaráðuneytið íhugaði hvað gera skyldi við Þór Magnússon sem hafði verið vikið frá um tíma af brýnni nauðsyn, fór ég nokkrum sinnum á fundi þjóðminjavarða Norðurlanda sem staðgengill Guðmundar. Ég var eitt sinn staddur í Kaupmannahöfn og hafði tilkynnt fjarvistir mínar úr einum af hádegisverðunum á Þjóðminjasafni Dana á milli fundahalda. Ég þurfti að hitta góðan vin minn, sagnfræðinginn og blaðamanninn Bent Blüdnikow, á kaffihúsi rétt hjá safninu. Olsen, sem líklegast var enn ekki búinn að gleyma því að ég var ekki lengur nemandi hans á fyrsta ári sem byrtist bjúgnefnaður á fyrsta fund ársins í studienævnet, spurði mig af hverju ég kæmi ekki með í mat, og sagði ég honum frá því. Varð hann þá mjög önugur og gat ekki setið á sér og kallaði vin minn Bent frekar ljótum nafni (den Bandit).
Vissi ég vel, að Olsen var ekki hlýtt til Blüdnikows sem ítrekað hafði gagnrýnt Olsen opinberlega í greinum í Weekendavisen, fyrir stjórn útgáfu danska alfræðiritsins. Gagnrýnin var mestmegnis fyrir að ekki væri skrifað rétt, eða yfirleitt nokkuð af viti um samband danskra kommúnista við við herrana í Moskvu á tímum kalda stríðsins. Olaf Olsen hafi oft orðið fyrir orrahríð Blüdnikows um menn sem ekki höfðu gert upp við blakka fortíð sína sem skósveinar herranna í Moskvuborg. Kom þessi fundur minn með Blüdnikow aftur til tals á einum fínasta veitingastað Kaupmannahafnar, Restaurant Els, þegar kona Olafs, Agnete Olsen, spyr mig um tengsl mín við Bent Blüdnikow. Skýrði ég hreinskilningslega frá því, enda getur maður vel verið vinur tveggja manna, þó svo að þeir séu óvinir - nema að maður sé illa haldið og sært hópdýr sem lifir eftir mottóinu "óvinir vina minna eru óvinir mínir".
Eitt af síðustu verkum Olafs Olsens sem þjóðminjavarðar tengdust einnig Íslandi. Olaf gaf góðfúslega leyfi sitt, sem þjóðminjavörður Dana, til að silfursjóður sem fannst að sögn að Miðhúsum austur á landi yrði rannsakaður á vegum Þjóðminjasafns Dana eftir að breskur sérfræðingur í silfri víkingaaldar hélt því fram að eitthvað væri bogið við sjóðinn (og heldur hann því enn fram, nú síðast í skýrslu frá einum af alþjóðlegu Víkingafundunum). Sú rannsókn Þjóðminjasafns Dana er samkvæmt öðrum breskum sérfræðingum einskis virði (sjá hér). Niðurstöður rannsóknarinnar á Nationalmuseet i Kaupmannahöfn voru settar fram í fjölmiðlum af sérsveit Þórs Magnússonar, á þann hátt, að halda mætti að danska rannsóknin staðfesti að sjóðurinn væri allur frá söguöld. Svo er nú ekki og fölsuðu þrír íslenskir einstaklingar í raun niðurstöður danska þjóðminjasafnsins. Nokkru árum síðar þegar ég var búsettur í Kaupmannahöfn, greindi ég Olsen frá afleiðingum sem þessi mistúlkun íslenskra embættismanna, sem hvorki voru læsir á dönsku né almenna siðsemi. Var hann mjög leiður yfir útkomunni og sagðist aldrei hafa veitt leyfið ef hann hefði vitað hvernig niðurstaða rannsóknarinnar var misnotuð. Meira gerði hann nú ekki og þótt mér það miður.
Nokkru síðar var ég aftur í síma- og bréfasambandi við Olsen, sem ég hitti reyndar endrum og ein á gangi í Kaupmannahöfn, þar sem hann og kona hans voru lengi með íbúð ekki langt frá þar sem ég bjó um tíma á Vandkunsten númer 6, 4. hæð til hægri. Oft keypti hann blóm hjá blómasala sem á þeim árum var á Vandkunsten, í húsinu við hliðina á húsinu sem ég bjó í. Við rannsóknir mínar á afdrifum gyðinga sem sendir höfðu verið úr landi og í dauðann af dönskum yfirvöldum á stríðsárunum (sem að hluta til voru gefnar út í bókinni Medaljens Bagside, 2005, sem má finna á góðum íslenskum bókasöfnum), rakst ég á upplýsingar um gyðinginn Dr.jur. Wilhelm Lewinski (f. 1903), sósíalista og jafnvel marxista, sem m.a. reyndi að komast til Íslands eða Færeyja. Kom í ljós í skjölum dönsku ríkislögreglunnar, að faðir Olsens og móðir höfðu tekið Lewinski upp á arma sér, og bjó hann m.a. hjá þeim um tíma áður en honum tókst að komast til Suður-Ameríku, n.t. Kólombíu. Foreldrar Olafs hýstu reyndar nokkra pólitíska flóttamenn, bæði gyðinga og aðra á heimili sínu í Árósum. Olaf skrifaði mér 17. júní árið 1997 og sagði að Wilhelm Lewinski hefði komið sem ferðamaður 10 árum fyrr og heimsótt móður Olafs, Agnete Bing Olsen. Þá hefði Lewinski íhugað að flytja til Kaliforníu, þar sem dóttir hans bjó. Reyndar bjó Lewinski þá í Chicago og andaðist árið 1989.
Síðast hitti ég Olsen árið 2011 um haustið, þegar haldið var upp á 40 ára afmæli Miðaldadeildarinnar í Árósum. Hann hafði tíma til að ræða lítillega við mig og spurði mig hvernig gengi. Ekki óraði mig þá fyrir því að hann myndi komast í sviðsljósið ári síðar sem eini danski njósnarinn á kaldstríðsárunum sem hengdur var út í fjölmiðlum eftir rannsóknir á þeim kafla í ljótri sögu Danmörku á 20. öld.
Ekki minnkaði hróður hans í öðrum þjóðfélagsstigum, þrátt fyrir bernskubrekin, því hann var verðlaunaður af sjálfri Danadrottningu árið 2013. Síðustu tvö árin gáfu fæturnir sig og hann var bundinn við hjólastól og hefur örugglega þótt það bölvanlegt þekki ég hann rétt. Höfuðið var víst alveg i orden að sögn frænda hans eins og sumra vina hans sem ég hef talað við. Leiðinlegt hefur honum öruggleg þótt, hvernig deildin hans gamla við Árósarháskóla var soðin saman við aðrar deildir, þannig að nafn hennar er eiginlega ekki lengur til, og kennsla og kennarar í miðaldafornleifafræði í Árósum eru ekki af sömu gæðum og fyrr. Af er það sem áður var, en lengi mátti sjá hvert stefndi. Hlutirnir visna þegar engin er næringin og ég bið engan eftirmanna Olsens á deildinni afsökunar á þeirri skoðun minni, og segi hana alveg kinnroðalaust.
Eftir þessa Sögu Ólafs flugumanns hins Austræna, og sama hvað mönnum þykir nú um Olaf Olsen, þá er það mín skoðun að þetta hafi á margan hátt verið mjög merkilegur karl, og ekkert verri þótt honum hefði orðið á í messunni fyrr á lífsleiðinni. Humanum errare est, auðvitað mismikið þó.
Olaf Olsen verður borinn til grafar við kirkjuna á Alrø nærri Horsens nk fimmtudag. Á eyjunni bjó hann lengi ásamt annari konu sinni, sagnfræðingnum Rikke Agnete Olsen, sem lifir mann sinn.
Minningargrein | Breytt 24.1.2025 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Les boys are here again
10.11.2015 | 10:13
Politiken og andre danske dagblade har påtaget sig rollen som groupie-blade for "rockstjernen" Søren Kam. Kam skriver nu, mærkeligt nok, om sit landsforræderi, helt frisk fra graven men godt hjulpet af to danske historikere; Udgiveren er forlaget Lindhardt & Ringhof, som så udmærket ved at tusindvis af skøre, midaldrende danske mænd elsker og dyrker sine nazister. Nazi-svin sælger altid godt i Danmark, specielt op til jul. Nazibogen i år hedder Et liv uden fædreland, som er en ganske fejlagtig titel, for Søren Kam valgte med sine handlinger et andet fædreland end Danmark.
Politikens medarbejdere forstår tilsyneladende ikke, at Søren Kam og hans åndsfæller er pendanten til nutidens ISIS-soldater og Hizbut Tharir-medlemmer. Der er ikke, og bliver aldrig, noget rockstjerneagtigt over denne kriminelle dansker, som aldrig fik den straf som han fortjente.
Den danske stat, sammen med den tyske, hjalp charlatanen Søren Kam til en fredelig tilværelse i alderdommen. At udgive Kams "memoirer", er en skændsel mod hans ofre og forherligelse af den ideologi som han fulgte hele sit liv.
Når to historikere udgiver en bog af Kam, hvori der intet nævnes om den kamp som Simon Wiesenthal Center og andre har kæmpet, for at få nazisten og morderen Søren Kam retsforfulgt, så er de to historikere Kams forlængede og rejste arm. Sådan en indholdsfriseret bog er af ringe betydning for forskningen når den næste ikke henviser til eksisterende forskning og udgivne bøger om Kam, f.eks. journalisten Erik Høgh Sørensens bøger. Politikens og andre avisers opblæste reklame for Søren Kams dødsbiografi, hvorfra billedet her foroven stammer (det findes i en usminket tilstand i bogen, og det er forsangeren Kam i midten) er fuldstændig ude af proportioner og kan slet ikke forstås i forhold til Politikens ellers så fine moral og påståede eneret på alt som er rigtigt og korrekt.
Kam glemte sine møder med Werner Best i 1943
Når historikerne der udgiver værket ikke har opdaget en af Kams værste udeladelser, så bliver man nødt til at stille spørgsmålet, hvorfor man i det hele taget udgiver den slags nazi-litteratur? Historikerne, hvoraf den ene er intet mindre end "eksperten" i Werner Bests levned i Danmark, har overset, at Kam lige inden mordet på redaktør Carl Henrik Clemmensen i 1943 havde et møde med Rigsbefuldmægtigede Werner Best. Dette fremgår af Bests tjenestekalender (originalen befinder sig stadig i en privatejers samling!). Oplysningerne om møderne er heldigvis udgivet i to af Erik Høgh Sørensens seneste bøger om Søren Kam. Men Kam selv beretter intet om de seks møder som han i 1943, som relativt lavt rangeret SS-mand (Unterscharführer), havde med Nazistyrets øverste leder i Danmark. Den sluger læseren så som det rå rødkål til anden fra dammen, fordi eksperterne har vist det sløvsind ikke at korrigere denne væsentlige mangel/vildledning i Kams memoirer.
Søren Kam griner ad os fra graven i Tyskland, sit hjemland efter 1941. Tidspunktet for udgivelsen af hans løgne er perfekt, nu når halvdelen af danske besættelsestidshistorikere er af den mening, at den danske kollaboration med besættelsesmagten var en himmelsk velsignelse. Det var ikke blot nazistiske miljøer som feterede Søren Kam som en slags "rockstjerne". Nutidens historikere er også ivrige groupies og nyttige idioter.
Helförin | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Norðmenn eru sögulaus þjóð
1.11.2015 | 06:31
og það háir þeim greinilega svo mjög að þeir eru nú farnir að fjöldaframleiða Flateyjarbók með teikningum eftir teiknisögulistamann, sem myndskreytir í sunnudagaskólastíl, sem hann mun hafa alist upp í ef trúa má Herópinu norska hér á árum áður (sjá hér). Hallelúja og amen!
Í fréttum Stöðvar 2 í gær mátti sjá nokkur verk Anders Rue Kvåle (myndin efst er af honum). Meðal annars má sjá norska kletta á Lögbergi. Þetta eru kjánalegar klisjur sem minna á sunnudagaskólamyndir amerískra sértrúarsafnaða.
Kerlingarnar með skuplurnar frá 8. áratugnum eru greinileg enn sexí í þessum "víkingalistiðnaði". Indíánarnir á Vínlandi eru hrein fjarstæða. Víkingalistamaðurinn Andrés hrjúfi frá Hváli hefði gert sjálfum sér og öðrum greiða ef hann hefði haft Íslandskort sér við hlið. Þá hefði ekki gosið í Vestmannaeyjum árið 1000 eins og á þessari mynd:
Í myndefninu fer "den konstruktive sagakritikken" hans Þorgríms frá Tittlingastöðum (Torgrim Titlestad) út um þúfur og víðan völl. Fornleifafræði, listfræði og lágmarks heimildagagnrýni virðist lítt geðjast prófessornum úr Stafangri. Eins og öllum má vera ljóst er Flateyjarbók uppspuni einn, ritaður af landeyðum til að komast í mjúkinn hjá norskum herrum. Alltaf sama sagan. Það sem nú hefur verið prentað í Noregi, og ber sama nafn og öndvegisrit okkar, er nútíma glansmyndasafn sem líklegast hefði glatt meðlimi "Hirðarinnar" í Norsk Nasjonal Samling meira en nokkra aðra. Þessi útgáfa er tær tímaskekkja!
Norðmenn fá að kjassa Flateyjarbók
Mér til mikils hryllings eru greinilega enn til Íslendingar sem setja öll lög og reglur úr sambandi til að þjónkast við duttlunga erlendra manna sem hafa áhuga á Íslandi. Meðan íslenska þjóðin hefur vart fengið að sjá Flateyjarbók nema ljótum kassa við Suðurgötu, og um tíma í öðrum kassa við Hverfisgötu, sem ekki var gætt nógu vel fyrir Forstöðukonu Árnastofnunar, svo hún lét fjarlægja handritin sem voru í vörslu annarrar forstöðukonu - þá getur norskur klisjumyndaframleiðandi og sagnfræðingur, sem hefur fengið einhverja flugu, fengið að hampa okkar rómaða menningararfi án þess að hafa hanska, líkt og einhver vergjörn norsk smástelpa sem fær að flaðra upp um Justin Bieber.
Fyrr má nú fyrr vera. Íslendingar eru fífl, enda flestir komnir af Norðmönnum. Það er ættarsvipur á mörgu. Nú má búast við halarófu af fólki sem kemur til landsins til að láta mynda sig með Flateyjarbók. Það liggur við að maður segi: Handritin aftur til Kaupmannahafnar!!!
Þorgrímur úr Ballarkoti fékk líka að handfjatla menningararfinn í Þjóðmenningarhúsinu. Kannski var þetta tilefnið til þess að bókin var tekin þaðan í fússi af Guðrúnu Nordal? Eitthvað yrði nú sagt ef ég vippaði mér upp í Oseberg-skipið á skítugum skónum með tilvísun til þess að formóðir mín, Sigríður Svarta, hefði verið heygð í því. Ætli ég fengi ekki svítu við hliðina á berserknum Breivík fyrir slík helgispjöll?
Handritin | Breytt s.d. kl. 06:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sonur forsetans dæmdi mann til dauða
25.10.2015 | 16:43
Ég sit þessa dagana og næstu mánuðina ásamt öflugum dönskum sagnfræðingi og leita uppi Dani sem gengu í SS-Frikorps Danmark 1942-43, og sem síðar voru þjálfaðir voru í illræmdum fangabúðum og vinnubúðum SS, Waldlager nærri Bobrusik í Hvítarússlandi. Þar voru gyðingar myrtir í þúsundatali og voru morð á gyðingum liður í þjálfun SS-manna frá Danmörku og annars staðar frá. Við vonumst til að finna á lífi einhverja þeirra 800 - 900 Dana sem fengu þjálfun í Bobruisk.
Fjöldi þessarar Freikorpssveitarmanna féll á Austurvígstöðvunum, Króatíu og víðar í þjónustu Þýskalands, en margir komust líka aftur heim. Þeir sem aftur sneru fengu 2-6 ára dóma, þá þyngstu fyrir skítlegt eðli sem þeir sýndu í Danmörku en alls ekki fyrir "störf" sín í Bobruisk. Framferði Danskra Frikorps-manna við gyðingadráp höfðu dönsk yfirvöld engan áhuga á. Flestir danskra Frikorpsmanna sem voru í Bobruisk voru sloppnir aftur út í þjóðfélagið eftir 1-2 ára vist í fangelsi. Tveir þessara manna voru þegar fundnir á lífi áður en rannsókn okkar Larsens fyrir Simon Wiesenthal Center i Jerúsalem hófst, og gengur annar þeirra, Helmuth Leif Rasmussen, frjáls ferða sinna um götur Kaupmannahafnar og hefur aldrei verið sóttur til saka fyrir þátttöku sína í gyðingamorðum í búðunum í Hvíta-Rússlandi. Hann hlær af fórnarlömbunum, m.a. þegar hann heldur því fram að hann hafi mestar áhyggjur af því að "vinir hans sem séu gyðingar snúi við sér bakinu" vegna upplýsinga um veru hans í búðunum í Hvítarússlandi.
Þegar íslenskur nasistaveiðimaður veiðir dönsk illfygli í dönskum skjalasöfnum er alltaf einhver aukaafli, fyrir utan kvótann. Ég hef þegar rekist á upplýsingar um íslenska nasista, þó ekki menn sem tóku þátt í gyðingamorðum í Waldlager við Bobruisk
Sonur forsetans
Þekktastur allra íslenskra nasista er líklega sonur fyrsta forseta lýðveldisins, sonur Sveins Björnssonar, Björn Sv. Björnsson. Um hann hefur verið rituð mikil ógrynni af efni í bókinni Berlínarblús, sem og í æviminningum Björns sem Nanna Rögnvaldsdóttir ritaði og sem út kom árið 1989. Nýlega birtist einnig grein á vefsíðunni Lemúrnum, þar sem birt voru áhugaverð gögn um Björn Sv. Björnsson sem ekki höfðu áður sést. Mesta furðu mína við lestur athugasemda við þá grein vakti það hve rómaður Björn Sv. Björnsson var meðal sumra samferðamanna sinna og nemenda.
Björn sýndi ófína takta á Stöng í Þjórsárdal árið 1986
Ég hef sjálfur mætt þessum manni tvisvar á ævinni. Fyrst sá ég hann ungur að árum þegar hann lék á fiðlu í uppsetningu óperettu í skóla á Seltjarnarnesi, þar sem annar hver söngvara söng rammfalskt. Afi mín og amma drógu mig og systur mínar með á þessa hörmung. Annað skiptið sem ég rakst á Björn var þegar hann kom sem fararstjóri með hóp þýskra ferðamanna að Stöng í Þjórsárdal, þar sem ég stýrði fornleifarannsóknum. Þetta var sumarið 1986.
Ég og 2-3 samstarfsmenn mínir voru önnum kafin við teikningar og ljósmyndun áður en rigning gerði vinnu okkar ófæra. Þegar Björn Sv. Björnsson, sem gekk með staf vegna bæklunar, hefur kjagað upp að Stöng, heimtaði hann með frekju og yfirgangi að ég héldi ræðu um rannsóknirnar fyrir þýsku ferðamennina. Ég segi honum fyrst mjög kurteislega að ég hafi ekki tíma til þess. Þá reiddist Björn, sem greinilega var vanur að fá það sem hann vildi þegar hann skipaði mönnum fyrir. Hafði hann í hótunum við mig um að hafa samband við Þjóðminjasafnið og Þjóðminjavörð og kæra mig. Ég sagði honum þá eftir stundarþögn, því fokið var í mig, að það væri honum velkomið að gera þar sem þessi rannsókn væri alls ekki á vegum Þjóðminjasafnsins, en ég gæti vitaskuld einnig sagt samferðafólki hans öll deili á honum og það á þýsku, sem og að ég teldi hann ekki vera Íslending. Við það lyppaðist karlinn niður og sagði ekki aukatekið orð, vappaði síðan um eins og særður fugl og haltraði niður hólinn. Rútubílstjórinn hans, sem varð vitni að ófyrirleitinni framkomu Björns í minn garð sem og erlendra samstarfsmanna minna, og blöskraði það, tjáði mér frá uppákomum á ferðum sínum með honum og sagði mér sögu af því hvernig Björn Sv. Björnsson hafði fengið hóp af þýskum gamlingjum til að syngja gamla nasistasöngva þegar hópurinn var staddur á Edduhótelinu í Skógum undir Eyjafjöllum.
Framkoma Björns Sv. Björnssonar á Stöng sýndi mér eðli þeirra manna sem heilluðust af nasismanum.
Faðir Björns Sv. Björnssonar, Sveinn Björnsson forseti, ræðir við Franklin D. Roosevelt í Hvíta Húsinu árið 1945.
Sonur forsetans dæmdi mann til dauða
Við vinnu mína í Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn, hef ég þegar rekist á nafn Björns í fjórum mismunandi dómsmálum. Í tveimur málum kemur hann við sögu sem settur útvarpsstjóri SS í danska Ríkisútvarpinu, þar sem hann hafnar vinnuumsókn eins manns. Í öðru máli gegn dönskum SS-manni kemur nafn hans fyrir á lista danska nasistaflokksins yfir Danska SS-liða, sem gengið höfðu i SS í Þýskalandi fyrir árslok 1943.
Það sem vakti þó mesta undran mína, m.a. vegna þess að það hefur ekki komið fram í ævisögu Björns eða öðrum bókum, er að að Björn Sv. Björnsson var skipaður í dómarasæti þann 30. apríl 1945 og dæmdi ásamt 2 öðrum SS-mönnum fyrrverandi danskan SS-mann til dauða fyrir liðhlaup og þjófnað:
"In der Strafsache gegen den dänischen Staatsangehörigen
SS-Rottenführer N.N.
Geb. 31.1.1915 in B...
SS-PZ. Gren. A.u.E. Batl. 11, Graz,
wegen Fahnenflucht u.a.,
hat das am 30. April 1945 in Kopenhagen zusammengetretene Feldgericht, an dem teilgenommen haben
als Richter:
SS-Hauptsturmführer und SS-Richter Dr. Espig, als Vorsitzer,
SS-Untersturmführer Björnson
SS Standarte "Kurt Eggers",
SS-Sturmann Dahlmann
SS-Standarte "Kurt Eggers", ...
...
für Recht erkannt:
Der Angeklagte N.N. wird wegen Kriegsverrats, Fahnenflucht im Felde, Preisgabe von Dienstgegenständen in 2 Fällen, Einbruchdiebstahls in 2 Fällen und wegen einfachen Diebstahls
zum Tode
Verurteilt, aus der SS ausgestossen und für wehrunwürdig erklärt."
Björn Sv. Björnsson, dauðadómari og síðar fararstjóri
Dómurinn yfir liðhlauparanum frá Fjóni var staðfestur þann 3. maí 1945, deginum fyrir uppgjöf Þjóðverja, og var dómnum að öllum líkindum þess vegna ekki framfylgt.
Í Berlín var árið 1944 skrifað á eftirfarandi hátt um íslenska SS-manninn Björn Sv. Björnsson:
"Sem yfirmaður Kaupmannahafnardeildar herdeildarinnar [Standarte Kurt Eggers] hefur Björnsson liðsforingi unnið framúrskarandi starf í nýliðun Waffen-SS-sveitanna og aukið ítök í dönskum fjölmiðlum. Reyndist einnig vel í bardaga sem hermaður við innrásina í Sovétríkin. Er sonur núverandi forseta Íslands, sem ber að hafa sérstaklega í huga við mat á frammistöðu og verkum hans".
Nú vitum við, að hinn ólánssami sonur forseta Íslands var einnig reiðubúinn að dæma aðra ólánssama menn til dauða, og fór létt með það. Það sýnir okkur að seint ber mönnum að treysta sjálfsævisögum og metsölubókum um nasista sem gefnar eru auðtrúa fólki sem jólagjafir.
Besættelsestiden | Breytt 18.2.2025 kl. 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)